Morgunblaðið - 20.11.2006, Side 29

Morgunblaðið - 20.11.2006, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2006 F 29 Í hjarta miðbæjarins Lindargata 27 er glæsilega hannað viðhaldslítið átta hæða lyftuhús. Íbúðum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum og með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Sér þvottahús er í hverri íbúð og rúmgóðar geymslur í kjallara fyrir hverja íbúð. Innréttingar eru spónlagðar. Kaupendur geta valið um þrjár viðartegundir. Í eldhúsi verður keramikhelluborð með fjórum hellum, blástursofn og gufugleypir. Heimilistæki eru af AEG-gerð með burstaðri stáláferð eða sambærilegt. Dyrasími er tengdur myndavél í aðalanddyri. Sjónvarpsloftnets- og símatenglar eru frágengnir í stofu, borðkrók og svefnherbergjum. Í íbúðunum er tengikassi fyrir stjörnutengingar síma, loftnets, tölvu og ljósleiðara. Sameign og lóð eru fullfrágengin. Snjóbræðsla er við aðalanddyri, aðkomurampa og í bílastæðum. Göngustígar og hluti bílastæða er hellulagður. Frábær staðsetning og stutt í alla þjónustu. Nútímaleg hönnun og allur frágangur er sérlega vandaður. Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja, 80–135 fm. Verð frá 30,1 millj. Í Norðurtúni á Egilsstöðum og Breiðamel á Reyðarfirði eru til sölu glæsilega hönnuð einbýlishús. Húsin eru klædd álklæðn- ingu og að hluta með harðvið. Gluggar eru álklæddir timbur- gluggar. Húsin þarfnast því lágmarksviðhalds. Húsunum er skilað fullbúnum að utan með grófjafnaðri lóð. Að innan er þeim skilað milli þess að vera fokheld og tilbúin til innréttinga eða fullbúin án gólfefna. Verð frá 23,4 millj. Í Norðurtúni á Egilsstöðum og Breiðamel á Reyðarfirði eru til sölu vönduð og falleg hús. Húsin eru klædd álklæðningu og að hluta með harðvið. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Húsin þarfnast því lágmarksviðhalds. Húsunum er skilað fullbúnum að utan með grófjafnaðri lóð. Að innan er þeim skilað milli þess að vera fokheld og tilbúin til innréttinga eða fullbúin án gólfefna. Húsin eru 96–140 fm. Verð frá 17,2 millj. EGILSSTAÐIR – REYÐARFJÖRÐUR Einbýlishús 4ra–5 herbergja LINDARGATA – REYKJAVÍK 2ja–3ja herbergja EGILSSTAÐIR – REYÐARFJÖRÐUR Raðhús 3ja–4ra herbergja Nýr og heilsusamlegur lífsstíll Þjónustuhús við Lækjarbrún í Hveragerði veitir þér tækifæri til að njóta lífsins í faðmi einstakrar náttúru og hafa jafn- framt aðgang að margvíslegri þjónustu Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands. Kaupendur gerast sjálfkrafa aðilar að samningi við HNLFÍ sem veitir aðgang að viðamikilli þjónustu Heilsustofnunarinnar gegn greiðslu mánaðarlegs grunngjalds. Rómuð náttúrufegurð, friðsæld og nálægð við hvers kyns þjónustu og heilsurækt eru nokkrir af þeim kostum til að njóta lífsins sem bjóðast í Hveragerði. Fallegar göngu- leiðir allt í kring, golfvöllur, hesthús og margvísleg afþreying á svæðinu. Íbúðunum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum og flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja, 86–111 fm. Verð frá 22,2 millj. ÞJÓNUSTUHÚS – HVERAGERÐI 2ja–3ja herbergja Stórglæsileg fjölbýlishús ÍAV reisa stórglæsileg fjölbýlishús við Sóltún 8–18. Húsin eru eru mjög vel staðsett í grónu íbúðahverfi, skammt frá allri þjónustu í miðbænum og Kringlunni. Þá er helsta tómstunda- og útivistarsvæði Reykvíkinga, Laugardalurinn, í göngufæri við húsin. Húsin eru nútímalega hönn- uð af Hróbjarti Hróbjartssyni og Karli Magnúsi Karlssyni hjá VA arkitektum. Allur frágangur er sérlega vandaður. Húsin eru á 4 til 7 hæðum. Tvær íbúðir eru á hæð í hverjum stigagangi og innangengt er úr sameiginlegu bílageymsluhúsi beint í stigagang og lyftu. Húsin eru einangruð að utan og klædd með álklæðningu og gluggar eru álklæddir trégluggar. Húsin þarfnast því lágmarksviðhalds. Sameign verður fullfrágengin með flísum í anddyri og teppum á stigagöngum. Útihurð í stiga- gangi er úr áli og með rafmagnsopnun. Íbúðirnar eru bjartar, með stórum gluggum sem sums staðar ná niður í gólf. Lofthæð er meiri en almennt gerist. Flestar íbúðanna hafa tvennar svalir. Við hönnun íbúðanna var sérstök áhersla lögð á þægindi fyrir íbúa. Hljóðeinangrun er eins og best verður á kosið með tvöföldu gólfi og vönduðum innveggjum. Gólfhiti er í íbúðunum. Mynd- dyrasími tengdur anddyri er í öllum íbúðum. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna, nema á baðherbergjum og þvottahúsgólfum sem verða flísalögð. Innréttingar eru mjög vandaðar. Hægt er að velja milli þriggja viðartegunda í in- nréttingum og innihurðum. Sjónvarps- og símatenglar eru í stofu, borðkrók og herbergjum. Í öllum íbúðum er tengikassi fyrir stjörnutengingu síma, loftnets, tölvu og ljósleiðara. Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja, 83–143 fm. Verð frá 25,1 millj. með sérstæði í bílageymslu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.