Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.2007, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 11
Eftir Þröst Helgason
throstur@mbl.is
Kristján Kristjánsson, heim-spekingur við Háskólann á
Akureyri, hefur sent frá sér ritið
Aristotle, Emo-
tions, and
Education en út-
gefandi er As-
hgate í Eng-
landi.
Í bókinni ræð-
ir Kristján fjölda
mistúlkanir á
kenningum Ar-
istótelesar um
siðferði, tilfinn-
ingar og mennt-
un. Þeir sem halda því fram að
kenningar fræðimanna um tilfinn-
ingagreind hafi gætt hugmyndir
Aristótelesar nýju lífi í samtím-
anum fá yfirhalningu og Kristján
færir meðal annars rök fyrir því að
kenna ætti börnum að réttlát reiði
sé réttlætanleg.
JPV útgáfa sendir nú frá sér frá-sögn fyrrverandi herdrengs,
Um langan veg. Í bókinni segir
Ishmael Beah,
sem nú er orðinn
tuttugu og sex
ára gamall, átak-
anlega sögu sína:
Tólf ára gamall
flúði hann undan
morðóðum upp-
reisnarhermönn-
um í heimalandi
sínu Síerra
Leóne. Þrettán
ára var hann tekinn í her stjórn-
valda og komst fljótt að því að
hann, ósköp venjulegur strákur,
var fær um að vinna grimmilegustu
voðaverk. Sextán ára var honum
bjargað af UNICEF og hjálpað að
hefja nýtt líf, segir í tilkynningu.
Það er staðreynd að börn eru
mjög eftirsóttir hermenn. Þau
heyja stríðin, örvingluð og upp-
dópuð með AK-47-riffil í hendi.
Talið er að um 300.000 börn séu
látin berjast í þeim rúmlega fimm-
tíu styrjöldum sem geisa í heim-
inum. Ishmael Beah var eitt þeirra.
Hvaða augum lítur herdrengur
stríð? Hvernig verður barn morð-
ingi? Á það sér viðreisnar von?
Ishmael Beah er fæddur í Síerra
Leóne árið 1980. Hann fluttist til
Bandaríkjanna árið 1998 og lauk
gagnfræðaskólanámi við Al-
þjóðaháskóla Sameinuðu þjóðanna
í New York. Árið 2004 brautskráð-
ist hann frá Oberlin-háskóla með
BA-gráðu í stjórnmálafræði. Hann
er félagi í ráðgjafarhópi Human
Rights Watch-samtakanna sem
berst gegn misnotkun barna og
hefur meðal annars flutt erindi á
vegum Sameinuðu þjóðanna.
Íslenska stjórnkerfið eftir Gunn-ar Helga Kristinsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, er komin
út í annarri út-
gáfu, uppfærðri
og endurskoð-
aðri. Þetta er
inngangsrit um
íslensk stjórn-
mál og stjórn-
málafræði. Há-
skólaútgáfan
gefur út en þar
hafa einnig kom-
ið út í ritsafni
Sagnfræðistofnunar ritin: Encoun-
tering Foreign Worlds: Experi-
ence at Home and Abroad, sem
fjallar um það hvernig Íslendingar
og aðrar norrænar þjóðir hafa tek-
ist á við útlendinga og erlenda
strauma síðan á 18. öld. Kvinnor
och Politik i det Tidigmoderna
Norden sem fjallar um konur og
pólitík í samtímanum. Og Vänner,
Patroner och Klienter i Norden
900-1800 en þar er fjallað um
hvaða þátt óformleg vináttu-
sambönd manna í milli og tengsl
velgjörðarmanna og skjólstæðinga
þeirra hafa haft við mótun nor-
rænna samfélaga.
BÆKUR
Kristján
Kristjánsson
Gunnar Helgi
Kristinsson
Ishmael Beah
Eftir Þröst Helgason
throstur@mbl.is
Það eru spennandi tímar framundan í íslenskri
bókaútgáfu. Hin árlega bókavertíð er svona um
það bil að hefjast og forvitnilegt verður að sjá
hvort og hvernig hin mikla sameining Máls og
menningar og JPV muni hafa áhrif á útgáfuna.
