Morgunblaðið - 10.01.2007, Side 20
heilsa
20 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur
thuridur@mbl.is
Maður er alltaf að leita að því semgetur gert börnin manns að heil-um einstaklingum og þetta erstórt skref í þá átt,“ segir Ingileif
Steinunn Kristjánsdóttir, móðir Sólveigar
Margrétar Diðriksdóttur, sem á síðastliðnu ári
hefur tekið mikinn þroskakipp eftir að hafa
leitað til Svíþjóðar í Tomatis-heyrnarþjálf-
unarmeðferð. Af tilviljun komust Ingileif og
maðurinn hennar Diðrik Sæmundsson að til-
urð þessarar meðferðar og er hún undrandi yf-
ir að þeim skuli ekki hafa verið bent á þessa
leið hér á landi.
„Mér finnst alveg hræðilegt að það sem er
viðurkennt af frönsku vísindaakademíunni árið
1957 skuli hafa læðst svona um. Fyrir nokkr-
um árum fengu Pólverjar réttindi frá móð-
urstöðinni í París til að byggja upp miðstöð og í
dag eru þar 700 útibú tengd skólakerfinu sem
geta tekið um 30 þúsund nemendur í meðferð
árlega. Aðferðin er einnig mikið notuð í
sænska heilbrigðiskerfinu. Þetta er náttúrlega
ekki kraftaverkameðal en ég sé rosalegan mun
á stelpunni minni eftir þetta, hún er bara önn-
ur manneskja,“ segir Ingileif. Sjálf er hún
grunnskólakennari á Selfossi og hefur oft
fengist við sérkennslu, segist stundum hafa
verið að stappa í gömlu aðferðunum án þess að
sjá alltaf mikla breytingu á einstaklingnum.
Saga Sólveigar
Að sögn Ingileifar var Sólveig dæmigert
„eyrnabarn“. Þegar kirtlarnir voru teknir við
fjögurra ára aldur fengu foreldrar hennar að
vita að þykkt slím í miðeyra hefði e.t.v. valdið
varanlegum heyrnarskemmdum sem gæti
skýrt hve seint hún næði talhljóðunum þrátt
fyrir talkennslu frá þriggja ára aldri og góðan
greindarþroska. Sólveig tók góðum framförum
í tali eftir kirtlatökuna en þó heyrðist enn á
mæli hennar að eitthvað var að. Við mælingu á
Heyrnar- og talmeinastöðinni kom ekki annað
í ljós en að stúlkan hefði góða heyrn.
Þegar skólagangan hófst sóttist lesturinn
erfiðlega ekki síst vegna þess að mjög erfitt
virtist vera að greina á milli d, t og p og h, f og
þ. Í öðrum bekk varð hún daprari og bitrari og
áhuginn á skólanáminu minnkaði og að sögn
Ingileifar höfðu þau Diðrik orðið verulega
áhyggjur af ástandi mála. Þýsk stúlka sem
vann um tíma við bústörf hjá fjölskyldunni
benti þeim svo á Tomatis-aðferðina og Ingileif
leitaði með Sólveigu til miðstöðvarinnar í
Stokkhólmi í nóvember 2005.
Við greiningu kom í ljós að stúlkan var með
dempaða heyrn á tíðnibili málhljóða og vinstra
eyra ráðandi sem útskýrði enn frekar lélega
úrvinnslu málhljóða. Sett var upp hlustunar-
áætlun sem miðaði að því að laga heyrnina
þannig að Sólveig heyrði öll málhljóð. Lögð var
áhersla á að virkja kuðung innra eyrans en
hann hafði ekki fengið nægjanlega örvun í
bernsku vegna eyrnabólgu. Hún hefur á rúmu
ári tekið verulegum framförum í lestri og heyr-
ir nú öll málhljóð, hún hefur styrkst sem ein-
staklingur og tekur nú miklu meiri þátt í öllu
sem fram fer í kringum hana. Vegna sífellt
fleiri barna greindra með athyglisbrest og of-
virkni bendir Ingileif á að úrræða sé þörf hér á
landi og þar kæmi Tomatis-aðferðin sann-
arlega að gagni, líka í tilvikum krakka sem séu
of dauf og nái ekki að einbeita sér, líkt og
ástatt var um Sólveigu. „Við vissum ekki að
vinstra eyrað á henni væri ráðandi sem veldur
því að þessi tíðni í málhljóðunum tapast. En
þessir erfiðleikar við hljóðúrvinnslu hafa líka
áhrif á persónuleikann og persónuþroskann
þannig að hana vantar sjálfsöryggi og þetta
dregur úr félagsfærni. Þegar við Sólveig kom-
um fyrst út sá ég líka öll ofvirku börnin í með-
ferð sem voru að slíta í sundur snúrurnar og
annað. Ég var látin lesa inn á disk og þeir síðan
breyttu röddinni í eins konar óm sem stelpan
mín hlustaði á og gerði hana öruggari með sig.
