Morgunblaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 27 MINNINGAR ✝ Þorleifur Jóns-son fæddist í Hafnarfirði 10. maí 1933. Hann lést á gjörgæsludeild LSH í Fossvogi 15. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Svanhildur Margrét Jónsdóttir, f. 8. nóv- ember 1912, d. 21. október 1996, og Jón Bjarnason sjó- maður, f. 31. mars 1899, fórst með Ern- inum 1936. Systkini Þorleifs eru Guðlaug, f. 1931, maki Haukur A. Bogason, og Bergur, f. 1934, maki Gunnhildur Þorsteinsdóttir. Þorleifur kvæntist 15. október 1955 Jenný Lind Árnadóttur, f. 8. janúar 1936, d. 21. september 2002. Foreldrar hennar voru hjón- in Guðrún Jakobsdóttir og Árni Árnason á Akureyri, bæði látin. Þorleifur og Jenný Lind eiga sex börn, þau eru: 1) Jón, f. 15. októ- ber 1953, maki Sigrún Pálsdóttir, f. 24. nóvember 1956. Þau eiga þrjá syni og þrjú barnabörn. 2) Gunnar Árni, f. 1. apríl 1956, maki Theódóra Sif Pétursdóttir, þau eiga sjö börn, sex á lífi og fjögur barnabörn. 3) Sigurður Unnar, f. 20. júní 1958, maki Ingibjörg Að- alsteinsdóttir, f. 19. mars 1963, þau eiga sjö börn og þrjú barna- börn. 4) Kolbrún, f. 13. febrúar 1961, maki Harrý Samúel Herluf- sen, þau eiga fjögur börn og eitt barnabarn. 5) Símon, f. 31. mars 1963, maki Dorthe Möller Thor- leifsson, f. 24. júlí 1962, þau eiga þrjú börn. 6) Harpa, f. 19. maí 1966, maki Gestur Már Sigurðs- son, f. 1. janúar 1963, þau eiga tvo syni. Þorleifur ólst ásamt systkinum sínum upp á Sel- vogsgötu 4 (Strýtu) í Hafnarfirði hjá afa sínum og ömmu, þeim Jóni Þorleifs- syni og Guðlaugu Oddsdóttur. Bjó hann þar einnig sín fyrstu 10 hjúskaparár en þá byggðu þau Þorleifur og Jenný Lind Svalbarð 2, þau bjuggu á Svalbarðinu í 39 ár en þá fluttu þau að Vallarbarði 3. Þar bjó Þor- leifur til dauðadags. Þorleifur hóf fjórtán ára gamall vinnu og nám í Rafha í Hafnarfirði þar sem hann lærði rennismíði. Hann flutti sig svo yfir í Vélsmiðju Hafnarfjarðar eftir nám og starf- aði þar til 1972 er hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Vélaverk- stæði, á Eyrartröð 14 Hafnarfirði og rak það til 2002. Samhliða fastri vinnu stundaði Þorleifur bátaútgerð auk þess að vera með kindur og hænsni, einnig var Þor- leifur sýningarmaður í Bæjarbíói í 17 ár. Á sínum yngri árum starfaði Þorleifur með skátahreyfingunni, Sundfélagi Hafnarfjarðar og Fim- leikafélagi Hafnarfjarðar. Útför Þorleifs verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi, í dag fylgi ég þér síð- asta spölinn og munt þú hvíla við hlið elsku mömmu sem fór jafn skyndi- lega og þú. Hver fögur dyggð í fari manns er fyrst af rótum kærleikans. Af kærleik sprottin auðmýkt er, við aðra vægð og góðvild hver og friðsemd hrein og hógvært geð og hjartaprýði stilling með. Vér limir Jesú líkamans, er laugast höfum blóði hans, í sátt og eining ættum fast með elsku hreinni’ að samtengjast, því ein er skírn og ein er von og ein er trú á Krist, Guðs son. Ó, látum hreinan hjörtum í og heitan kærleik búa því, að eins og systkin saman hér í sátt og friði lifum vér, vor hæsti faðir himnum á sín hjartkær börn oss kallar þá. (Helgi Hálfdánarson) Hafðu eilífar þakkir fyrir leiðsögn- ina, þolinmæðina, hlýjuna og traust- ið sem þú veittir mér á lífsleiðinni. Ég elska þig alltaf. Kolbrún. Elsku pabbi. Það er svo sárt að þú sért farinn. Ég sakna þín