Ef marka má það sem forsvarsmenn hins nýja
Forlags segja í viðtölum í Lesbók í dag mun
sameiningin ekki hafa nein sérstök áhrif á út-
gáfuna en í ljósi þess hvernig gekk að ná end-
um saman hjá stærsta útgáfufyrirtæki lands-
ins, Eddu, þá má hugsanlega vænta einhvers
samdráttar.
Forlögin eru enn ekki komin með endanlega
útgáfulista fyrir haustið en sumt er þó farið að
kvisast út.
Sérstaka athygli vekur að ljóðabókaútgáfa
virðist ætla að verða mikil en það var hún
einnig í fyrra. Sjón er að senda frá sér nýja
ljóðabók, Sögur steinasafnarans, og hjá Bjarti
kemur einnig út ljóðabók eftir unga skáldkonu
að nafni Kristín Svava Tómasdóttir en hún hef-
ur vakið athygli á upplestrum á vegum Nýhil
og Nykurs. Hjá Máli og menningu eru að koma
ljóðabækurnar Höggstaður eftir Gerði Kristn-
ýju, Ástarljóð af landi eftir Steinunni Sigurð-
ardóttur og Fjöllin verða að duga eftir Þórarin
Eldjárn. Allt saman bækur sem beðið verður
eftir með eftirvæntingu. Kristian Guttesen
sendir frá sér Glæpaljóð og hjá Nýhil eru
væntanlegar tvær ljóðabækur, Þjónn, það er
fönix í öskubakkanum mínum eftir Eirík Örn
Norðdahl og bók eftir Ingólf Gíslason sem enn
hefur ekki fengið nafn.
Meðal skáldsagna er væntanleg Himnaríki
og helvíti eftir Jón Kalman Stefánsson sem
kemur út hjá Bjarti en þar er sögð saga af
Vestfjörðum. Hjá Máli og menningu kemur
Karitas II eftir Kristínu Marju Baldursdóttur,
Rimlar hugans eftir Einar Má Guðmundsson
og smásagnasafnið Endurfundir eftir Einar
Kárason. Valur Gunnarsson sendir svo frá sér
fyrstu skáldsögu sína en hann er þekktari sem
blaðamaður. Bjartur gefur einnig út skáldsögu
eftir Þórdísi Björnsdóttur sem sendi frá sér
ágæta bók í fyrra ásamt Jesse Ball, Veru og
Linus, en hún fór ekki hátt. Gyrðir Elíasson
mun vera með nóvellu eða stutta skáldsögu og
hjá JPV er væntanleg skáldsaga eftir Þórunni
Valdimarsdóttur, Kalt er annars blóð.
Krimmabylgjan er ekkert að minnka. Arn-
aldur Indriðason sendir frá sér nýja bók,
Harðskafi. Árni Þórarinsson heldur áfram að
segja frá Einari blaðamanni í Dauða trúðsins
og frá Þráni Bertelssyni kemur Engill dauð-
ans. Jón Hallur Stefánsson vinnur síðan að
nýrri glæpasögu en sem stendur er ekki ljóst
hvort hún kemur út á þessu ári eða því næsta.
Hjá bókaútgáfunni Sögum er síðan vænt-
anlegur reyfari í anda DaVinci-lykilsins eftir
Óttar Martin Norðfjörð, Hnífur Abrahams, en
Óttar vakti athygli í fyrra fyrir ævisögu Hann-
esar Hólmsteins Gissurarsonar, Nóttin er blá,
mamma, en annað bindi hennar kemur út í
haust.
Bókmenntafrétt ársins gæti þó orðið sjálfs-
ævisöguleg bók Sigurðar Pálssonar sem heitir
Minnisbók og kemur út hjá JPV. Þar rifjar
Sigurður upp námsárin í Frakklandi.
Fleira mætti telja en verður látið bíða betri
tíma. Það sem hér hefur verið talið boðar hins
vegar gott haust.
Flóðið brestur á
» Bókmenntafrétt ársins gæti
þó orðið sjálfsævisöguleg bók
Sigurðar Pálssonar sem heitir
Minnisbók og kemur út hjá JPV.
Þar rifjar Sigurður upp námsárin
í Frakklandi.
