Morgunblaðið - 27.06.2006, Page 38

Morgunblaðið - 27.06.2006, Page 38
MYNDLISTARMAÐURINN Sig- tryggur Berg Sigmarsson opnaði á laugardaginn sýningu á verkum sínum í Galleríi Dverg. Yfirskrift sýningarinnar er „The Curse of Sigtryggur Berg Sigmars- son“ og flutti listamaðurinn gjörn- ing við opnunina. Sigtryggur stundaði myndlistarnám í Hann- over hjá hljóðlistamanninum Ulrich Eller og lauk meistaragráðu frá Fachochschule Hannover Bildende Kunst árið 2005. Hann hafði áður stundað nám við Konunglega kons- ervatoríið í Haag. Sigtryggur hefur sýnt verk sín víða og komið fram á hljómleikum jafnt undir eigin nafni sem undir merkjum hljóðtilraunadúettsins Stilluppsteypu. Þór Sigurþórsson, Egill K. Karlsson og Orri Gunnarsson fylgdust með. Morgunblaðið/ Jim Smart Bölvun Sigtryggs Kristín Björk og Hekla Dögg voru mættar á opnunina. Listamaðurinn sést hér í miðjum gjörningi sem hann framdi við opnunina. Ingibjörg Birgisdóttir, Hildur I. Guðnadóttir og Marta Jóhannesdóttir voru í sólskinsskapi á opnuninni. 38 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Frábær unglinga gamanmynd með Lindsey Lohan í fantaformi! HÚN VAR HEPPNASTA STELPAN Í BÆNUM ÞANGAÐ TIL DRAUMAPRINSINN EYÐILAGÐI ALLT! Sími - 564 0000Sími - 462 3500 Just My Luck kl. 6, 8 og 10 RV kl. 6 og 8 The Omen kl. 10 B.i. 16 ára Just My Luck kl. 5.40, 8 og 10.20 RV kl. 3.40, 5.50 og 8 The Omen kl. 10.10 B.i. 16 ára X-Men 3 kl. 5.40 og 10.20 B.i. 12 ára Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára Da Vinci Code LÚXUS kl. 6 og 9 Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 3.40 Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 3.40 Fór beint á toppinn í Bandaríkjunum! ROBIN WILLIAMS 1 fjölskylda - 8 hjól ENGAR BREMSUR Komdu í fyndnasta ferðalag sumarsins. eee Topp5.is - VJV Mögnuð endurgerð af hinni klassísku The Omen ! eee S.V. MBL. Auglýsendur! Þið eigið stefnumót við áhugavert fólk - lesendur Tímarits Morgunblaðsins. Í fjölmiðlakönnun Gallup sem framkvæmd var í maí sl. mælist Tímarit Morgunblaðsins með 50% lestur og tryggir þannig enn frekar stöðu sína sem vinsælasta tímaritið í áskrift á Íslandi. Allar nánari upplýsingar veita Sigrún Sigurðardóttir í síma 569 1378 eða sigruns@mbl.is, og Bylgja Björk Sigþórsdóttir í síma 569 1142 eða bylgjabjork@mbl.is KÖNTRÍSVEITIN Baggalútur hef- ur lokið upptökum á annarri hljóm- skífu sinni, sem ber titilinn Aparnir í Eden, en lokaupptökur fóru fram í félagsheimilinu á Flúðum í síðustu viku. Í fréttatilkynningu sem barst frá sveitinni segir að á hljómskífunni sé að finna yfir 20 sveitasöngva sem flestir séu samdir undir sterkum áhrifum frá svokölluðu sjávar- útvegs- og strandköntríi (e. Hawaii- an) þó nokkuð beri þar á hefðbundnu innsveita- og hálendisköntríi eins og á fyrri hljómskífu Baggalúts, Pabbi þarf að vinna, sem kom út á síðasta ári. Mikill fjöldi listamanna lagði sveitinni lið að þessu sinni, má þar nefna söngvarana Kristján Krist- jánsson (KK), Björgvin Halldórsson, Valgeir Guðjónsson og Borg- ardætur. Sem kunnugt er komst hljómsveitin í samband við rúm- enska panflautusnillinginn Zamfir, en vegna tungumálaörðugleika varð ekki af samstarfi að svo stöddu, þó af tölvupósti frá talsmanni meistarans megi skilja að hann kunni vel að meta lagasmíðar og tónlistarstefnu sveitarinnar. Nokkur hópur er- lendra listamanna lagði þó sitt af mörkum, má þar frægasta telja blás- arana Jim Hoke og Neil Roseng- arden, en sá síðarnefndi er einn fær- asti dægurlagahornleikari veraldar. Aparnir í Eden er væntanleg í plötuverslanir í næsta mánuði. Tónlist | Upptökum lokið hjá Baggalúti Sjávarútvegs- og strandköntrí Ljósmynd/Guðmundur Freyr Vigfússon Köntrísveitin Baggalútur í fullum herklæðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.