Morgunblaðið - 27.06.2006, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Benedikt Þor-steinsson fædd-
ist á Seltjarnarnesi
22. janúar 1946.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 16. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Þorsteinn Halldórs-
son, f. á Seyðisfirði
2. apríl 1916, d. 10.
júní 1990, og Ást-
hildur Kristjáns-
dóttir, f. á Snæfells-
nesi 6. september
1917, d. 12. október 1993. Systk-
ini Benedikts eru Halldór Ben, f.
5. maí 1942, d. 29. september
1999, Þórarinn, f. 4. júlí 1943, d.
19. desember 1975, Steinþór, f.
31. júlí 1947, Jónína Ingibjörg, f.
20. september 1948, og Erla
Kristjana, f. 9. maí 1953.
Benedikt kvæntist 24. desem-
ber 1964 Önnu Albertsdóttur, f.
4. október 1940. Foreldrar henn-
ar voru Albert Sighvatur Brynj-
ólfsson, f. 18. ágúst 1907, d. 29.
júlí 1991, og Hansína Lovísa
Ingimundardóttir, f. 5. maí 1910,
d. 21 september 1998. Benedikt
og Anna eignuðust þrjár dætur,
þær eru: 1) Ásthildur, f. 31. júlí
1962, gift Þorleifi Geir Sigurðs-
syni. Börn þeirra eru Anna
María og Sigurður Már. 2) Birg-
itta, f. 29. janúar 1967, sambýlis-
maður Aðalsteinn Hólm Guð-
brandsson. Börn þeirra eru
Alexandra og Vic-
toría. Sonur Birg-
ittu frá fyrri sam-
búð er Benedikt
Þór Ásgeirsson. 3)
Ásrún Linda, f. 26.
janúar 1971, sam-
býlismaður Magnús
Högnason. Börn
þeirra eru Albert
Brynjar og Ebba
Ingibjörg.
Benedikt hóf sinn
sjómannsferil hjá
Ríkisskipum á ms.
Esju mjög ungur að
árum. Hann stundaði sjó-
mennsku mestan hluta starfsævi
sinnar, lengst af á Kambaröst SU
frá Stöðvarfirði, Gissuri ÁR frá
Þorlákshöfn og á varðskipum
Landhelgisgæslunnar. Benedikt
stundaði einnig margvísleg
smíðastörf, á Stöðvarfirði, í
Reykjavík og í Vatnsfellsvirkjun.
Síðustu æviárin sinnti Benedikt
ýmsum störfum fyrir Landhelg-
isgæslu Íslands, á varðskipum fé-
lagsins, í flugskýli á Reykjavík-
urflugvelli og í vaktskýli við
höfnina í Reykjavík. Benedikt og
Anna bjuggu lengst af á Stöðv-
arfirði eða frá 1962 til 1983, þá
fluttust þau til Reykjavíkur og
síðar í Kópavoginn. Benedikt og
Anna voru búsett í Lautasmára
27 er Benedikt lést.
Benedikt verður jarðsunginn
frá Háteigskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Þá er lífsgöngu afa okkar lokið.
Benni afi, eins og við höfum alltaf
kallað hann, var besti afi sem við
hefðum getað fengið, og óskað
okkur.
Hann var rosalega traustur og
fann maður fyrir umhyggjunni sem
hann bar til okkar í hvert skipti
sem við komum í heimsókn. Það er
erfitt að finna orð sem lýsa afa ná-
kvæmlega eins og hann var, en eitt
er víst, hann var einstakur maður
með stórt hjarta.
Hann var mikilvæg fyrirmynd í
okkar lífi og vonum við að við kom-
um til með að erfa þá eiginleika
sem hann hafði og kenndi okkur.
Einn af þeim eiginleikum sem
hann hafði var að öllum líkaði vel
við hann, sama hvar hann var.
Hann var sá maður sem allir vildu
sitja við hliðina á í stórum sam-
komum.
Hann var frábær fjölskyldumað-
ur. Allir í okkar nánustu fjölskyldu
litu upp til hans og dýrkuðu hann.
Ef maður spyr einhvern úr fjöl-
skyldunni um það hvernig eigin-
maður, pabbi eða afi hann var, þá
eru allir sammála um að hann var
sá besti sem hægt var að hugsa
sér. Við þekkjum ekki mörg hjón
sem hafa haft það svona gott sam-
an eins og amma og afi höfðu, þau
voru svo góð við hvort annað og
alltaf gátu þau sýnt hvort öðru
hversu mikið þau elskuðu hvort
annað. Það er eitthvað sem maður
upplifir ekki oft í gegnum annað
fólk.
Hann var alltaf jafn hjálpsamur,
ef einhver sem hann þekkti þarfn-
aðist hjálpar var hann alltaf sá
fyrsti til að bjóða sig fram, alveg
sama hvernig aðstæðurnar voru
hjá honum. Hann hugsaði alltaf
fyrst og fremst um alla aðra í
kringum sig, og sá alltaf til þess að
hans nánustu hefðu það gott. Hann
lagði alltaf hart af sér og vann
virkilega fyrir því sem hann átti.
Honum leið best þegar hann gat
hjálpað sínum nánustu við að gera
líf þeirra ánægjulegra.
Þú munt alltaf eiga stað í hjart-
anu okkar allra.
Þín barnabörn,
Anna María, Benedikt Þór,
Albert Brynjar og
Sigurður Már.
Það er skrítið að vera að skrifa
minningargrein um afa svona ung-
an að aldri. Ég hafði alltaf ímynd-
að mér að við ættum eftir að eiga
mörg ár saman. Allt byrjaði með
því að ég var skírður í höfuðið á
honum þegar ég fæddist og hefur
mér síðan verið líkt mjög mikið við
hann. Ég hef alltaf litið voða mikið
upp til afa og alltaf notið þess að
vera með honum.
