Morgunblaðið - 10.01.2007, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 39
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
Now with english subtitles in Regnboginn
Sýnd kl. 6, 8 og 10:30 B.I. 12 ára
Sýnd kl. 10:10
GEGGJUÐ
TÓNLIST!
2 TILNEF
NINGAR
TIL
GOLDEN
GLOBE
VERÐLA
UNA
450 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Sími - 551 9000
- Verslaðu miða á netinu
Litle Miss Sunshine kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 7 ára
Köld slóð kl. 5.50, 8 og 10.15 B.i. 12 ára
Artúr & Mínimóarnir ísl. tal kl. 6
Tenacious D kl. 8 og 10.10 B.i. 12 ára
Casino Royale kl. 8 B.i. 14 ára
Mýrin With english subtitles/M. enskum texta kl. 5.50
ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 6 ÍSLENSKT TAL
ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 6, 8 og 10:10
GEGGJUÐ GRÍNMYND
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
WEDDING CRASHERS
-bara lúxus
Sími 553 2075
Mynd eftir Luc Besson
eee
V.J.V. TOPP5.IS
eee
S.V. MBL.
eee
MMJ, KVIKMYNDIR.COM
eeee
Þ.Þ. Fbl.
M.M.J. Kvikmyndir.com
eeee
Blaðið
www.laugarasbio.is
eee
H.J. - MBL.
eee
H.J. - MBL.
Áskirkja | Samverustund í safn-
aðarheimili II milli kl. 11 og 12 í dag.
Hreyfing og bæn. Allir velkomnir.
Bessastaðasókn | Foreldramorgnar
eru í Holtakoti frá kl. 10–12, allir for-
eldrar ungra barna á Álftanesi vel-
komnir. Opið hús eldri borgara er í
Litla koti frá kl. 13–16, spilað, teflt og
spjallað.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Létt-
ur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina. Kirkjuprakkarar 7–9 ára kl.
16. TTT 10–12 ára kl. 17. Æskulýðs-
félag KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf aldraðra í safn-
aðarheimili frá kl. 13–16.30.
Foreldramorgnar kl. 10 á fimmtudög-
um eru samverustundir fyrir foreldra
og börn þeirra og henta einkum þeim
sem eru í fæðingarorlofi eða eru
heimavinnandi. Boðið er upp á hress-
ingu á mjög vægu verði í vinalegu og
eflandi umhverfi kirkjunnar.
Garðasókn | Foreldramorgnar hvern
miðvikudag kl. 10 til 12.30. Fyrirlestur
mánaðarlega, kynntir sérstaklega.
Gott tækifæri fyrir mömmur og börn
að hittast og kynnast. Allir velkomnir,
pabbar og mömmur, afar og ömmur.
Alltaf heitt á könnunni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Altarisganga og fyr-
irbænir. Boðið er upp á léttan hádeg-
isverð á vægu verði að lokinni
stundinni. Allir velkomnir. TTT fyrir
börn 10–12 ára í Rimaskóla kl. 17–18
TTT fyrir börn 10–12 ára í Korpuskóla
kl. 17–18.
Hjallakirkja | Tólf-spora námskeið er
á miðvikudögum kl. 20 í Hjallakirkju.
Fjölskyldumorgnar eru í Hjallakirkju á
miðvikudögum kl. 10–12.
KFUM og KFUK | Fundur verður í AD
KFUM á Holtavegi 28 fimmtudaginn
11. jan. kl. 20. „Með kveðju frá Ke-
nýju.“ Snorri Waage og Kristín Skúla-
dóttir sýna myndir og segja frá ferð
sinni til Kenýju yfir jól og áramót.
Hugleiðing: Benedikt Jasonarson.
Kaffi. Allir karlmenn velkomnir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma
verður í Kristniboðssalnum Háaleit-
isbraut 58–60 miðvikudaginn 10. jan-
úar kl. 20. „Fyrir hans blóð.“ Ræðu-
maður er Karl Jónas Gíslason. Fréttir
af SAT-7: Bjarni Gíslason. Kaffi eftir
samkomuna. Allir eru velkomnir.
Langholtskirkja | Kl. 12.10 Bæna-
gjörð, orgelleikur, sálmasöngur, ritn-
ingarlestur. Fyrirbænaefnum má
koma til presta eða kirkjuvarðar. Létt
máltíð kl. 12.30 (300 kr.).
Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu-
morgunn. Kl. 10.30 Gönguhópurinn
Sólarmegin. Allt fólk velkomið að
slást í för. Kl. 14.10 Kirkjuprakkarar
(1.–4. bekkur). Kl. 16.30 TTT (5.–6.
bekkur). Kl. 19.30 Fyrsti ferming-
artími á nýju ári. Kl. 20.30 Unglinga-
kvöld.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson.
Beðið er fyrir sjúkum og hverjum
þeim sem þurfa á fyrirbæn að halda.
Altarisganga.
Mýrinni. Opið hús í Holtsbúð kl. 13.
Spilað brids e.h. í Garðabergi. Athug-
ið: auglýstir Vínartónleikar frestast
fram á sunnudaginn 14. jan. kl. 20.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar, undirbúningur fyrir
íþróttahátíð o.fl. Frá hádegi spilasalur
opinn. Á morgun kl. 13.30 opnar Olga
S. Bjarnad. myndlistarsýningu á
Hrafnistu í Hafnarfirði, m.a. syngur
Gerðubergskórinn. Sími 575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin, handavinna, glerskurður,
hjúkrunarfræðingur. Kl. 10 boccia. Kl.
11 leikfimi. – Banki. Kl. 12 matur. Kl.
12.15 ferð í Bónus. Kl. 13 myndlist. Kl.
15 kaffi. Kl. 9 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–16 hjá Sigrúnu, silki- og gler-
málun. Jóga kl. 9–12, Sóley Erla. Sam-
verustund kl. 10.30, lestur og spjall.
Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir
588 2320. Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Í kvöld kl. 20 kem-
ur Halldór Guðmundsson og spjallar
um bók sína Skáldalíf en þar er sögð
saga þeirra Þórbergs Þórðarsonar og
Gunnars Gunnarssonar. Það er bók-
menntahópur Hæðargarðs sem
stendur fyrir heimsókninni. Nýtt;
skrautskrift og skartgripagerð!
Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun
fimmtudag kl. 10 er keila í Keiluhöll-
inni í Öskjuhlíð. Á morgun verður
listasmiðja Korpúlfa á Korpúlfs-
stöðum opnuð klukkan 13.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni kl.
10. Leikfimi kl. 11. Verslunarferð í Bón-
us kl. 12. Handavinnustofur kl. 13.
Kaffiveitingar kl. 14.30. Hárgreiðslu-
stofan Lönguhlíð 3, sími: 552 2488.
Fótaaðgerðarstofan sími: 552 7522.
Dagblöð í setustofunni.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 9–
16.30 vinnustofa, kl. 10.30 ganga, kl.
14 félagsvist, kaffi, verðlaun.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Félagsheimilið
Hátúni 12. Félagsvist í kvöld kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 mynd-
mennt. Kl. 10–12 sund (Hrafn-
istulaug). Kl. 10.15–11.45 spænska
(byrjendur). Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 12.15–14 verslunarferð í
Bónus, Holtagörðum. Kl. 13–14 Spurt
og spjallað. Kl. 13–16 tréskurður. Kl.
14.30 kaffi.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8–12, hárgreiðslu- og fótaaðgerð-
arstofur opnar frá kl. 9, handmennt
alm. kl. 10–16.30, morgunstund kl. 10–
11, verslunarferð kl. 12.30, kóræfing
kl. 13, dans kl. 14. Allir velkomnir í fé-
lagsmiðstöðina. Opið fyrir alla aldurs-
hópa, uppl. í síma 411 9450.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 13 Opinn salur.
Kl. 13.15 Leikfimi.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn
kl. 9.30–11.30. Allir foreldrar vel-
komnir með börn sín. Kaffi og spjall,
safi handa börnunum.
YFIRSKRIFT hinna fjölsóttu tón-
leika Kammersveitarinnar Ísafoldar
á sunnudag var „Öðruvísi Vín-
artónleikar“ og vísaði til hefðbund-
inna valsatónleika SÍ um áramótin
með öfugu formerki. Enda fór hér
ekkert faðmlægt hopp og hí í anda
Strauss-feðga þótt tónhöfundinn
mætti vissulega kenna við Vín-
arborg, heldur alvarleg síðrómantík
þess hljómkviðumeistara sem teygði
klassíska arfleifð Brahms allt fram
að atónölu skeiði Schönbergs.
Reyndar voru bæði verk kvölds-
ins með dapurlegum undirtóni; öllu
mest þó hið seinna, og varð því
hlustunin í skraufþurri heyrð Gamla
bíós í þyngra lagi. Kvikmyndahúsið
er ekki allt of gott sönghús fyrir,
hvað þá hljómleikahús, og varð ég
ekki var við annað en að sumir
áheyrendur væru teknir að dotta
undir lokin þrátt fyrir prýðilega og
allt upp í glimrandi túlkun hljóm-
sveitar og einsöngvara. Fullskipuð
hljómsveit (kæmist hún þá fyrir)
hefði e.t.v. getað skilað þolanlegum
hljómi við þessi skilyrði, en fyrir að-
eins 15 manna kammersveit með
einskipað í hverri rödd býðst trú-
lega óvíða verri akústík á höf-
uðborgarsvæðinu. Það væri því
synd að segja að Ísafold fengi að
sýna listir sínar við kjöraðstæður.
Einna verst fór svampdýnuóm-
vistin með tréblásarahljóminn þar
sem einkum hátíðniblístrur eins og
óbóið fengu óverðskuldað á sig
ámáttlegan holtaþokublæ. Þetta var
mikil synd, því hljómsveitin lék víð-
ast hvar mjög samtaka undir mark-
vissri stjórn Daníels Bjarnasonar í
oft undravert góðu jafnvægi miðað
við kammersveitarútsetningu á sex-
falt stærri hljómsveit.
Kunni afspurnarlesandi að vilja
vita hvað olli slíkum „skröpuðum“
frágangi frumverkanna má helzt
vísa til sögulegra forsendna, með
því að Mahler-verkin voru, að
manni skilst, flutt á tónleikum „Fé-
lags um einkaflutning tónverka“ er
Schönberg og nemendur hans Berg
og Webern starfræktu í Vín 1918–
21 við væntanlega þröngan fjárhag.
Því miður var hvorugt verkið útsett
af þeim, heldur sá annar nemandi
Schönbergs, Erwin Stein, um sin-
fóníuna 1921 og Rainer Riehn um
Kindertotenlieder svo seint sem
1984, þó lagt ku hafa sig eftir að-
ferðum nefndra tónleikafélags-
forkólfa.
Burtséð frá þeim hlustendum
sem sérstakan áhuga kynnu að hafa
á að lifa sig inn í óneitanlega sögu-
frægan nýsköpunarvettvang „Ve-
rein für musikalische Privatauffü-
hrungen“ í Vínarborg um 1920
(gagnrýnendur fengu ekki aðgang!)
var því kannski bitastæðast að
fylgjast með söngnum. Aðalkostur
niðursneiddu útsetninganna var vit-
anlega að fámenn undirleikssveitin
reyndi minna á söngvarana en ella.
Í 4. sinfóníunni var aðeins sungið í
lokaþættinum þar sem Hulda Björk
Garðarsdóttir fór einkar ljúft og af-
slappað með Das himmlisches Le-
ben úr Des Knaben Wunderhorn.
Ágúst Ólafsson sýndi djúpa innlifun
í tragísk viðfangsefni Kindertoten-
lieder en hefði að ósekju – líkt og
nýlega í Grafarvogskirkju – stund-
um mátt hleypa ögn meiri birtu og
glansi í annars fallega barýtonrödd
sína.
Döpur meistaraverk í daufu húsi
TÓNLIST
Íslenzka óperan
Mahler: Sinfónía nr. 4* (1899–1900).
Kindertotenlieder** (1901–04). Kamm-
ersveitin Ísafold. Einsöngvarar: Hulda
Björg Garðarsdóttir sópran*; Ágúst
Ólafsson barýton**. Stjórnandi: Daníel
Bjarnason. Sunnudaginn 7. janúar kl. 20.
Kammertónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Morgunblaðið/Ásdís
Öðruvísi Kammersveitin Ísafold og Íslenska óperan stóðu fyrir öðruvísi vínartónleikum um síðustu helgi.