Fréttablaðið - 02.04.2009, Page 64
40 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
„Þetta er fjórða húsið sem við
erum í. Við höfum aldrei verið
lengur en tvö ár á sama staðnum,“
segir Hálfdán Bjarki Hálfdánsson,
rokkstjóri hátíðarinnar Aldrei fór
ég suður sem verður haldin á Ísa-
firði um páskana í sjötta sinn.
Hálfdán og félagar hafa náð
samkomulagi við verktakafyrir-
tækið KNH á Ísafirði um afnot
af nýju húsnæði þess fyrir hátíð-
ina. „Þetta er mjög vítt og glæsi-
legt verkstæði með stórum hurð-
um. Það er hátt til lofts og vítt til
veggja,“ segir hann. „Við vorum í
fínni skemmu síðustu tvö árin og
við þökkum kærlega fyrir afnot-
in af henni. Þetta er nýtt og KNH-
verktakar eru þarna með aðstöðu
fyrir sínar gröfur. Við höldum
okkur í því þema að vera í iðnaðar-
húsnæði við sjóinn. Það er reyndar
flest við sjóinn á Ísafirði.“
Hátíðin verður haldin á föstu-
daginn langa, 10. apríl, og laugar-
daginn ellefta. Alls hafa 32 hljóm-
sveitir skráð sig til leiks, þar á
meðal Dr. Spock, FM Belfast,
múm, Mugison og Hemmi Gunn og
Kraftlyfting. „Það hefur aldrei, að
mínu mati, verið eins gott framboð
af góðum heimaatriðum og núna.
Helmingurinn er héðan úr héraði,
meðal annars þrjár unglingahljóm-
sveitir sem eru allar mjög fram-
bærilegar. Það verður gaman að
sjá þær spreyta sig,“ segir Hálf-
dán. „Það er upprunalega hug-
myndin að baki hátíðinni, að lands-
þekktar poppstjörnur skemmti
með minna þekktum mönnum.“
- fb
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Þessa dagana stendur yfir val á hundrað bestu plötum Íslandssögunnar
á tónlist.is. Það eru Rás 2, Félag hljómplötuframleiðenda og tónlist.
is sem standa að valinu. Fyrri hluti kosningarinnar stendur yfir á vef-
svæði tónlist.is til miðnættis í kvöld, fimmtudaginn 2. apríl. Listinn yfir
þær plötur sem komast í hóp hinna 100 bestu verður svo kynntur dag-
ana fyrir sumardaginn fyrsta á Rás 2, en eftir
það verður kosið um endanlega röð og listinn
frá 1-100 birtur 17. júní.
Það hefur lengi verið lenska í poppheimum
að setja saman lista af þessu tagi. Á netinu má
finna marga lista yfir bestu plötur allra tíma.
Rolling Stone valdi 500 og fjölmargir aðrir hafa
sett saman lista og þó að sumar plötur séu mjög
lífseigar á svona listum kemur alltaf ný útkoma
í hvert skipti. Nokkrir svona listar hafa verið
birtir hér á landi, meðal annars í Poppbók Jens
Kr. Guð 1983, í Eru ekki allir í stuði? – bók Dr.
Gunna 2001 – og á mbl.is fyrir tveimur árum.
Þessi nýja kosning er opin öllum almenningi, en
samhliða kýs sérstök 100 manna dómnefnd. Á tónlist.is er hægt að velja
allt að 50 plötur af þeim 485 sem þar hafa verið listaðar upp. Þær hundr-
að plötur sem fá flest atkvæði komast svo áfram í næstu umferð.
485 plötur er slatti. Smekkurinn er samt það misjafn að það er auðvelt
að finna plötur sem komast inn á topp tuttugu hjá manni persónulega
sem ekki ná inn á þennan 485 platna lista. Þannig er það til dæmis með
hið stórlega vanmetna meistaraverk Texas Jesús, Jæja vinur! sem kom
út árið 1996. Texas Jesús var að mörgu leyti á undan sinni samtíð og á
skjön við flest annað á sínum tíma. Hún notaði ýmis óvenjuleg hljóðfæri
og sótti áhrif í ólíkar tegundir tónlistar, en hvort tveggja varð síðar vin-
sælt. Frábær sveit sem talað er um að komi fram aftur fljótlega.
En þetta er kannski aukaatriði. Texas Jesús hefði vísast aldrei náð inn
á hundrað platna listann. Ekki nógu þekkt. Aðalatriðið er að það er allt-
af gaman að svona listum og spennandi að sjá útkomuna. Ég hvet alla
tónlistaráhugamenn til þess að taka þátt áður en fresturinn rennur út í
kvöld …
100 bestu plöturnar, aftur
VANMETIÐ MEISTARAVERK
Texas Jesús komst ekki inn
á stóra listann …
Nýjasta sólóplata gömlu
kempunnar Neils Young,
Fork in the Road, kemur út
á þriðjudaginn. Umhverfis-
vænir bílar eru umfjöllunar-
efnið, en það hefur verið
Young hugleikið í langan
tíma.
Hinum 63 ára Neil Young leiðist
ekki að hrista upp í hlutunum og
koma sínum hugðarefnum á fram-
færi við almenning. Skemmst er
að minnast plötunnar Living with
War þar sem hann gagnrýndi
Bandaríkjastjórn harkalega fyrir
Íraksstríðið. Nú þegar sú stjórn
er farin frá völdum og nýr for-
seti hefur lofað að draga megnið
af herliði Bandaríkjanna úr land-
inu beinir Young sjónum sínum að
umhverfisvernd, sem er ekki síður
mikilvægt málefni. Stríðsgagnrýn-
in er þó síður en svo úr sögunni,
eins og textinn í titillagi plötunn-
ar ber vott um: „Forgot this year to
salute the troops. They´re all still
there in a fucking war“.
