Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.2007, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.2007, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 5 þetta ekkert slæmt, mér finnst það bara fínt. JPV hefur sýnt á síðustu árum að það er hægt að gera ýmislegt í bókaútgáfu hér. Þeir hafa sannað það á fimm árum með því að verða önnur stærsta bókaútgáfa landsins. Saga forlagsins er í raun samfelld sigurganga. Þeir hafa líka alltaf sniðið sér stakk eftir vexti. Þessi ferill sýnir hið gagn- stæða við það sem menn hafa alltaf verið að halda fram um lífshorfur bókaforlaga hér á landi.“ Þegar Halldór Guðmundsson er spurður að því hvort hann telji að með stofnun hins nýja for- lags kunni að verða einhver vatnaskil í innlendri bókaútgáfu segir hann: „Ef það er nokkuð sem ég hef lært af reynsl- unni þá er það það að gefa ekki stórar yfirlýs- ingar við stofnun svona fyrirtækis. Ég hef þó ekki breytt um skoðun á því að Íslendingar mega heita heppnir ef þeir geta haldið úti einu sæmi- lega öflugu forlagi og svo nokkrum góðum, smærri útgáfum. Við erum nú einu sinni minnsti sjálfbæri bókamarkaður í heimi.“ Lifibrauð höfunda Svo hefur virst sem íslenskum rithöfundum lítist flestum harla vel á hið nýja sameinaða Forlag. Að minnsta kosti hefur enginn þeirra mælt því mót – sem ekki er kannski von. Svo hefur virst sem íslenskum rithöfundum lítist flestum harla vel á hið nýja sameinaða Forlag. Að minnsta kosti hefur enginn þeirra mælt því mót - sem ekki er kannski von. Þannig kveðst Pétur Gunn- arsson, formaður Rithöfundasambands Íslands, telja ávinning að því að með þessu fyrirkomulagi sé „haldið utan um flinka áhöfn sem hann vildi síður sjá fara forgörðum“. Þótt hann bæti raunar við að svo miklar breytingar hafi orðið und- anfarið á öllu landslagi bókaútgáfunnar að þar hafi verið orðinn vandi að sjá yfir. Og Þórarinn Eldjárn segir: „Mér sýnist að það muni bara styrkja bransann í heild að sameina þarna sterkustu kraftana. Ég hef reyndar fyrir löngu komið mér upp þeirri afstöðu að vera ná- kvæmlega sama hver á forlag bara ef það virkar og er almennilega stjórnað.“ Halldór Guðmundsson segir um þetta atriði: „Það er einfaldlega þrennt sem skiptir máli fyrir höfunda; góð ritstjórn, gott markaðsstarf og loks, sé þess kostur, öflugt starf á sviði erlendrar réttindasölu.“ Kristján B. Jónasson tekur í sama streng: „Þessi réttindasala á erlendan markað er orðin mikill segull fyrir höfunda. Það er mjög erf- itt fyrir einstaka höfunda að ætla að standa í slíku en þar eru stóru batteríin öflug. Þau hafa komið sér upp bæði verkþekkingu og dýrmætum alþjóðlegum tengslum.“ En hverjar eru annars aðstæður og kjör rit- höfunda hér? Og eru margir hér á landi sem lifa eingöngu eða því sem næst á ritstörfum? Ragn- heiður Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Rithöf- undasambands Íslands segir að ekki sé til nein eiginleg tölfræði yfir kjör íslenskra rithöfunda. „Tölurnar sem við höfum til að meta þetta eru einfaldlega tölur um úthlutun úr launasjóði rit- höfunda. Skilyrði fyrir atvinnurithöfunda breytt- ust mjög til batnaðar árið 1992 með lögum um Listamannalaun. Það