Fréttablaðið - 02.04.2009, Side 34
2. APRÍL 2009 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● brúðkaup
Einfalt og klassískt
eða djarft og töff
Allur gangur er á því hvort konur
vilji hafa brúðarslör og hafa tísku-
straumar mikið að segja. Slörið er
tákn um hreinleika konunnar, líkt
og hvíti kjóllinn, og á það því misvel
við.
Stundum er slörið látið hylja and-
lit brúðarinnar þar til að altarinu
kemur og felst ákveðin athöfn í því
að brúðguminn lyfti því frá andliti
hennar. Aðrar brúðir festa það aftan
í greiðsluna og láta það líða niður
með öxlum. Slörið er svo oftar en
ekki fjarlægt í veislunni.
Slörið getur verið stutt, sítt, ein-
falt eða marglaga en algengast er að
það sé í nokkrum lögum og nemi við
olnboga. Undanfarin ár hafa hattar
með blúndu eða neti, spangir og ýmiss konar höfuðskraut síðan
sótt í sig veðrið. - ve
Táknar hreinleika
tilvonandi brúðar
Að undanförnu hafa hattar og
spangir sótt í sig veðrið.
Brúðarkjóll á umfram allt að
hæfa brúðinni hver svo sem
hún er.
Brúðarkjóllinn segir mikið um
brúðina sem hann velur og þarf
kjóllinn ekki endilega að vera
skjannahvítur með slóða.
Sumar konur hallast að
stuttum kjólum á meðan aðrar
vilja síða og sumar vilja ein-
göngu hvítt á meðan aðrar
fara óhefðbundnari leiðir.
Smekkurinn ræður för og
eru það lítil sem stór at-
riði sem gera það að
verkum að konur falla
fyrir ákveðnum kjól.
Þær sem láta klæð-
skerasauma kjólinn
geta svo vitanlega
haft hann alfarið
eftir eigin höfði sem
gefur enn frekar til
kynna hvaða smekkur
býr að baki. - ve
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
„Helsti munurinn á sérsaumuðum jakkafötum og jakkafötum
sem ekki eru sniðin sérstaklega fyrir viðskiptavininn er sá að
einstaklingnum líður svo vel í þeim sérsaumuðu,“ segir Sari
Maarit, sem er klassískur klæðskeri og rekur klæðskerastofuna
Ateljé Sari við Eiðistorg á Seltjarnarnesi. „Ég fæ fjölbreytt verk-
efni til mín. Sumir koma til að láta breyta jakkafötum sem þeir
eiga, en aðrir vilja fá jakkaföt hönnuð sérstaklega fyrir sig.“
Sari lauk klassísku klæðskeranámi í Finnlandi, en hefur auk
þess unnið við klæðskurð í Róm, þar sem hún fékk nýja innsýn
og hugmyndir að klassískum klæðaburði. „Mér finnst karlmenn
mikið gefnir fyrir þetta klassíska snið, sérstaklega fyrir brúð-
kaup. Margir vilja þó einnig kjólföt. Einstaka sinnum fæ ég
örlítið óvenjulegri verkefni en vanalega, eins og núna þar sem ég
er að sérsauma hvít jakkaföt.“
Sari vill helst fá góðan tíma með viðskiptavininum þegar hún
hannar fötin frá grunni. „Að mörgu þarf að huga þegar hanna
á föt frá grunni. Fyrst þarf að mæla einstaklinginn og finna út
svokallað jafnvægismál, þannig að fötin sitji fullkomlega. Næst
finnum við í sameiningu út snið; ég legg mikla áherslu á að fötin
eigi við persónuleika einstaklingsins. Svo er fundið efni sem
hentar og að lokum er svo saumað og mátað mörgum sinnum.“
Sari vill gefa sér góðan tíma í ferlið og telur æskilegt að það
taki ekki minna en þrjá mánuði. „Ég get vel hannað og saumað
föt á styttri tíma, en mér líður betur þegar miklum tíma er varið
í hvert verkefni. Það gefur viðskiptavininum meira svigrúm til
að hugsa sig vel um.“
Sari finnst gaman að heyra frá ánægðum viðskiptavinum.
„Ég hef oft fengið að heyra frá viðskiptavinum að þeim
hafi liðið eins og þeir væru ekki í jakkafötum, og hafi ekki
þurft að fara úr jakkanum þegar líða tók á kvöldið, því
fötin hafi verið svo þægileg.“ - kók
Vilja helst ekki fara
úr jakkafötunum
Sari Maarit fær til sín fjölbreytt verkefni á klæðskerastofuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Klassískur kjóll
með frumlegu
ívafi úr smiðju
Angel Sanchez.
Einfaldleikinn
í fyrirrúmi, frá
Angel Sanchez.
Fölbleikur
kjóll getur vel
komið í staðinn
fyrir skjannahvítan.
Þessi er úr smiðju
Carolina Herrera.
Sumar konur
hallast að stuttum
kjólum en þeir eiga
sérstaklega vel við í
frjálslegum sveita-
brúðkaupum. Þessi
svanakjóll er eftir
Angel Sanchez.
Djarfur kjóll fyrir
þær sem þora.
Prinsessukjólar verða oftar en
ekki fyrir valinu. Hér má sjá kjól
eftir líbanska hönnuðinn Ginu K.
Auðvelt er að falla
fyrir kjól sem þess-
um þótt hann sé
ekki hvítur. Þessi
silfursmíð er
eftir líbanska
hönnuðinn
Dany Tabet.