Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 6
6 B FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
REYKJALUNDUR Plastiðnað-
ur fagnar nú að hálf öld er liðin frá
því að fyrstu plaströrin voru fram-
leidd í Mosfellsbænum árið 1956.
Margir landsmenn þekkja svörtu
Reykjalundarrörin en varla er til
það þorp hérlendis sem ekki fær
drykkjarvatnið í gegnum Reykja-
lundarrör. Rörin skipa ákveðinn
sess í iðnaðarsögu þjóðarinnar, en
Reykjalundur var meðal fyrstu fyr-
irtækja á heimsvísu sem tókst að
framleiða nothæf plaströr kalda-
vatnsveitu.
Það er þó ekki aðeins sagan sem
starfsmenn Reykjalundar fagna og
minnast í ár. Framleiðslan sem
hófst fyrir fimmtíu árum hefur
vaxið stöðugt síðan þá og segir
Hlöðver Hlöðversson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, að
undanfarið hafi notkun á plaströr-
um aukist mikið í fráveitulögnum
bæði fyrir yfirborðsvatn og skólp.
„Röraframleiðsla hér í Mosfells-
bænum hefur aldrei verið meiri en
nú og við eigum von á frekari vexti
í framtíðinni.“
Framleiða, smíða og þjónusta
„Í gegnum tíðina hefur gríðarleg
þróun verið í hráefnum fyrir röra-
og lagnaframleiðsluna og í dag
bjóðum við upp á fjölbreytt vöruúr-
val fyrir ólík verkefni á borð við
frárennsli, þrýstilagnir, hlífðar-
lagnir, snjóbræðslulagnir o.s.frv.
Viðskiptavinir okkar eru sömuleið-
is breiður hópur, allt frá einstak-
lingum í framkvæmdum við sum-
arbústaðinn yfir í sérhæfðar
lausnir fyrir stórfyrirtæki og sveit-
arfélög,“ segir Hlöðver.
Hann segir að Reykjalundarrör-
in séu enn uppistaðan í framleiðsl-
unni en árið 2002 fékk PR fram-
leiðsluleyfi á Weholite rörum á
Íslandi, sem þróuð eru af KWH í
Finnlandi. „Weholite rörin hafa
fengið góðar viðtökur hér heima
sem og erlendis, enda er rörakerfið
mjög hentugt í fjölbreytileg verk-
efni s.s. vegræsi, frá veitur, bre-
unna, tanka og loftræsislagnir.
Langmest eru þetta fráveitulagnir
en loftræsislagnir úr Weholite rör-
um njóta sömuleiðis aukinna vin-
sælda og hafa verið lagðar í þó
nokkrar byggingar hér heima. Þar
hefur mikil hagræðing náðst í kjöl-
farið þar sem rörin eru mjög með-
færileg og hagkvæm í niðursetn-
ingu,“ segir Hlöðver og bætir við
að hvað varði lagnir þá sé Reykja-
lundur meira en eingöngu fram-
leiðslufyrirtæki.
„Metnaður fyrirtækisins er að
bjóða heildarlausnir og aðstoð við
úrlausnir á þeim verkefnum sem
koma á borð til okkar. Þjónusta er
því mjög mikilvægur hluti af starf-
semi okkar. Við tökum að okkur að
sérsmíða fyrir viðskiptavini og út-
vegum þeim helstu tæki og tól til
framkvæmdanna ef þess er þörf,“
segir Hlöðver.
Flestir landsmenn notast dag-
lega við lagnir frá Reykjalundi þó
eðli málsins samkvæmt fari ekki
mikið fyrir þeim. Önnur fram-
leiðsla frá Reykjalundi er hins veg-
ar fyrir augum landans á hverjum
degi, en auk lagna og röraverk-
smiðju rekur Reykjalundur einnig
umbúðaframleiðlu. Stærstu við-
skiptavinir félagsins eru mjólk-
urbúin og því er líklega jógúrt- eða
skyrdollu frá Reykjalundi að finna
í flestum ísskápum á Íslandi.
