Morgunblaðið - 10.01.2007, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● LITLAR breytingar urðu á úrvals-
vísitölunni í gær en hún hækkaði um
0,08% og var skráð 6.778,56 stig
við lokun viðskipta. Velta á hluta-
bréfamarkaði nam 6.779 milljónum
króna og 5.000 milljónum á skulda-
bréfamarkaði.
Hlutabréf Eimskipafélags Íslands
hækkuðu mest í gær eða um 2,46%.
Bréf Exista hækkuðu um 1,675 og
bréf Mósaíks um 1,33%. Hlutabréf
Marels lækkuðu mest eða um
1,29% og bréf Bakkavarar um 0,95%
Hlutabréf hækka
● LÝSING og Sýr ehf. hafa undirritað
samning um fjármögnun á kaupum
Sýrs á eignum Teymis, en Sýr er í
eigu þeirra Gunnars Hjaltalín og Þór-
arins Ragnarssonar. Heildar-
kaupverð nemur 2,3 milljörðum
króna. Fasteignirnar sem um ræðir
eru Ármúli 2, sem hýsir starfsemi
Skýrr, Síðumúli 23 og 25, þar sem
starfsemi Securitas fer fram, Grens-
ásvegur 8 og 10, þar sem EJS hefur
verið til margra ára, og Lyngháls 9,
sem er húsnæði Kögunar. Að auki
var undirritaður samningur um fjár-
mögnun á Köllunarklettsvegi 2 sem
er í langtímaleigu til ýmissa aðila.
Sýr var eitt af fimm fasteignafélögum
sem gerðu tilboð í lokuðu forvali.
Lýsing fjármagnar
kaup Sýrs af Teymi
Sýr og Lýsing rita undir samninginn.
● GREINING Glitnis spáir því að úr-
valsvísitala hlutabréfa í Kauphöll Ís-
lands muni hækka um 21% á þessu
ári. Þær hækkanir sem hafi verið frá
áramótum, um 5%, muni halda
áfram og horfur á hlutabréfamarkaði
því í heildina litið jákvæðar. Í Morg-
unkorni Glitnis segir að frekari vöxtur
fjármálageirans á alþjóðamörk-
uðum, sem og frekari útrásarverk-
efni annarra félaga, muni verða ráð-
andi þáttur í þróun hlutabréfa-
markaðarins á þessu ári líkt og
undanfarin ár. Líklegt sé að fjár-
festahópurinn verði alþjóðlegri.
Glitnir spáir 21%
hækkun hlutabréfa
SAMSKIP hafa tekið upp samstarf
við hafnaryfirvöld í Zeebrugge í
Belgíu um uppbyggingu gámamið-
stöðvar þar. Hefjast siglingar á
vegum Samskipa á milli Zeebrugge
og hafna á Írlandi strax í þessum
mánuði. Haft er eftir Ásbirni Gísla-
syni, forstjóra Samskipa, í tilkynn-
ingu, að Rotterdam verði áfram
þungamiðjan í Evrópuflutningum
félagsins. Mjög brýnt hafi hins veg-
ar verið að hefja markvissa upp-
byggingu annarrar gámamiðstöðv-
ar á meginlandinu vegna aukning-
ar í gámaflutningastarfseminni
í Evrópu.
Samskip
auka við sig
í Evrópu
Höfn Við val Samskipa á Zeebrugge í Belgíu skipti gott landrými fyrir
hafnar- og gámastarfsemi sköpum í ákvörðun félagsins.
Kaupþing banki – hvað sem síðar
kann að verða – því eftir því sem
Morgunblaðið kemst næst hafa ekki
orðið mjög miklar breytingar á
gjaldeyrissstöðu Landsbanka og
Glitnis frá því bankarnir birtu níu
mánaða uppgjör sín.
Því er ljóst að Kaupþing hefur á
síðustu þremur mánuðum ársins
aukið verulega þann hluta eigin fjár
síns sem er í erlendri mynt.
Kaupþing fékk undanþágu frá
Seðlabanka Íslands til þess að fara
yfir 30% mörkin svokölluð (þ.e. hlut-
fall erlendrar myntar af eigin fé) í
tengslum við alþjóðlegt hlutafjárút-
boð sitt í nóvember. Útboðið skilaði
Kaupþingi um 56 milljörðum í er-
lendri mynt en ætla má að bankinn
hafi þar fyrir utan selt umtalsvert af
krónum fyrir evrur (eða aðra mynt)
á undanförnum vikum og mánuðum.
