Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 4
4 B FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
!"#
! "
# " $%& !'#
!
(!
)* * !
+" ! !
+ *"% ! !
, !
*
!
-%&!.& /%0 #
1 2
#3
-% ! #
4
4
54
5 5 54
5 5 54 54
64
%
&
'
(
'
!"#
78#
!9
7:8
7#9!
!9
79
!9
; !
!9
<
!'
-=
!9
#!
;
=
> !
>9 8-
?@-7#?#!9
$#! . !A; !*
B !
)CDE <9FG9H
-I$D
(>E
+
J H9
:"!!
G' K
'#G'
NÝIR fólksbílar og vörubílar í
Brasilíu sem keyrðir eru á etanóli
eða vínanda eru orðnir tvær millj-
ónir, samkvæmt nýjum tölum um
bifreiðaeign þar í landi en greint er
frá þessu í frétt á fréttavef BBC.
Slíkir bílar ganga fyrir blöndu af
etanóli og bensíni og eru þeir nú um
77% allra bíla á götum Brasilíu.
Eins og greint var frá í Viðskipta-
blaði Morgunblaðsins fyrir skömmu
eru Brasilíumenn leiðandi í notkun á
etanóli sem eldsneyti en það er fram-
leitt úr sykurreyr. Slíkir bílar hafa
verið til í 25 ár þar í landi en sala á
þeim tók kipp í apríl 2003 þegar
margir helstu bílaframleiðendur
heims hófu að framleiða slíka bíla.
Árið 2003 voru 48.200 blendings-
bílar (e. hybrid) seldir í Brasilíu en
seldir bílar voru orðnir 1,2 milljónir í
lok síðasta árs og eru nú orðnir tvær
milljónir. blendings-bílar bera 14%
virðisaukaskatt meðan virðisauka-
skattur bíla sem eingöngu ganga fyr-
ir bensíni er 16%.
REUTERS
Blendingur Toyota er einn þeirra bílaframleiðenda sem framleiða blend-
ingsbíla ,sem ganga fyrir blöndu af etanóli og bensíni. Hér má sjá starfs-
mann bóna Toyota Harrier Hybrid fyrir bílasýninguna í Tokyo.
Vínandabílar í Brasilíu
orðnir tvær milljónir
NYHEDSAVISEN heldur í dag
ráðstefnu um hinar miklu breyt-
ingar sem nú eru að verða á danska
fjölmiðlamarkaðinum undir yf-
irskriftinni: „Har du husket din bil-
lett til fremtiden“ en reynt verður
að svara þeirri spurningu hvað sé
að gerast og hvaða hlutverk dag-
blöðin muni gegna í nýjum fjöl-
miðlaheimi. Framsögumenn verða
Morten Nissen Nielsen, fram-
kvæmdastjóri Nyhedsavisen, dr.
Piet Bakker, prófessor við háskól-
ann í Amsterdam, René Slatanach,
sölustjóri Nyhedsavisen, Henrik
Dahl, rithöfundur og félagsfræð-
ingur og Claus Gilbert Clausen,
framkvæmdastjóri Mediaedge Nor-
dic.
Nyhedsavisen með
ráðstefnu í Kaup-
mannahöfn
VÖRUSKIPTI Færeyja við út-
lönd voru óhagstæð um 275 millj-
ónir danskra króna á fyrri helmingi
ársins. Það svarar til um þriggja
milljarða íslenskra króna. Þetta
kemur fram í tölum frá hagstofu
Færeyja.
Verðmæti vöruútflutnings á fyrri
helmingi ársins var svipað og á
sama tímabili í fyrra, eða um 1,7
milljarðar danskra króna. Verð-
mæti innflutnings var hins vegar
um tveir milljarðar og jókst um 240
milljónir frá fyrra ári. Segir í til-
kynningu hagstofunnar að mest
muni um hækkun á olíuverði milli
ára. Verðmæti innflutnings á einka-
bílum jókst um 25 milljónir króna á
milli ára og verðmæti innfluttra
hrávara um 45 milljónir.
