Fréttablaðið - 02.04.2009, Qupperneq 24
24 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is
og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf.
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI:
Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur
sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Tæplega tvítug stúlka sást á ferli með karlmanni. Þá komu
sjö karlar aðvífandi og nauðguðu
þeim báðum. Stúlkan, sem er
gift, kærði sjömenningana. Hún
var dæmd til að þola 90 vandar-
högg fyrir að vera ein á ferli með
óskyldum karlmanni, og hann
líka. Lögmaður beggja áfrýjaði
dómnum. Þá var dómurinn
þyngdur í 200 vandarhögg og sex
mánaða fangelsi og lögmaðurinn
sviptur málflutningsréttindum.
Nauðgararnir fengu fimm til sjö
ár. Málið fór fyrir hæstarétt.
Þetta var 2006 í Sádi-Arabíu.
Dómsmálaráðuneytið lét þau boð
út ganga, að stúlkan hefði gert sig
seka um ósiðlegt athæfi og hefði
sézt nakin í bíl fyrir nauðgunina.
Lögmaður hennar sagði hvort
tveggja rangt. Ráðuneytið kærði
stúlkuna ekki fyrir hjúskapar-
brot, sem er dauðasök í Sádi-
Arabíu, ef fjórir karlkyns sjónar-
vottar bera vitni um samræðið.
Sumum dómurum þóttu dómarnir
vægir. Einn sagðist mundu hafa
dæmt stúlkuna, kunningja henn-
ar og nauðgarana sjö til dauða öll
með tölu, hefði málið komið til
kasta hans. Alþjóðleg mannrétt-
indasamtök, þar á meðal Human
Rights Watch, létu málið til sín
taka. Þannig komst það á síður
heimsblaðanna. Abdúlla konung-
ur veitti báðum fórnarlömbum
sakaruppgjöf 2007.
Hjálpin barst að utan
Hugurinn hvarflar til Suður-
Afríku. Aðskilnaðarstefna hvíta
minnihlutans þar vakti um sína
daga svo djúpa andúð umheims-
ins, að aðskilnaðarlögin voru
felld úr gildi 1991 undir þung-
um þrýstingi utan að, þar á
meðal viðskiptaþvingunum.
Svarti meirihlutinn náði völdum
í almennum kosningum 1994. Nú
er hörundslitur hættur að skipta
máli í Suður-Afríku, en kynferði
heldur áfram að skipta sköpum
í Sádi-Arabíu. Konur þar hafa
ekki kosningarrétt, mega ekki
aka bíl eða hjóla, mega ekki fara
á spítala eða ferðast án skrif-
legs leyfis karlmanns úr fjöl-
skyldunni, og þeim er meinaður
aðgangur að ýmsum störfum.
(Þær mega stýra flugvélum, en
þá þarf að aka þeim út á flugvöll.)
Konum í Sádi-Arabíu eru enn
meinuð ýmis mannréttindi, sem
blökkumönnum voru áður meinuð
í Suður-Afríku. Samt þarf Sádi-
Arabía ekki að beygja sig undir
andúð umheimsins eins og Suður-
Afríka þurfti að gera. Hver er
munurinn? Olía, býst ég við.
Trúarbrögð?
Sumir Sádar skýla sér á bak við
trúarbrögð með því að þykjast
sækja þangað umboð sitt til að
kúga konur. En það eru falsrök
eins og ráða má af því, að kven-
réttindi eru í þokkalegu horfi í
ýmsum öðrum löndum múslíma
svo sem Indónesíu og Malasíu.