Aðferðin hreinlega kemur bylgjum heilans í
fasa. Þetta var merkilegt!“ segir Ingileif með
áhersluþunga. „Sólveig kom ekki vel út úr
fimm ára skoðuninni en er núna búin að taka
það allt út. Fyrir utan að núna heyrir hún öll
málhljóðin.“
Ingileifu er kunnugt um einn Íslending sem
leitað hefur á náðir Tomatis fyrir utan dóttur
sína. „Í raun og veru kostar búnaður fyrir eitt
útibú bara um tvær milljónir og svo þarf tvo
sérkennara sem tækju 7–8 manneskjur í einu í
meðferð. Þetta myndi snarborga sig þegar
fram í sækir,“ segir Ingileif og horfir björtum
augum fram á veginn.
Þroskakippur hjá átta ára stúlku
Í heyrnarþjálfun Sólveig með hlustunartæki
frá Tomatis-miðstöðinni í Stokkhólmi í mars-
mánuði á síðastliðnu ári.
Önnur manneskja Ingileif og Sólveig á haustmánuðum. „Maður er alltaf að leita að því sem
getur gert börnin manns að heilum einstaklingum og þetta er stórt skref í þá átt,“ segir Ingi-
leif um Tomatis-aðferðina, enda segir hún Sólveigu sem nýja manneskju eftir meðferðina.
Tomatis-heyrnarþjálfunaraðferðin varfundin upp um 1950 af franska lækn-
inum Alfred Tomatis en aðferðin er leið til
að efla hljóðkerfisvitund, einbeitingu og
drifkraft með hjálp hlustunarmeðferðar.
Hún var fyrst notuð til að hjálpa óperu-
söngvurum sem höfðu misst kraft og rödd
en faðir Tomatis var óperusöngvari.
Tomatis-aðferðin barst síðan um róm-
anska málsvæðið og inn á það þýska en ekki
fyrr en árið 1995 til Skandinavíu og fáum
árum síðar var sett á fót Norræna Tomatis-
miðstöðin í Svíþjóð. Aðferðin virðist enn
ókunn flestum hér á landi.
Dr. Tomatis komst að því að talmál okkar
byggist á þeim hljóðum sem heilinn nemur
og ennfremur að kuðungur í innra eyra er
það líffæri þaðan sem einbeitingu allrar
heilastarfsemi er stjórnað. Síðari rann-
sóknir hafa staðfest þetta og einnig fundið
út að mjög mörg umbunarsvæði heilans eru
nálægt kuðungnum. Ef hann er vankaður
fer mikið af umbuninni fyrir ofan garð og
neðan hjá einstaklingnum og er hann leið-
réttur upp í rétta virkni hjá Tomatis. Gegn-
um langvarandi hlustun var hægt að end-
urvekja tapaða hæfni til að heyra hljóð af
ákveðnum tíðnibilum. Meðferðin hjálpar
jafnt heyrnardaufum og daufgerðum sem
ofvirkum með athyglisbrest, og gagnast
jafnvel í sambandi við kulnun í starfi. Sér-
fræðingar á fjölda Tomatis-miðstöðva víða
um heim hafa náð góðum árangri við að
auka starfsgetu og vellíðan einstaklinga.
Tal-, mál- og hreyfiþroski, hegðunarfrávik
og taugalífeðlisfræðileg endurhæfing vegna
höfuðáverka og blóðtappa og ýmsir streitu-
sjúkdómar eru dæmi þar sem meðferðin
kemur að gagni og ýmsir listamenn hafa þar
að auki bætt með henni rödd og framkomu,
s.s. Maria Callas, Placido Domingo og Gér-
ard Depardieu.
Aðalþættir meðferðarinnar eru greining,
hlustunarundirbúningur og -ferli. Hver
meðferð felur í sér þrjú hlustunarskeið þar
sem hlustað er í alls 20 klst. í gegnum svo-
nefnt rafeyra, sem er ein stærsta uppfinning
dr. Tomatis, á sérvalda tónlist þar sem tíðni-
toppar hafa verið styrktir og er unnið bæði
með innra eyra og miðeyra. Aðallega er um
að ræða sígilda tónlist eins og tónlist Moz-
arts, gregoríanskan söng og móðurröddina.
