Fréttablaðið - 02.04.2009, Blaðsíða 2
2 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
Hart deilt við Hafró
um skoðunarsvæði
Hafrannsóknastofnunin hefur lagt fram tillögur að sérstökum hvalaskoðunar-
svæðum. Hvalaskoðunarsamtök Íslands segja svæðin of lítil og hvalaskoðun
geti lagst af. Hrefnuveiðimenn segja Hafró ganga of langt í að friða svæðin.
SJÁVARÚTVEGUR Hvalaskoðunar-
samtök Íslands og Félag hrefnu-
veiðimanna eru afar ósátt við til-
lögur Hafró um afmörkun svæða
fyr ir hva la -
sko ðu n sem
sjávarútvegs-
og landbúnað-
arráðuneyt-
ið kynnti á vef
sínum í gær.
Rannveig Grét-
arsdóttir, einn
a f fo r ys t u -
mönnum Hvala-
skoðunarsam-
takanna og framkvæmdastjóri
Eldingar, segir svæðin allt of lítil
og að ef farið verði að þessum til-
lögum muni hvalaskoðun leggjast
af hér á landi innan fárra ára.
Í tilkynningu sem samtök-
in sendu frá sér segir: „Tillag-
an ber þess ríkulega merki að
Hafró hefur frá upphafi verið
málpípa hvalveiðimanna og hval-
veiðistefnu stjórnvalda hverju
sinni.“ Rannveig segir að sam-
tökin hafi sent Steingrími J. Sig-
fússyni sjávarútvegsráðherra
bréf þar sem þau krefjist þess að
ræða þessi mál við hann áður en
endanleg ákvörðun verði tekin.
Gunnar Bergmann Jónsson,
formaður Félags hrefnuveiði-
manna, segir tillögur Hafró
ganga allt of langt í því að friða
ákveðin svæði. Enn fremur segir
hann að ekkert bendi til þess að
hvalveiðar hafi neikvæð áhrif á
hvalaskoðun. „Þau griðlönd sem
útbúin eru á helstu veiðisvæðum
hrefnuveiðimanna í Faxaflóa og
Skjálfanda eru einnig út úr öllu
korti, og hafna hrefnuveiðimenn
alfarið þeirri nálgun,“ segir í til-
kynningu frá honum. Hann segir
einnig að hvalaskoðunarfyrirtæk-
in hérlendis hafi ekki sýnt vilja
til að koma á samvinnu við hval-
veiðimenn.
Hverju svarar Jóhann Sigur-
jónsson, forstjóri Hafrannsókna-
stofnunarinnar, gagnrýni Hvala-
skoðunarsamtakanna? „Auðvitað
hefur Hafrannsóknastofnunin
litið á hvali sem hverja aðra endur-
nýjanlega auðlind og við höfum
lagt til aflamark við þessa stof-
an líkt og aðra nytjastofna. En
við gengum til þessarar vinnu [að
afmarka svæðin] á faglegum for-
sendum og reyndum að finna lausn
byggða á staðreyndum og sann-
girni sem allir gætu sætt sig við.“
Hann segir enn fremur allt benda
til þess að veiðar utan svæðanna
muni hafa afar lítil áhrif á hvala-
skoðun innan þeirra. Svo verði
veiðum dreift eftir ákveðnu kerfi
þannig að þær fari fram í réttu
hlutfalli við fjölda hvala á hverju
svæði. Það ætti einnig að draga
úr hugsanlegum áhrifum veið-
anna á hvalaskoðun. Hann sagðist
enn fremur skilja að tillögurnar
myndu þýða umtalsverða skerð-
ingu fyrir hvalveiðimenn.
jse@frettabladid.is
Tommi, ætlarðu ekki að kjósa
Borgarahreyfinguna?
„Maður í minni stöðu getur ekki
verið pólitískur.“
Tómas Tómasson, Tommi í Hamborgara-
búllunni, heldur sér í feiknaformi með
nægri hreyfingu og borgaraáti.
VIÐSKIPTI Ólafur Þór Hauksson, sér-
stakur saksóknari um bankahrun-
ið, á von á því að verða kominn með
skýrslur endurskoðunarfyrirtækj-
anna um gömlu viðskiptabankana í
hendur í dag. Honum hefur hingað
til verið neitað um aðgang að þeim
vegna bankaleyndar, en í gær tóku
gildi breytt lög um embætti hans
sem rýmka valdheimildirnar.