Sádar hafa búið sér til eigin
túlkun á kenningum spámanns-
ins, en hún á lítið skylt við boð-
skap kóransins. Í Kúveit, sem er
næsti bær við Sádi-Arabíu, aka
konur bílum eins og ekkert sé. Ég
var þar um daginn og átti lausa
stund part úr degi og spurði dyra-
vörð hótelsins, hvað væri hægt
að sjá og gera í borginni á einum
eftirmiðdegi. Hann sagði: Það
er bannað að dansa í Kúveit. Ég
hafði ekki verið að hugsa um að
fá mér snúning þennan dagpart,
svo að tilkynningin kom ekki að
sök. Dyravörðurinn skýrði málið
nánar: Tónlist fær ekki að heyrast
á mannamótum, því að fólk gæti
brostið í dans. Landið er vínlaust
að kalla og barlaust. Bensín kost-
ar sama og ekki neitt. Gangandi
fólk fór sömu leið og geirfuglinn.
Egyptaland, Sýrland og Samein-
uðu furstadæmin eru frjálslegri
í næsta nágrenni og einnig Bar-
ein, Jórdanía, Katar og Óman:
þar fá konur að keyra bíla, kjósa
og sitja í ríkisstjórn. Sádi-Arab-
ía er annar heimur. Þar fórust
15 skólastúlkur í eldsvoða 2002,
þar eð þær báru ekki slæður og
svartar skikkjur, sem sádi-arab-
ískum konum er skylt að klæðast
á almannafæri, svo að siðferðis-
lögreglan taldi sér ekki fært að
hleypa þeim út úr brennandi húsi.
Frelsi í sjónmáli?
Samt hefur hagur kvenna í Sádi-
Arabíu vænkazt að ýmsu leyti.
Nú eignast þær að jafnaði þrjú til
fjögur börn hver, ekki sex eins og
þær gerðu 1990. Stúlkur sækja
skóla til jafns við pilta á öllum
skólastigum. Enn er ólæsi meðal
kvenna þó meira en meðal karla,
en munurinn fer minnkandi.
Fimmta hver kona í Sádi-Arab-
íu vinnur utan heimilis á móti
þriðju hverri konu í Tyrklandi
og Túnis, þar sem konur eru
frjálsar og eignast tvö börn hver
að meðaltali. Arabalöndin fara
yfirleitt ekki vel með verðmætt
vinnuafl. Sádi-Arabía er sér á
parti, harðsvíraðasta einræðis-
ríki heims. Konungsfjölskyldan
veit, að frjálsar kosningar myndu
svipta hana aðganginum að
olíulindunum.
Bíll og svanni
Í DAG | Staða kvenna nær
og fjær
ÞORVALDUR GYLFASON
UMRÆÐAN
Kristján Oddsson skrifar um heilbrigðis-
þjónustu
Í grein Gunnars Kristins Þórðarsonar, „Heil-brigðisþjónusta fyrir alla?“, sem birt var í
Fréttablaðinu þriðjudaginn 31. mars sl. stendur
m.a. að Gunnar Kristinn hafi „rökstuddan grun
um að ætla að það sé opinbert leyndarmál innan
heilbrigðiskerfisins að stjórnmálamenn fái for-
gang í heilbrigðiskerfinu“. Að auki er fullyrt að
„þeir fari efst á alla biðlista sem lúta að rann-
sóknum, meðferðum og aðgerðum. Svo koma þeir
stjórnmálamenn sem njóta þessara forréttinda
fyrir í fjölmiðlum rjóðir í vöngum og dásama
íslenskt heilbrigðiskerfi“. Í lok greinarinnar
er þeirri spurningu beint til landlæknis hvort
þessi vinnubrögð séu enn gild innan heilbrigðis-
kerfisins?
Í lögum um réttindi sjúklinga er kveðið á um að
óheimilt sé að mismuna sjúklingum á grundvelli
kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisupp-
runa, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis
og stöðu að öðru leyti. Landlæknisembættið ætlar
að heilbrigðisstarfsmenn þekki sínar skyldur
gagnvart sjúklingum og hefur ekki fengið neinar
rökstuddar vísbendingar um að stjórnmálamenn
njóti kerfisbundins forgangs innan heilbrigðis-
kerfisins.
