Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.2007, Page 13
Að þeir séu hluti af ríkinu, ríkið
hluti af þeim. Verkið er eign ríkisins
(Drzava).
Hluti af heild
Sérstaða NSK liggur ekki síst í því
að í þessu víðfeðmasta ríki undir sól-
inni (og allt um kring) er einstakling-
urinn ekki nein stærð; hann hefur
ekkert hlutverk nema sem hluti af
heild. Einingin er allt, og framan af
vissu fáir deili á meðlimum hverrar
deildar fyrir sig. Þetta birtist okkur
eiginnaflaskoðurum í norðri og vestri
oft sem óður – homage – til hugsjóna
óspillts kommúnisma – en um leið
sem sviplaust stórfyrirtæki, risasam-
steypur nútímans, og jafnvel leyni-
reglur á borð við Opus Dei og frímúr-
ara. Með þessu er NSK líka að herma
eftir ábyrgðarleysinu sem við heyr-
um á hverjum degi hjá bankastarfs-
manninum og skriffinnanum: ,,Ég?
Ég bara vinn hérna…“
Noordung
Þyngdarleysisleikhópurinn Noor-
dung tekur grunnhugmynd sína frá
Herman Potonik Noordung, slóv-
enskum uppfinningamanni og eld-
flaugahönnuði. Noordung gerði líka
einar fyrstu teikningar af gervitungl-
um sem vitað er um. Hann rannsak-
aði þyngdarleysi, geimferðir og
hannaði mótora til að knýja geim-
flaugar. Árið 1928 birti hann teikn-
ingar af þyngdarleysishringnum,
sem seinna urðu fyrirmynd Arthurs
C. Clarke og Stanleys Kubrick við
gerð myndarinnar 2001: A Space Od-
issey.
Þegar fjalla á um NSK, liggur leið-
in aftur og aftur til skapara ríkisins,
hljómsveitarinnar Laibach, sem talar
um sjálfa sig sem ,,vélvirkja sálarinn-
ar“. Með því að beita aðferðum
stjórnmálamanna og leiðtoga skapaði
þessi háværa hljómsveit sérstöðu
strax frá upphafi sem gerði þá al-
ræmda – ekki bara heima fyrir rétt
eftir dauða Títós, heldur og í Aust-
urríki og þáverandi Vestur-Þýska-
landi, þegar þeir lögðu Evrópu undir
sig árið 1983 (Occupied Europe –
hljómleikaferðin). Allir nýkomnir úr
hernum og listnámi, uppblásnir af
heilögum anda ósvikinna hrekkju-
svína, áttuðu þeir sig á einu:
Listamaður sem má ekki opna
munninn án þess að valda úlfaþyt,
getur farið þrjár leiðir:
Farið í felur eins og moldvarpa,
gert uppreisn og spýtt eins og pönk-
ararnir (stál í stál), eða gerst trúður –
trúðar gátu jú alltaf sagt kónginum
sannleikann án þess að fara undir
fallöxina svo lengi sem hann skemmti
sér.
Þá uppgötva þeir spegilinn. Með
því að spegla valdhafana, nota þeirra
eigin aðferðir, setja upp merkissvip
og nota tvíræð slagorð og harkalegar
yfirlýsingar, kallaði hljómsveitin
fram ófyrirséð viðbrögð hvert sem
hún fór. Oft að ósekju, stundum bara
vegna þess hversu lítinn mun þeir
sáu á Freddie Mercury og Tító.
Með því að skrumskæla áróður
Hitlers – og nota um leið verk Johns
Heartfield (Herzfeld), var hægt að
fanga athygli áhorfenda hvar sem var
í Evrópu.
Herzfeld var myndlistarmaður í
Þriðja ríki Hitlers. Hann gerði raðir
áróðursmynda sem var beint sértak-
lega gegn Adolf sjálfum, Göbbels og
vinum hans; úr hakakrossinum vætl-
ar blóð, á plakötum hans mátti sjá
áletranir á borð við ,,Þriðja ríkið og
myrku miðaldirnar eru eitt og hið
sama!“
Frjósemin sprettur úr blóð-
ugum akri
(Bloody Ground, Fertile Soil)
Það er viss kaldhæðni í því að með-
limir og velunnarar sluppu stundum
yfir landamæri Balkanlandanna með
„diplómatapassa“ NSK einan á sér,
meðan stríðið í Júgóslavíu geisaði.
„Tilbúið“ ríki var orðið raunverulegt
– jafnvel raunverulegra en hin marg-
klofnu og sundurtættu þjóðabrot
Balkanskagans.
Eftir misheppnaða innrás skrið-
dreka Serba inn í Slóveníu sumarið
1992, stóðu bardagar yfir í fjórtán
daga. Slóvenía slapp mun betur en
aðrar þjóðir á Balkanskaganum og í
desember sama ár voru Slóvenar
sjálfstæð þjóð. Þá þegar voru Lai-
bach – og þar með yfirvöld þeirra,
NSK – orðin þekktasta afurð Slóven-
íu ásamt Gorenje-raftækjunum.
Sjálfstæði þeirra og listrænt frelsi
var í hættu og eigið ríki og starfsemi
þess tvíefldist, því alheimsríkið varð
þeim enn mikilvægara en áður – sem
nýtt föðurland.
Og það sem kom í staðinn fyrir
menningu Títós – Kóka Kóla og MTV
– var sýnu verri og útþynntari menn-
ing en fyrir var – sjálfmiðað, inni-
haldslaust rusl.
Popp er fyrir sauði
sem úlfarnir gleypa
Nýjasta plata tónlistargeirans, plat-
an VOLK – Úlfurinn – er safn endur-
unninna þjóðsöngva þrettán ríkja –
auk þeirra eigin ríkis. Á umslaginu er
sauðahjörð, fyrir ofan höfuð eins
þeirra er skrúfa – sem er um leið end-
urunnið tákn hins þýska Volksbank,
og öðlast enn aðra merkingu á ensku
(Wolves screw Sheep …)
Í þessari kaldhæðni er nett viðvör-
un: Erum við sauðir á leið til slátr-
unar?
Umkringd úlfahjörð …
NSK.is / a state of mind
Leiðir NSK eru órannsakanlegar og
uppákomurnar og verkin óteljandi.
Sendiráðin svamla um eins og
gervitungl, sjúga blóðið úr Ríkinu og
skjótast burt allt í einu á ofsahraða.
Starfsemi Reykjavíkurdeildar NSK,
sem verður að mestu vefræn, spilar
sitt hlutverk í sífelldri endurnýjun
Ríkis, sem á sama hátt og eðalvín
verður betra með árunum.
alheimsins
Höfundur er fjölmiðlafræðingur.Slóvenska Aþena Ein af fjölmörgum málverkum Irwin - hópsins þar sem sáðmanninum bregður fyrir.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 13
Vegabréf NSK Vegabréf til sýnis í
útibúi NSK í Berlín.