Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.2007, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.2007, Page 6
6 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Kvikmyndahátíðin í San Sebast-ian hófst í gær en meðal þess sem finna má á dagskrá hátíð- arinnar er sér- stök dagskrá til- einkuð kvikmyndum frá Norðurlönd- unum. Yfirskrift- in nefnist Cold Fever, eftir sam- nefndri mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, en athyglin beinist fyrst og fremst að þeim breytingum sem orðið hafa í norrænni kvik- myndagerð síðastliðin 15 ár. Sam- hliða hátíðinni kemur út bók um sama efni þar sem danski kvik- myndagagnrýnandinn fjallar um þróunina og þá leikstjóra sem markað hafa spor í þessari þróun. Þær íslensku myndir sem sýndar verða á hátíðinni eru áðurnefnd Cold Fever, Hafið eftir Baltasar Kormák, Nói Albínói eftir Dag Kára og Börn og Foreldrar Ragn- ars Bragasonar og Vesturports. Auk þeirra verða meðal annars sýndar dönsku myndirnar Festen og Idioterne og sænsku myndirnar Fucking Amal og Hole In My Hear eftir Lukas Moodysson.    Bandaríski grínarinn Jon Stew-art verður kynnir á næstu Óskarsverðlaunahátíð, annað árið í röð. Stewart, sem er 44 ára, fékk mjög misjafna dóma fyrir frammistöðu sína á verðlaunaaf- hendingunni fyrr á árinu en um- sjónarmenn há- tíðarinnar sögðu hann „fyndinn, snjallan og eldheitan kvikmynda- áhugamann“ og að þeir gætu ekki beðið um meira. Einnig eru forsetakosningar á næsta ári og því þótti tilvalið að fá Stewart til verksins, þar sem hann lætur pólitík sig miklu varða í um- fjöllun sinni um málefni líðandi stundar. Óskarsverðlaunin verða veitt í 80. sinn í Hollywod hinn 24. febrúar á næsta ári.    Björninn og marmelaðiáhugmað-urinn Paddington er á leið á hvíta tjaldið. Framleiðandinn David Heyman (Harry Potter) hefur að sögn stefnt að því í lengri tíma að gera mynd um Paddington. Myndin mun verða í anda Stuart Little þar sem blandað er saman leiknum per- sónum og teiknuðum. Paddington er hugarfóstur Mich- aels Bond.    Á vefsíðu Guardian birtist á dög-unum listi yfir þá leikara sem hefur tekist hvað verst upp við að leika fólk af öðr- um kynþætti. Líkt og með lista af þessu tagi eru þeir skemmtileg lesning þrátt fyr- ir að vísindalegar rannsóknir liggi þeim ekki til grundvallar. Peter Sellers nýtur þess vafa- sama heiðurs að tróna efst á listan- um fyrir hlutverk sitt sem Indverj- inn Hrundi V Bakshi í The Party frá árinu 1968. Í öðru sæti er Mic- key Rooney fyrir frammistöðu sína sem herra Yunioshi í Breakfast At Tiffany’s (1961). Þá þótti hin ljós- hærða og bláeyga Meryl Streep einkar ósannfærandi sem hin suð- ur-ameríska Clara del Valle Trueba í Húsi andanna. Þar er möguleg ástæða fyrir leikkonuvalinu nefnd sú að leikstjórinn Bille August er Norðurlandabúi. KVIKMYNDIR Friðrik Þór Friðriksson Peter Sellers Jon Stewart EftirBjörn Þór Vilhjálmsson vilhjalmsson@wisc.edu John Waters er ekki dauður úr öllum æðum.Þessari hugsun skaut upp í kollinn á mér,og henni fylgdi ákveðinn léttir, þar sem égsat hlæjandi og horfði á nýjustu kvikmynd hans, This Filthy World (Þessi skítugi heimur). En hvers vegna þessi léttir? Jú, kvikmyndaferill Waters hefur ekki verið upp á marga fiska und- anfarin áratug, jafnvel lengur, framleiðnin lítil og verkin misjöfn. Söknuðurinn eftir því sem áður var hefur að sama skapi aukist og nokkuð langt er síðan maður fékk sinn Waters-skammt, „hreinan og beint í æð“. Á löngu tímabili var Waters nefnilega einn allra athyglisverðasti