Óhagstæð vöru-
skipti í Færeyjum
ÍSLENDINGAR hafa fest umtals-
vert fé í danska hagkerfinu á síðustu
misserum, en Morgunkorn Grein-
ingar Glitnis fjallaði um þessar fjár-
festingar í gær.
Á árunum 2004 og 2005 námu
fjárfestingar Íslendinga í Danmörku
samtals rúmum 147 milljörðum
króna. Aðallega er um að ræða fjár-
festingar í fyrirtækjum og fast-
eignum tengdum þeim. Sem dæmi
má nefna kaup KB banka á danska
bankanum FIH, kaup Íslendinga á
stórverslununum Magasin Du Nord
og Illum ásamt ýmsum fasteigna-
félögum.
Talsverður gangur hefur verið í
dönsku hagkerfi undanfarið. Nú er
því hins vegar spáð að úr vextinum
dragi. Reiknað er með 2,7% hagvexti
í Danmörku í ár og 1,9% hagvexti ár-
ið 2007 eftir 3,1% vöxt í fyrra. Verð-
bólga hefur verið rétt undir 2% og
afgangur af viðskiptum við útlönd
nemur um 3% af landsframleiðslu.
Hægist um
í Danmörku
SEÐLABANKI Kína hækkaði
stýrivexti sína á fimmtudag um
0,27 prósentustig í 6,12%. Mikil
þensla ríkir í þessu fjölmennasta
ríki heims og telur seðlabankinn
mikla þörf á því að draga úr henni.
Á það sérstaklega við um nýfjár-
festingar en hinn ótrúlegi vöxtur
sem hefur ríkt í fjárfestingum í
Kína er að mati seðlabankans mikið
vandamál.
Ólíkt því sem gerist hér á landi
eru stýrivextir í Kína ekki vextir á
endurhverfum lánum heldur vextir
á lánum í júan (kínverska gjald-
miðlinum) til eins árs.
Stýrivextir
hækkaðir í Kína
I&
'#
I&
'#
I&
'#
I&
'#
4
4
<
>
>
64
6 6 <
>
>
6 6 6 <
>
>
6 6 6 <
>
>
6 6 6 %' %' &
'# %' %' &
'#
%' %' &
'# %' %' &
'#
Á SAMA tíma og hefðbundin
áskriftardagblöð í Danmörku, á borð
við Berlingske Tidende, Politiken og
Jyllandsposten hafa átt í mikilli
varnarbaráttu með fækkandi áskrif-
endum og erfiðum rekstri, hefur ver-
ið stöðugur uppgangur hjá danska
viðskiptablaðinu Børsen sem kemur
út alla virka daga vikunnar. Upplag
blaðsins, sem er undir eftirliti, fór á
fyrri helmingi ársins í fyrsta skipti í
sögu blaðsins yfir 70 þúsund eintök
en Børsen var stofnað árið 1896.
Áskrifendum blaðsins hefur fjölg-
að ári frá ári allar götur frá 1995 en
þá voru þeir rétt liðlega 40 þúsund
talsins. Og öfugt við hin hefðbundnu
dagblöð hefur verið hagnaður af
rekstri Børsen um langt árabil en
blaðið er í eigu sænska fjölmiðlaveld-
isins Bonnier, sem m.a. gefur út Ex-
pressen og Dagens Industri í Sví-
þjóð.
Aðalritstjóri Børsen, Leif Beck
Fallesen, segir í grein í blaðinu að
það séu sjálf fréttaskrif blaðsins auk
vöruþróunar sem hafi tryggt vöxt
þess. Hann segir að margar nýjung-
ar og betrumbætur séu á döfinni hjá
blaðinu nú haust en eitt sé alveg
öruggt: Børsen muni ekki standa að
útgáfu fríblaðs í Danmörku.