má segja að hér á landi séu nú 40-60 manns sem stundi ritstörf eingöngu. Margir þeirra fást auðvitað einnig við greinaskrif og þýðingar. Aðaláhyggjuefni okkar hjá Rithöf- undasambandinu hefur verið að það hefur engin fjölgun orðið í úthlutuðum mánaðarlaunum til höfunda í 10 ár. Þetta gerir alla nýliðun í stéttinni erfiðari. Það er því áhyggjuefni þegar verið er að bæta fólki inn á starfslaun að þá þarf einhver annar að detta þar út. Og ef fólk hefur starfað við þetta í t.d. 10 ár þá er það eins og að vera sagt upp vinnunni. Nú liggur hins vegar fyrir vilyrði frá stjórnvöldum um að hoggið verði á þennan hnút og lög um listamannalaun endurskoðuð. Starfslaunin eru forsenda fyrir því að rithöf- undar geti sinnt ritstörfum eingöngu. Það er ekki nóg fyrir höfund að gefa út bók sem selst vel á tveggja til þriggja ára fresti til að lifa af því. Og menn verða ekki ríkir á mikilli sölu í útlöndum þótt svo megi stundum skilja á fréttum. Menn þurfa því það öryggi sem starfslaunin gefa. Nema þeir séu þeim mun betur giftir.“ Pétur Gunnarsson tekur í sama streng. “Auð- vitað blandast engum hugur um að starfslaun rit- höfunda eru hið nauðsynlega hjálpardekk til að höfundar geti sinnt ritstörfum í fullu starfi. Því þau höfundarlaun sem bjóðast af venjulegum seldum eintakafjölda duga engan veginn til að framfæra höfund. Enda tekur að meðaltali um tvö ár að vinna eina bók. Höfundar hafa annars fyrst og fremst verið óhressir með hringl með bóksöluverðið, að bók- um sé skellt út á einhverju tilbúnu verði og svo byrji eitthvert leikrit með afslætti. Þetta hefur skapað óróa í kringum sjálfa bóksöluna. Við höf- um frekar viljað horfa til þeirra landa þar sem bóksöluverð er fast og bókin kemur út á sínu raunverulega verði, en ekki eitthvert himinhátt verð í upphafi sem kaupandinn síðan mænir á að brotlendi í næsta matvörumarkaði korteri fyrir jól. Þetta leikrit hefur leikið bóksöluna í landinu grátt.“ En hvernig er háttað samningum höfunda við bókaforlög? Hólmfríður Matthíasdóttir er rétt- indastjóri hjá Eddu. Hún vann áður hjá bóka- forlagi í Madríd. Að hennar sögn eru slíkir samn- ingar hér með áþekku sniði og annars staðar. Yfirleitt er samið við höfunda um útgáfu eins verks í senn. Þegar forlag hefur ákveðið að gefa út tiltekna bók höfundar tekst það um leið á hendur vissa áhættu; forsvarsmenn þess lýsa þannig yfir trú sinni á viðkomandi bók og því að hún muni seljast í a.m.k. tilteknum fjölda ein- taka. Í ljósi þess er algengt og þykir eðlilegt að forlagið greiði höfundi fyrirfram ritlaun fyrir sölu tiltekins fjölda bóka. „Auðvitað viljum við rækta samband við okkar höfunda, að þeir stækki og dafni en við gerum ekki endilega samning um það. Höfundar geta einnig ákveðið að fara annað og eins geta þeir komið með bók sem ekki hentar forlagi til út- gáfu. Við lítum annars svo á að flestir okkar samningar við höfunda séu langtímasamningar en ekki sé verið að stofna til skyndikynna sem endist eina bók og svo ekki meir,“ segir Hólm- fríður. „Yfirleitt þykir rithöfundum samningar milli útgefenda og höfunda vera í ágætu horfi og góð- ir til síns brúks,“ segir Pétur Gunnarsson. „Það er tilgreint í samningnum að höfundarlaun séu ákveðin prósenta af söluverði, minnst 23% af heildsöluverði bókar. Samningnum er ætlað að tryggja lágmarks réttindi höfunda, en að sjálf- sögðu er hver og einn frjáls að því að semja nán- ar um kjör sín í hverju tilfelli.