Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.2007, Page 1
Laugardagur 17. 3. 2007
81. árg.
lesbók
MAGNAÐIR MEXÍKÓAR
ÞEIR ERU VINIR, ALDIR UPP Í MEXÍKÓSKU SJÓNVARPI
OG HAFA SLEGIÐ Í GEGN Í KVIKMYNDAHEIMINUM. » 6
Er hægt að fá samband við Wham? Ha! Wham! Hverjir eru það aftur? » 7
NSK er skammstöfun fyrirNeue Slowenische Kunst eðaNý slóvensk list en svo nefn-ist fyrsta alþjóðlega ríkið í
heiminum. Það mun í næstu viku stofna
sérstaka Reykjavíkurdeild ríkisins hér á
landi.
Þannig kynna forsvarsmenn NSK að
minnsta kosti fyrirbærið sem er land- og
landamæralaust ríki sem er í raun ekki til
nema í höfðinu á þeim sem tilheyra því.
Það á sér samt fána og þjóðsöng, gefur út
vegabréf og frímerki og í rúmlega 20 ára
sögu þess hafa útibú frá því sprottið upp í
ýmsu formi víða um heim, til dæmis sem
ræðismannsskrifstofa í Helsinki, rafrænt
sendiráð í Tókýó og pósthús í Sarajevó.
Í grein Halldórs Carlssonar um NSK í
Lesbók í dag kemur fram að hug-
myndafræði ríkisins byggist ekki síst á
endurvinnslustefnu sem sé eins konar
andstæða við framúrstefnu. Ríkið spili á
viðkvæma strengi og kalli fram óvænt
viðbrögð með því að halda því fram að
þjóðir og þjóðartákn séu ekkert sérlega
frumleg fyrirbæri og því eðlilegt að af-
skræma þau og endurvinna. „Í huga
þessara listamanna er fólk sauðir sem
auðvelt er að stýra – en einmitt vegna
þess að sérstaða margra ríkja er oft
ímyndunin ein reyna þau af veikum
mætti að draga hana fram. Það er fyndin
þversögn falin í þjóðerniserjum; þær
stafa ekki af raunverulegum mun milli
þjóða; það er ekki mikill munur á arn-
artákninu austurríska, ameríska, alb-
anska, þýska eða hinu pólska með höf-
uðin sín tvö.“
Starfsemi Reykjavíkurdeildar NSK
verður að mestu leyti vefræn en Halldór
segir að hún muni leika sitt hlutverk í
sífelldri endurnýjun ríkis sem á sama
hátt og eðalvín verði betra með árunum.
» 12-13
Alþjóðlegt
ríki á
Íslandi
Vegabréf NSK Ríkið gefur út vegabréf
og frímerki og á sér þjóðsöng.
Reykjavíkurdeild Neue
Slowenische Kunst stofnuð
Morgunblaðið/Kristinn
Verðmæti „En gróðinn er ekki alltaf mældur í peningum, það er verið að skapa menningarverðmæti
sjáðu til …“ Ólöf Arnalds er í viðtali um sína fyrstu sólóplötu, Við og við, í Lesbók í dag. » 4-5
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
S
tridsberg. Ef tekið er burt eitt s
og n-i bætt við þá héti hún
Strindberg eins og landi hennar
og starfsbróðir frá því um alda-
mótin 1900. Bæði skrifa þau um
konur og rétt þeirra. Og bæði
eru þeirrar skoðunar að karlmenn séu aumar
verur sem hægt sé að vera án. Það er að
minnsta kosti boðskapur aðalpersónunnar í
Drömfakulteten eða Draumadeildinni, skáld-
sögu Söru Stridsberg sem hlaut Bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs í síðustu viku en
bókin er mikið sprengiefni og hlýtur að vera á
leslistum allra sem vilja fylgjast með.
Bókin fjallar um Valerie Solanas sem var á
sínum tíma kölluð fyrsta intellektúella hóran
en hún vann fyrir sér sem vændiskona á með-
an hún stundaði háskólanám í sálarfræði. Í
náminu gerði hún tilraunir á músum sem áttu
að sýna fram á að kvenkynsmýs gætu eignast
afkvæmi án hjálpar karlkynsmúsa.
Frægust er Solanas þó fyrir að hafa reynt
að skjóta Andy Warhol til dauða árið 1968
vegna þess að hann neitaði að setja upp leikrit
hennar í The Factory. Hann hafði sýnt verk-
inu áhuga en í ljós kom að áhuginn beindist
fyrst og fremst að nafninu: Up Your Ass.
Solanas varð einnig fræg fyrir hina svoköll-
uðu SCUM-yfirlýsingu en skammstöfunin
stendur fyrir orðin: „Society for Cutting Up
Men“ eða: „Samfélag um uppskurð á karl-
mönnum“.
Stridsberg komst fyrst í kynni við Solanas
þegar hún fann SCUM-yfirlýsinguna á bóka-
safni. Hún segist hafa orðið svo hrifin að hún
hafi nánast hrunið í gólfið með bókina í hönd-
unum.
Stridsberg þýddi yfirlýsinguna á sænsku
og samdi síðan leikrit og skáldsögu um Sol-
anas.
Draumadeildin er ekki beinlínis ævisaga
um Solanas þó að sögu hennar sé fylgt allt frá
því að hún er misnotuð af föður sínum í Atl-
anta-borg barn að aldri og þar til hún deyr af
völdum ofneyslu eiturlyfja á ódýru hóteli í
melluhverfinu í San Francisco 1988. Strids-
berg segir að skáldsagan sé frekar bók-
menntaleg fantasía um líf Solanas og persónu.
Og bókin er satt að segja kraftmikil fantas-
ía og ekki endilega kórréttur femínismi enda
segir höfundurinn að drifkrafturinn sé þvert á
móti tungumálið, sorgin, angistin frammi fyr-
ir dauðanum og skortur á svörum.
Það stóð reyndar ekki á svari hjá móður
Solanas, sem var haldin djúpstæðri Marilyn-
duld, þegar stúlkan hafði verið misnotuð af
föður sínum: „Gleymdu því aldrei að ljóma,
Valerie, gleymdu því aldrei.“
Gleymdu
því aldrei
að ljóma
MENNINGARVITINN