ERINDI
Eftir Ólaf Guðstein Kristjánsson
olafurgudsteinn@googlemail.com
W
olfgang Müller ætti að
vera mörgum Íslend-
ingum kunnur. Hann
hefir verið áberandi í ís-
lensku listalífi allar göt-
ur síðan hann kom fyrst
til Íslands árið 1990 og varð fyrir miklum
áhrifum af landi og þjóð. Í gegnum tíðina
hefir hann staðið fyrir fjölmörgum uppá-
komum í Þýskalandi sem tengjast landinu,
og auk þess haldið þó nokkrar myndlist-
arsýningar á Íslandi og skrifað fleiri bækur
sem taka á landinu. Wolfgang er svo ásamt
myndlistarkonunni Ástu Ólafsdóttur stofn-
andi Walter von Goethe Foundation í
Reykjavík.
Wolfgang fæddist árið 1957 í Wolfsburg í
Neðra-Saxlandi, en hefir lengi verið búsettur
í Berlín. Hann er titlaður myndlistarmaður,
tónlistarmaður og rithöfundur. Á árum áður
gerði hann garðinn frægan með hinum
þekkta fjöllistahóp Die Tödliche Doris, sem
tilheyrði sömu hugmyndafræði og hljóm-
sveitin Einstürzende Neubauten. Hug-
myndafræði sem reifuð er í bókinni Genialen
Dilletanten (snilldarlegir viðvaningshættir).
Sver sig í ætt við eldri Íslandslýsingar
Kannski kemur þetta þeirri bók sem hér er til
umfjöllunar ekki svo mikið við nema fyrir það að
á vissan hátt eru líkindi milli þess sem Wolfgang
hefir áður gert og þess sem honum er oft hug-
leikið nú; álfar og huldufólk, þótt sá áhugi sé á
undanhaldi. Þannig skapaði Wolfgang með Die
Tödliche Doris ósýnilegu plötuna, sem verður til
er platan Unser Debut (1985) og sechs (1986)
eru spilaðar samtímis. Álfar eru jú líka ósýni-
legir. Fleiri verk Wolfgangs taka á áþekku, án
þess að farið sé nánar út í þá sálma hér. Þannig
má gera því skóna að Íslandsáhugi Wolfgangs
þjóni um margt sköpunarlegum tilgangi og nái
út fyrir landið sem slíkt.
Titill bókarinnar, sem er bæði írónískur og
ögrandi ásamt því að gera grín að sjálfum sér,
kallast á við margar þær ferðalýsingar sem áður
hafa verið skrifaðar um landið, t.a.m. Nac-
hrichten von Island, eftir Johann Anderson frá
1764. En eins og þekkt er var lenska erlendra
gesta að skrifa ferðabækur um landið. Verk sem
leituðust eftir að lýsa hinu framandi og furðu-
lega Íslandi og voru oftlega full af ýkjum og
frjálslegum staðreyndum. Má segja, með ein-
földun þó, að þessar bækur hafi skipst í útópíu-
og dystópíulýsingar, þar sem land og þjóð var
annaðhvort hafið til skýjanna eða lastað út í eitt.
Neues von der Elfenfront sver sig í ætt við slík-
ar bókmenntir. Er Wolfgang augljóslega afar
fróður um slíkar bókmenntir, enda er fjöldinn
allur af vísunum til fyrri skrifa um landið í bók-
inni.
Álfafræði og fleira
Bók Wolfgangs er þó talsvert öðruvísi og kaos-
kenndari en fyrirrennararnir. Hún fylgir hvorki
tíma- né röklegri framvinduskipan og raunar er
hægt að byrja lesturinn hvar sem er, líkt og í
uppflettiriti. Farið er um víðan völl, þótt greina
megi að orðið álfar komi oftar fyrir en mörg
hver önnur. Því líkt og titillinn gefur til kynna
skipa álfarnir nokkuð veglega rullu. Það hefir og
verið sagt um Wolfgang að hann sé einn helsti
álfasérfræðingur Þýskalands. Þó ber ekki að
skilja sem svo að hér sé ÁLFABÓK á ferð sem,
líkt og oft er raunin með slíkar bækur, tekur á
öllum þeim klisjum sem fylgja því ágæta
umfjöllunarefni. Hér er blessunarlega einnig
fjallað um sitthvað sem ekki ratar í túr-
hestahandbækurnar; að klæðskiptingar séu
líka hluti af náttúrunni, erótískar verslanir á
Íslandi, hinsegin-kúltúr, draggkeppnir;
hvort það stemmi að eftir kynskiptaaðgerð
frá manni í konu lækki launin; hví Ísland
vantaði á fyrstu útgáfu evru-seðilsins; norð-
lægasta pítsastað í heimi; hvort finna megi
álfaspor í Þýskalandi, sem og hefðbundnari
álfapælingar; af hverju ekki megi fjarlægja
suma kletta er leggja á vegi. Að auki eru
þar áhugaverð viðtöl. T.d. við þá þrjá alls-
herjargoða sem verið hafa við stjórnvölinn
hjá ásatrúarfélaginu eftir lát Sveinbjörns
Beinteinssonar sem og við Guðberg Bergs-
son og Þórð Ægi Óskarson, sem fylgdi
Bobby Fischer frá fangelsinu í Tókýó út á
flugvöll fyrir hönd íslensku þjóðarinnar o.fl.
