Fréttablaðið - 02.04.2009, Qupperneq 42
2. APRÍL 2009 FIMMTUDAGUR10 ● fréttablaðið ● brúðkaup
Allt það nýjasta og
ferskasta hverju sinni
Veisluþjónustan Kokkarnir
býður upp á fjölbreytta mat-
seðla sem henta meðal annars
vel í brúðkaupsveislur. Að
sögn Rúnars Gíslasonar yfir-
matreiðslumanns er vinsælt að
panta þriggja rétta máltíðir.
„Steikarhlaðborðin hafa alltaf
verið mjög vinsæl,“ segir Rúnar
Gíslasson einn af yfirmatreiðslu-
mönnum Kokkanna.is, sem sér-
hæfa sig í veisluþjónustu, allt frá
smærri veislum upp í margrétta
brúðkaupsveislur.
Rúnar segir mjög misjafnt eftir
hverju viðskiptavinirnir leiti.
„Yfirleitt er áherslan á þriggja
rétta máltíðir í brúðkaupsveisl-
unum. Ef brúðhjónin velja að hafa
hlaðborð, er forréttahlaðborðið
borið fram á undan og síðan er því
skipt út fyrir til dæmis steikar-
hlaðborðið. Eins vilja sumir að for-
rétturinn sé borinn á borð en aðal-
réttirnir séu á hlaðborði, þannig að
það er allur gangur á þessu.“
Kokkarnir leigja út tvo veislu-
sali, annar er í Fóstbræðrarheimil-
inu við Langholtsveg en hinn stað-
settur í Cabin hótelinu í Borgar-
túni. „Við afgreiðum samt mat út
um allan bæ,“ segir Rúnar. „Við
komum í heimahús og veislusali
og útbúum matinn þar sé þess
óskað.“
Að sögn Rúnars er úr nógu að
velja hjá Kokkunum. „Við erum
með um tíu
hlaðborðs-
matseðla
sem hægt er
að skoða og
velja úr. Einn-
ig er hægt að
finna hina ýmsu
rétti. Matseðl-
arnir eru mjög fjölbreytt-
ir; þessi vinsælu steikar-
hlaðborð og eins kalkúna-
hlaðborð, svo dæmi séu
nefnd.“
Einn rétturinn
er sívinsæll í brúð-
k a u p u m , s e g i r
Rúnar, en það er
lambalæri á ítalskan
máta. „Rétturinn er alltaf
ferskur. Sumarið er náttúrulega
aðal brúðkaupstímabilið, og marg-
ir vilja ferskan og góðan mat.
Þessi Miðjarðarhafsstíll á matnum
verður því oft fyrir valinu.“ - kók
Lambalæri á ítalskan máta
Fyrir 6
Lambalæri á beini
8 stk. hvítlauksrif
3 greinar rósmarin
3 greinar timian
3 dl extra virgin ólífuolía
Sjávarsalt og nýmulinn svartur
pipar
Grófskerið hvítlauk og kryddjurtir og
blandið saman við olíu. Setjið lambið í
form og hellið blöndunni yfir og makið
vel upp úr. Látið liggja yfir nótt svo að
sem mest af kryddjurtabragði og hvítlauk
smitist í kjötið. Stillið ofn á 180 gráður og
eldið lamb í um það bil eina klukkustund.
Mikilvægt að láta kjötið standa í á bilinu
tíu til fimmtán mínútur áður en skorið er
svo vökvi haldist í kjötinu.
Bakað nýtt, íslenskt kartöflu-
smælki
800 g nýtt, íslenskt kartöflusmælki
2 dl extra virgin ólífuolía
Sjávarsalt og nýmulinn svartur
Guðjón Birgir Rúnarsson á heiðurinn af
lambalærinu góða.
Rúnar segir ítalska lambalærið sívinsælt í brúðkaupsveislur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Lambalæri á ítalskan
máta, með íslensku
kartöflusmælki og
fersku grænmeti.