Morgunblaðið - 10.01.2007, Síða 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 10. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Vaxandi aust-
læg átt, 10–18
m/s en hægari
norðan- og aust-
anlands. Snjókoma eða él,
einkum sunnanlands. » 8
Heitast Kaldast
0°C -10°C
MCNAUGHT-HALASTJARNAN sést nú vel með
berum augum hér á landi. Best er að sjá hana í
ljósaskiptum kvölds og morgna, en hún er í suð-
austri frá Reykjavík í birtingu og í suðvestri þegar
myrkur skellur á. Hægt ætti að vera að sjá hana í
dag og á morgun ef vel viðrar og heiður himinn, en
eftir það kemur hún ekki upp fyrr en eftir að bjart
er orðið og sest fyrir myrkur og verða þá athug-
unarskilyrði hagstæðari á suðurhveli jarðar. Hala-
stjarnan er kennd við ástralska stjarnfræðinginn
Robert McNaught sem fann hana 7. ágúst sl. Þá
var hún mjög dauf enda í mikilli fjarlægð frá sólu.
Síðan hefur hún nálgast sólina og kemst næst henni
á föstudaginn kemur. Þá fer hún langt inn fyrir
braut innstu reikistjörnunnar Merkúríusar og
verður næst sólu í 25 milljón kílómetra fjarlægð frá
henni, en það er aðeins einn sjötti af fjarlægð jarðar
frá sól, samkvæmt Almanaki Háskóla Íslands.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Björt halastjarna á suðurhimni
Verður næst sólu á föstudag og fer langt inn fyrir braut Merkúríusar
VEGNA styrkrar stöðu Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna (LV) hefur stjórn sjóðsins ákveðið að gera
tillögu til aðildarsamtaka sjóðsins um 7% hækkun
áunninna lífeyrisréttinda sjóðfélaga frá 1. janúar
2007. Það samsvarar 11,8 milljarða hækkun rétt-
inda sjóðfélaga, samkvæmt upplýsingum Þorgeirs
Eyjólfssonar, forstjóra LV.
Eins og fram hefur komið var seinasta ár annað
besta rekstrarárið í sögu LV með liðlega 12%
raunávöxtun. Vegna góðrar raunávöxtunar sjóðs-
ins 2006 hefur tryggingafræðileg staða hans
styrkst verulega. Eignir sjóðsins við áramót námu
240 milljörðum og höfðu hækkað um 26% á árinu.
Eignir umfram skuldbindingar námu 32 milljörð-
um eða 7,9%.
21,1% hækkun umfram verðlag
Þrátt fyrir hækkun réttindanna mun staða
sjóðsins verða jákvæð um 4,9% eða um liðlega 20
milljarða að hækkuninni afstaðinni, skv. upplýs-
ingum Þorgeirs.
Á síðustu 10 árum hefur LV tekist að bæta líf-
eyrisréttindin og lífeyrisgreiðslur um 21,1% til
viðbótar almennum verðlagsbreytingum sam-
kvæmt vísitölu neysluverðs en réttindaávinnslan
var fyrst hækkuð um 11,8% árið 1997.
„Það er mjög ánægjulegt að tekist hefur að
bæta lífeyrisréttindi sjóðfélaga sjóðsins umtals-
vert á liðnum árum. Ennfremur er þýðingarmikið
að lífeyrisþegar sjóðsins hafa notið verulegs kaup-
máttarbata á lífeyri sinn og nú munu þeir sjá 7%
hækkun lífeyrisgreiðslna um næstu mánaðamót,“
segir Þorgeir Eyjólfsson.
Lífeyrisgreiðslur hækka um 7%
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÉG HEF verið laus við spilafíknina
sl. þrjú ár eftir að hafa spilað mig
næstum til bana.“ Þannig segir
fimmtugur spilafíkill frá reynslu
sinni en á árunum 1988 til 2003 spil-
aði hann frá sér um 30 milljónir
króna og skuldaði að auki um níu
milljónir. Þá var hann niðurbrotinn
maður á sál og líkama og var kom-
inn á fremsta hlunn með að svipta
sig lífi.
Maðurinn, sem vildi ekki koma
fram undir nafni en er kallaður Karl
í viðtali við Morgunblaðið, var sjó-
maður á góðu skipi og hafði oft mikl-
ar tekjur. Segir hann að spila-
mennskan hafi farið rólega af stað
en fyrr en varði hafi hún tekið af sér
öll ráð.