Landlæknisembættið hefur upplýsingar frá
umsjónarmönnum biðlista. Enginn þeirra kannast
við annað en fyrst og fremst sé byggt á læknis-
fræðilegum sjónarmiðum og eftir atvikum öðrum
faglegum forsendum ef nauðsynlegt reynist að
forgangsraða sjúklingum vegna meðferðar. Í dag
er helst bið eftir liðskiptaaðgerðum, augasteins-
aðgerðum og hjartaþræðingum.
Landlæknisembættið hefur haft samband við
Gunnar Kristinn Þórðarson sem kynnir sig sem
heilbrigðisstarfsmann. Í gögnum Landlæknis-
embættisins sem nú veitir starfsleyfi samkvæmt
lögum til handa heilbrigðisstarfsmönnum eru
engar upplýsingar um að Gunnar Kristinn hafi
fengið leyfi til að starfa sem heilbrigðisstarfs-
maður hér á landi. Sögusagnir hans um að stjórn-
málamenn njóti forgangs í heilbrigðiskerfinu eru
ekki rökstuddar. Þannig vegur hann ómaklega að
heilbrigðisstarfsmönnum og heilbrigðiskerfinu í
landinu.
Höfundur er aðstoðarlandlæknir.
Stjórnmálamenn fá ekki forgang
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Samvera í Fella- og Hólakirkju í kvöld kl. 20.
Svavar Stefánsson ræðir um sjálfsvíg.
Allir velkomir.
Sorg og sjálfsvígNýdögun og Laugarnes-kirkja efna til samveru:fi mmtudaginn 2. apríl kl 20
Upprisa til nýs lífs. Að læra að lifa upp á nýtt eftir sorg og áfall,
Fyrirlesari. Valdís Ösp Ívarsdóttir þerapisti.
Staður safnaðarheimili Neskirkju við Hagatorg
Heimsbyggðin leiðrétt
Síðustu ár og áratugi hefur orðið
mikil vakning í umhverfismálum víða
um heim. Hugmyndafræði Staðar-
dagskrár 21 hefur rutt sér til rúms,
ekki síst eftir skýrslu sem Gro Harlem
Bruntland vann fyrir Sameinuðu
þjóðirnar.
Landssamband smábátaeigenda
hefur hins vegar séð í gegnum
þetta hugtak, en í umsögn þess um
frumvarp um breytingar á
stjórnarskrá, sem formað-
urinn Arthur Bogason
ritar undir, var þetta
kallað „orðagjálfur“.
Rifjað var upp að
náttúran sjálf
hefði drepið
kúfiskstofninn
í Bakkaflóa á einu bretti. „Var þar um
að ræða einhverja sjálfbæra og með-
vitaða ákvörðun náttúrunnar?“
Skemmst er frá því að segja að
ákvæðinu um sjálfbæra þróun
hefur snarlega verið kippt út úr
frumvarpinu.
Sátt um nauðsynjar
Þrátt fyrir annir í þinginu við að koma
í veg fyrir að fólk og fyrirtæki verði
gjaldþrota í bílförmum hafa þing-
menn allra flokka, utan Frjálslyndra,
fundið tíma fyrir mikilvæga tillögu
sem sameinar þá þvert á flokks-
línur. Nefnilega um að ráðstefna
verði haldin á Akureyri í
haust um málefni
heimskauta-
svæðanna.
Fylgisleysi í flimtingum
Einhverjum þykja aprílgöbb sniðug
og þeir hafa fengið nóg fyrir sinn
snúð í gær. Eitt hið skemmtilegasta
var að finna á heimasíðu Frjálslynda
flokksins. Þar gat að líta frétt af því
að samkvæmt nýrri könnun Gallup
mældist flokkurinn með 15 pró-
senta fylgi og hefði tekið mest frá
Sjálfstæðisflokknum. Áhugasömum
um frekari greiningu var bent á að
fara á netið klukkan 22, þá yrði
könnunin birt.
