Morgunblaðið - 27.06.2006, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 27.06.2006, Qupperneq 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi UPPFÆRSLU Þjóðleikhúss- ins á leikverki Henriks Ib- sens, Pétri Gaut, hefur verið boðið í Barbican Centre í London í febrúar og mars á næsta ári. Leikstjóri sýning- arinnar er Baltasar Kormák- ur en með titilhlutverkið fer Björn Hlynur Haraldsson og var uppfærslan frumsýnd í Kassanum nú í vor. Hlaut hún tólf tilnefningar og fimm verðlaun á Grímunni fyrir skemmstu og var meðal ann- ars valin besta sýning ársins. Tilboð Barbican má rekja til þess að hinn virti leiklist- argagnrýnandi Michael Bill- ington sá sýninguna í Kass- anum í vor, en hann var staddur hér á landi í tengslum við málþing um leikskáldið Harold Pinter. Billington áhrifavaldur Billington er höfundur ævi- sögu Pinters, en málþingið var haldið í samvinnu Þjóð- leikhússins og Listahátíðar í Reykjavík, í tengslum við frumsýningu á leikritinu Fagnaði í vor. Hann nýtti tækifærið meðan hann dvaldi á Íslandi og brá sér í leikhús, og sá meðal annars uppfærsl- una á Pétri Gaut. Hann hreifst mjög af sýningunni og fór lofsamlegum orðum um hana og íslenskt leikhúslíf í pistli sem hann skrifaði í kjöl- farið í breska dagblaðið The Guardian. Billington hafði ennfremur samband við Louise Jeffreys, leikhússtjóra í Barbican Centre, og lagði til við hana að hún kæmi til Íslands og sæi uppfærslu Þjóðleikhúss- ins á hinu fræga verki Ibsens. Jeffreys sá síðan sýninguna síðastliðinn laugardag, og bauð Þjóðleikhúsinu eftir það að sýna hana tíu sinnum á fjölum Barbican Centre í febrúar og mars á næsta ári. „Þetta er enn ein staðfest- ing á því að íslenskt leikhús er fyllilega samkeppnishæft við það besta sem er að gerast er- lendis. Við hér heima höfum vitað þetta lengi, en það er gaman að þeir í háborg leik- listarinnar, London, skuli hafa uppgötvað það líka,“ sagði Tinna Gunnlaugsdóttir Þjóðleikhússtjóri í samtali við Morgunblaðið. „Við munum svo sannarlega leita leiða til að geta þegið þetta boð.“ Pétur Gautur á fjalirnar í Barbican Centre Ljósmynd/Eggert Jónsson Pétur Gautur var valin besta sýning ársins á Grímunni. Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is ÞESSI stúlka hefur nokkuð óvenjulegt starf með höndum, en hún er starfsmaður á siglinga- námskeiði í Hafnarfjarðarhöfn. Á námskeiðinu eru börn og unglingar sem eru að þjálfa sig í að róa kajökum og litlum seglbátum. Þessi stúlka er að fylgjast með krökkunum og hjálpar þeim síðan að draga bátana að landi. Á meðan stúlk- an bíður situr hún á stól úti í sjónum og fylgist með. Morgunblaðið/ÞÖK Situr róleg í sjónum og fylgist með bátunum FYRSTU vísbendingar um þróun á vinnumarkaði eftir breytingarnar 1. maí sl. benda til þess að flæði er- lends vinnuafls hingað til lands sé svipað og áður. Í maímánuði var tilkynnt um 323 starfsmenn til Vinnumálastofnunar, en eins og fram hefur komið var sú breyting gerð 1. maí sl. að íbúar átta nýrra aðildarríkja Evrópusam- bandsins þurfa ekki lengur atvinnu- leyfi til að vinna hér á landi heldur nægir að vinnuveitendur þeirra til- kynni ráðninguna til Vinnumála- stofnunar. Talið er að skráningum muni fjölga nokkuð á næstu mánuðum en nokkrar vikur tekur venjulega að bíða eftir kennitölu, sem er forsenda skráningar hér á landi, og kann það að hafa leitt til þess að skráningar í maí voru færri en ella, að mati Giss- urar Péturssonar, forstjóra Vinnu- málastofnunar. Hann segir að áfram sé unnið eft- ir þeirri stefnu sem tekin var upp