„Ubúðaverksmiðja okkar er
staðsett að Reykjalundi í Mos-
fellsbæ í um 2.000 fermetra hús-
næði. Þar starfa um 15 manns á
vöktum og framleiða árlega nær 20
milljónir eininga. Auk matvælaum-
búða framleiðum við einnig fötur í
ýmsum stærðum og gerðum, sem
eru steyptar og áprentaðar eftir
óskum viðskiptavina,“ segir Hlöð-
ver.
Þessi hluti fyrirtækisins hefur að
sögn Hlöðvers sömuleiðis vaxið
mikið undanfarin ár, en í haust
festi RP kaup á plastgerðinni Po-
lyto, sem starfrækt var í Kópavogi
um árabil. „Þessi viðbót fellur vel
að þeirri starfsemi sem fyrir er,
enda hefur hér byggst upp mikil
þekking eftir áratuga reynslu af
slíkri framleiðslu,“ segir Hlöðver.
Endurnýjaður kraftur
Fjölmargar vörutegundir hafa ver-
ið framleiddar á Reykjalundi í
gegnum árin s.s. jólaseríur, leik-
föng, plastpokafilmur, LEGO
kubbar (eða SÍBS kubbar eins og
þeir voru kallaðir) og margt fleira.
Framleiðslu á kubbunum var hætt
árið 1977, en Reykjalundur hefur
síðan þá verið með heildsöludreif-
ingu á LEGO.
Félagið hefur þannig í áranna
rás prófað ýmislegt og verið
óhrætt við breytingar, en ein slík
breyting átti sér stað árið 2004
þegar nýir eigendur tóku við fyr-
irtækinu.
Hlöðver segir að eigendaskiptin
hafi reynst happaskref fyrir fyr-
irtækið. „Í kjölfarið hefur aukinn
kraftur verið bæði í rekstrinum og
markaðsmálum félagsins. Á síðasta
ári hófum við að framleiða til út-
flutnings til Færeyja og erum að
kanna frekari tækifæri í þeim efn-
um annars staðar í Evrópu. Það er
því góður gangur á fyrirtækinu í
dag og við erum bjartsýnir á fram-
haldið,“ segir Hlöðver að lokum.
Fagnar fimmtíu árum
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
Morgunblaðið/Eyþór
Bjartsýnn Hlöðver Hlöðversson segir röraframleiðsluna aldrei hafa verið meiri og vöxtur sé framundan.
:#!
!
"#
! $
%
&
'
( )
" # !
*+
( "
" (,
!
!
- .
MILLJÓNIR, milljarðar og billj-
ónir. Þetta eru hugtök sem við heyr-
um á hverjum degi, sum vissulega
oftar en önnur. Billjónir eru enn
sjaldgæfar í íslensku viðskiptalífi en
það er ekki svo langt síðan einn millj-
arður þótti mjög há upphæð.
Merking hugtakanna milljarður
og billjón vefst stundum fyrir fólki
og hefur það eflaust eitthvað með
það að gera að á ensku heitir það
sem við köllum milljarð billion.
Flestum er kunnugt um að 1 millj-
arður jafngildir 1.000 milljónum og
að sama skapi jafngildir 1 billjón
1.000 milljörðum. Sumum finnst
þægilegast að telja núllin og þá vita
flestir að 1 milljón er skrifum með
sex núllum. Þegar milljarður er ann-
ars vegar bætast þrjú núll við (níu
núll) og í billjón bætast þrjú núll til
viðbótar (tólf núll). Þar sem sex sinn-
um tveir eru tólf má lesa út úr þessu
að í einni billjón eru milljón milljónir.
Ennfremur eru til billjarðar og trillj-
ónir og enn hærri tölur sem óþarfi er
að fjalla um enn sem komið er.
Það er spurning hvers vegna
Norðurlandaþjóðir tala um milljarða
á meðan þeir sem engisaxnesku tala
um billjónir. Þetta fer greinilega eft-
ir málsvæðum en ljóst er að allt er
þetta komið úr latínu. Mil þýðir þús-
und á latínu og ef ein milljón er brot-
in niður fáum við út að ein milljón er
þúsund sinnum þúsund og þaðan er
nafnið komið. Milljarður er því þús-
und í þriðja veldi, þ.e. þúsund sinn-
um þúsund sinnum þúsund en þegar
kemur að billjón vandast málið.
