Fréttablaðið - 02.04.2009, Side 30
„Ég hef skoðað mikið af erlend-
um tískuvefjum, til dæmis amer-
ískum og breskum vefjum og
svo frá Norðurlöndunum, og mér
fannst vanta umfjöllun um tísku
á íslensku,“ segir Hildur Birgis-
dóttir en hún heldur utan um
heima síðuna www.tiskuheimur.
is. „Hér er ekkert tískutímarit á
íslensku en það hafa margir svo
mikinn áhuga á tísku.“
Hildur opnaði heimasíðuna hinn
11. mars síðastliðinn og heldur
ein utan um síðuna. Hún sækir
fyrir myndina frá ýmsum erlend-
um tískusíðum en á tiskuheimur.
is birtir Hildur meðal annars nýj-
ustu fréttirnar úr tískuheiminum
og af stíl stjarnanna.
„Ég er mikil áhugamanneskja
um tísku og hef alltaf verið dug-
leg að skoða tískuvefina á netinu
og fylgjast með öllu sem viðkem-
ur tísku í blöðum og á tískublogg-
um. Ég nýti hugmyndir sem ég
fæ þegar ég skoða erlenda vefi og
blanda svo saman mínum eigin
hugmyndum um hvað mér finnst
mega fjalla um.“
Hildur skiptir síðunni í nokkra
flokka; Nýjustu fréttirnar úr tísku-
heiminum, Tískuflokkur um trend-
in og tískuna í dag bæði í fatnaði
og fylgihlutum, Fegurð þar sem
fjallað er um förðun, hár og húð
og svo er Stíll, þar sem hægt er að
skoða stíl stjarnanna og götustíla
mismunandi borga.
Hildur hefur fengið góð við-
brögð við síðunni en hún ákvað
að skapa sér sína eigin atvinnu
og heldur vefsíðunni úti meðfram
námi í framhaldsskóla.
„Ég hugsa þetta bara sem vinn-
una mína. Ég sá fram á að það
yrði erfitt að fá vinnu í sumar
þannig að maður verður bara að
búa sér til tækifærin sjálfur. Mér
finnst gaman að skrifa um tísku
og er með fullt af hugmyndum
um hvernig ég get stækkað síð-
una og bætt við þegar fram líður.
Mig langar til dæmis að fjalla um
íslenska hönnuði svo fólk fái sýnis-
horn af því sem er að gerast hér.“
heida@frettabladid.is
Opnar dyr tískuheimsins
Áhugafólk um tísku getur nú nálgast nýjustu fréttir úr tískuheiminum á íslensku á netinu, en nýlega fór í
loftið vefsíðan www.tiskuheimur.is. Þar er fjallað um allt það heitasta sem er að gerast í tísku
Hildur Birgisdóttir setti á fót heimasíðu um tísku þar sem hún fjallar um það heitasta í tískuheiminum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Það heitasta í fylgihlutum ratar inn á síðuna.
Stíll stjarn-
anna fær sitt
pláss á vef
Hildar en
hér er hár
og förðun
leikkonunnar
Mary-Kate
Olsen í
brennidepli.
HELGARFERÐ stendur nú yfir í Smáralind og mun hún
standa til og með 5. apríl. Þeim sem gera sér ferð í verslunar-
miðstöðina er lofað logni og 23 stiga hita, betra verði en
erlendis og að engar athugasemdir verði gerðar við yfirvigt.
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Esjan 107 - 2.apríl
Góðgerðaganga FÍ með 107 manns á Esjuna
Þátttakendur mæta kl. 18.00 og greiða með 5 grásleppum þátttökug-
jald sem rennur óskert til góðgerðarmála. Allir sem þátt taka fá úthlutað
númerum sem þeir geyma og er jafnframt happdrættismiði. Dregið verður
úr þátttökunúmerum strax að lokinni göngu á Esjuna.
Markmiðið er að ná 107 manns í þessa gönguferð og eru gríðarlega
spennandi verðlaun ef þessu fjöldamarkmiði er náð sem ganga á fjallið.
Fararstjóri er hinn síungi Þórður Marelsson.
Verðlaun:
1. verðlaun: Alklæðnaður göngumannsins, buxur, peysa, jakki frá Cintamani
2. verðlaun: Helgarferð fyrir 2 með Ferðafélagi Íslands
3. verðlaun: Flíspeysa frá Cintamani
4. verðlaun: Dagsferð með Ferðafélaginu
5. verðlaun: Húfa og vettlingar
Hvað er svo ein grásleppa? Ein grásleppa er 100kr!
Vanir jafnt sem óvanir eru hvattir til að mæta með góða skapið
Sjáumst í fjallinu.
Skráðu þig inn – drífðu þig út
www.fi .is
Ferðafélag Íslands
SÚKKULAÐIVAX
HAFRAVAX
SÚKKULAÐISTRIMLAR
F. ANDLIT OG LÍKAMA
ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta
ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir
Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni
og einnig vaxstrimlar
Allt sem þú þarft...