Þetta heitir að hafa
húmör fyrir sjálfum sér og
eigin fylgisleysi.
kolbeinn@frettabladid.is
Þ
eir sem halda utan um fjármál ríkisins bera mikla
ábyrgð. Það gildir bæði þegar vel árar og illa. Óumdeil-
anlega er þó þægilegt að vera við stjórnvölinn þegar
skattfé rennur í kassann í stríðum straumum. Þá er
hægt að verja fé úr sameiginlegum sjóðum í verkefni
sem vænleg eru til vinsælda og líklegt er að munað verði eftir
næst þegar gengið er til kosninga. Sum þessara verkefna eru
auðvitað brýn, önnur síður.
Verra er þegar þeir sem stýra ríkisfjármálum þegar vel árar
láta glepjast af góðærinu og stjórna rétt eins og góðærið standi
að eilífu, jafnvel þótt sagan hafi sýnt að slíkt gerist aldrei. Þannig
verður að draga í efa að brýnt hafi verið að lækka skatta þegar
vel áraði og sömuleiðis hlýtur að teljast veruleg yfirsjón að hirða
ekki um að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir skattsvik þegar
sýnt hafði verið fram á að ríkið yrði af verulegum tekjum vegna
gloppa í skattkerfinu. Þessar ákvarðanir eru ekki til að bæta þá
stöðu sem nú er uppi.
Eitt meginverkefni sitjandi ríkisstjórnar og þeirrar sem tekur
við eftir kosningarnar er að skera niður og leita leiða til að auka
aftur ráðstöfunarfé ríkissjóðs. Báðir stjórnarflokkarnir álykt-
uðu á landsfundum sínum um möguleika á auknum skatttekjum
ríkisins. Fjármálaráðherra hefur auk þess boðað nýjan hátekju-
skatt sem vissulega skilar ekki verulegum tekjum í ríkissjóð en
nú hlýtur að muna um allt.
Það er mikið ábyrgðarverk bæði að ákveða hvernig á að sækja
skatttekjur og að ráðstafa fé úr sameiginlegum sjóðum. Niður-
skurður á opinberum verkefnum er enn meiri ábyrgðarhlutur,
ekki síst í velferðarkerfi sem gegnir lykilhlutverki á erfiðum
tímum.
Í vikunni kynnti félagsmálaráðherra velferðaráætlun ríkis-
stjórnarinnar. Hún byggir á vinnu Velferðarvaktarinnar sem er
stýrihópur sem sitjandi ríkisstjórn fól að gera úttekt á velferðar-
málum í kjölfar kreppunnar. Áætlunin tekur til fjölmargra þátta
sem varða líf almennings í landinu. Hún er hnitmiðuð og grein
gerð fyrir því hver ber ábyrgð á hverjum þætti hennar. Meðal
þess sem velferðaráætlunin tekur til er aðgengi fólks að velferðar-
kerfinu, menntun og aðstæður fólks í fjárhagsörðugleikum.
Þegar skorið er niður er brýnt að horfa til þess að sparnaður á
einum stað verði ekki kostnaður annars staðar, eða ef svo er að
pólitísk hugsun sé að baki því að svo verði. Því er í áætluninni
lögð áhersla á að verja störf innan velferðarkerfisins í því skyni
að draga sem minnst úr þjónustu og minnka atvinnuleysi.
Einnig er stefnt að því að gefa nemendum í framhaldsskólum og
háskólum kost á að stunda nám í sumar. Þetta er mikið hagsmuna-
mál fyrir nemendur sem ekki sjá fram á að fá sumarvinnu. Útlagð-
ur kostnaður við þá aðgerð sparast að hluta í atvinnuleysisbótum.
Auk þess sem sumarönnin styttir námstímann.
Ljóst er að langt er í að áhrif efnahagshrunsins komi að fullu
fram. Velferðaráætlun ríkisstjórnarinnar er ríkisstjórninni
vegvísir til að draga eftir föngum úr skaðanum.
Velferðaráætlun ríkisstjórnarinnar:
Vegvísir til að
draga úr skaða
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR