Fréttablaðið - 02.04.2009, Síða 48
2. APRÍL 2009 FIMMTUDAGUR16 ● fréttablaðið ● brúðkaup
Að ýmsu þarf að huga fyrir brúð-
kaupsdaginn og gott að hefja und-
irbúninginn með ágætum fyrirvara.
Ekki verra að útbúa nákvæman gát-
lista til að hafa við höndina.
Gott er að ákveða fyrst brúðkaups-
daginn.
Ræða við prest eða sýslumann.
Panta kirkju, eða annan giftingarstað.
Ræða við svaramenn og veislustjóra
Ákveða hvernig brúðkaupi og veislu
skuli háttað.
Setja saman fjárhagsáætlun.
Panta veislusal og veitingar.
Athuga með brúðkaupsferð.
Skoða, og hugsanlega panta, brúðar-
kjól og föt á brúðguma.
Ákvarða tónlist og fyrirkomulag í
brúðkaupi í samráði við prest.
Ákvarða atriði fyrir veislu.
Panta snyrtingu og hárgreiðslu.
Panta gistingu ef ekki á að verja
brúðkaupsnóttinni heima.
Fá vottorð um hjúskaparstöðu hjá
Hagstofunni.
Kaupa giftingarhringa.
Útbúa gestalista.
Láta útbúa boðskort, þakkarkort og
söngskrá fyrir gesti.
Senda boðskort mánuði fyrir brúð-
kaup.
Skrásetja staðfestingar í brúðkaup.
Raða gestum til borðs og útbúa
nafnspjöld á borð.
Panta áletraðar servíettur, brúðar-
tertu, -vönd, blóm og skreytingar.
Fá allar pantanir staðfestar.
Ákveða ljósmyndara og panta
myndatöku.
Staðfesta brúðkaupsferð.
Leigja eða fá lánaðan brúðarbíl.
Láta skrá nöfn hjónaefnanna á gjafa-
lista hjá verslunum.
Fara í hárgreiðslu- og förðunarprufu.
Fá stílabók eða plastmöppu undir
upplýsingar og minnisatriði varðandi
brúðkaupið.
Gott að muna
Panta þarf blóm og skreytingar með
góðum fyrirvara. NORDICPHOTOS/GETTY
vellíðan
slökun
streitulosun
dekur
hvíld
afslöppun
– gefðu vellíðan
Opið
Mánud.–fimmtd. 6:00–21:00
Föstudaga 6:00–20:00
Laugardaga 9:00–18:00
Sunnudaga 10:00–16:00
Hilton Reykjavik Nordica
Su›urlandsbraut 2
Sími 444 5090
nordicaspa@nordicaspa.is
www.nordicaspa.is
Gjafakort í heilsulind NordicaSpa er tilvalin gjöf. Vi› bjó›um upp á fjölbreytt
úrval af nudd- og snyrtimeðferðum fyrir bæði konur og karla. Í heilsulindinni eru
tvær ilmgufur, tveir heitir pottar þar sem boðið er upp á herðanudd, slökunarlaug
og úti á veröndinni er heitur pottur og sauna.Hægt er a› kaupa gjafakort fyrir
ákve›na upphæ›, í tiltekna me›fer› og ‡msa spa pakka. Einnig er hægt a›
kaupa gjafakort í heilsuræktina – me›limakort e›a námskei›. Vi› a›sto›um flig
vi› a› finna réttu gjöfina handa fleim sem flú vilt gle›ja. Vi› leggjum áherslu á
andlega og líkamlega vellí›an og er Nordica Spa heimur út af fyrir sig.
gjafakort
Gefðu
Á vefsíðunni wedding.is er að
finna ýmsar hagnýtar upplýs-
ingar og fróðleik sem getur
komið að góðum notum við
brúðkaupsundirbúning.
Þar er til dæmis að finna
ýmislegt sem útliti og heilsu við-
kemur, svo sem söluaðila skart-
gripa og fatnaðar og lista yfir
brúðarkjólaleigur; ábendingar
um veisluþjónustur, veitingaþjón-
ustu, bakarí, kokka og gististaði,
söluaðila blóma og skreytinga og
ýmsar greinar sem þeim tengjast,
kannanir sem hægt er að taka þátt
í og sérstök spjallsvæði fyrir verð-
andi brúðhjón þar sem til dæmis
hægt er að leggja fram fyrirspurn-
ir og skiptast á alls kyns upplýs-
ingum sem geta komið notendum
að gagni.
Síðast en ekki síst má nefna lið
sem er sérstaklega merktur undir-
búningur. Þar má nálgast fróðleik
um tékklista, boðskort, mynda-
tökur, fjárhagsáætlanir sem hægt
er að fylla út, lista yfir kirkj-
ur landsins, bílaleigur sem hafa
á skrá sinni brúðarbíla, eitt og
annað sem tónlist, hljóðkerfum og
skemmtunum viðkemur, svo sem
lista yfir einstaklinga og fyrirtæki
sem veita sérstaklega þjónustu á
því sviði, og svo innlenda og er-
lenda söngtexta sem eru vinsælir
í brúðkaupsveislum.
Loks má nefna safn alls kyns
greina sem má hafa gagn og
gaman af.
Gagn og gaman á netinu
Vefsíðan www.wedding.
is hentar þeim sem eru í
giftingarhugleiðingum.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
W