svo mikið. En ég veit að þú ert kominn á staðinn sem þú vildir vera á. Hjá mömmu. Þú sakn- aðir hennar mikið. Ég sé ykkur fyrir mér eins og á myndini sem við systk- inin eigum. Sitjandi fyrir framan litla kofann í dalnum, nema núna haldist þið í hendur. Þú varst og ert besti pabbi í heimi. Það var alltaf hægt að leita til þín til að fá góð ráð og fá hjálp við ýmsu. Þú varst traustur og trúr og vinur vina þinna. Það verður tómlegt við matarborðið hjá okkur á kvöldin. Og að heyra ekki hroturnar í þér úr stofunni meðan ég var að elda. Við Gestur töluðum um það síð- ast þegar þú varst hjá okkur (sofandi í stofunni) að núna þyrftum við að hafa upptökutæki því að þú bókstaf- lega flautaðir meðan þú svafst. Við brölluðum margt saman ég og þú. Það voru ófáar kaffihúsaferðir, búða- ráp og út að borða í hádeginu. Og all- ir bíltúrarnir sem þú fórst með mér, Gesti og strákunum. Það voru skemmtilegir bíltúrar. Ég gæti sagt svo margt um þig elsku pabbi að það væri efni í góða bók. Þú varst líka góð bók, full af visku og fróðleik. Mig langar til að þakka þér fyrir að vera pabbi minn, afi og tengdapabbi, betri maður var ekki til. Og þakka þér fyr- ir að vera þú. Ég kveð þig í bili pabbi minn. Og óska þér góðrar ferðar og viltu kyssa hana mömmu frá mér. Ég elska þig. Sofi augu mín, vaki hjarta mitt, horfi ég til Guðs míns. Signdu mig sofandi, varðveittu mig vakandi, lát mig í þínum friði sofa og í eilífu ljósi vaka. Amen. (Úr litlu bænabókinni.) Þín dóttir Harpa. Elsku Bói. Sárt var að fá þessa frétt, ég var rétt kominn til hans nafna þíns þegar Jón hringdi og sagði okkur að verið væri að flytja þig á spítalann. Og næsta dag varstu farinn til Lillu. Ástarþakkir fyrir allt sem þú hefur kennt mér og hjálpað mér að þrosk- ast í gegnum þessi 33 ár sem við höf- um verið samferða, allar góðu minn- ingarnar sem enginn getur frá mér tekið. Ég var ansi ung þegar við kynntumst, rétt að verða sautján ára. Öll þessi ár höfum við átt gott samband, þú varst ekki bara tengda- pabbi heldur líka góður vinur. Vináttan er þá aðeins sönn, þegar tveir vinir finna hamingju í návist hvors annars án þess að talast við. (Georg Ebers). Þannig fann ég oft á milli okkar, oft voru orð óþörf. Sárt eigum við eftir að sakna þín, Dalurinn verður ekki samur án þín. Elsku Bói, með þessum orðum kveð ég þig, hafðu hjartans þökk fyr- ir allar góðu minningarnar, sem ég mun varðveita með mínum börnum og barnabörnum, svo minningin þín lifir áfram. Hafðu hjartans þökk mér horfin stund er kær. Í minni mínu, klökk er minning hrein og skær. Þú gengur um gleðilönd, Þér glampar sólin heið og við herrans hönd þú heldur fram á leið. Guð í alheimsgeim geisla sendu þinn. Til líknar ljáðu þeim ljós í myrkrið inn, er harmar þungir þjá og þjaka hjartasár, styddu og styrktu þá, strjúktu votar brár. (Páll Janus Þórðarson.) Þín tengdadóttir Sigrún. Elsku afi minn. Stór hluti af æskuminningum mín- um átti sér stað á Svalbarði 2 hjá þér og ömmu. Alltaf fann ég hlýju þegar ég kom til ykkar og fann svo sann- arlega fyrir því hversu velkomin ég var. Núna eruð þið amma sameinuð á ný og ég veit í hjarta mínu að þið hugsið vel hvort um annað og passið okkur hin sem eftir erum. Minning- arnar um þig í Þjórsárdal og á verk- stæðinu á Eyrartröð eru sterkar og mér finnst stundum eins og þú vinnir