Stóru endurskoðunarfyrirtækin
unnu skýrslurnarnar síðasta haust
fyrir Fjármálaeftirlitið og hafa
þær fram að þessu verið sveipaðar
leyndarhjúp. Fjölmiðlar hafa ekki
fengið aðgang að þeim og Ólafur
Þór ekki heldur. Öllum öðrum en
Rannsóknarnefndinni um banka-
hrunið hefur verið svarað á þá
leið að í skýrslunum sé of mikið af
þagnarskyldum upplýsingum til að
hægt sé að láta þær af hendi.
„Ég gerði ráðstafanir í dag [gær]
til að nálgast þær [skýrslurnar] og
við getum þá farið að rýna svolítið
í þær og fóta okkur aðeins betur í
þessu. Það er fyrsta skref,“ segir
Ólafur Þór.
Ólafur segir að sér hafi borist
nokkuð af ábendingum um sak-
næmt athæfi í aðdraganda banka-
hrunsins og hann hafi nú þó nokk-
ur mál til rannsóknar, þar af
nokkur umfangsmikil. Hann segist
þó ekki geta tíundað nánar hvers
eðlis málin séu. Þá fari einnig tími
í það þessi dægrin að ráða nýtt
starfsfólk til embættisins. - sh
Skýrslur endurskoðunarfyrirtækja um bankana í hendur sérstaks saksóknara:
Fær loksins að sjá skýrslurnar
SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI Ólafur Þór
ætlar nú að þaullesa skýrslurnar um
gömlu bankana þrjá.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
JAFNRÉTTI Jafnréttisráð fagnar
aðgerðaáætlun gegn mansali,
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar
um kynjaða hagstjórn og til-
komu Jafnréttisvaktar, segir í
tilkynningu.
Um leið er minnt á að algjör-
lega sé á skjön við anda
jafnréttis laga að í nýskipaðri
stjórn Seðlabanka séu fimm karl-
ar og tvær konur og í sérnefnd
um endurskoðun stjórnarskrár
séu átta karlar og ein kona. Á
sama hátt sé gagnrýnivert að í
stjórn Kaupþings séu einungis
konur.
Hafa skuli í huga og taka tillit
til að samfélagið sé kynjað. - kóþ
Um verk ríkisstjórnar:
Jafnréttisráð
með og á móti
MENNTUN Röskva, samtök félags-
hyggjufólks við Háskóla Íslands,
boðar til setuverkfalls fyrir
utan skrifstofu Háskólarektors
í dag. Tilgangur setuverkfalls-
ins er að knýja skólayfirvöld
til að taka upp sumarannir við
skólann.
Setuverkfallið hefst klukk-
an átta og þar verður setið til
klukkan eitt eftir hádegi.
Könnun sem stúdentaráð
gerði bendir til þess að tæp-
lega 13.000 háskólastúdentar
gætu verið án atvinnu í sumar.
Fundað verður um málið í
Háskólaráði í dag.
- kg / sjá síðu 10
Röskva boðar til setuverkfalls:
Vilja sumar-
annir við HÍ
ÍSRAEL, AP Benjamin Netanyahu,
verðandi forsætisráðherra Ísra-
els, virtist sýna Palestínumönnum
meiri sáttahug en áður í ræðu á
ráðstefnu um efnahagsmál í Ísra-
el í gær. Þar hét hann friðarvið-
ræðum við palestínsk stjórnvöld.
Friður er „sameiginlegt og
varan legt markmið allra Ísraela
og ísraelskra ríkisstjórna, þar með
talið minnar,“ sagði Netanyahu.
