Morgunblaðið - 10.01.2007, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 7
FRÉTTIR
2007
Búlgaría frá kr. 29.990
Salou frá kr. 39.995
Bibione frá kr. 49.595
Portoroz frá kr. 68.190
Sumar
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
25
45
3
Terra Nova býður fullt af spennandi nýjungum fyrir sumarfríið 2007. Perla Svartahafsins, Golden Sands
í Búlgaríu, einn vinsælasti áfangastaður Evrópu. Salou og Pineda á Costa Dorada ströndinni sunnan
Barcelona sem er sannkölluð fjölskylduparadís. Bibione á Ítalíu, einnar bestu sólarstrandar Ítalíu, þar
sem í boði eru glæsilegir, nýjir gististaðir og frábær aðstaða í sumarfríinu. Einnig bjóðum við ferðir til
perlu Adríahafsins Portoroz í Slóveníu og til heimsborganna Barcelona og Parísar. Starfsfólk Terra Nova
óskar þér og þínum góðrar ferðar hvert sem leiðin liggur í sumarfríinu í ár.
Bókaðu n
úna á
www.terr
anova.is
Tryggðu þ
ér bestu g
ististaðin
a
og lægsta
verðið.
Búlgaría
Salou og Pineda
Bibione
Perla Svartahafsins
– hvergi meira frí fyrir peninginn
Planetarium – glæsileg gisting.
100% ánægja
Ævintýraparadís fjölskyldunnar
Fyrstu 500 sætin
10.000 kr.
afsláttur á mann
Veldu bestu gistingu
na og fáðu
mesta afsláttinn.
Gildir ekki um flugs
æti eingöngu.
Einungis takmarkað
ur fjöldi sæta í boði
á hverri dagsetning
u.
Barcelona
frá kr. 23.990
París
frá kr. 28.910
Kynntu þér glæsilegan sumarbækling
okkar sem dreift er með blaðinu í
dag eða á www.terranova.is
UTANRÍKISRÁÐHERRA hefur
ákveðið að lög um Þróunarsamvinnu-
stofnun Íslands (ÞSSÍ) nr. 43 frá 1981
verði endurskoð-
uð og kannað
verði hvort þörf
sé á breyttu
skipulagi þróun-
arsamvinnu Ís-
lands. Meðal
álitaefna sem
skoðuð verða eru
kostir og gallar
núverandi laga-
ramma ÞSSÍ, svo
og fyrirkomulag
þróunarsamvinnu Íslands, bæði tví-
hliða og á fjölþjóðlegum grundvelli.
Í tengslum við endurskoðunina er
nú hægt að koma á framfæri skoð-
unum, tillögum og athugasemdum
um þróunarsamvinnu Íslands á vef-
setri utanríkisráðuneytisins (www.ut-
anríkisraduneyti.is).
Lög um
ÞSSÍ end-
urskoðuð
NÁMSTEFNA um konur og
stjórnun fyrirtækja fer fram á Nor-
dica hóteli fimmtudaginn 11. janúar
frá kl. 8 til 12 undir yfirskriftinni
„Virkjum kraft kvenna“. Fjalla á
um konur og stjórnun fyrirtækja út
frá ýmsum sjónarhornum, en nám-
stefnan er ætluð bæði konum og
körlum.
Meðal þeirra spurninga sem leit-
að verður svara við á námstefnunni
eru: Hvaða eiginleikum eru leiðtog-
ar gæddir, hvernig stjórnendur eru
konur, hvaða skyldur fylgja stjórn-
arsetu, hvað ræður vali í stjórnir og
hvers vegna hefur konum í stjórn-
unarstöðum ekki fjölgað nægilega
þrátt fyrir aukna menntun og um-
ræðu.
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, setur námstefnuna
en ræðumenn verða Svava Grön-
feldt, nýr rektor Háskólans í
Reykjavík, Lilja Dóra Halldórsdótt-
ir, lögfræðingur, MBA og aðjúnkt
við viðskiptadeild HR, og Hildur
Petersen, stjórnarformaður
SPRON og Kaffitárs.