Hver gjaldeyrisjöfnuður Kaupþings
banka var um síðustu áramót verður
ekki upplýst fyrr en við birtingu árs-
uppgjör bankans í lok þessa mánað-
ar.
Hefur losað um
krónur fyrir evrur
Kaupþing banki fékk undanþágu frá Seðlabanka
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
Í NÓVEMBER og desember meira
en tvöfaldaðist nettógjaldeyrisstaða
viðskiptabankanna þriggja og fór úr
að vera jákvæð um tæpan 91 milljarð
í lok október í 188,5 milljarða í lok
desember. Í desember einum hækk-
aði gjaldeyrisstaða nettó því um 81,4
milljarða króna en það er langmesta
hækkun í einum mánuði frá því
Seðlabankinn tók að birta þessar töl-
ur. Tekið skal fram að tölurnar taka
aðeins til Glitnis, Landsbanka og
Kaupþings banka en ekki annarra
eins og t.d. Straums-Burðaráss sem
ákvað að gera upp í og vera með eig-
ið fé í evrum í lok síðasta árs. Nú
liggur fyrir að Kaupþing fékk und-
anþágu hjá Seðlabanka Íslands til að
vera með jákvæðan jöfnuð umfram
30% af eigin fé í tengslum við alþjóð-
legt hlutafjárútboð sitt í nóvember. Í
því aflaði Kaupþing banki um 56
milljarða íslenskra króna sem bank-
inn fékk greitt í erlendum myntum
og var þeim ekki skipt í krónum sam-
kvæmt upplýsingum frá bankanum.
Kaupþing með stefnu á evru?
Í Vegvísi Landsbankans segir að
erfitt sé að sjá annan tilgang í jafn-
mikilli uppbyggingu gjaldeyrisforða
bankanna en að „þeir séu, einn eða
fleiri, í alvöru að undirbúa að yfir-
gefa krónuna sem uppgjörsmynt“.
Þótt ekki sé neinn banki nefndur á
nafn í Vegvísi er ljóst að vart getur
annar banki átt hlut að máli en
NEYTANDASTOFA hefur bannað
Högum hf., dótturfélagi Baugs Gro-
up, að nota firmanafnið Hagar.
Þetta kemur fram í ákvörðun Neyt-
endastofu sem birt hefur verið á
heimasíðu hennar. Finnur Árnason,
forstjóri Haga, segir að málinu
verði áfrýjað til áfrýjunarnefndar
stofunnar. „Við erum bjartsýn um
að málið fái farsælan endi þar,“ seg-
ir Finnur í samtali við Morgunblað-
ið.
Einkahlutafélagið Hagi ehf.
kærði notkun Haga hf. á nafninu til
Samkeppnisstofnunar í maí 2004.
Hagi ehf. var stofnað og skráð í fyr-
irtækjaskrá árið 1993. Það er líka
þekkt sem Hilti en nafnið Hagi
kemur fram á nótum og nafnspjöld-
um fyrirtækisins. Taldi fyrirtækið
að með áralangri notkun hefði það
áunnið sér einkarétt á vörumerkinu
Hagi ehf.
Hagar hf. hétu Baugur Ísland þar
til í október árið 2003. Í ákvörðun
Neytendastofu kemur fram að lög-
maður fyrirtækisins hafi haft sam-
band við forsvarsmenn Haga ehf.
með það í huga að kaupa af þeim
firmanafnið. Ekki hafi samist um
kaup á nafninu. Hagar hf. hafi engu
að síður haldið áfram notkun á um-
ræddu nafni.
Ruglingur átti sér stað
Neytendastofa, sem tók við kæru
Haga ehf. af Samkeppnisstofnun,
kemst að þeirri niðurstöðu að oft sé
örðugt eða ótækt að gera greinar-
mun á því hvort Hagi eða Hagar á í
hlut, þar sem bæði orðin séu eins í
þolfalli og eignarfalli. Firmanafnið
Hagi vísi hvorki til vöru eða þjón-
ustu sem sé í boði, né veki hugmynd
um sérstakan atvinnurekstur. Því
verði að telja að Hagi ehf. hafi við
skráningu í fyrirtækjaskrá öðlast
lögverndaðan rétt á heitinu. Þar að
auki hafi verið sýnt fram á að rugl-
lingur hafi átt sér stað milli aðila.
