Morgunblaðið - 01.10.2006, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2006 55
MINNINGAR
Engin orð fá lýst
sorginni við að heyra lát Laufeyjar
frænku minnar. Hún lést af slysför-
um í blóma lífsins, frá eiginmanni og
✝ Laufey HerdísGuðjónsdóttir
fæddist á sjúkra-
húsinu á Egils-
stöðum 13. nóv-
ember 1976. Hún
lést á gjörgæslu
Landspítalans í
Fossvogi aðfaranótt
29. ágúst síðastlið-
ins og var jarð-
sungin frá Egils-
staðakirkju 5.
september.
ungum börnum. Ung
kona með glæsilegan
námsferil að baki og
nærri lokið kennara-
prófi. Laufey hafði af-
burða námsgáfur, sem
fáum er gefið, og alltaf
með glæsilegan árang-
ur í námi.
Mannkostir Lauf-
eyjar voru á fleiri svið-
um en námsgáfum.
Hún var hvers manns
hugljúfi og vinsæl af
börnum og unglingum,
sem hún kenndi. Hafði
næmt auga fyrir þeim sem minna
máttu sín, var alltaf boðin og búin
þeim til hjálpar og þroska.
Laufey kom eitt sinn að máli við
mig og langaði til að heyra hvernig
mér þætti guðfræðinámið. Það var
gaman að tala við frænku mína um
námið hennar og guðfræðina. Hún
hafði svo mikla yfirsýn og hug-
myndaflug um, hvernig hún ætlaði
að nýta námið í starfi. Vildi tengja
kennarastarfið meira inn á svið kær-
leika, „til að gera samskiptin
mennskari“ eins og hún orðaði það.
Það er mikill missir í samfélaginu, að
börn og unglingar skyldu ekki fá að
njóta leiðsagnar hennar lengur.
Mestur er missir litlu barnanna
hennar, eiginmanns, foreldra og
tengdaforeldra. Megi eftirfarandi
vers vera okkur öllum huggun, um
okkar hjartkæru Laufeyju:
Og hvort sem vor braut er brött eða greið,
vér biðjum þig heitt að vísa oss leið.
Sjá, veginn til lífsins! Hann förum vér fyrst,
er fylgdina þiggjum í trúnni á Krist.
(Pétur Sigurgeirsson)
Sigríður Laufey Einarsdóttir.
Laufey Herdís
Guðjónsdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞORBJÖRG BJARNADÓTTIR
sjúkraliði,
Rofabæ 45,
Reykjavík,
sem andaðist á Droplaugarstöðum fimmtudaginn
21. september, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju
þriðjudaginn 3. október kl. 13.00.
Elsa Þ. Axelsdóttir, Pálmi Ólason,
Björk Axelsdóttir, Jón S. Pálsson,
Þyri Axelsdóttir, Ásgeir Guðnason,
Davíð Axelsson, Selma K. Albertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTJANA MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR,
Granaskjóli 12,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn
2. október kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Parkin-
son-samtökin.
Guðmundur Pétursson, Þórunn Kristjánsdóttir,
Ingibjörg Pétursdóttir, Einar Gylfi Jónsson,
Sigurður Pétursson, Hansína Hrönn Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur vinur okkar og frændi,
KRISTINN BREIÐFJÖRÐ (Dinni)
frá Flatey
á Breiðafirði,
Blesugróf 29,
lést þriðjudaginn 26. september.
Jarðsett verður frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
3. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Heimilisfólkið Blesugróf 29 og aðstandendur.
Bróðir okkar og faðir,
JÓNAS G. KRISTINSSON,
til heimilis á Corso Compano 51 -F,
Venafro IS,
Ítalíu,
lést fimmtudaginn 17. ágúst.
Útför hans fór fram laugardaginn 19. ágúst í
Venafro.
Birgir Sigurður Kristinsson,
Guðlaugur Gretar Kristinsson,
Jónas Filip Kristinsson,
Sturla Jef Kristinsson.
Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og frændi,
HJÁLMAR H. SMÁRI GUÐMUNDSSON,
Engihjalla 11,
Kópavogi,
sem lést mánudaginn 25. september, verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
4. október kl. 13.00.
Guðmundur Jónsson, Halla Hansdóttir,
Ástþór Guðmundsson, Valgerður Jónsdóttir,
Jónína Guðmundsdóttir, Brynjólfur Erlingsson,
Þröstur Guðmundsson, Unnur Heimisdóttir
og aðrir aðstandendur.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra fjölmörgu
ættingja og vina sem sýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför okkar ástkæru
ÖNNU HAFSTEINSDÓTTUR,
Brekkuskógum 1,
Álftanesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeild-
ar LSH í Kópavogi og starfsfólki Karitasar fyrir
kærleiksríka umönnun.
Ársæll Karl Gunnarsson,
Gunnar Karl Ársælsson, Sigurlaug Sverrisdóttir,
Sólrún Ársælsdóttir, Ingólfur V. Ævarsson,
Ingibjörg Birna Ársælsdóttir,
Rakel Ársælsdóttir, Rúnar Snæland Jósepsson,
Ingibjörg B. Þorláksdóttir, Hafsteinn Sigurþórsson,
Sigurþór Hafsteinsson,
Laufey Hafsteinsdóttir, Bjarni Hauksson
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
SÓLRÚNAR ÞORBJÖRNSDÓTTUR,
Sóltúni 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hjúkrunar-
heimilisins Sóltúns.
