Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
L
eiðir okkar Ólafar liggja
saman í gegnum símalínu í
þetta sinnið, en hún var
stödd í suðupotti þeim er
Berlín heitir þegar blaða-
maður hafði samband. Í
vikunni tróð hún upp ein
og óstudd á opnun ís-
lenskrar hönnunarsýningar í sameiginlegum
sýningarsal norrænu sendiráðanna og lék þar á
gítar og charanga ásamt því að syngja. Á tón-
leikum hérlendis að undanförnu hefur Róbert
Reynisson gítarleikari lagt henni lið, og áttu
landsmenn allir kost á því á dögunum að heyra
hvert Ólöf er að fara í sólótónlist sinni, en hún
var ein þeirra listamanna sem komu fram á tón-
leikum Hlaupanótunnar í Listasafni Reykjavík-
ur – Hafnarhúsi, tónleikar sem voru partur af
Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar og voru þeir
sendir út beint í gegnum Rás 1. Tónleikar Ólaf-
ar mynduðu gæsahúð á áhorfendum og þú hefð-
ir þurft að vera steinrunninn þurs til að hrífast
ekki af einfaldri, berstrípaðri fegurðinni sem
var slengt á borð.
„Áreynslulaus og undurblíð fegurð sem hitti
beint í hjartastað og besta dæmið þar um var
titillag sólóplötunnar, „Við og við“. Stórkost-
legt,“ sagði í Morgunblaðsdómi um tónleikana.
Kynning á plötu Ólafar stendur semsagt yfir
um þessar mundir, hvort heldur er í Reykjavík
eða Berlín, og í lok apríl verða tónleikar í
Winnipeg sem hluti af íslenskri listahátíð þar í
borg. Á miðvikudaginn næsta verða svo op-
inberir útgáfutónleikar plötunnar haldnir á
NASA. Þar verða tilkallaðir flestir þeir sem
þátt tóku í gerð plötunnar, en á henni kennir
ýmissa grasa hvað hljóðfæraleik varðar;
strengjakvartettar, blásturshljóðfæri, kontra-
bassi, pákur og koto-harpa eru á meðal þess
sem stuðst var við til að galdra upp sérstæðan
seið Ólafar. Þessu og meira til verður til tjaldað
á útgáfutónleikunum.
Á kafi
„Platan verður flutt í heild sinni, í öllum þeim
útsetningum sem heyrast á plötunni, það er
með strengjum, blæstri og öllu tilheyrandi,“
tjáir Ólöf blaðamanni. „Þetta verður vænt-
anlega bara í þetta eina skipti. Þetta er svona
viðhafnarviðburður, því að ég geri svo mikið af
því að spila ein. Mig langaði því til að hafa þetta
dálítið sérstakt.“
Ólöf hefur fengið ýmis tilboð um að spila að
undanförnu og hefur hún nýtt þau eins og kost-
ur er. Hún segir að útgáfutónleikarnir eigi
væntanlega eftir að gefa sér betri tilfinningu
fyrir því hvernig best sé að kynna plötuna í
framhaldinu.
Ólöf segir að Við og við hafi opnað fyrir enn
frekari sköpun, þegar hugmyndirnar eru
komnar úr sekknum verður til pláss fyrir nýjar.
„Um þessar mundir er maður þó á kafi í
þessari plötu, þar sem maður er að fylgja henni
eftir. Það er eins og langmesta vinnan fari í
gang þegar plöturnar eru loksins komnar út!
En þegar um hægist ætla ég að fara að semja
nýtt efni og ég verð að segja að ég get varla
beðið og er mjög spennt fyrir þeirri vinnu.“
Ólöf hefur starfað meira og minna við tónlist
í meira en tíu ár og hefur verið afskaplega dug-
leg við að leggja vinum og félögum lið í hinum
ýmsu verkefnum. Hún hefur samið tónlist við
leikrit og innsetningar, starfað með djössurum,
nútímatónlistarmönnum og tilraunagúrúum,
unnið samstarfsverkefni í gegnum Tilraunaeld-
húsið og starfað með hljómsveitum eins og
múm og Slowblow. Þá hefur hún unnið nokkuð
með Skúla Sverrissyni, en aðild hennar að frá-
bærri plötu Skúla frá því í fyrra, Seríu, varð til
að koma hennar eigin sólóplötu í gang. En
hvort hún fer að snúa sér meira að sólóvinnu í
kjölfar Við og við er óráðið.
„Ég veit bara ekki hvernig þau mál eiga eftir
að þróast. Það verður hreinlega að koma í ljós.
Það er engin sérstök áætlun á borðinu fyrir
þetta ár. Ég mun spila eitthvað með múm á
þessu ári og einnig Skúla, og nóg að gera þar
a.m.k.“
Ólöf hóf ferilinn með hljómsveitinni Mósaík,
söng með þeim kornung á Músíktilraunum árið
1995, en í þeirri sveit var gítarleikari Benedikt
H. Hermannsson, Benni Hemm Hemm. Svo
leiddi hún sveitina Endemi þremur árum síðar í
gegnum Músíktilraunir. Með henni þar var
m.a. Eiríkur Orri Ólafsson trompetleikari, en
hann hefur verið afar virkur í senunni sem hef-
ur ekkert tiltekið nafn, en þeir sem henni til-
heyra tengjast þvers og kruss í gegnum hina og
þessa tónlistarhópa (t.d. múm, Skakkamanage,
Benni Hemm Hemm, Borko, Seabear, Stór-
sveit Nix Nolte, Flís o.fl.). Dagskipunin þar er
að sveigja frá hvers kyns boðum og bönnum,
öllu er hrært saman, sumir eru lærðir og aðrir
alls ekki en saman tengist þetta fólk í linnu-
lausri leit að einhverju nýju og skapandi.
Ólöf rifjar upp að í árdaga þessarar hreyf-
ingar hafi oft verið haldnir tónleikar í Tjarn-
arbíói og þar hafi ein hljómsveit verið sér-
staklega minnisstæð, „þessir síðhærðu sem
spiluðu löngu lögin“, eins og hún orðar það. Já,
Sigur Rós var að tilkeyra sig á þessum tíma, og
vegir hennar hafa legið um áðurnefndan hóp í
gegnum árin. Kjartan Sveinsson, píanóleikari
og þúsundþjalasmiður Sigur Rósar, tók þannig
upp plötu Ólafar og veitti góð ráð við gerð
hennar.
Eftir eyranu
„Á þessum tíma voru allir að kynnast, bæði þeir
sem fóru síðar í nám og líka þeir sem eru að
vinna í þessum bransa, 12 tóna-gengið o.s.frv.,“
segir Ólöf. „Vinátta var að myndast og hún átti
eftir að leiða af sér ýmislegt. Þetta er samkrull
af fólki, sumir eru lærðir en aðrir ekki, og það
„ástand“ er mjög gefandi. Þessi kynslóð lítur
Hugmyndirnar rötuðu
Eftir að hafa lagt tugum tónlistarmanna lið
með hljóðfæraleik og söng í yfir áratug lét
Ólöf Arnalds loks slag standa með sína fyrstu
sólóplötu. Platan, sem heitir Við og við, hefur
fengið lofsamlegar viðtökur og framúrskar-
andi dóma en hún kom út við lok febr-
úarmánaðar.
»Það hafa opnast ný
tækifæri fyrir tón-
listarmenn og hljóm-
sveitir sem ekki voru
fyrir hendi fyrir tíu ár-
um. Nú er hægt að fá
ferðastyrki til að kom-
ast út að spila, íslensku
grasrótarútgáfurnar
hafa virkilega sótt í sig
veðrið og svo er það
auðvitað þessi staf-
ræna bylting; það er
hægt að taka upp og
klára plötu inni í her-
bergi hjá sér. Í dag eru
meiri möguleikar fyrir
þá sem hafa löngun til
að skapa og koma ein-
hverju á framfæri.Með múm Ólöf Arnalds hefur leikið með múm um
nokkra hríð en líka ýmsum öðrum hljómsveitum.
Hljómsveitin múm Ólöf Helga, Örvar, Gunnar Örn,
Eiríkur, Kristín og Samuli á sundlaugarbakkanum.