Kosningabarátta hans þótti ein-
kennast af andstöðu við sjónarmið
Palestínumanna, en stjórnmála-
skýrendur segja hann þurfa að
mýkja afstöðu sína eftir að Verka-
mannaflokkurinn féllst á að ganga
inn í stjórn hans. - bj
Netanyahu vill friðarviðræður:
Mýkri afstaða
til Palestínu
NÝ STJÓRN Búist er við að Netanyahu
kynni nýja ríkisstjórn Ísraels á þingi
landsins í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1
2
3
Tillaga að hvalaskoðunarsvæðum
Eyjafjörður
og Skjálfandi
3
Faxaflói
2
Steingrímsfjörður
RANNVEIG
GRÉTARSDÓTTIR
VIÐSKIPTI Á fundi kröfuhafa í
Eglu hf., sem haldinn var í gær,
var samþykkt að leita samþykk-
is kröfuhafa til að fara fram á
nauðasamninga. Stjórnin lagði
tillöguna fram, en í henni felst
að um 15 prósent af kröfum verði
greidd á næstu mánuðum. Skuld-
ir fyrirtækisins eru á níunda
milljarð króna.
Fjórðungur kröfuhafa þarf að
samþykkja til að beiðni um nauða-
samninga verði tekin fyrir. Krist-
inn Hallgrímsson lögmaður bjóst
við að sá stuðningur næðist strax
eftir helgi, enda hefði komið fram
víðtækur stuðningur við tillöguna
á fundinum í gær. Gangi það eftir
má gera ráð fyrir að nauðasamn-
ingar geti farið fram í maí.
Egla er dótturfélag fjárfest-
ingafélagsins Kjalars, sem er í
eigu Ólafs Ólafssonar, sem oft er
kenndur við Samskip. Kjalar á í
deilum við Kaupþing um uppgjör
framvirkra gjaldeyrissamninga.
Kjalar vill að þeir séu miðaðir
við gengi Evrópska seðlabankans
í október á síðasta ári. Það er um
helmingi hærra en það sem Seðla-
banki Íslands notaðist þá við.
„Það liggur fyrir að Kjalar mun
strax og fyrirtækið hefur mögu-
lega á að fara í mál vegna þessara
samninga,“ segir Kristinn. Hann
segir að fái Kjalar kröfum sínum
framgengt muni kröfuhafar í Eglu
fá skuld sína greidda að fullu.
- kóp
Leitað samþykki lánardrottna dótturfélags Kjalars til nauðasamninga:
Egla leitar nauðasamninga
ÓLAFUR Egla er dótturfélag Kjalars sem
er í eigu Ólafs Ólafssonar, sem oft er
kenndur við Samskip. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þau griðlönd sem útbúin
eru á helstu veiðisvæðum
hrefnuveiðimanna í Faxaflóa og
Skjálfanda eru einnig út úr öllu
korti …
GUNNAR BERGMANN JÓNSSON
FORMAÐUR FÉLAGS HREFNUVEIÐIMANNA
LÖGREGLUMÁL Göngumaður fann
sprengju á Hengilssvæðinu í gær.
Sprengjudeild Landhelgisgæsl-
unnar var kölluð út og sprengdi
hún sprengjuna á Sandskeiði á
níunda tímanum í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni tók maður-
inn sem fann sprengjuna hana
með sér heim, en fjölskyldumeð-
limur sá strax að um hættulega
sprengju var að ræða.
Sprengjusérfræðingar segja að
um hafi verið að ræða svokallaða
riffilhandsprengju frá tímum
seinni heimsstyrjaldarinna. - bj
Sprengjudeild LHG kölluð út:
Fann sprengju
á Hengilssvæði
SLYS Ekki vildi betur til við sjó-
setningu báts í Kópavogshöfn í
gær en að bíllinn, kerran og bát-
urinn enduðu öll í höfninni. Eig-
andi var einn á ferð með bátinn
í kerru og bakkaði niður þar til
gerðan ramp. Af einhverjum
orsökum fór bíllinn alla leið og á
bólakaf í höfnina. Eigandanum
varð ekki meint af volkinu.
Slökkvilið og lögregla komu á
staðinn og kalla þurfti á kafara
til að ná bílnum upp. Losa þurfti
kerruna af bílnum í bólakafi og
þá var loks hægt að koma taug
í bílinn og draga hann upp með
spili. Ekki er vitað hvað olli því
að bíllinn rann af stað. - kóp
Slys við Kópavogshöfn:
Bíll dróst með
bát í höfnina
Á BÓLAKAF Eins og sést fór bíllinn á
bólakaf. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SPURNING DAGSINS