Ákvörðun Neytendastofu er sú að
Hagar hf. hafi með notkun firma-
nafnsins Hagar hf. brotið gegn
ákvæðum laga um eftirlit með órétt-
mætum viðskiptaháttum og
gagnsæi markaðarins. Því bannar
Neytendastofa Högum hf. að nota
firmanafnið Hagar hf. og skal það
taka gildi fjórum vikum eftir birt-
ingu ákvörðunarinnar.
Hagar hf. mega ekki heita Hagar hf.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
KAUPÞING
banki gaf í gær
út skuldabréf að
andvirði 200
milljónir sviss-
neskra franka,
jafngildi um 15
milljarða ís-
lenskra króna.
Bréfin eru gefin
út til þriggja ára
á kjörum sem
samsvara 28 punktum yfir milli-
bankavöxtum (LIBRO) en umsjón
með útgáfunni var í höndum bank-
anna UBS og Credit Suisse.
Guðni Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri fjárstýringar Kaup-
þings, segir kjör bréfanna end-
urspegla breytingu á viðhorfum
evrópska markaðarins til bankans.
„Þegar Kaupþing lauk endur-
fjármögnun fyrir árið 2007 í sept-
ember sl. voru bréf bankans í
Bandaríkjunum til þriggja ára
verðlögð 70 punkta yfir Libor-
vöxtum. Sú útgáfa fór hins vegar
fram í Bandaríkjunum og mark-
aðurinn þar ekki alveg sambæri-
legur þeim evrópska, en kjörin
eru vísbending um að verðlagning
á áhættu bankans hafi lækkað
undanfarna mánuði,“ segir Guðni.
Hann segir jafnframt að Kaup-
þing hafi tekið þá ákvörðun að
gefa ekki út skuldabréf í Evrópu á
árinu 2006. „Útgáfan sýnir að
mínu viti að sú ákvörðun var rétt.
Útgáfan kann jafnframt að gefa
tóninn hvað varðar kjör á frekari
útgáfu Kaupþings í Evrópu á kom-
andi misserum,“ segir Guðni Að-
alsteinsson.
Guðni
Aðalsteinsson
%&'()$*)+&),$,*-$,'(,."-,/+.,*0*,,&4 4'##*
5-6
-
0!#
+=$ 3(*"8 0!#
+!
= 0!#
+= >
(*
" >?
+*( 3(*"8 0!#
$ ( 3(*"8 0!#
? 3(*"8 0!#
3( 0!#
!# @8!A& B
1"8C& 0!#
B 0!#
7(
0!#
7*= ?0* 0!#
,(""(:"((6 ?.6(!## 0!#
D"( 0!#
7 8 5 1 @E 0!#
?& 3(*"8 0!#
9=
( 3(*"8 * & 0!#
9=
= 3(*"8 0!#
)F0
(. 0!#
G7H +
I
% 0!#
I(%&&& 0!#
'" 0!#
9 8 434
,6"(!A& ,""( $!#
:/;
3( 0!#
8. 0!#
, 4
(:
$8
&
I* / * &
1"8 ,
#
#
## # # :
# #
## # #
## #
# ###
#
#
#
#
# # ## ## ## #
## :
:
:
##
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
'8 / (4"
+I# J +0"&"( ?.
$8
:
:
:
:
:
:
:
:
,/
$#$
(
) K
,L>
2
2
?I,@
M+H
2
2
N+N G7H ,*0#
2
2
G7H 10 !
)
2
2
9N@H M*O P*
2
2
11
1
1
1
1
11
1
1
1
1
1
2"03)*" '*&,11
,
B
)"$,#
&&#*&$, ,,-$
< 1 < < : = > !
Miklar vangaveltur Margir telja að Kaupþing hafi tekið stefnuna á evruna
og telja líklegt að það verði gert opinbert á næstu vikum eða mánuðum.
Kaupþing
gefur út
skuldabréf