Fréttablaðið - 02.04.2009, Síða 44
2. APRÍL 2009 FIMMTUDAGUR12 ● fréttablaðið ● brúðkaup
Hjónabönd eru sjaldan langlíf í henni Holly-
wood. Samt vekur ávallt jafn mikla athygli
þegar fræga og fína fólkið gengur upp að altar-
inu til að játa ást sína og tryggð, sem oft á tíðum
endist ekki nema fram á næsta leikár. Hér getur
að líta nokkur af frægustu hjónum Hollywood í
gegnum tíðina.
Þegar hamingjan ríkir
Haldu mér, slepptu mér. Elizabeth Taylor og Richard
Burton í fyrra brúðkaupi þeirra, í mars 1964. Þau
skildu, giftu sig aftur og skildu á ný. NORDICPHOTOS/GETTY
Judy Garland átti stormasama ævi. Hér er hún
með eiginmanni númer tvö af fimm, leikstjór-
anum Vincente Minnelli. NORDICPHOTOS/GETTY
Elizabeth Taylor hefur ekki verið við eina fjölina
felld. Hún hefur gifst átta sinnum og skilið sjö
sinnum, en einu sinni orðið ekkja. Fyrsti maður
hennar var Conrad Hilton sem hún giftist árið
1950 og skildi við tæpu ári síðar. Michael Wild-
ing giftist hún árið 1952 og skildi við hann fimm
árum síðar. Michael Todd og Taylor giftu sig árið
1957 en Todd lést í mars 1958. Eddie Fisher var
hún gift í fimm ár frá 1959 til 1964.
Richard Burton giftist hún tvisvar. Fyrst árið
1964 og liðu tíu ár þar til þau skildu. Aðeins ári
síðar giftu þau sig á ný en þá entist hjónabandið
aðeins í tæpt ár. John Warner var eiginmaður
númer sex ef Burton er aðeins talinn
einu sinni. Þau voru gift í sex ár frá
1976 til 1982. Síðasti maður-
inn sem Taylor gekk í
hjónaband með var
Larry Forten-
sky árið 1991
en þau skildu
fimm árum
síðar.
Elizabeth
Taylor með
fyrsta manni
sínum Conrad
Hilton.
NORDICPHOTOS/GETTY
Elvis Presley og Priscilla hittust árið 1959 í
partíi í Bad Nauheim í Þýskalandi meðan Elvis
sinnti herskyldu. Hún var fjórtán og hann 24 ára.
Þau fóru fljótlega að draga sig saman en Elvis
hélt heim árið 1960. Þau héldu sambandi gegnum
síma en hittust ekki á ný fyrr en sumarið 1962
þegar hún fékk leyfi foreldra sinna til að heim-
sækja hann. Síðar fékk hún leyfi til að flytja
til Bandaríkjanna og búa hjá föður Elvis með
því skilyrði að Elvis myndi á endanum gift-
ast henni. Elvis bað Priscillu rétt fyrir
jólin 1966 og þau gengu í það heilaga 1.
maí 1967 á Aladdin-hótelinu í Las Vegas.
Fyrsta og eina barn þeirra, Lisa Marie,
fæddist níu mánuðum síðar, 1. febrúar
1968.
Elvis Presley og Priscilla gengu í það heilaga 1. maí 1967.
Níu mánuðum síðar fæddist þeim dóttirin Lisa Marie.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikstjórinn Vincente Minnelli var
annar af fimm eiginmönnum Judy
Garland. Þau giftu sig árið 1945,
á einum myrkasta tíma Garland í
skemmtanaiðnaðinum. Hin glaðlega
barnastjarna sem þekkt var fyrir
kæti og léttleika í framkomu var orðin
niður dregin og ólundarleg. Hún var
þá orðin háð verkjalyfjum og drakk
úr hófi fram. Hún eignaðist þó með
Minnelli dóttur sína Lizu árið 1946.
Árið 1948 voru geðsveiflur Garland og
sjálfsmorðshugleiðingar orðnar mjög
alvarlegar en árið 1950 reyndi hún
sjálfsmorð og var í framhaldinu sagt
upp af MGM-kvikmyndaverinu. Gar-
land og Minnelli skildu árið 1951 en
hún gifti sig fljótlega framleiðandan-
um Sid Luft sem greiddi leið Garland á
ný inn í heim kvikmyndanna.
Ferillinn fór þó halloka á ný. Luft og
Garland skildu árið 1965 og árið 1969
fannst hún látin á hótelherbergi þar
sem hún hafði tekið of stóran skammt
af verkjalyfjum.
Útsala
Útsala
brúðarkjólar
á allt að
60%
afslætti
sími 5521260
Laugavegi 101,
www.jswatch.com / www.gilbert.is
Ég er gull og gersemi,
gimsteinn elskuríkur.
Ég er djásn og dýrmæti,
Dro ni sjálfum líkur.
- Solon Islandus 1820-1895