Gísli Ferdinandsson,
Guðríður Valva Gísladóttir,
Kolbeinn Gíslason,
Ólafur Haukur Gíslason,
Magnea Auður Gísladóttir,
Þorbjörn Reynir Gíslason,
Gísli Gíslason,
Matthías Rúnar Gíslason,
tengdabörn og barnabörn.
Frændi minn,
ÓLAFUR EYJÓLFSSON,
Bólstaðarhlíð 9,
Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 28. september sl.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn
6. október kl. 15.00.
Sigríður Alexanders.
Elsku afi,
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V.Briem)
Þegar mér var sagt að nú væru
endalokin nærri kom ég og kvaddi
þig í hinsta sinn. Mér þótti skrýtið að
hugsa til þess að þetta væri hinsta
kveðjan þar sem þú varst svo vel vak-
andi fyrir umhverfinu og þvi sem var
að gerast í kringum þig á kveðju-
stundinni okkar. Þegar ég kom og
kvaddi þá var amma komin með
sálmabókina sína og sat hjá þér og
söng fyrir þig sálmana sína og þannig
kvaddir þú, með ömmu þér við hlið og
ég efast aldrei um að sálmasöngurinn
hennar hefur ómað í hjarta þér og
ómar þar enn. Afi minn, það er margs
að minnast hjá okkur og geymum við
þær minningar fyrir okkur. Minning-
ar um látna ástvini eru fjársjóðurinn
okkar sem við yljum okkur við þegar
sorgin og söknuðurinn sækir að okk-
ur. Þá er ljúft að hugsa til baka með
bros á vör og þakka fyrir stundirnar
sem við áttum saman.
Brostu til syrgjandans sollna, er sýtir og
harmar um nótt, hann brosir aftur og
sorgirnar sefast og sálin fær nýjan þrótt.
(Magnús frá Skógi á Rauðasandi)
Elsku amma, það er ekki auðvelt
að kveðja þann sem hefur fetað lífs-
brautina með þér í yfir hálfa öld en
þú sýndir ótrúlegt æðruleysi og veitt-
ir okkur ómetanlegan styrk þegar
kallið hans afa var komið. Ef við
hugsum til orða prestsins sem sagði
við okkur í lok bænastundarinnar að
nú skyldum við ganga út í lífið og
horfa fram á veginn þá voru þessi orð
mjög í anda afa. Hann vildi nú ekki að
verið væri að hafa mikið fyrir sér og
það var nú bara fyrir þrjóskuna í mér
sem ég fékk að koma með bíómynd-
irnar og hamborgarana til hans.
Þrátt fyrir sorgina og söknuðinn, þá
Kristján Jóhannsson
✝ Kristján Jó-hannsson fædd-
ist í Reykjavík 25.
ágúst 1932. Hann
andaðist á blóð-
lækningadeild
Landspítala - há-
skólasjúkrahúss við
Hringbraut 10. sept-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Áskirkju
15. september.
skulum við í minningu
afa ganga til móts við
framtíðina og taka því
sem að höndum ber
með höfuðið hátt og
bros á vör.
Brostu til alls og allra í
árvakri mannúðargjörð,
og brosið mun birtast þér
aftur í brosi – frá himni –
og jörð.
(Magnús frá Skógi
á Rauðasandi)
Guð vaki yfir ykkur.
Guðrún Berta.
Elsku afi,
Þú vakir, faðir vor,
og verndar börnin þín,
svo víð sem veröld er
og vonarstjarna skín,
ein stjarna hljóð á himni skín.
(Sigurbjörn Einarsson.)
Nú komið er að kveðjustund hjá
okkur. Ég var ekki há í loftinu þegar
ég spurði hana ömmu hvort hann afi
minn væri ekki líka pabbi minn og
amma sagði jú jú, Gréta mín hann afi
þinn er líka pabbi þinn. Þetta var nú
húmor að þínu skapi. Okkur var al-
veg sama þó svo misskilningur gæti
skapast af þessum orðum. Annað
sem lýsir húmornum þínum er að
þegar mamma kom með mig heim af
spítalanum þá varstu nýbúinn að
kaupa þér vinnuskó sem komu í þess-
um fína skókassa. Þar sem ég var
óttaleg písl þá bjóstu um mig í skó-
kassanum og það fór nú bara mjög
vel um mig þó svo ömmu og mömmu
þótti þetta nú ekki besti staðurinn
fyrir nýfætt ungabarn. Þetta var
ekki það síðasta sem við brölluðum
saman og nægir rétt að nefna tímann
sem við unnum saman og þegar ég
keypti fyrsta bílinn minn af þér. Afi
minn, við höfum alltaf átt sérstakan
stað í hjarta hvors annars og þar
geymi ég vel allar minningarnar okk-
ar. Ömmu skal ég gæta fyrir þig en
ég veit að þú vakir vel yfir henni og
okkur öllum.
Amma mín, Guð gefi þér styrk til
að halda áfram án afa.
Margrét.