Morgunblaðið - 27.06.2006, Síða 37

Morgunblaðið - 27.06.2006, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 37 MENNING ÓLAFÍA Hrönn Jónsdóttir fer með aðalhlutverkið í nýjum gam- anleik eftir breska leikskáldið Pet- er Quilter. Æfingar á leikritinu hófust á fimmtudaginn. Meðal ann- arra leikara má nefna Örn Árna- son, Eddu Arnljótsdóttur og Lilju Guðrúnu Þorvaldsdóttur, auk þess sem tveir nýútskrifaðir leikarar frá LHÍ leika í sýningunni, þau Stefán Hallur Stefánsson og Dóra Jóhannsdóttir. Stórfengleg! byggist á sögu söngkonunnar Florence Foster Jenkins. Hún varð víðfræg fyrir hljómplötur sínar og tónleika sem hún hélt í New York á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar. Hún þótti heillandi persónuleiki, var glaðlynd, gædd óbilandi sjálfs- trausti og hafði þann galla einan sem söngkona að hún hélt ekki lagi. Jenkins var þó ávallt sann- færð um eigið ágæti og lét gagn- rýnisraddir aldrei stöðva sig. Peter Quilter hefur á síðast- liðnum átta árum skrifað leikrit sem sýnd hafa verið víða um heim. Tvö leikverk eftir hann hafa verið sýnd á West End í London, söng- leikurinn BoyBand árið 1999, sem einnig var sýndur á leikför um Evrópu, og Stórfengleg! eða Glo- rious! árið 2005. Stórfengleg! er fyrsta leikrit Peters Quilters sem sýnt er á Íslandi. Þýðandi verksins er Ingunn Ás- dísardóttir, tónlistarstjórn er í höndum Jóhanns G. Jóhannssonar, um ljós sér Björn Bergsteinn Guð- mundsson og leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Leiklist | Æfingar hafnar á gamanleiknum Stórfengleg! Söngkonan sem gat ekki sungið Morgunblaðið/Eyþór Aðstandendur sýningarinnar stilla sér upp fyrir framan Þjóðleikhúsið. SENDIRÁÐ Íslands og Danmerkur munu opna handverkssýninguna Transform – Nýtt handverk á göml- um merg næstkomandi fimmtudag í sendiráði Norðurlandanna í Berlín. Þar sýnir handverksfólk og hönnuðir frá vestnorrænu löndunum þremur, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi, handverk, listmuni og hönnun sem er nútímaleg en stendur þó á traustum grunni handverkshefða landanna þriggja. Sýningin er farandsýning og var upphaflega opnuð á Norður- bryggju í Kaupmannahöfn í maí 2005 en hefur síðan verið sett upp á Álandseyjum, í Færeyjum og í Eist- landi og síðast var hún í Norræna húsinu í Reykjavík. Sýningin í Berlín stendur til júlíloka en eftir það er áformað að flytja hana til Grænlands. Sextán íslenskir þátttakendur Frá Færeyjum koma sjö text- íllistamenn. Þeir vinna úr færeyskri ull og nýta sér þá margvíslegu mögu- leika sem hráefnið hefur. Frá Græn- landi koma tólf lista- og handverks- menn. Þeir sýna stóra og litla skúlptúra, tupilakka, hnífa og muni úr beinum, steini og skinni. Íslensku þátttakendurnir eru sex- tán og koma frá Gullsmíðafélagi Ís- lands. Sýna þeir skartgripi úr gulli og silfri og verður áhersla lögð á hið hefðbundna íslenska víravirki. Á sýn- ingunni er megináherslan á nútíma gæðahandverk en einnig eru sýndir listmunir og vinnuaðferðir frá nítjándu og tuttugustu öld auk þess sem hráefnið sem notað er, ull, steinn, bein, gull og silfur, er kynnt. Gamlar vinnuaðferðir þjóðanna verða sýndar af myndbandi og því verður hægt að bera þær saman við nútímaaðferðir. Vestnorrænu löndin þrjú, Ísland, Grænland og Færeyjar, eru fátæk af hráefnum og náttúruöflin eru oft og tíðum óblíð. Handverk landanna ber þess merki að til að komast af þurfti hugmyndaflug, nýtni og útsjón- arsemi. Munirnir á handverkssýn- ingunni bera þess vitni að þó efnivið- urinn sé fábreyttur getur útkoman verið ríkuleg, eins og sagt er í frétta- tilkynningu. Björn G. Björnsson leikmynda- hönnuður hannaði sýninguna og þriggja manna nefnd valdi sýning- armunina, en í henni sátu Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur frá Íslandi og myndlistarmennirnir Thue Christiansen frá Grænlandi og Bárð- ur Jakupsen frá Færeyjum. Verkefn- isstjóri sýningarinnar er Reynir Adólfsson en þetta er í þriðja sinn sem hann stendur fyrir vestnorrænni handverkssýningu. Handverk | Vest- norræn sýning opnuð í Berlín Nýtt hand- verk á gömlum merg www.vestnordencrafts.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.