Helsti styrkur bókarinnar er að maður
veit ekki hverju von er á (þ.e. ef maður les
ekki kaflaheitin í byrjun bókar) og hvernig
tengt er á milli atriða á óvæntan hátt, þótt
það liggi svo sem alveg við að tengja á milli.
T.d. er á einum stað byrjað á að fjalla um
lög í Grágás sem varða það er maður klæð-
ist kvenmannsfötum og kona karlmanns-
fötum, því næst er skipt yfir í Hollendinginn
Dithmar Blefken sem skrifaði í bók sinni,
Hieronymus Megiser frá 1613, að hann sæi
engan mun á því hvernig konur og karlar
klæddu sig á Íslandi. Að því búnu er farið
yfir í umfjöllun um draggkeppni Íslands. Oft
eru svo þessar tengingar sem og kaflarnir
sem slíkir einkar skemmtilegir.
Líkt og með ferðasögur fyrri tíma er dá-
lítið spilað á skringilegheitin. Ísland er enda
í augum margra Þjóðverja framandi og
áhugavert land, hvort sem sá áhugi litast af
náttúrunni, fólkinu, álfunum og tröllunum, ver-
gjörnu kvenfólki eða íslenska hestinum. Það er
og að miklu leyti unnið með þær staðalmyndir
sem fara af landi og þjóð í téðri bók. Oftlega þó
settar í annað samhengi en hinn almenni „Ís-
landsáhuga“-Þjóðverji á að venjast. Fyrir vikið
segir mér svo hugur að texti bókarinnar eigi
e.t.v. eftir að koma einhverjum spánskt fyrir
sjónir.
En það er ekkert til að kvarta yfir og raunar
hugsanlega æskilegt að fleiri myndir en þær of-
ur markaðsvænu ímyndir sem eiga að selja land-
ið birtist af og til. Og þótt allt sé kannski ekki
hundrað prósent kórrétt þá verður að hafa í
huga að Wolfgang hefir lengi vel leikið sér með
skáldskap og staðreyndir og hér býður formið
aldeilis upp á slíkan leik.
Og þótt hér sé eitthvað öðruvísi álfur á ferð
þá er alltént engin ástæða til að skrifa bók til
varnar landinu líkt og Arngrímur lærði gerði
forðum. Nei, þessi álfur er vinur okkar.
Eitthvað öðruvísi álfur
TUTTUGASTA og sjötta ágúst síðastliðinn
kom út bók hins góðkunna þýska listamanns
Wolfgangs Müllers, Neues von der Elfen-
front: Die Wahrheit über Island (Tíðindi frá
álfavígstöðvum: sannleikurinn um Ísland),
frá hinu þekkta þýska forlagi Suhrkamp, þar
sem Wolfgang í sextíu og sex köflum veltir
fyrir sér ýmsum atriðum er lúta að Íslandi.
Ekki handbók „Hér er blessunarlega einnig
fjallað um sitthvað sem ekki ratar í túrhesta-
handbækurnar; að klæðskiptingar séu líka hluti
af náttúrunni, erótískar verslanir á Íslandi, hin-
segin-kúltúr, draggkeppnir.“
TENGLAR
...............................................................
http://www.wolfgangmueller.net
http://www.suhrkamp.de