Fork in the Road er samt fyrst
og fremst þemaplata sem er byggð
á Lincvolt-verkefninu sem er sam-
starfsverkefni söngvarans og Jon-
athans Goodwin, sérfræðings á
sviði lífræns eldneytis. Snýst það
um að búa til umhverfisvænan
orkugjafa fyrir bíla og notuðu þeir
Lincoln Continental-bíl Young frá
árinu 1959 í tilrauninni og nefndu
hann Lincvolt. Nú er bíllinn tilbú-
inn til notkunar og hefur Young
sett stefnuna á að aka honum þvert
yfir Bandaríkin án þess að nota
bensín. Bílnum verður svo lagt
fyrir framan þinghúsið í Wash-
ington þar sem Young mun krefj-
ast nýrra lausna hjá stjórnvöldum
við að draga úr bifreiðamengun.
Heimildarmynd um ferðalagið
verður jafnframt tekin upp.
Young ætlar að með þessu að
sýna það og sanna að hann er til-
búinn að láta verkin tala. Textinn
í laginu Singing a Song segir allt
sem segja þarf: „Just singing a
song won´t change the world“. Sem
sagt, ekki er nóg að kvarta bara
og kveina í einhverju lagi, heldur
verða menn að fylgja því enn frek-
ar eftir vilji menn virkilega knýja
fram breytingar.
freyr@frettabladid.is
Snýr sér að umhverfisvernd
Safnplata númer 49 í Pottþétt-
röðinni vinsælu kemur út þriðju-
daginn 7. apríl. Á plötunni, sem
er tvöföld, er að finna flest af
vinsæl-
ustu
lögum
dagsins í
dag. Þar
eru sextán
íslensk
lög, þar
af ellefu
áður óút-
gefin. Á
meðal
þeirra
sem eiga
glæný
lög eru
Hjaltalín, Ný dönsk, Ingó og
veður guðirnir, Hjálmar, Papar og
Haffi Haff. Aðrir íslenskir flytj-
endur eru Jeff Who?, Baggalútur,
Jóhanna Guðrún, Ingó og Lay
Low. Meðal erlendra laga eru
Human með The Killers, Use
Somebdoy með Kings of Leon,
Poker Face með Lady Gaga og
The Fear með Lily Allen.
Pottþétt 49
væntanleg
Hafdís Huld
spilar á tvenn-
um tónleikum
í Lundúnum
13. og 25. apríl
þar sem hún
mun flytja
lög af ann-
arri plötu sinni
sem kemur út
í sumar. Þetta
verður í fyrsta sinn í tæpt ár
sem hún spilar Lundúnaborg og
bíða margir spenntir eftir því
að heyra nýju lögin, þar á meðal
nokkur erlend útgáfufyrirtæki.
Hafdís hóf upptökur á plötunni í
byrjun ársins og er fyrsta smá-
skífulagið væntanlegt í maí. - fb
Spilar ný lög
í Lundúnum
INGÓ Ingó á tvö lög á
safnplötunni Pottþétt 49
sem kemur út 7. apríl.
NÝ SKEMMA Nýja skemman sem verður
notuð á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég
suður.
Aldrei fór ég suður
í gröfuskemmu
NEIL YOUNG Breiðir
út umhverfisvænan
boðskap á nýjustu
plötu sinni, Fork in the
Road, sem kemur út á
þriðjudaginn.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
HAFDÍS HULD
> Í SPILARANUM
Eberg - Antidote
Dan Deacon - Bromst
Yeah Yeah Yeahs - It‘s Blitz
Röyksopp - Junior
Gomez - A New Tide
EBERG GOMEZ
Samtónn, samstarfsvettvangur tónlistar-
rétthafa, stendur fyrir verkefninu Íslenskt
tónlistarsumar sem hefur verið sett á lagg-
irnar. Er því ætlað að styrkja innviði og
ímynd íslensks tónlistarlífs í því ölduróti
sem hefur verið undanfarna mánuði. Af því
tilefni stendur til að halda stórtónleika í
Reykjavík snemma í sumar. Nákvæm tíma-
og staðsetning hefur ekki verið ákveðin.
Fleiri uppákomur eru einnig fyrirhugaðar
í sumar.
Nýráðinn framkvæmdastjóri verkefnis-
ins er Helgi Pjetur Jóhannsson, fyrrver-
andi starfsmaður Tónlist.is og stofnandi
Cod Music-útgáfufyrirtækisins. „Ef allir
leggjast á eitt, útgefendur, fjölmiðlar eða
tónlistarmennirnir sjálfir, og notfæra sér
þetta átak tel ég að þetta verði gríðarlega
mikilvægt og ákveðin vakning fyrir
íslenska tónlist,“ segir hann. „Þá skilar það
sér vonandi í aukinni plötusölu, hlustun á
íslenska tónlist í útvarpi og svo framvegis.
Þetta snýst um að vekja fólk til lífsins
og fá það til að taka þátt í þessu og njóta
íslenskrar tónlistar.“ - fb
Stórtónleikar í sumar
HELGI PJETUR JÓHANNSSON Helgi er nýráðinn fram-
kvæmdastjóri Íslensks tónlistarsumars.
Fagor uppþvottavél
LJF-0310
5 þvottakerfi. Hljóðstig: 52dB(A).
Stærð HxBxD 85x60x60.
Tilboð 89.900
Fagor uppþvottavél
Reykjavík . Borgartún 24 . Sími 562 4011
Akureyri . Draupnisgata 2 . Sími 460 0800
Reyðarfjörður . Nesbraut 9 . Sími 470 2020
Reykjanesbær . Hafnargata 52 . Sími 420 7200
Þurrkun