“ Markaðssjónarmiðið vængstýfir höfunda En ekki komast allir höfundar að hjá forlög- unum. Sumir höfundar hafa því brugðið á það ráð að gefa verk sín út sjálfir. Viðar Þor- steinsson, heimspekingur og blaðamaður, er stjórnarmaður í Nýhil. „Síðustu fimm til tíu ár hafa verið afskaplega mögur í bókaútgáfu hér á landi, sér í lagi fyrir síður markaðsvænar bókmenntir. Til marks um þetta hefur hópur eins og okkar, sem undir eðli- legum kringumstæðum væri fyrst og fremst listahópur eða óformlegur félagsskapur, þurft að standa í stórtækri bókaútgáfu. Þetta er við- bragð við því að ljóðabækur kæmu annars ekki út. Mál og menning stóð sig ágætlega á þessu sviði ef horft er aftur á níunda og tíunda áratug- inn, en eftir að félagið framdi harakiri í Eddu- ævintýrinu var ljóðaútgáfa fljótlega fyrir borð borin. Á síðustu árum hefur síðan borið á sívax- andi listrænu metnaðarleysi í bókaútgáfu hér almennt, og þar fjúka ljóðin fyrst. Þau ljóð sem þó hafa fengist útgefin hafa síðan þurft að upp- fylla viss skilyrði. Því vissulega kemur öðru hvoru út ljóðabók hjá stóru útgáfunum en þær verða annaðhvort að vera eftir gamla og virta höfunda eða vera af því tagi sem við köllum játningakveðskap. Ungir höfundar eru oftar og oftar látnir heyra það umbúðalaust hjá útgefendum að handrit þeirra séu „ekki markaðsvæn“. Það er mjög bagalegt að ungir höfundar séu neyddir inn á þessa markaðshugsun og afar óæskilegt fyrir þróun bókmenntanna. Það var talað um í gamla daga að forlag eins og Mál og menning væri að rækta höfunda sem yrðu síðan á mála hjá því og eins konar flaggskip þess. Þá þótti ekkert tiltökumál að gefa út eina skáldsögu sem ekki var söluvæn, jafnvel ljóðabók. Nú er hins vegar ætlast til að ungir höfundar séu þegar búnir að sanna að þeir geti selt áður en nokkur útgefandi vill snerta á þeim. Þessi þróun hefur vængstýft marga unga höfunda, en á sama tíma höfum við í Nýhil reynt að mæta þeirri áskorun að gefa út skáldsögur yngri höfunda, til hliðar við umfangsmikla ljóðaútgáfu. Þessi aðstaða er stundum þrúgandi fyrir unga rithöfunda en hjá Nýhil höfum við líka reynt að líta á hana sem tækifæri, og höfum gert Nýhil að höfundaforlagi að erlendri fyr- irmynd. Við höldum útgáfunni uppi með sjálf- boðavinnu, svo það fylgir henni enginn launa- kostnaður. Eini kostnaðurinn er prentkostnaðurinn og höfundurinn tekur oft þátt í honum sjálfur en ptentsmiðjan Oddi styrkir okkur líka með afslætti. Svo hjálpumst við að við allt annað, frá ritstjórn, próf- arkalestri, umbroti, kápuhönnun og til dreif- ingar, sölu og markaðssetningar en við höfum ókeypis afnot af lagerrými Smekkleysu. Höf- undar okkar geta líka selt verk sín sjálfir, með ýmsum óhefðbundnum leiðum, farið á bari og þvíumlíkt. Vandinn er bara sá að það lætur höf- undum misjafnlega vel að standa í slíku. Margir höfundar líða fyrir það að þetta sölustarf á