Í umræðum að erindum loknum
taka þátt þau Elín Sigfúsdóttir,
framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
Landsbanka Íslands, Hafdís Jóns-
dóttir, framkvæmdastjóri Lauga
Spa, Hrönn Greipsdóttir, hótelstjóri
Radisson SAS Hótel Sögu, Stein-
unn Þórðardóttir, framkvæmda-
stjóri Glitnis í London, Benedikt
Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Heims, Jafet S. Ólafsson, stjórn-
armaður VBS fjárfestingarbanka,
og Þorkell Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs HR.
Kraftur
kvenna
virkjaður á
námstefnu
♦♦♦
frá árinu 2003 og er samstarfsvett-
vangur Norðurlands í ferðamálum.
Skrifstofan er í eigu ferðamálasam-
taka Norðurlands eystra og Norður-
lands vestra og hefur haft það að
meginhlutverki að samræma mark-
aðs- og kynningarmál á svæðinu.
Ásbjörn Björgvinsson hefur sinnt
starfi stjórnarformanns skrifstof-
unnar en hann sagði starfi sínu lausu
á mánudag í kjölfar ákvörðunar
byggðaráðs. Hann segist ekki geta
starfað áfram sem stjórnarformaður
þar sem hann kemur frá Norður-
þingi. „Þegar mitt heimafólk, sem ég
taldi mína helstu samstarfsaðila,
snýst gegn því áliti og samstöðu sem
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„Fyrir þremur árum var efnt til þess
í tilraunaskyni að reka Markaðs-
skrifstofu ferðamála á Norðurlandi,
sá tími er liðinn og í mínum huga er
eðlilegt að Þingeyingar horfi nú til
austuráttar til að styrkja samstarf
og ferðaþjónustu á svæðinu norðan
Vatnajökuls,“ segir Halldór Blöndal,
þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norð-
austurkjördæmi, um ákvörðun
byggðarráðs Norðurþings að hafna
frekara samstarfi við Markaðsskrif-
stofu ferðamála á Norðurlandi.
Markaðsskrifstofan hefur starfað
við höfum sýnt á svæðinu og sendir
skilaboð um að vilja ekki vinna með
öðrum get ég ekki staðið keikur á
eftir. Mér finnst það ekki verjandi,“
segir Ásbjörn.
Ákvörðun fárra einstaklinga
Ásbjörn segir að unnið hafi verið
að því undanfarna mánuði að end-
urnýja samninga við sveitarfélögin á
Norðurlandi um áframhaldandi
starfsemi skrifstofunnar og hefur
því vel verið tekið. „Síðan kemur það
upp í mínum heimabæ að örfáir ein-
staklingar, sem reyndar eru stórir í
ferðaþjónustu, leggjast gegn áfram-
haldandi samstarfi og mæla með því
við byggðaráð að þeir hafni sam-
starfi á þeirri forsendu að starfsemin
hafi ekki staðist þær væntingar sem
menn hafi gert sér. Hvaða væntingar
það eru hef ég ekki fengið svör við,“
segir Ásbjörn og bætir því við að ef
til þess komi að svæðið verði bútað
niður í minni einingar séu tekin skref
nokkur ár aftur tímann hvað við
kemur markaðsmálum.
„Okkar kynningarsvæði hefur náð
frá Hrútafirði, austur fyrir Langa-
nes og síðan höfum við alltaf verið
með inni tenginguna við Austfirði.
Þó svo að ekki hafi verið beint sam-
starf við Austfirðinga höfum við ver-
ið í góðum samskiptum við þá. Okkar
hugmynd var hins vegar að kynna
Norðurland sem eina heild.“
Sameiginlegir hagsmunir
Halldór Blöndal segir að svæðið
frá Húsavík, um Raufarhöfn og
Vopnafjörð og síðan til Egilsstaða
eigi mikla sameiginlega hagsmuni í
ferðaþjónustu og eðlilegra sé að
þetta svæði vinni saman heldur en
Norðurland í heild sinni. „Þetta
svæði er atvinnuleg og samgönguleg
heild og hefur sömu hagsmuni,“ seg-
ir Halldór og tekur fram að þessi
ákvörðun muni engin áhrif hafa á
samstarf Akureyringa og Þingey-
inga.
„Þingeyingar horfi til austuráttar“
Valgerður
Sverrisdóttir