Nú, þegar ég var orðinn aðeins
eldri vorum við farnir að geta talað
saman á allt öðru máli.
Við vorum farnir að hafa sömu
áhugamál á sumum sviðum, og gát-
um talað um suma hluti endalaust.
Við áttum eftir að upplifa fullt
saman, bæði þú og ég og öll fjöl-
skyldan.
Það er ekkert sem ég hefði get-
að óskað mér heitar en að mín eig-
in börn hefðu fengið tækifæri til að
hitta afa. Hitta besta afa í öllum
heiminum.
Það skipti mig mjög miklu máli
að ég var hjá honum og hélt í
höndina á honum þegar hann
kvaddi og ég vona að hann hafi það
gott núna og ég veit að hann mun
alltaf vaka yfir mér.
Afi hefur skipt rosalega miklu
máli í lífi mínu og ég mun aldrei
gleyma honum.
Mér þykir svo innilega vænt um
þig, afi.
Benedikt Þór.
Þá er elsku afi minn farinn frá
okkur, það er erfitt að koma orðum
að því hversu erfitt það er að sætta
sig við þetta og átta sig á þessu.
Afi var svo ungur og lífsglaður
maður, og ég hélt og vonaði að
hann ætti mörg ár eftir með ömmu
og allri fjölskyldunni.
Afi var alltaf til staðar fyrir mig
ef ég þurfti eitthvað, hvort sem
það var skutl eða leiðbeiningar
með eitthvað sem lá á mér. Afi var
einn örlátasti og umhyggjusamasti
maður sem ég hef kynnst, og verð-
ur hans sárt saknað.
Ég met það mikils að hafa fengið
tækifæri til að kynnast honum
svona vel eins og ég gerði núna á
síðustu árum. Við eyddum til dæm-
is þó nokkrum stundum í steikj-
andi hita liggjandi kylliflöt í sól-
baði á Spáni og fyrir framan
tölvuna heima í Lautasmára. Þetta
eru stundir sem ég mun aldrei
gleyma.
Afi mun alltaf eiga ákveðinn
hluta af mér og ég mun aldrei
gleyma honum.
Ég elska þig að eilífu.
Þín,
Anna María.
Ég kynntist Benna, eins og við
kölluðum hann, sumarið 2002. Þá
urðum við skipsfélagar hjá gæsl-
unni.
Það eru góðar minningar sem
koma upp í hugann á þessum tíma
um skemmtilegt spjall við góðan
og þægilegan vin, þau ár sem við
sigldum saman á Óðni og Tý.
Eftir að ég hætti hjá gæslunni
var spjallað af og til saman í síma
og oft komið við á bryggjunni í
kaffisopa þegar ég átti leið suður.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir).
Aðstandendum Benna votta ég
samúð mína.
Ragna Lína Magnadóttir
(Lína).
BENEDIKT
ÞORSTEINSSON
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.350 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
LEGSTEINAR
SteinsmiðjanMOSAIK
Hamarshöfða 4 – sími 587 1960
www.mosaik.is
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
MAGDALENA EIRÍKSDÓTTIR
(Balla),
Dvergabakka 28,
Reykjavík,
lést laugardaginn 17. júní.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mið-
vikudaginn 28. júní kl. 13.00.
Einar Þór Guðmundsson,
Unnur Ásgeirsdóttir,
Eiríkur Einarsson, Sigurlaug Þorsteinsson,
Þórður Einarsson,
Jenný, Óskar Þór og Arnar Axel.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur okkar, faðir,
tengdafaðir, afi, bróðir og mágur,
ÞORKELL BIRGISSON,
Skólastíg 26,
Bolungarvík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði að morgni
laugardagsins 24. júní sl.
F.h. aðstandenda,
Lilja Hálfdánsdóttir,
Haraldur Birgir Þorkelsson, Kristján Ingi Þorkelsson,
Kolbrún Íris Þorkelsdóttir, Davíð Örn Þorkelsson,
Helga Svandís Helgadóttir, Birgir Sigurbjartsson.
Elskulegur bróðir minn og móðurbróðir,
ÓSKAR GÍSLASON,
dvalarheimilinu Hornbrekku,
Ólafsfirði,
sem lést miðvikudaginn 21. júní, verður jarðsung-
inn frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 1. júlí
kl. 11.00.
Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna,
Sigríður Gísladóttir,
Óskar Gíslason.
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
ÓSKAR SIGURÐUR VILHJÁLMSSON,
Víðimýri 10,
Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks laugar-
daginn 24. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ingimar Vilhjálmsson, Guðrún Kristmundsdóttir,
Laufey Vilhjálmsdóttir, Árni P. Björgvinsson,
Sigurlína Vilhjálmsdóttir, Sveinn Árnason,
Elísabet B. Vilhjálmsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLI HAUKUR SVEINSSON
vélstjóri,
Háengi 19,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands laugar-
daginn 24. júní.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lilja Friðbertsdóttir.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
ANNA ÞÓRARINSDÓTTIR
sjúkraþjálfari,
Hraunvangi 1,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum laugardaginn 24. júní sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þórarinn Stefánsson, Ragnheiður Karlsdóttir,
Guðni Stefánsson, Ewa Sunneborn,
Tryggvi Stefánsson, Unnur Sigursveinsdóttir,
Valgerður Stefánsdóttir, Sigurður G. Valgeirsson,
Ástríður Stefánsdóttir, Jón Á. Kalmansson.