Morgunblaðið - 27.06.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 29
MINNINGAR
✝ Björn Jónssonfæddist 18.
september 1922.
Hann lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 16. júní sl.
Hann var sonur
hjónanna Guðlaug-
ar Björnsdóttur, f.
6.10. 1893, d. 26.11.
1924, og Jóns Hall-
dórssonar, f. 29.9.
1884, d. 18.9. 1970.
Björn átti tvær
systur: Sigríði
Jónsdóttur, f. 15.
mars 1917. Eiginmaður hennar
Vigfús Jónsson er látinn og
bjuggu þau á Seyðisfirði. Krist-
borgu Jónsdóttur, f. 4. maí 1919,
d. 7. desember 2002. Eiginmaður
hennar er Sigurður Jónsson og
bjuggu þau í Vestmannaeyjum.
Við tveggja ára ald-
ur var Björn tekinn
í fóstur á Stapa í
Hornafirði af systk-
inunum Jóni, Halli
og Sigurlaugu Sig-
urðarbörnum. Upp-
eldisbræður hans
voru Þorleifur Þor-
leifsson (nú látinn)
og Rannver Stefán
Sveinsson. Um
nokkurra ára skeið
sá Björn um búskap
á Stapa. Árið 1967
fluttist hann í
Kópavog og þaðan til Reykjavík-
ur árið 1970 og bjó þar til ævi-
loka. Hann starfaði hjá Miðfelli
hf. til fjölda ára og endaði starfs-
feril sinn hjá Gasstöð Essó. Útför
fer fram frá Vídalínskirkju í dag
klukkan 13.
Í dag kveðjum við Bjössa frænda.
Þótt Bjössi væri ekki alvöru
frændi okkar, þá kölluðum við hann
alltaf Bjössa frænda.
Er við frændsystkinin vorum
heima hjá ömmu og afa í Kópi voru
alltaf fagnaðarfundir þegar Bjössi
frændi kom í heimsókn, alltaf var
jafn gaman.
Á fermingardaginn minn stoppaði
Bjössi stutt og færði mér fallegt
handverk, sem hann hafði þá búið til
sjálfur, rennt og skorið út.
Á Þorláksmessu var föst venja að
heimsækja Bjössa frænda, og færð-
um við honum jólakökur og skreyt-
ingu. Hann var alltaf jafn ánægður
þegar við komum í heimsókn og
gaman var að sjá hvað jólaskreyting-
arnar hans voru skemmtilegar og
öðruvísi.
Þegar ég og mamma fórum upp á
spítala leið Bjössa ekki vel. Mér
fannst gott að geta komið og haldið í
höndina hans og ég trúi því að Bjössa
hafi þótt gott að geta haldið í hönd
mína, en ég spyr þig bara seinna
þegar leiðir okkir liggja saman.
Núna er Bjössi frændi minn kom-
inn á betri stað og er örugglega orð-
inn hress og kátur eins og honum var
einum lagið.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Hvíldu í friði, elsku Bjössi.
Nanna Bryndís Snorradóttir.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem.)
Eins og segir í sálminum er margs
að minnast og þakka þegar kallið er
komið. Við þessar aðstæður reikar
hugurinn og minningarnar hrannast
upp. Má þar nefna góðar minningar
frá Stapa og frá því Bjössi bjó á
heimili okkar í Kópavoginum ásamt
tjaldútilegum þar sem hann naut sín
vel í góðra vina hópi. Hann átti sér-
staklega gott með að glettast við
börnin og fann hann þar upp á ólík-
legustu hlutum, öllum til mikillar
gleði.
Á yngri árum var Bjössi virkur
þátttakandi í Ungmennafélaginu
Mána þar sem hann var eftirsóttur
leikari og tók þátt í mörgum leiksýn-
ingum. Hann hafði gaman af tónlist
og spilum og var þá sama hvort hann
spilaði við börn eða fullorðna.
Bjössi var mjög góður vinur vina
sinna og hafði hann sterk persónu-
einkenni. Hann hafði oft ákveðnar
skoðanir á hlutunum og lét þá ekki
svo auðveldlega snúa sér. Oft spunn-
ust skemmtilegar umræður vegna
þessa.
Bjössi var þúsundþjalasmiður og
mikill hagleiksmaður á járn og tré og
eftir hann liggja mörg listavel unnin
handverk sem hann gaf vinum og
venslafólki.
Elsku Bjössi.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Rannver S. Sveinsson,
Sigurjón Sveinn,
Guðrún Magnea,
Katla Björk og Birna Mjöll
Rannversbörn.
Elsku Bjössi.