utangarðsleikstjóri Bandaríkj- anna, hann var skæruliði og stjórnleysingi sem engu eirði í tilraun sinni til að skapa öfugsnúnar útópíur á hvíta tjaldinu. Í mynd eftir mynd á of- anverðum sjöunda áratugnum og þeim áttunda, og allt fram á þann níunda, skapaði hann öfgaðan og oft fjarstæðukenndan veruleika sem engu að síður birti ákveðna samfélagsmynd. Að hluta var ávallt um háðslega spegilmynd hins venjufasta og siðvanda millistéttarveruleika að ræða, en um- fram það leitaðist Waters við að skapa útilokuðum samfélagshópum athafnarými á hvíta tjaldinu; hann fjallaði um ókurteisar hvatir, um óbeislaða líkama, hann fjallaði um málefni, langanir og hegðun sem almenn bannhelgi hvíldi yfir, fólk sem hvergi átti sér verustað, en fyrst og fremst leit- aðist hann við að sýna fram á hversu margt þurfti að loka úti, hólfa inni, hafna og afneita til að slétt og samfelld samfélagsmyndin viðhéldi útlínum sínum. Í myndum á borð við Multiple Maniacs (1970), Pink Flamingos (1972), Female Trouble (1974) og Desperate Living (1977), jafnan með klæðskiptinginn og súperstjörnuna Divine (Glenn Milstead) sér við hlið, skapaði Waters sér algjöra sérstöðu í bandarískri kvikmyndamenningu og festi sig í sessi sem boðberi andófsmöguleikanna sem felast í smekkleysi, kraftinum sem býr í við- bjóðinum og úrkastinu. Og ef hinn endanlegi próf- steinn á mátt fegurðarinnar er hvort hún þolir og getur rýmt fyrir ljótleikanum og smekkleysinu má sannarlega sjá feril Waters sem einn stóran prófstein á umfang hennar. Leikarar skiptu Waters ávallt miklu máli, og jafnan má sjá samfélagsmyndina sem miðlað er í verkunum endurspeglast í því samfélagi leikara sem Waters safnar í kringum sig. Hafa Iggy Pop, Traci Lords og Johnnie Depp einhvern tíma leikið saman í mynd? Jú, það myndi vera Cry-Baby (1990), síðari af tveimur söngleikjum Waters. Sá fyrri er Hairspray (1988) sem síðar varð met- sölusmellur á Broadway og var endurgerð fyrir skemmstu með John Travolta í aðalhlutverki. En síðan Waters gerði hina kostulegu Serial Mom (1994) með Kathleen Turner í sínu síðasta almennilega hlutverki hefur hálfgerð þurrð gert vart við sig í höfundarverki leikstjórans. Pecker (1998), Cecil B. Demented (2000) og A Dirty Shame (2004) hafa svo sem átt áhugaverða spretti, einkum þær tvær síðastnefndu, en þegar komið var fram yfir miðjan tíunda áratuginn var mann jafnvel farið að gruna að Waters hefði hálf- partinn hrokkið úr gírnum. Kannski fann hann sig ekki nægilega vel í póstmódernískum „allt geng- ur“ veruleika samtímans. Mörkin verða illgrein- anleg, og það skapar vandamál fyrir kvikmynda- gerðarmann sem hefur jú ávallt starfað á mörkunum. En ekki er öll von úti. Ef litið er til nýjustu myndar þessa frægasta barns Baltimore borgar, This Filthy World, er ekki laust við að dá- lítill unaðshrollur læðist um kroppinn, kappinn er ennþá sannur sóðabelgur, hann getur enn boðað fagnaðarerindið af krafti og sannfæringu. En mynd þessi fjallar einmitt á beinan hátt um trú- boðann John Waters. Hér er nefnilega ekki um hefðbundna kvikmynd „eftir“ Waters að ræða heldur upptöku af eins og hálfs klukkustund- arlöngu uppistandi leikstjórans þar sem hann kemur lífssýn og fagurfræði sinni á framfæri beint til áhorfenda, einsamall á sviði, aðeins vopn- aður sögum, bröndurum og sínu alræmda smekk- leysi. Fegurðin í smekkleysinu SJÓNARHORN » ... en umfram það leitaðist Waters við að skapa útilokuðum sam- félagshópum athafnarými á hvíta tjaldinu; hann fjallaði um ókurteisar