Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 B 3  Í ÁTT AÐ JAFNVÆGI? HAGNAÐUR af rekstri SPRON-samstæðunnar eftir skatta var 2.627 milljónir króna á fyrri helmingi þessa árs og jókst um 67% frá sama tímabili síðasta árs. Arðsemi eigin fjár SPRON var 37%. Hreinar rekstrartekjur námu alls um 5,1 milljarði króna og jókst um 51% frá fyrra ári. Kostnaður sem hlutfall af tekjum var 35% og hefur lækkað úr 40% á sama tíma- bili árið 2005. Fram kemur í tilkynningu að vaxta- munur sparisjóðsins sé 2,5% og sé svipaður og á síð- asta ári. Heildareignir SPRON eru tæplega 154 milljarðar króna og hafa heildareignir hækkað um tæp 34% frá upphafi þessa árs. Heildarútlán og kröfur á lánastofn- anir SPRON námu 120 milljörðum í lok júní og hækk- uðu um rúmt 31% á fyrstu sex mánuðum ársins. Út- lán til viðskiptavina námu 113 milljörðum og hækkuðu um 33% á tímabilinu. Eigið fé SPRON í lok júní síðastliðinn nam 19,2 milljörðum og hefur hækkað um 6,1 milljarð frá ára- mótum. Eiginfjárhlutfall (CAD) SPRON samstæð- unnar í lok ársins var 13,2%. Eiginfjárþáttur A er 19,3%. Lágmarkshlutfall samkvæmt lögum er 8,0%. Haft er eftir Guðmundi Haukssyni, sparisjóðsstjóra SPRON, í tilkynningu frá sjóðnum að náðst hafi góð- ur árangur í rekstri allra rekstrareininga SPRON á fyrri helmingi þessa árs og að afkoman hafi aldrei verið betri. Hann segir að starfsemi sparisjóðsins hafi haldið áfram að styrkjast á öllum sviðum og að benda megi á aukningu þjónustutekna í því sambandi en stór hluti aukningarinnar frá fyrra ári sé tilkominn vegna nýrrar starfsemi. Rekstur dótturfélaganna Frjálsa fjárfestingarbankans og Netbankans hafi gengið mjög vel. Horfur SPRON á seinni helmingi ársins 2006 séu mjög góðar og séu allar forsendur til þess að rekstur SPRON haldi áfram að blómstra. Hagnaður SPRON eykst umtalsvert STJÓRN króatíska lyfjafyrirtæk- isins PLIVA hefur tekið afstöðu til tilboðs Barr Pharmaceuticals Inc. um yfirtöku á fyrirtækinu. Telur stjórnin að tilboðið sé sanngjarnt og endurspegli verðmæti fyrirtækisins. Frá þessu er greint í Vegvísi grein- ingardeildar Landsbanka Íslands. Í Vegvísinum segir að stjórn Barr hafi í gær sent frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem hún lýsi þeirri skoðun sinni, að tilboð Barr, sem er 743 kró- atískar kúnur á hlut auk 12 kúna arð- greiðslu, sé sanngjarnt og endur- spegli verðmæti fyrirtækisins. Í tilkynningunni sé jafnframt farið já- kvæðum orðum um yfirlýst markmið Barr með yfirtökunni, sem myndi leiða til frekari uppbyggingar PLIVA í Króatíu. Bíður heimildar króatíska fjármálaeftirlitsins Eins og fram hefur komið hefur Actavis einnig haft áhuga á að kaupa PLIVA, og var Actavis reyndar fyrst félaga til að lýsa slíku yfir. Actavis bíður enn heimildar króatíska fjár- málaeftirlitsins til að leggja fram nýtt tilboð en hún ætti að berast á allra næstu dögum. Í Vegvísinum segir að vegna þessa séu öll kurl ekki komin til grafar og að ef PLIVA muni ber- ast nýtt tilboð frá Actavis, þá muni stjórn félagsins einnig þurfa að taka formlega afstöðu til þess tilboðs. Gengi bréfa PLIVA í kauphöllinni í Zagreb hækkaði um 1,3% í gær og var gengið í lok dagsins 790 kúnur á hlut. PLIVA telur tilboð Barr sanngjarnt LÁNASJÓÐUR sveitarfélaga hagnaðist um 717 milljónir króna á fyrri helmingi þessa árs sam- anborið við 377 milljónir í fyrra. Hagnaðurinn nærri tvöfaldaðist því á milli ára. Í tilkynningu frá sjóðn- um segir að afkoman á fyrri hluta ársins 2006 hafið verið betri en væntingar stóðu til. Hækkun verð- lags hafi haft jákvæð áhrif á af- komu sjóðsins þar sem útlán sem fjármögnuð eru með eigin fé hans séu verðtryggð. Vextir hafi verið hækkaðir um 0,4% í 4,40% hinn 1. maí síðastliðinn, en einnig að ávöxt- un á lausu fé hafi verið ágæt. Hlutverk sjóðsins er að tryggja íslenskum sveitarfélögum, stofn- unum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum. Samþykktar lánveitingar á fyrri hluta ársins 2006 voru 7.247 milljónir króna, en útborguð lán voru 3.045 milljónir en 3.104 milljónir á sama tíma 2005. Lánasjóður sveitarfélaga hagnast vel YFIRTÖKUNEFND telur nauð- synlegt að hvetja til þess að tilboðs- yfirlit yfirtökutilboða séu meira upplýsandi fyrir hluthafa og tryggi sem mest jafnræði þeirra. Yfirtöku- nefnd hefur þess vegna birt með al- mennum hætti tilmæli til fjármála- fyrirtækja og annarra, sem annast gerð yfirtökutilboða, um að auka og bæta upplýsingar í yfirtökutilboð- um. Er skorað á þessa aðila að standa almennt þannig að gerð yf- irtökutilboða að hagsmunir eigenda minni hluta í skráðum félögum, og annarra sem ekki hafa möguleika til að kynna sér af eigin raun það félag sem um ræðir, verði sem best tryggðir. Rökstutt álit stjórnar Meðal þeirra atriða sem nefndin tekur til í tilmælum sínum er að í tilboðsyfirliti komi fram hve mikinn atkvæðisrétt tilboðsgjafi hafi öðlast beint eða óbeint og að koma skuli fram hámarks- og lágmarkshlutfall eða magn hluta sem tilboðsgjafi ætlar að eignast ef um valfrjálst til- boð er að ræða. Þá skuli tekið fram við hvaða verð er miðað í tilboðinu, upplýsingar um fjármögnun tilboðs- ins og hvernig greiðsla skuli fara fram, svo eitthvað sé nefnt. Þá segir í tilmælum nefndarinnar að í greinargerð stjórnar félags um yfirtökutilboð skuli koma fram rök- stutt álit stjórnarinnar á tilboðinu og skilmálum þess, rökstutt álit á framtíðaráformum tilboðsgjafa og á því hvaða áhrif tilboðið hefur á hagsmuni félagsins. Yfirtöku- tilboð séu meira upp- lýsandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.