Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 12
Nýútskrifaður úr stjórnmálafræðinni stefndiÞorsteinn Víglundsson á feril í blaða-mennsku. Hann sótti um, og fékk, starf hjáMorgunblaðinu og starfaði sem blaðamaður
á viðskiptablaði Morgunblaðsins um nokkurra ára
skeið, eða þar til hann hóf störf hjá hjá Kaupþingi árið
1998 og tók við stjórn greiningardeildar fyrirtækisins.
Árið 2000 flutti hann til Lúxemborgar í skrifstofu
Kaupþings þar í landi, þar til hann hóf störf hjá BM
Vallá árið 2002.
„Ég vildi vinna við blaðamennsku og var því mjög
ánægður þegar ég var ráðinn til Moggans árið 1995,
ekki síst vegna þess að ástand í efnahags- og atvinnu-
málum í landinu var ekki sem best á þeim tíma. Á
Mogganum vann ég við skrif viðskiptafrétta og kynntist
þar viðskiptalífinu, og vakti starfið áhuga minn á því.“
Þorsteinn segir að þótt faðir hans, Víglundur Þor-
steinsson, hafi stýrt BM Vallá allt frá árinu 1971 hafi
Þorsteinn ekki gert ráð fyrir því að vinna hjá fyrirtæk-
inu. „Ég var tveggja ára þegar faðir minn tók við stjórn
BM Vallár og má segja að ég hafi að hluta til alist þar
upp. Ég vann þar öll sumur frá þrettán ára aldri til tví-
tugs og var fyrirtækið því hluti af mínum uppvexti.“
Það var hins vegar ekki fyrr en Víglundur ákvað að
kaupa út aðra hluthafa og bað Þorstein að vinna að
stjórn fyrirtækisins með sér að Þorsteinn lét til leiðast
og segist svo sannarlega ekki sjá eftir þeirri ákvörðun.
Samkeppnin er hörð
Staða mála á fasteignamarkaði hefur verið mikið í um-
ræðunni undanfarið og er rætt um samdrátt og verð-
lækkanir í því sambandi. Þorsteinn segist ekki hafa
miklar áhyggjur af framtíð fyrirtækisins þrátt fyrir
þetta, enda sé ákveðinn sveigjanleiki innbyggður í
reksturinn þannig að fyrirtækið þoli niðursveiflur á
markaðnum. „Við erum ekki enn farin að finna að neinu
marki fyrir þessum samdrætti, enda er almennt talað
um að byggingariðnaðurinn sé að jafnaði um einu ári á
eftir hagkerfinu almennt. Þá verður að horfa til þess að
efnahagslífið íslenska er almennt við góða heilsu.“
Þorsteinn segir að á síðustu árum hafi byggingariðn-
aðurinn þurft að takast á við tvö niðursveiflutímabil.
Annars vegar alvarlega kreppu á árunum 1994-1995 og
svo vægari niðursveiflu á árunum 2002 og 2003. „Ég
hef það á tilfinningunni að samdráttarskeiðið nú verði
líkara því síðarnefnda,“ segir Þorsteinn.
Hvað varðar samkeppni á byggingarvörumarkaði
segir Þorsteinn að hún hafi ætíð verið hörð og að engin
teikn séu á lofti um að það muni breytast á næstunni.
Hvað framtíð fyrirtækisins varðar segir Þorsteinn
BM Vallá stefna að því að styrkja enn frekar stöðu sína
á íslenskum byggingavörumarkaði bæði með innri og
ytri vexti, gefist áhugaverð tækifæri til þess. Hann seg-
ir ekki neinar byltingarkenndar breytingar framundan
þegar til skemmri tíma er litið.