hvatir, um óbeislaða líkama ... Eftir Heiðu Jóhannsdóttur heida@mbl.is A n Unreasonable Man, sem er leik- stýrt af Steve Skrovan og Henri- ette Mantel, fjallar um feril Ralph Naders í gegnum tíðina, jafnframt því sem leitast er við að bregða birtu þá ákvörðun Naders að bjóða sig fram til forseta árið 2000, en að áliti margra kostaði framboð Naders Al Gore forsetaembættið. Kosningarnar árið 2000 fóru reyndar fram með slíkum ósköpum að ómögulegt hefði verið að segja fyrir um úrslitin en einmitt það hversu mjótt var á mununum varð til þess að reiði demókrata bitnaði á Nader af miklum þunga. Þegar Nader fór svo fram aftur árið 2004 var hann úthrópaður sem mikilmennskubrjálæðingur og einn skæðasti óvinur demókrata, framfara og umbóta í gervöllum Bandaríkjunum. Þetta kemur skýrt fram í upphafi myndarinnar þegar sýnd eru myndbrot af ýmsum mætum mönnum, allt frá Jimmy Carter til dálkahöfundarins Eric Alterm- an, sem lýsa skaðlegum áhrifum Naders á banda- rískt þjóðfélag, kalla hann óheiðarlegan og kenna honum um þau stórslys sem átt hafa sér stað und- ir Bush undanfarin ár. „Þakka þér fyrir Íraks- stríðið, Ralph, þakka þér fyrir umhverfiseyðilegg- inguna, þakka þér fyrir að rústa stjórnarskránni,“ segir Alterman bitur í bragði í einu viðtalsbrotinu. Ljóst er að orðspor Naders hefur tekið stakka- skiptum. Áratugum saman var hann þjóðþekktur sem kraftmesti umbótasinni á síðari hluta tutt- ugustu aldarinnar, hann var álitinn fölskvalaus hugsjónamaður og var áberandi í almennri sam- félagsumræðu. Þetta virðist nú gleymt. Heimild- armyndin An Unreasonable Man, leitast hins veg- ar við að benda á að framboð Naders til forseta hafi verið í fullu samræmi við áratugalangt starf hans á sviði neytenda- og réttindamála, og hljóti það að teljast ósanngjarnt að kenna honum um ósigur demókrata í kosningunum árið 2000. Baráttan gegn General Motors Þótt forsetaframboð Naders og eftirköst þess sé það grunnmálefni sem lagt er upp með hefur An Unreasonable Man víðari skírskotanir, en myndin setur fram fróðlega umfjöllun um líf og starf manns sem á sér engan líka. Nader varð fyrst þjóðþekktur fyrir umfjöllun sína um bifreiða- öryggi. Á sjöunda áratugnum var hann ötull gagn- rýnandi bílafyrirtækjanna og hélt því fram að bif- reiðar væru óþarflega hættulegar, hönnun þeirra væri slysagildra sem kostaði ótal manns líf og limi á hverju ári. Áhugi Naders á þessum málaflokki hófst þegar vinur hans og skólabróðir í lög- fræðideild Harvard lenti í bílslysi og lamaðist. Bókin sem Nader skrifaði í kjölfarið, Unsafe at Any Speed (Hættulegur á hvaða hraða sem er), hefur reynst tímamótaverk í neytendabaráttunni og leiddi til róttækra lagalegra umbóta, þar á meðal innsetningu öryggisbelta og síðar loftpúða en almenn hönnun bifreiða var einnig endur- skoðuð. Áhrif bókarinnar voru þó ekki jafn bein og ætla mætti, en sá kafli myndarinnar sem lýsir þessu tímabili í lífi Naders er bókstaflega með ólíkindum. Eftir að bókin kom fyrst út tók Nader eftir því að einhverjir virtust vera að njósna um hann. Ókunnugar konur reyndu að fá hann til lags við sig á opinberum stöðum, og skuggalegir menn veittu honum eftirför. Hann hafði samband við kunningja sinn á Washington Post og lýsti grun- semdum sínum, en ekkert var þó hægt að gera því sannanir skorti. Það breyttist hins vegar þegar tveir blaðamenn hjá Washington Post sem líktust Nader í útliti kvörtuðu undan ofsóknum ókunnugra manna sem veittu þeim eftirför og öbbuðust upp á vini og