Fréttablaðið - 02.04.2009, Side 4
4 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
BETRA START MEÐ
EXIDE-RAFGEYMUM
15%
afsláttur
Upplýsingar í síma 515 1100
Sendið pantanir á pontun@olis.is
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval rafgeyma frá Exide, ýmsar
stærðir og gerðir fyrir bíla, báta og önnur tæki. Gæðafram-
leiðsla sem reynst hefur afar vel við íslenskar aðstæður.
RÓM, AP Þúsundir sjómanna far-
ast á hverju ári vegna mannlegra
mistaka, vanhæfni skipstjórn-
enda og lélegs skipakosts. Áætlað
er að 24 þúsund farist á hverju ári
af þeim fimmtán milljónum sem
sækja sjó sér til lífsviðurværis.
Þetta er niðurstaða Matvæla-
stofnunar SÞ, sem segir
sjómennsku vera hættulegasta
starf í heimi ef dauðsföll eru
höfð sem viðmið. Árið 2003 áætl-
uðu SÞ að tvær milljónir manna
farist árlega í vinnuslysum. Um
80 prósent þeirra dauðsfalla eru
rakin til mannlegra mistaka og
vanrækslu. - shá
Sjómennska hættulegust:
Þúsundir deyja
á sjó ár hvert
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
2 4
4
17°
16°
13°
15°
12°
16°
19°
17°
11°
11°
20°
16°
17°
30°
4°
16°
17°
10°
6Á MORGUN
3-13 m/s, hvassast á
Vestfjörðum.
LAUGARDAGUR
5-10 m/s
7
2
1
2 0
1
3
5
8
2
10
18
15
13 6
6
5
10
13
18
15
8
10
4
7
HELGIN
Á laugardag verða
suðlægar áttir ríkj-
andi með hlýindum.
Skúrir sunnan og
vestan til í fyrstu og
bjart með köfl um
nyrðra. Úrkomulítið
sunnan til síðdegis.
Hiti 4-10 stig, svalast
á Vestfjörðum. Á
sunnudag slær
fyrir norðaustan átt
á Vestfjörðum með
frosti og éljum. Skúrir
sunnan til en bjart
með köfl um fyrir
norðan og austan.
7
7
8
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
GENÚA, AP Bandaríkjamenn virð-
ast nú eiga greiða leið inn í mann-
réttindanefnd Sameinuðu þjóð-
anna eftir að Nýsjálendingar
ákváðu í gær að draga framboð
sitt til baka. Nýsjálensk stjórnvöld
telja að Bandaríkin geti haft meiri
jákvæð áhrif í nefndinni.
Bandaríkjastjórn tilkynnti um
framboð sitt á þriðjudag. Það er
stefnubreyting frá því sem var í
forsetatíð George W. Bush, sem
vildi ekkert með nefndina hafa
vegna gagnrýni hennar á Ísra-
elsmenn. Kosið verður um átján
af 47 sætum 15. maí, þar af um
sæti þriggja vestrænna ríkja. Auk
Bandaríkjanna eru Noregur og
Belgía í framboði. - sh
Mannréttindanefnd SÞ:
Bandaríkja-
menn í stað
Nýsjálendinga
MOSKVA, AP Umbrotsmaður á
úthverfa dagblaði í Moskvu, sem
verið hefur gagnrýnið á rússnesk
stjórnvöld, lést fyrr í vikunni
eftir að hafa verið barinn til óbóta
nálægt heimili sínu um liðna
helgi. Þetta fullyrðir ritstjóri
blaðsins þrátt fyrir að lögregla
reki dauðsfallið til matareitrunar.
Ritstjórinn segir að ráðist hafi
verið á sex starfsmenn dagblaða
á sama svæðinu undanfarið.
Umbrotsmaðurinn var að klára að
brjóta um umfjöllun um meinta
hagræðingu við bæjarstjórakjör.
Talið er að sextán starfsmenn fjöl-
miðla hafi verið myrtir í Rúss-
landi frá árinu 1999. - sh
Fjölmiðlafólk uggandi:
Umbrotsmaður
laminn til bana
NOREGUR Ísraelska dagblaðið Jer-
usalem Post segir að andúðin á
gyðingum hafi náð nýjum hæðum
í Noregi. Hatrið
fari þar stöðugt
vaxandi. Í
Gasastríðinu í
vetur hafi mót-
mælin gegn
Ísraelsmönnum
verið áberandi
í Ósló, að sögn
Dagbladet.
Blaðið segir
að nokkr-
ir forystumenn Norðmanna,
þar á meðal Kristin Halvorsen
fjármálaráðherra og formaður
norskra sósíalista, hafi leitt mót-
mælagöngu og hrópað slagorð
gegn gyðingum.
Jerusalem Post er álitið vera
eitt mesta þungavigtardagblað
Ísraels og það hafi sem slíkt mikil
áhrif á alþjóðavettvangi. - ghs
Jerusalem Post:
Norðmenn and-
snúnir Ísrael
KRISTIN
HALVORSEN
SLYS Margir deyja ár hvert vegna lélegs
skipakosts. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LONDON, AP Barack Obama Banda-
ríkjaforseti hvatti í gær mestu
efnahagsveldi heims til að snúa
bökum saman til að mæta heims-
kreppunni sem á er skollin. „Við
getum ekki mætt þessari áskorun
nema með því að standa saman,“
sagði forsetinn eftir komu sína til
Lundúna, þar sem leiðtogafundur
svonefnds G20-hóps mestu efna-
hagsvelda heims hefst í dag.