„BM Vallá hefur á fjórum árum farið úr 1,5 milljarða
veltu í átta milljarða veltu og er því óhætt að segja að
við höfum í nógu að snúast við að vinna úr þeim breyt-
ingum sem því fylgja.“
Þeir sem til hans þekkja segja gott að eiga við, og
vinna með Þorsteini. Hann sé aðgengilegur og þægileg-
ur samstarfs- og yfirmaður. Sjálfur segist Þorsteinn
vilja treysta fólki til að vinna verk sín sjálft án þess að
hann skipti sér af öllum smáatriðum. „Að sjálfsögðu
fylgist maður með öllu sem máli skiptir, en ég kann
betur við að dreifa verkefnum milli fólks, enda tel ég að
það hafi góð áhrif á vinnuanda og afköst.“
Dyggur stuðningsmaður golfklúbbsins
Þegar kemur að áhugamálum lýsir Þorsteinn sér sem
forföllnum golfara í dvala. „Ég hef afskaplega gaman af
golfi en lítinn tíma til að njóta þess. Ég er því með
dyggustu stuðningsmönnum golfklúbbsins míns þar
sem ég greiði samviskusamlega öll gjöld, en er ekki að-
gangsharður á aðstöðuna.“
Annars segist Þorsteinn hafa fjölmörg áhugamál, og í
raun séu þau alltof mörg. „Ég hef einnig mjög gaman
af því að eyða tíma með vinum og fjölskyldu og líður
mjög vel í vel menntu matarboði. Við hjónin erum til að
mynda í matarklúbbi ásamt þremur öðrum hjónum, en
klúbbfundir eru því miður ekki eins reglulegir og mað-
ur hefði viljað. Eftir því sem árin líða verður erfiðara
og erfiðara að finna kvöldstund sem hentar okkur öll-
um, en það er alltaf gaman þegar það tekst.“
Eiginkona Þorsteins er Lilja Karlsdóttir, kennari, og
saman eiga þau þrjár dætur, tveggja, sex og níu ára
gamlar.
Forfallinn golfari í dvala
SVIPMYND
Morgunblaðið/RAX
Dyggur Þorsteinn Víglundsson, forstjóri BM Vallár, seg-
ist með dyggustu stuðningsmönnum golfklúbbsins síns,
greiði gjöldin en hafi fá tækifæri til að spila.
bjarni@mbl.is
SKÓLAHALD er nú að hefjast og þess
má meðal annars sjá merki í sjón-
varpi þar sem auglýsingar um ýmiss
konar skólavarning tröllríða öllum
auglýsingatímum nú um stundir. Enn-
fremur má sjá bankana reyna að
lokka til sín námsmenn með ýmsum
gylliboðum og glymur slagorðið „Sýn-
um námsmönnum tillitssemi“ í huga
Útherja öllum stundum. Ætli þar sé
átt við að hækka námslánin þeirra
eða ætli bankinn sem auglýsir svona
hyggist veita námsmönnum yfirdrátt-
arheimild á 4,15% vöxtum? Þegar
stórt er spurt er fátt um svör en sú
auglýsing sem hefur vakið mesta at-
hygli Útherja er þó frá einni af rit-
fangaverslunum höfuðborgarsvæð-
isins. Enginn skyldi þó halda að það
sé verið að höfða til námsmanna á
Ísafirði eða annars staðar á lands-
byggðinni. Í þessari auglýsingu eru
gefin verðdæmi og dæmi um hvernig
verð var áður en neðarlega á skjánum
birtist gulur texti þar sem segir: „Ath.:
Verð getur lækkað án fyrirvara.“ Þetta
þykir Útherja afar skoplegt, sér-
staklega í ljósi þeirrar umræðu sem
ríkt hefur um efnahagsmál að und-
anförnu. En námið er vinna, skólinn er
vinnustaður og þar er ekki verið að
skjóta skjólshúsi yfir verðbólgudraug-
inn sem hefur verið að hrella okkur og
okkur er öllum svo illa við.