ekki við þá, þótt það henti öðrum vel. Það getur skipt höfund ofboðslega miklu máli að koma út ljóðabók, grip sem hann kemur út í heiminn. Það er eins mikilvægt og það er fyrir unga myndlistarmenn að halda sýningar; ef þeir gerðu það ekki þá staðnaði ferillinn. Ástandið í bókmenntaheiminum er eins og ef það væru bara Kjarvalsstaðir og Listasafn Reykjavíkur – og safnstjórinn væri Jónas frá Hriflu. Landsbankinn keypti af okkur mikið af ljóðabókum árið 2006 til að gefa í bókasöfn. Það var veglegt framlag en árangur af sjálfsbjarg- arviðleitni okkar sjálfra.“ Viðar kveðst ekki sjá að hinn nýi risi muni breyta miklu um ástandið á markaðnum. „Hann ber ekkert með sér af fagurfræðilegum og póli- tískum áherslum gamla Máls og menningar. Ef Mál og menning ætlar einhvern tíma að rísa upp úr öskustónni sem útgefandi alvöru fag- urbókmennta á það mikið verk fyrir höndum. Það gengur ekki lengur að vísum grunni, það vantar bæði mannauð og hugmyndir. Mér finnst ástandið yfirhöfuð speglast allt í nýafstaðinni bókmenntahátíð. Hún var ákaf- lega metnaðarlaust fyrirbæri og inn á milli mjög vondir höfundar sem jafnvel eru ekki einu sinni að skrifa fagurbókmenntir. Ég skil ekki hvers vegna er verið að halda svona hátíð sem er eins og hver önnur kaupstefna sem bóksalar hefðu vel getað annast og greitt úr eigin vasa.“ Viðar segir úthlutunarnefndir úr launasjóði rithöfunda ekki virðast hafa augu og eyru opin fyrir ungum höfundum. „Þarna hefur orðið merkjanleg breyting á síðustu fimm árum. Þetta er eins konar „viðtökurof“ hjá þeim sem stjórna útgáfubransanum og úthlutun lista- mannalauna. Þeir sem ættu að vera að fylgjast með hinu nýja og bregðast við því, þeir eru að horfa eitthvert allt annað. Bókmenntaheim- urinn hér á landi er orðinn trénaður og metn- aðarlaus og úr tengslum við höfunda undir þrí- tugu.“ gatrúin Árni Einarsson hefurverið forstjóri Edduen tekur nú við stjórn í hinu nýja Forlagi. Hann hefur áralanga reynslu af forlagsstörfum hjá Máli og menningu. Árni segir eina veiga- mikla spurningu hafa orðið útundan í nýafstaðinni um- ræðu um innlenda bókaút- gáfu. Hún snúist um næstu kynslóðir bókakaupenda. Þá sem nú standi á tvítugu. „Spurningin sem þyrfti að spyrja er: “Hvernig hegðar kaupandinn sér?“ Ekki hvernig viljum við að hann hagi sér. Er hegðun hans kannski sífellt að breyt- ast? Viljum við alltaf að næsta kynslóð á eftir hagi sér eins og við gerðum sjálf? Og fyllumst trega ef hún kannast ekki við Gunnar Gunnarsson? Mín tilfinning er sú að næsta kynslóð bókakaupenda sé mun vægðarlausari, gefi hlutum minni séns, minni tíma. Að hún sé fljótari til ákvarðanatöku og full- yrðinga. Ég held að bók fái orðið færri sekúndur til að sanna sig en áður.“ – Þú talar ekki einu sinni um mínútur heldur sekúndur. „Já. Ég held að við horfum næstu árin fram á vægðarlausari kaupendahóp sem er mjög viss í sinni sök og fljót- ur að gera upp hug sinn. Gefi hlutunum minni umþótt- unartíma. Að einhverju leyti er þetta álagseinkenni: bókum hefur fjölgað gríðarmikið og þær eru lagðar á sama fólkið, ég held að það birtist með þess- um hætti. Fólk verður að ákveða „höfðar þetta til mín?“ Það tekur 10 sekúndur að ákveða það. Að sumu leyti er erfitt að ákveða hvað er orsök hér og hvað afleiðing. Þetta er bara veruleiki sem við búum við. Og við höfum að sumu leyti kallað þetta yfir okkur. Sumt af því er jákvætt. Sérviska hvers og eins fær meiri séns. Það er að segja sú viska sem hentar hverjum og einum. Auk þess tel ég að ný kynslóð bóka- kaupenda muni leggja enn minni rækt við eldri höfunda en leita fremur að sínum eigin höfundum, nýrri rödd. Og þar held ég að forlögunum sé vandi á höndum. Það er líka heilmikil pæling: Hvers konar höf- unda mun þessi kynslóð fæða af sér? Ég held að hér muni miklar breytingar verða næstu 10 árin . Og þar sé ein breyt- ingin ný tegund bókakaupenda með ann- að hegðunarmynstur. Ég hef á tilfinning- unni að við séum stödd á vegamótum.“ Ný tegund bókakaupenda Árni Einarsson Alexander Schwarzhefur verið staddurhér á landi síðustu vikur í tengslum við Bók- menntahátíð. Schwarz er Þjóðverji en hefur starfað í bókaútgáfu í Hollandi um árabil, lengst hjá sínu eigin Signature-forlagi en nú hjá Querido. Hann hefur gefið út fjölda bóka eftir íslenska höfunda. Hann á einnig mik- il viðskipti við bókaforlög á Norðurlöndum og hefur því fylgst með hræringum á for- lagamarkaðnum þar. Hann segir fyrirhugaða samein- ingu Máls og menningar og JPV síður en svo einsdæmi; þetta sé alþjóðleg tilhneig- ing. „Það hefur mikið af bókaforlögum verið að sameinast í Hollandi síðustu fimm árin. Menn héldu að það ferli væri afstaðið nú en það er enn að gerast. Forlögin verða bara stærri og stærri.“ – Hvað veldur þessari þróun? „Þar kemur margt til. Til dæmis hafa bókaverslanir verið að sameinast í æ stærri bóksölukeðjur. Í krafti stærðar sinnar og veltu setja þær síðan pressu á bókaforlög að veita afslátt af verði því annars muni engin viðskipti fara fram. Þrautaráð for- laganna við þessu hefur verið að sameinast sjálf, mynda blokkir á móti bók- sölunum sem eru nógu stórar til þess að ekki sé hægt að kúga þær. Þar er síðan stál í stál. Þetta verður svolítið eins og í kalda stríðinu,“ segir Schwarz. Schwarz segir áþekka þróun hafa átt sér stað og standa enn á Norðurlöndum. Þar hafa miklir samrunar gengið yfir, meðal annars með hlutdeild hinnar gríðarstóru Egmont-samsteypu. Nú seinast keypti Aschehoug- forlagið Bonnier-forlagið út af danska markaðnum og úr varð forlagið Lindhardt & Ringhof. Þar er vísað í gamalkunnugt for- lagsheiti líkt og gerst hefur hér. Schwarz segir að eitthvað hafi borið á því á umliðnum árum að fjársterkir aðilir hygðust hasla sér völl í bókaútgáfu og hafi keypt sig þar inn. Þessir aðilar hafi þó alla- jafna orðið fyrir vonbrigðum enda teljist bókaútgáfa seint gróðavænleg fjárfesting. „Að vera í bókaútgáfu verður að vera hugsjón,“ segir Schwarz. „Þetta er ekki eins og að selja sokka þar sem rauðir sokk- ar eru í tísku í ár, grænir það næsta. Við erum ekki að selja prentaðan pappír. Við erum að selja hugsanir, tilfinningar og drauma. Fagið snýst allt um þessa mann- legu eiginleika. Fólk og kenndir þess. Minnst um peninga.“ Alexander Schwarz Sameiningarferlið alþjóðlegt

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.