þar enn. Það var alltaf svo spennandi að koma í vinnuna til þín með ömmu, að fá að fara inn á skrifstofu og leika í símanum og fá kakó og kex. Kveðjustundin er sár en ég veit að þú ert á betri stað núna með ömmu. Ætli þið séuð ekki að slaka á í ein- hverju hjólhýsi eða veiða saman í nýjum Lillupolli. Ástarkveðja, Þorbjörg Ósk. Elsku afi og langafi. Núna er komið að kveðjustund. Ekki bjuggumst við við að kveðja þig strax. Við hlökkuðum svo til að kíkja í heimsókn til þín í Þjórsárdalinn í sumar. Það verður skrýtið að koma í dalinn og finna ekki afa Bóa að sýsla eitthvað við hjólhýsin. Við áttum margar góðar stundir með þér, afi, bæði í sælureitnum þín- um og í Danmörku hjá honum nafna þínum. Með þessum orðum kveðjum við. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Kveðja, Sigurpáll Marías, Helga Dröfn, Andri Örn og Hilmar Már. ÞORLEIFUR JÓNSSON Til afa Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Takk fyrir allt elsku afi. Alexander og Sigurður Már. HINSTA KVEÐJA Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG JÓNÍNA JÓNSDÓTTIR, lést á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 21. júní. Útförin fer fram frá Hólmavíkurkirkju miðviku- daginn 28. júní nk. kl. 14.00. Guðmundur R. Jóhannsson, Guðrún R. Valtýsdóttir, Marinó Jóhannsson, Guðrún Hupefeldt, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Jón Pálmi Þórðarson, Gunnar Jóhannsson, Rakel Jóhannsdóttir, Jónbjörn Bogason, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORKELL NIKULÁSSON fisksali, Hæðargarði 29, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju fimmtu- daginn 29. júní kl. 15.00. Hólmfríður Kristjánsdóttir, Helga Þorkelsdóttir, Andrés Þórðarson, Kristján Þorkelsson, Sigurdís Sigurðardóttir, Guðmundur Þorkelsson, Kristjana Stefánsdóttir, Guðríður Þorkelsdóttir, Guðmann Héðinsson, Viðar Þorkelsson, Sigríður Svava Þorsteinsdóttir, afabörn og langafabörn. Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, GUÐRÚN SIGRÍÐUR WORMSDÓTTIR frá Eiríksbúð, Arnarstapa, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 24. júní. Gullý Bára Kristbjörnsdóttir, Ágúst Geir Kornelíusson, Sigurborg Jenný Kristbjörnsdóttir, Kristín Hulda Kristbjörnsdóttir, Sveinn Sigurjónsson, Anna Björg Kristbjörnsdóttir, Ómar Árni Kristjánsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HELGI SIGURÐSSON, Brautarhóli, Svalbarðsströnd, verður jarðsunginn frá Svalbarðsstrandarkirkju fimmtudaginn 29. júní kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á aðstandendafélag hjúkrunar- heimilisins Sels. Margrét Jóhannsdóttir, Jóhann Helgason, Sigríður Helgadóttir, Sigurlína Helgadóttir, Hrefna Helgadóttir, Reymar Helgason, tengdabörn, afa- og langafabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR JÓNSDÓTTIR, Kórsölum 3, áður Rauðagerði 44, sem lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi föstudaginn 16. júní verður jarðsungin frá Bú- staðakirkju þriðjudaginn 27. júní kl. 13.00. Guðný Eygló Valtýsdóttir, Hulda Berglind Valtýsdóttir, Haraldur Sigurðsson, Erla Sólrún Valtýsdóttir, Tryggvi Þór Agnarsson, Ágúst Ómar Valtýsson, Reynir Bergmann, Víðir Bergmann, Hlynur Bergmann, Þór, Valgerður, Sigurður Valtýr, Elísabet Lára, Katrín Guðrún, Guðbjartur Ægir, Ásgeir Örn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.