ÚTHERJI
Verðbólgudraugurinn
ekki velkominn
JAPANSKIR skrifstofustarfs-
menn, sérstakleg fólk á þrítugs-
aldri, þjáist í auknum mæli af
stressi og geðrænum vanda-
málum því tengdu. Frá þessu
greinir AP-fréttastofan og vitnar
til nýlegrar rannsóknar. Í henni
kemur fram að rúm 61% af þeim
218 fyrirtækjum sem tóku þátt í
könnuninni segja að starfs-
mönnum með geðræn vandamál
hafi stöðugt fjölgað undanfarin
ár.
Um er að ræða umtalsverða
aukningu; í sambærilegri könnun
sem gerð var árið 2002 sögðu
41,8% fyrirtækjanna geðræn
vandamál vera að aukast og í
könnun frá 2004 var hlutfallið
49,3%.
Þá er í nýlegri skýrslu frá Geð-
heilsustofnun Japans (e. Mental
Health Research Institute) greint
frá því að 75% fyrirtækja segjast
hafa starfsmenn sem taki sér frí
lengur en í mánuð.
Árið 2004 var hlutfallið hins
vegar 67%.
Sérfræðingar sem vitnað er til
í skýrslunni segja að harðari
samkeppni, minnkandi samskipti
og stuðningur meðal samstarfs-
manna, sé líklegasta skýringin á
aukningunni.
Á tíunda áratugnum þegar nið-
ursveifla í japanska hagkerfinu
fór að þrengja að fyrirtækjunum
breyttu mörg þeirra launafyr-
irkomulagi sínu. Í stað launa-
hækkana í samræmi við starfs-
aldur var komið á afkastatengdu
launakerfi, en í kjölfar breyting-
anna segir Kotaro Kusunoki, sér-
fræðingur hjá stofnuninni, hafi
samstarfsfólk orðið að keppinaut-
um og álagið aukist.
Stress sligar japanska
skrifstofustarfsmenn
Reuters
Stressaðir Þótt þessir japönsku skrifstofustarfsmenn beri það ekki með sér
þá hafa geðræn vandamál vegna álags aukist mikið meðal starfsmanna á
japönskum skrifstofum.
FERÐAMÖNNUM sem heim-
sækja Búlgaríu hefur fjölgað mikið
á umliðnum árum. Í frétt í danska
viðskiptablaðinu Børsen segir að út-
lit sé fyrir að vinsældir Búlgaríu
sem ferðamannalands eigi eftir að
aukast enn frekar á komandi árum.
Fram kemur í frétt Børsen að um
4,8 milljónir ferðamanna hafi heim-
sótt Búlgaríu á síðasta ári og þar af
hafi verið um 70 þúsund Danir.
Þetta hafi vakið áhuga jafnt á meðal
þeirra sem selji sumarhús í þessu
landi við Svartahaf sem og þeirra
sem vilji fjárfesta í slíku. Segir í
fréttinni að útlendingar hafi verið
þátttakendur í nærri fjórðungi af
öllum viðskiptum með íbúða- og
sumarhúsnæði í landinu á síðasta
ári.
Íbúðaverð í Búlgaríu hefur hækk-
að í kjölfar aukinna viðskipta. Verð-
ið er þó töluvert lægra en á sól-
ríkum stöðum svo sem í Frakklandi
og á Spáni. Segir í frétt Børsen að
Jyske Bank telji að fjárfesting í
sumarhúsi í Búlgaríu sé að öllum
líkindum hagkvæm. Landið sé að
öllum líkindum á leið inn í Evrópu-
sambandið, sem muni draga veru-
lega úr þeirri áhættu sem fylgir
fasteignaviðskiptum í Búlgaríu.
Reuters
Aðdráttarafl Sól, sandur og lágt verðlag laðar ferðamenn til Búlgaríu. Á
myndinni liggja þrír slíkir í söltu vatni við Svartahaf.
Búlgaría vinsæl hjá
sumarhúsakaupendum