Við elskum þig öll og við vitum
hversu erfiðir síðustu dagarnir voru
þér, ég veit ekki hvort þú vissir af því
en við komum til þín og vorum hjá
þér, ég hélt í höndina þína þegar ég
kom í heimsókn, og ég reyndi að gefa
þeir eitthvað af mínum styrk til að
lina kvalirnar.
Síðustu dagarnir voru erfiðir fyrir
þig og okkur öll og þú ert virkileg
hetja í mínum augum, núna líður þér
vonandi betur.
Ég mun alltaf hugsa til þín þegar
ég sé aska og handgerða hluti úr tré,
þú varst svo laginn við að gera þann-
ig hluti.
Þín verður sárt saknað, Bjössi
minn.
Tárin laumast eitt og eitt
en geta því liðna ekki breytt,
því það sem góður Guð vil taka
fáum við aldrei aftur til baka.
Kaldur og dimmur dagurinn er
rétt eins og tilfinningin inni í mér,
óstjórnleg er sorgin mín
ég á eftir að sakna þín.
Hvíldu í friði, elsku Bjössi
Tinna Borg.
BJÖRN
JÓNSSON Þökkum fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför
AÐALSTEINS JÓSEPSSONAR,
Sóltúni.
Bestu þakkir til starfsfólks á deild B2, taugalækn-
ingadeild á Landspítalanum Fossvogi.
Sigríður Þorbergsdóttir,
Þórir Aðalsteinsson,
Þorbergur Aðalsteinsson,
Hilmar Már Aðalsteinsson, Sigrún Hallgrímsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför ástkæra föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÍVARS ANDERSEN
vélstjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deildum L2 og L5
á Landakoti.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Ívarsdóttir,
Guðmundur Ívarsson,
Erla Ívarsdóttir, Haraldur Sigursteinsson,
Gretar Ívarsson, Anna Dís Sveinbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR GUÐNADÓTTUR
frá Siglufirði,
Krummahólum 2,
Reykjavík.
Brynja Böðvarsdóttir, Snorri Þórðarson,
Hjördís Böðvarsdóttir, Bergur Guðnason,
Böðvar Snorrason, Kristín V. Jónsdóttir,
Guðni Bergsson, Elín Konráðsdóttir,
Þórður Snorrason, Herdís Sigurðardóttir,
Sigríður Bergsdóttir, Skúli R. Skúlason,
Ingibjörg H. Snorradóttir, Páll Ólafsson,
Sigríður B. Snorradóttir, Gylfi Guðmundsson,
Böðvar Bergsson,
Bergur Þór Bergsson
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
HAFSTEINS SIGURÐSSONAR.
Sérstakar þakkir til Heimahlynningar LSH.
Marlis Sólveig Hinriksdóttir,
Brynja I. Hafsteinsdóttir, Karl Guðmundsson,
Hafsteinn Hafsteinsson,
Signý Hafsteinsdóttir, Garðar Garðarsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs sonar okkar, bróður
og föður,
HALLGRÍMS PÁLS GUÐMUNDSSONAR,
Hegranesi 25,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks slysadeildar og alls
þess góða fólks sem að málinu kom.
Guðmundur Hallgrímsson, Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir,
Elísa Björk Guðmundsdóttir,
Guðmundur Gabríel Hallgrímsson.
Þökkum af alhug þeim sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUNNARS ÞORVARÐARSONAR
skipstjóra,
Kleppsvegi 62,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á B2 LSH Fossvogi.
Guð blessi ykkur öll.
Helga Jónsdóttir,
Aðalbjörg S. Gunnarsdóttir,
Björg Gunnarsdóttir, Finnbogi Sigurðsson,
Ágústa Gunnarsdóttir,
Þorvarður Gunnarsson, Þórlaug Ragnarsdóttir,
Jón Gunnarsson, Sigríður G. Sverrisdóttir,
Helga Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Álftamýri 6,
Reykjavík,
sem lést þriðjudaginn 20. júní á líknardeild
Landakotsspítala verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 29. júní kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja Krabbameins-
félagið.
Svava Haraldsdóttir, Guðmundur Jens Þorvarðarson,
Guðmundur Haraldsson, Rakel Kristjánsdóttir,
Erna Haraldsdóttir, Karl Þórðarson,
Bjarni Óli Haraldsson, Árný Davíðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓHANNS HELGA STEFÁNSSONAR
frá Grundarkoti í Héðinsfirði,
Hólavegi 31,
Siglufirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á sjúkradeild Heil-
brigðisstofnunar Siglufjarðar fyrir góða umönnun.
María Jóhannsdóttir, Björn Sigurður Ólafsson,
Ólína Sigríður Jóhannsdóttir, Steinar Ingi Eiríksson,
Stefán Jóhannsson,
Svanfríður Jóhannsdóttir, Sigurbjörn Egilsson,
afa- og langafabörn.