Obama sagði ennfremur að full-
yrðingar um að Bandaríkjamenn
stæðu í deilum við aðrar þjóðir
heims um þörfina á að dæla meiru
af opinberu fé út í nafni kreppu-
varna út í efnahagslífið væru
„ýktar úr hófi“.
„Ég er algerlega sannfærður um
að þessi fundur mun endurspegla
gríðarlegan einhug um þörfina
á samræmdum aðgerðum til að
leysa þessi vandamál,“ sagði for-
setinn á sameiginlegum blaða-
mannafundi með breska forsæt-
isráðherranum Gordon Brown.
Obama varaði einnig eindregið
við því að þjóðir heims féllu í þá
gryfju að grípa til verndarstefnu
og viðlíka ráðstafana sem gerðu
heimskreppuna á fjórða áratugn-
um dýpri og lengri en annars hefði
orðið. „Það voru mistök sem við
höfum ekki efni á að endurtaka.“
Seinna um daginn átti Obama
tvíhliða fundi með Dmítrí Med-
vedev Rússlandsforseta og Hu
Jintao Kínaforseta, auk þess að
þiggja heimboð hjá Elísabetu II.
Englandsdrottningu.
Eftir fundinn með Medvedev
lýstu báðir forsetarnir því yfir
að þeir vildu að nýtt samkomu-
lag um takmarkanir á kjarnorku-
vígvæðingu Rússlands og Banda-
ríkjanna yrði tilbúið þegar
núgildandi samningur þar að lút-
andi rennur út í desember næst-
komandi. Sá samningur, kallaður
START, er frá árinu 1991, árinu
sem Sovétríkin voru leyst upp og
Rússland erfði vopnabúr þeirra.
Robert Gibbs, talsmaður Hvíta
hússins, sagði að ekki hefði enn
sem komið er verið samið um
nýtt þak á fjölda kjarnaodda. Í
núgildandi samningi eru þessi tvö
stærstu kjarnorkuvopnabúr heims
takmörkuð við á bilinu 1.700 til
2.200 kjarnaodda.
Fjöldamótmæli og öryggis-
ráðstafanir vegna G20-fundar-
ins voru mjög áberandi í bresku
höfuðborginni í gær.
audunn@frettabladid.is
FAGNAÐ Barack Obama Bandaríkjaforseti og Michelle eiginkona hans heilsuðu Gor-
don Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Sarah konu hans á tröppunum framan
við Downingstræti 10 í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Heimsbyggðin standi
saman gegn kreppu
Barack Obama Bandaríkjaforseti reyndi að stappa stálinu í kreppuhrjáða
heimsbyggðina á blaðamannafundi í Lundúnum í gær. Þangað er hann kominn
til að sitja fund G20-hópsins svonefnda um aðgerðir gegn kreppunni.
Ég er algerlega sannfærð-
ur um að þessi fundur
mun endurspegla gríðarlegan
einhug um þörfina á samræmd-
um aðgerðum til að leysa þessi
vandamál
BARRACK OBAMA
FORSETI BANDARÍKJANNA
KANADA, AP Kanadískur maður
sem starfaði sem leigumorðingi í
aldarfjórðung hefur játað að hafa
myrt alls 27 manns og reynt að
myrða tólf til viðbótar.
Fórnarlömb Geralds Gallant
voru meðal annars í mafíunni og
vélhjólagengjum, en einnig sak-
lausir vegfarendur. Gallant, sem
í dag er 58 ára, er því einn mesti
fjöldamorðingi Kanada.
Gallant afplánar nú lífstíðar-
dóm fyrir morð sem hann framdi
árið 2001. Hann sagðist í gær sjá
eftir þeim skaða sem hann hafi
valdið aðstandendum fólksins
sem hann myrti.
- bj
Kanadískur leigumorðingi:
Játaði 27 morð á
aldarfjórðungi
STANGVEIÐI Eftir langt vetrarhlé
tóku stangveiðimenn fram búnað
sinn í gær og vættu á nokkrum ám
og vötnum. Vel aflaðist í Varmá í
Hveragerði og sló þannig nokkuð á
ótta manna um hrun í fiskstofnum
í ánni eftir klórslysið mikla haust-
ið 2007. Samkvæmt veiðivefnum
votnogveidi.is náði borgarfull-
trúinn Þorleifur Gunnlaugsson að
landa afar vænum sjóbirtingi sem
viðstaddir giskuðu á að væri á bil-
inu tólf til fjórtán pund áður en
honum var sleppt aftur út í vorið.
Veiði hófst einnig í gær í Tungu-
fljóti, Tungulæk, Minnivallalæk,
Litlá í Kelduhverfi og Vífilsstaða-
vatni svo dæmi séu tekin. - gar
Kampakátir stangveiðimenn hófu veiðitímabil ársins í gær:
Risaurriði strax á fyrsta degi
VIÐ VÍFILSSTAÐAVATN Birgir Aðalbjarnarson var einn þeirra stangveiðimanna sem
náðu úr sér vetrarhrollinum við Vífilsstaðavatn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GENGIÐ 01.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
181,23 182,31
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
121,67 122,25
175,08 175,94
160,99 161,89
21,611 21,737
18,060 18,166
14,746 14,832
1,2277 1,2349
181,23 182,31
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR