Morgunblaðið - 27.06.2006, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA STAFRÆ
CARS M/ENSKU TALI kl. 6 - 8:30 - 11
BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 6 - 7:15 - 8:30
KEEPING MUM kl. 6 - 8:20 - 10:30 B.I. 12.ÁRA.
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 6:10 - 8:20 - 10:30 B.I. 14.ÁRA.
MI : 3 kl. 9:30 - 11 B.I. 14.ÁRA.
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
BÍLAR m/ísl. tali kl. 6 - 8
CARS M/ENSKU. TALI kl. 6 - 8 - 10
SLITHER kl. 10 B.I. 16.ÁRA.
BÍLAR m/ísl. tali kl. 8
SHE'S THE MAN kl. 8
KEEPING MUM kl. 10:10 B.I. 12 ÁRA
16 BLOCKS kl. 10:15 B.I. 14 ÁRA
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
eee
V.J.V.Topp5.is
FRÁ J.J. ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
eeee
VJV, Topp5.is S.U.S. XFM
NÝJASTA
MEISTARA-
VERKIÐ FRÁ
PIXAR SEM ALLIR
ERU AÐ TALA UM.
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
VINSÆLASTA MYNDIN Í
USA 2 VIKUR Í RÖÐ.
eee
S.V. MBL.
eee
L.I.B. Topp5.is
eeee
LIB, Topp5.is
HVERNIG
ÁTTU AÐ HALDA
Í ÞANN SEM
ÞÚ HEFUR
ALDREI HITT.
FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG
SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT.
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Opið hús milli kl. 17 og 19 í dag
Skeiðarvogur 25
Sérhæð - m. bílskúr
Falleg 162,7 fm sérhæð m. bílskúr á þessum vinsæla stað í Vogunum.
Íbúðin er á 2 hæðum. Á neðri hæð er forstofa, snyrting, eldhús, búr, borð-
stofa, stofa, svalir og símahol. Á efri hæð er baðherb. m. sturtu, þvottahús
og 3 rúmgóð herbergi með skápum. Eikarparket á gólfum. Fallegur garður
fylgir eigninni. Bílskúr er næst húsinu. Stutt í Vogaskóla, Menntaskólann v.
Sund, Laugardalinn og alla þjónustu. Verð 33,4 millj.
Bergþóra tekur vel á móti gestum í dag milli kl. 17og 19
Opið hús milli kl. 18 og 19 í dag
Rauðagerði 14
Rúmgóð og laus strax
Mjög rúmgóð 100,8 fm 3ja herb. íbúð á jarðhæð með sérinngangi.
Geymsla og þvottahús innan íbúðar. Eignin skiptist í flísalagða forstofu,
þvottahús, geymslu m. hillum, fallegt flísalagt baðherb., rúmgott barna-
herb. m. skápum, rúmgóða og bjarta stofu, eldhús m. borðkrók og hjóna-
herb. m. gönguhurð út á sólpall. Íbúðin er í fallegu þríbýlishúsi. Frábær eign
fyrir þá sem vilja vera sér! Verð 21,5 millj.
Inga Dóra sölumaður tekur vel á móti gestum í dag milli kl. 18 og 19.
REGGÍ-hljómsveitin Hjálmar sendi í
gær frá sér nýtt lag í útvarpsspilun.
Lagið heitir „Ólína og ég“ og er gam-
alt Stuðmannalag. „Við vorum beðnir
að vera með á safnplötu þar sem
ýmsir hljómlistarmenn spila lög eftir
Stuðmenn,“ segir Guðmundur Krist-
inn Jónsson, gítarleikari Hjálma,
sem jafnframt sér um öll upptökumál
hljómsveitarinnar. „Við hlustuðum á
nokkur Stuðmannalög í framhaldinu
og tengdum best við þetta. Ég er
ekki viss um að þeir hinir yngri muni
eftir því en við í bandinu þekktum
það vel og fannst það henta okkur.
Það er svo skemmtilega afslappað.
Svo fékk ég nokkra menn í Nashville
til að bæta við brassi sem kemur bara
vel út. Þetta er sumarlegt lag og
skemmtilegt svo að við ákváðum að
láta það frá okkur núna.“
Ný plata í vinnslu
Aðspurður segir Guðmundur
Kristinn að „Ólína og ég“ marki ekki
upphafið að nýrri plötu þótt hann
upplýsi að plata sé engu að síður í
vinnslu. „Nýja platan verður ekkert í
líkingu við stemninguna í þessu lagi.
Við eigum nú þegar slatta af nýju efni
en viljum vinna það aðeins nánar áð-
ur en við förum að spila það mikið.