fjölskyldumeðlimi. Þorp- ararnir höfðu farið mannavillt en við þetta sprakk málið í loft upp. Washington Post gerði ofsóknir á hendur Naders að forsíðufrétt og málið var að lok- um tekið upp af þingnefnd sem Robert Kennedy stýrði. General Motors viðurkenndi að hafa ráðið einkaspæjara í þeim tilgangi að klekkja á Nader og baðst opinberlega afsökunar. Það dugði ekki til því Nader höfðaði mál á hendur fyrirtækinu og hlaut himinháar skaðabætur. Málið gerði Unsafe at Any Speed að metsölubók og Nader þjóðþekkt- an. Kaldhæðnin er síðan sú að fjármunirnir sem Nader hlaut í skaðabætur urðu grunnurinn að öfl- ugu og þaulskipulögðu umbótastarfi Naders og samstarfsmanna hans í neytendamálum næstu áratugi. En þessi saga er einnig lýsandi fyrir Na- der að öðru leyti, en hún er dæmi um þá staðföstu trú sem hann hefur á bandaríska lagakerfinu og beitingu þess í baráttunni fyrir betra samfélagi. Alla tíð hefur hann verið sannfærður um að um- bætur verði að koma innan frá, en þannig skar hann sig að mörgu leyti úr hópi róttæklinga og byltingarsinna sjöunda áratugarins sem margir hverjir vildu leggja kerfið af eins og það lagði sig. Spurning um arfleifð Kvikmyndin um Ralph Nader hverfur óhjá- kvæmilega aftur að spurningunni um forseta- framboðið og hvort hann hafi staðið rétt að því. Sú gagnrýni hefur jafnvel heyrist frá þeim sem ennþá eru dyggir stuðningsmenn Naders að hann hafi stórskaðað, ef ekki bókstaflega eyðilagt orðspor sitt og arfleifð með þessu glapræði sínu. Í skemmtilegri klippingu fer myndin beint frá stuðningsmanni sem varpar þessari fullyrðingu fram, yfir til Naders sjálfs þar sem hann segir að honum standi nákvæmlega á sama um sína per- sónulegu arfleifð. Hvernig er hægt að skaða hana? spyr Nader. Verða öryggisbeltin tekin úr bílum? Loftpúðarnir? Hvernig sem á það er litið er ljóst að þeir gagnrýnendur Naders sem telja að hann hafi látið stjórnast af sjálfhverfu þegar hann bauð sig fram til forseta, reka sig á ákveðna mótsögn. Ef Nader væri mjög umhugað um ímynd sína og orðspor hefði hann hugsað sig tvisvar um áður en hann steig það óvinsæla skref að hafa atkvæði af demókrataflokknum í tvísýnum kosningum, vegna þeirrar sannfæringar sinnar að báðir flokkar hefðu brugðist hagsmunum almennings og að fleiri valkostir fyrir kjósendur myndu veita hinum einráðu flokkum aðhald. Þannig má líkja forseta- framboði Naders við baráttu hans gegn GM fjöru- tíu árum fyrr, en henni líktu fjölmiðlar við sigur Davíðs á Golíat. Í þetta sinn er Nader hins vegar að berjast við tveggja flokka skrímslið í banda- rískum stjórnmálum og líkt og raunin var þegar hann ákvað einsamall að segja einu stærsta fyr- irtæki heims stríð á hendur, hafa margir reynt að fá hann ofan af fyrirætlun sinni, af þeirri ástæðu að baráttan sé vonlaus. Nader hlustar ekki núna frekar en hann gerði þá, en ljóst er af útreiðinni sem hann hefur hlotið að bandaríska stjórn- málamaskínan er mun skæðari Golíat en GM var á sínum tíma. Umbætur innan frá „Skynsamur maður lagar sig að aðstæðum. Óskynsamur maður reynir að breyta aðstæð- unum. Allar framfarir má rekja til óskynsamra manna.“ Þetta eru upphafsorð nýrrar heim- ildamyndar um bandaríska neytendafrömuðinn og forsetaframbjóðandann Ralph Nader, An Un- reasonable Man (Óskynsamur maður), en þau eru sótt til George Bernard Shaw. Nader Kvikmyndin um Ralph Nader hverfur óhjákvæmilega aftur að spurningunni um forsetaframboðið og hvort hann hafi staðið rétt að því.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.