í september í fyrra, þ.e. að íbúum frá ríkjum utan EES sé almennt synjað um atvinnuleyfi. Aðeins ef um sér- staka hæfni eða aðstæður sé að ræða sé slíkum umsóknum hleypt í gegn. Í þessu felst t.d. að fólk frá Taí- landi og Víetnam á almennt litla möguleika á að fá atvinnuleyfi hér á landi. Alls hefur Vinnumálastofnun synjað 573 umsóknum frá íbúum ut- an EES frá því í september á síð- asta ári og hefur nokkur hluti þess- ara synjana verið kærður til félagsmálaráðuneytisins. Breyttar reglur hafa ekki aukið flæði vinnuafls Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is  Erlendu verkafólki | 4 Morgunblaðið/Kristinn Vinnumálastofnun hefur synjað 573 umsóknum frá íbúum utan EES. ÞRJÁR 18 og 19 ára stúlkur, Helga Jónína Markúsdóttir, Mel- korka Sigríður Magnúsdóttir og Vigdís Eva Guðmundsdóttir, báru um helgina sigur úr býtum í al- þjóðlegri danskeppni, Dans Grand Prix Europe, sem árlega er haldin á fjórum stöðum, í París, Prag, Barcelona og Cesena á Ítalíu. Stúlkurnar útskrifuðust úr List- dansskóla Íslands nú í vor. Þær unnu keppnina í Cesena í flokki samtímadans. „Í raun er þessi bikar mjög táknrænn. Það er formlega búið að loka skólanum en við fengum að halda út í keppnina til að ljúka hefðbundnu skólaári. Hvað gerist síðan? Stelpurnar vinna keppnina og koma því heim með gullbikar sem á hvergi heima, bikar sem þær unnu fyrir hönd skóla sem ekki er lengur til. Þær hafa af þessu tilefni ákveðið að gefa Þor- gerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra þennan heimilislausa bikar sem hvatningu til þess að hefja af alvöru upp- byggingu listdansins á Íslandi,“ segir Karen María Jónsdóttir, list- rænn stjórnandi hópsins. Hún hef- ur kennt stúlkunum síðastliðin tvö ár í skólanum. Unnu alþjóðlega danskeppni á Ítalíu Þorgerði Katrínu gefinn gull- bikarinn  Íslenskir dansarar | 36 ÞRÍR íslenskir ferðamenn, sem leitað var í gærdag, fundust heilir á húfi um sjöleytið í gærkvöldi. Þremenning- arnir ætluðu að aka um Þórsmörk og Landmannalaugar en jeppabifreið þeirra bilaði á Heklubraut við Breiða- skarð. Að sögn lögreglunnar á Hvols- velli væsti ekki um ferðalangana þeg- ar þeir fundust, enda höfðu þeir haldið sig í bifreiðinni um nóttina. Björgunaraðgerðir voru á byrjunar- stigi þegar bifreiðin fannst, þar sem lögreglan hafði upplýsingar um að fólkið væri vel búið, auk þess sem sést hafði til bifreiðarinnar á svipuðum slóðum á sunnudaginn. Björgunar- sveitir voru kallaðar út og lögðu þær til þrjár bifreiðir, auk þess sem lög- regla leitaði fólksins á einni. Ferða- mennirnir voru á símasambandslausu svæði þegar bifreið þeirra bilaði og beinir lögreglan á Hvolsvelli þeim til- mælum til ferðalanga að kynna sér aðstæður áður en lagt er af stað í ferðir um óbyggðir landsins. Fundust heilir á húfi AÐFARANÓTT mánudagsins var heitum potti stolið við sumarbústað í Grímsnesinu. Að sögn lögreglu er potturinn aðeins mánaðargamall og nemur tjónið rúmum 600 þúsund krónum. Mikla fyrirhöfn hefur þurft til þess að nema pottinn á brott þar sem hann var niðurnjörv- aður og fullur af vatni. Nokkrar skemmdir eru á bú- staðnum eftir hamaganginn, auk þess sem þjófarnir rifu niður girð- ingu á landinu þegar þeir hurfu á brott með ránsfenginn. Að sögn lögreglu sást til ferða blárrar vöru- bifreiðar um svipað leyti og atburð- urinn átti sér stað og eru þeir sem veitt geta upplýsingar um málið beðnir að hafa samband við lög- reglu á Selfossi í síma 480-1010. Stálu heitum potti í Grímsnesinu ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.