Nemandinn púslar, spilar eða hvílir sig á
meðan hann hlustar og er líka beðinn um að
tala, syngja eða lesa í hljóðnema og hlusta á
eigin rödd í rafeyranu.
Tomatis-
heyrnarþjálf-
unaraðferð
TENGLAR
.....................................................
www.tomatis-group.com
Jón Ingvar Jónsson orti um framtíðina áfundi í Kvæðamannafélagsins Iðunnar:
Mér finnst það hálf dapurt að fara að lýsa
hér framtíð er svo er í heild:
veðrið mun hlýna og virkjanir rísa og
West Ham fer niður um deild.
Hörður Björgvinsson velti nýju ári fyrir
sér:
Lítt ég í fjarlæga framtíð rýni,
og fjandskap íslenskra veðra.
En víst er það gott að veðrið hlýni,
og West Ham má fara í neðra.
Bjarni Stefán Konráðsson gefur sitt álit:
Sama er mér hver sökkva mun í gjallið,
sama er mér þótt líti ei á heildina,
sama er mér hvers bíður beisklegt fallið
bara ef United vinnur deildina.
Framtíðin og
West Ham
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
RÖNTGENMYND hjá tannlækni
getur leitt í ljós hvort mann-
eskjan sé með beinþynningu eða í
hættu á að fá beinþynningu. Í
Svenska Dagbladet er greint frá
þessum niðurstöðum frá Bret-
landi, en þær eru hluti samstarfs-
að aðferð til greiningarinnar sem
hugmyndin er að allir tannlæknar
geti tileinkað sér. Beinþynning er
algengust meðal kvenna yfir
miðjum aldri og eykur mjög líkur
á beinbrotum. Forsvarsmaður
beinþynningarmóttöku við Sahl-
grenska sjúkrahúsið í Gautaborg
segir í samtali við SvD að aðferð-
in sé áhugaverð, en ekki sé þörf á
að rannsaka alla sem heimsækja
tannlækna, fyrst og fremst ætti
að reyna að ná til þeirra sem eru
á millli 60–65 ára.
greind tímanlega. Með sérstakri
tækni er hægt að greina þéttleika
beinanna á slíkri röntgenmynd.
Vísindamannahópurinn hefur þró-
rannsóknar sem hefur auk þess
farið fram í Svíþjóð, Belgíu,
Grikklandi og Hollandi. Vís-
indamennirnir leggja til að tekin
sé aukaröntgenmynd af neðri
kjálka í tannlæknaheimsókn til að
auka líkur á að beinþynning sé
Röntgengreining
á beinþynningu
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
LIFANDI fæði er það kallað þegar fólk neytir
eingöngu lífrænt ræktaðs hráefnis. Sagt er að
með þessum einfalda lífsstíl geti fólk neytt
næringar af mestu hugsanlegu gæðum hvar
sem er og að neysla lifandi fæðis sé áhrifaríkari
en neysla hráfæðis. Um er að ræða ferska
ávexti sem ekki eru eldaðir á neinn hátt, græn-
meti, hnetur og fræ.
Á Ann Wigmore-stofnuninni í Puerto Rico
liggja rætur lifandi fæðis en þar þróaði dr. Ann
Wigmore kenningar sínar um tengsl sjúkdóma
við næringarskort og uppsöfnun eiturefna í lík-
amanum. Lífsstíll lifandi fæðis hefur náð vin-
sældum á undanförnum árum.
Ferðaskrifstofan Prima Heimsklúbburinn
býður upp á ferð á stofnunina 20. maí. Þar
verður setið tveggja vikna námskeið og nem-
endur munu læra allt um hvað lífrænt lifandi
fæði er, hvernig á að matbúa það og af hverju
það þykir heilsusamlegt. Á námskeiðinu verður
einnig rætt um fæðusamsetningu, tengsl hugs-
ana og tilfinninga við líðan og mikilvægi hreyf-
ingar til að halda andlegu og líkamlegu jafn-
vægi.
Námskeiðið stendur frá 20. maí til 2. júní og
er lokað námskeið fyrir íslenskan hóp. Haldin
verður kynning á ferðinni í versluninni Manni
lifandi í Borgartúni í kvöld 10. janúar kl. 19.30.
Heilsuferð til Puerto Rico