Bi þýðir í latínu tví, sbr. að tvíhjól
heitir í ensku bicycle, og þar sem
milljón milljónir er tvítekning má
vera að í þeim tungumálum sem nota
bæði billjónir og milljarða sé skýr-
ingin þar komin.
En milljarð má einnig skrifa sem
þúsund sinnum þúsund í öðru veldi.
Þar er hugtakið bi aftur komið á
kreik og er sennilegt að það sé
ástæða þess að í hinum enskumæl-
andi heimi heitir milljarður billjón.
Af milljörðum og billjónum
spurt@mbl.is
ll ? | H U G TÖ K
NÝLEGA er lokið tveimur af
helstu tölvuöryggisráðstefnum í
Bandaríkjunum, BlackHat og Def-
con, þar sem kynntar voru ýmsar
nýjar árásaraðferðir á
tölvukerfi.
Áhugaverð var sýn-
ing tveggja sérfræð-
inga á sviði tölvuör-
yggis á því hvernig
hægt er að brjótast inn
á tölvur með þráðlaus-
um netkortum. Slík
ógn er til staðar vegna
galla í reklum (driver-
um) sem jafnan fylgja
með þráðlausu net-
kortunum. Sýnt var
hvernig brotist var inn
með einföldu móti á
undir einni mínútu og
stjórninni náð á Macintosh-ferðavél.
Þessi öryggisgalli er ekki bundinn
við neinn ákveðinn framleiðanda eða
stýrikerfi. Tölvufyrirtækið Intel
staðfesti að þessi öryggisgalli væri
til í „Centrino“-reklum frá þeim en í
framhaldinu gaf fyrirtækið út örygg-
isuppfærslu til að varna þessari ógn.
Til þess að óprúttinn aðili geti
brotist inn í utanað komandi tölvu
þarf notandinn ekki endilega að vera
að nota þráðlausa Net-
ið. Nóg er að tölvan sé
að leita eftir þráðlaus-
um netum sem er sjálf-
gefin stilling á flestum
stýrikerfum m.a. Wind-
ows. Ekki skiptir máli
hvort viðkomandi
er með valið að nota
dulkóðuð samskipti.
Sem betur fer er
þessi aðferð flóknari en
hefðbundnar árásir svo
að ólíklegt er að ein-
hverjir
óprúttnir aðilar komi
til með að nýta sér
þessa árás hér á landi áður en tekist
hefur að gefa allar öryggisupp-
færslur út.
Tölvuöryggissérfræðingarnir sem
fundu öryggisgallana og kynntu þá,
ætla að bíða með að gefa út
nákvæmar upplýsingar um hvar
og hvernig þeir fundu gallana þang-
að til eftir að framleiðendur hafa gef-
ið út öryggisuppfærslur fyrir al-
menna notendur. Vert er að hafa í
huga að margir sérfræðingar á sviði
tölvuöryggis hafa nú þegar eftir ráð-
stefnuna
nægilega þekkingu til þess að geta
greint þessa galla og þróað forrit
sem geta misnotað gallana og þar
með brotist inn í tölvur með þráð-
lausu neti.
Nauðsynlegt er að vera sífellt á
varðbergi gagnvart ógnum sem
steðja að tölvum og upplýsingakerf-
um, því sífellt eru að koma fram nýj-
ar ógnir og aðferðir við að brjótast
inn í tölvur, og tölvukerfi.
Nánari upplýsingar um þetta efni
og hvar nálgast megi öryggisupp-
færslur frá Intel má finna á vefsíðu
Stika.
Ert þú með þráðlaust netkort?
– Vertu á varðbergi
Svavar Ingi
Hermannsson
Höfundur er sérfræðingur
í tölvuöryggi hjá Stika.
Eftir Svavar Inga
Hermannsson