Við erum að prófa nýjar aðferðir og
því má búast við að hljómurinn á nýju
plötunni verði ólíkur þeim sem var á
þeim fyrri. Þetta verður kannski
meira svona teknó-reggí.
Við vinnslu síðustu tveggja platna
höfum við einfaldlega mætt í hljóð-
upptökuverið og tekið upp lag,
kannski á tíu mínútum. Nú ætlum við
að prófa hluti sem reyna aðeins
meira á okkur og kalla á öðruvísi
vinnuaðferðir. Við erum svolítið bún-
ir með hinn pakkann. Ekki svo að
skilja að við séum endilega að kveðja
reggíið en við erum samt ekkert háð-
ir þeim stíl. Það er ekkert sem segir
að næsta plata verði reggí. Við gefum
okkur að við megum spila annað þótt
við séum búnir að vera svolítið fastir í
því.“
Mikið framundan
Hjálmar stefna á að vera iðnir við
spilamennsku næstu vikurnar. „Það
verður mikið að gerast um helgina.
Við verðum með smáupphit-
unartónleika í verslun 12 tóna á
Skólavörðustíg á föstudaginn og um
kvöldið verða svo tónleikar ásamt
blúsbandi KK á NASA. Ég var sjálf-
ur að taka upp plötuna hans KK og
ég myndi tvímælalaust segja að þetta
væri besta platan hans síðan „The
Lucky One“. Frábær plata alveg.“
Hjálmar munu spila í Lindinni á
Laugarvatni á laugardaginn og verða
síðan á Flúðum daginn eftir. Ferðinni
er svo heitið út fyrir landsteinana.
„Við verðum með tónleika í Kaup-
mannahöfn og Tallinn í Eistlandi. Við
höfum á hvorugum staðnum spilað og
ég hlakka mikið til. Á öllum þessum
tónleikum munum við spila eitthvað
af nýju efni í bland við það gamla.“
Tónlist | Hjálmar með nýtt lag í spilun og plötu í vinnslu
Leita að nýjum hljómi
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hjálmar spila í Danmörku og Eistlandi í næstu viku.
BRESKA rokksveitin The Cribs,
elektrópopp-rokkararnir í whoma-
dewho frá Danmörku, hin bresk-
íslenska The Fields, hin kanadíska
Islands og Cold War Kids frá Kali-
forníu hafa nú bæst við dagskrá
tónlistarhátíðarinnar Iceland
Airwaves 2006 sem fram fer í mið-
borg Reykjavíkur dagana 18. til 22.
október.
Auk þessara fimm erlendu hljóm-
sveita bætast tíu íslenskir lista-
menn við dagskrá hátíðarinnar, þar
á meðal trúbadorinn Þórir eða My
Summer as a Salvation Soldier eins
og hann kallar sig á alþjóðavett-
vangi, teknótröllið Thor, Dr. Mister
og Mr. Handsome, Tilraunaeldhúss-
foringinn Kira Kira, Biogen, Worm
is Green og Johnny Sexual. Alls
munu um 130 listamenn og hljóm-
sveitir koma fram á hátíðinni – þar
af yfir 100 innlendir.
Umsóknarfrestur til 10. júlí
Enn geta íslenskir listamenn og
hljómsveitir sótt um að koma fram
á Iceland Airwaves 2006, en tekið
verður við umsóknum fram til 10.
júlí. Til að sækja um þarf að ná í
sérstakt eyðublað á www.icel-
andairwaves.com sem finna má
undir liðnum „Industry“, fylla út,
prenta og skila til Hr. Örlygs,
skipuleggjanda hátíðarinnar, ásamt
fylgigögnum: a) diskur með tónlist
b) diskur með upplýsingatexta um
flytjanda ásamt mynd. Ekki verður
tekið við umsóknum eftir 10. júlí.
Framkvæmd Iceland Airwaves er
í höndum Hr. Örlygs í samstarfi við
Icelandair og Reykjavíkurborg.
Erlendar viðbætur:
The Cribs (UK), Whomadewho
(DK), Islands (CAN), The Fields
(UK/ICE) og Cold War Kids (US).
Innlendar viðbætur:
Biogen, Dr. Mister & Mr. Hand-
some, The Foghorns, Idir, Jack
Schidt, Johnny Sexual, Kira Kira,
My Summer as a Salvation Soldier
(Þórir), Thor og Worm is Green.
Tónlist | Enn bætist við dagskrá Iceland Airwaves í ár
130 tónleikar á fimm dögum
Hin breska The Cribs kemur til með að troða upp á Iceland Airwaves í ár.
www.icelandairwaves.com