„Í staðið fyrir nýtt fríblað ætlar
Børsen að nota allan sinn mannauð til
þess að gera blaðið að enn betra
fréttablaði. [-] Børsen er ekki og verð-
ur ekki dagblað með breiða skírskot-
un fyrir alla Dani. Það er hlutverk
stóru morgunblaðanna og fríblaðanna
að mæta þeirri þörf. En við ætlum og
munum uppfylla þarfir lesenda Bør-
sen á breiðari grunni, bæði á pappír
og á Netinu,“ skrifar Fallesen.
Børsen í stöðugum vexti
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
! ""#$%&
'(%)
*
+
,-&. %)
Í fyrsta skipti í
heilt ár hafa komið
fram vísbendingar
um að verð á íbúðar-
húsnæði fari lækk-
andi í Kaupmanna-
höfn. Í frétt í
viðskiptablaðinu
Børsen segir að sam-
kvæmt tölum frá
danska íbúða-
lánabankanum
Nykredit hafi verð á
íbúðahúsnæði í
Kaupmannahöfn á
öðrum fjórðungi
þessa árs lækkað frá fyrsta fjórð-
ungi ársins.
Haft er eftir Per Ladegaard,
framkvæmdastjóra hjá Nykredit,
að hann telji að verð á íbúða-
húsnæði í Kaupmannahöfn hafi
lækkað um 5–8% á öðrum ársfjórð-
ungi. Þá segir hann að framboð á
húsnæði hafi aukist um 50% frá
síðustu áramótum. Það muni leiða
til verðlækkunar.
Blaðið vitnar í Sune Worm Mor-
tensen, hagfræðing hjá Realkredit
Danmark, sem tekur í sama streng
og Ladegaard. Hún telur að um-
skipti séu að verða á íbúðamark-
aðinum í Kaupmannahöfn.
Það er því ekki eingöngu á Ís-
landi sem íbúðaverð er tekið að
lækka, en í síðustu viku birti Fast-
eignamat ríkisins vísitölu íbúða-
verðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir
júlímánuð. Þar kom fram að vísi-
talan lækkaði um 1,7% frá fyrra
mánuði. Síðastliðna tólf mánuði
hefur vísitalan hins vegar hækkað
um 7,5%. Á því tímabili hækkaði
vísitala neysluverðs um 8,4% og
því er um að ræða raunlækkun
húsnæðis síðastliðna tólf mánuði
hér á landi, þegar á heildina er lit-
ið.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hámarki náð Tölur benda til þess
að íbúðaverð hafi náð hámarki í
Kaupmannahöfn og það muni
lækka á næstunni.
Íbúðaverð lækkar
í Kaupmannahöfn
HERTAR öryggisreglur á flugvöllum Bretlands valda miklu tekjutapi
hjá tónlistamönnum, að því er fréttavefur BBC hefur eftir talmönnum
samtaka breskra tónlistarmanna.
Samkvæmt nýju öryggisreglunum er óheimilt að taka nema einn hlut
með sér í handfarangri og má hann ekki vera stærri en sem svarar far-
tölvutösku. Samtök tónlistarmanna segja að fjöldi hljóðfæra sé of við-
kvæmur og dýr til þess að hægt sé setja hann með öðrum farangri.
„Enginn tónlistamaður með viti treystir flugfélagi fyrir hljóðfærinu
sínu,“ segir talsmaður samtakanna, Horace Trubridge.
Samgönguráðuneytið breska segir þó að öryggisreglurnar verði
áfram strangar á meðan þess sé þörf og undanþágur verði ekki leyfðar.
Fjöldi tónlistarmanna hefur þurft að aflýsa tónleikum sökum ástands-
ins og segir Trubridge að margir standi frammi fyrir lögsóknum vegna
brota á samningum við tónleikahaldara.
Tónlistarmenn
tapa á hertum reglum