„Maður byrjaði í þessum gömlu
tíkallakössum en eftir að Pókerkass-
arnir komu til sögunnar gat ég létti-
lega spilað frá mér tugi þúsunda í
hvert sinn,“ segir Karl og bætir við
að með tilkomu Háspennunnar hafi
freistingin aukist til muna.
Karl segir að hann hafi lengi
reynt að fela ástandið fyrir konu
sinni og vinnufélögum, meðal ann-
ars fengið sér pósthólf úti í bæ
þangað sem allir reikningar voru
sendir. Það hafi þó bara verið gálga-
frestur.
„Ég var nýkominn í land … tók út
hýruna, sem var 800 þúsund. Ég
hafði lofað sjálfum mér að spila ekki
þegar ég kæmi í land en þegar ég sá
að gullpotturinn var kominn upp í 13
milljónir gat ég ekki staðist freist-
inguna,“ segir Karl, sem gekk úr
spilasalnum með 100 þúsund kr.
Þegar hér var komið var öllu lokið
fyrir honum. Hann ætlaði að stytta
sér aldur en lenti inni á Vogi. Hann
vinnur nú að því ásamt fjölskyldunni
að borga skuldirnar og hefur greitt
um 80% þeirra.
Karl segist fylgjandi hugmyndum
borgarstjóra um að flytja spilakass-
ana út í Örfirisey en hann leggur
áherslu á að fyrir spilafíkla gildi það
einu hvert spilið er.
Vafasöm leið
Ögmundur Jónasson, þingmaður
VG, sem oft hefur fjallað um spila-
kassa á Alþingi, fagnar því ef vit-
undarvakning sé nú í samfélaginu
um skaðsemi kassanna. Helst vill
hann sjá rekstur þeirra bannaðan.
Félagsmálaráðherra telur það
vafasama leið hjá frjálsum fé-
lagasamtökum og stofnunum að
fjármagna rekstur með spilaköss-
um. Hann vill sjá takmörkun á
fjölda og staðsetningu kassanna.
Þetta byrjaði | 11
„Hafði næstum spilað mig til bana“
Morgunblaðið/Kristinn
Í HNOTSKURN
»Íslandsspil reka 580 spila-kassa um allt land fyrir
RKÍ, Slysavarnafélagið Lands-
björg og SÁÁ. Háspenna ehf.
og Happdrætti Háskóla Ís-
lands reka 390 kassa.
»Borgarstjórinn í Reykja-víkur hefur lýst því yfir að
fyrirhugaður rekstur spilasal-
ar í verslunarmiðstöðinni í
Mjódd sé óforsvaranlegur með
öllu.
„MÉR ER efst í huga sú ábyrgð
sem mér er falin og ég tek áskor-
uninni; ég er afar stolt, full til-
hlökkunar og gleði og ég hlakka
til að byrja að vinna,“ segir Sig-
rún Björk Jakobsdóttir, en hún
var í gær ráðin bæjarstjóri á
Akureyri, fyrst kvenna.
Sigrún sagði það ennþá frétt að
kona væri ráðin í starf sem þetta,
þó að vonandi þætti það ekki
mikil frétt í framtíðinni, en ráðn-
ing sín væri vissulega mikilvægt
skref fyrir konur.
Sigrún var kjörin bæjarstjóri
með átta atkvæðum en þrír bæj-
arfulltrúar sátu hjá. Hún gegnir
starfi bæjarstjóra þar til í júní
2009, en fulltrúi Samfylking-
arinnar gegnir stöðu bæjarstjóra
síðasta ár kjörtímabilsins.
Á myndinni fagna móðir Sig-
rúnar, Jóhanna Kristinsdóttir, og
eiginmaður, Jón Björnsson, henni
að loknum bæjarstjórnarfundi í
gær. | 17
Mikilvægt skref
fyrir konur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
HEILSUEFLING á Suðurnesjum,
átak, sem felst í því að bjóða öllum
Suðurnesjamönnum, 40 ára og eldri,
blóðmælingu, hófst í gær með því að
bæjarstjórar þriggja sveitarfélaga
voru mældir. Fyrir átakinu standa
samtökin Hjartaheill á Suðurnesjum
en formaður þeirra, Hjálmar Árna-
son alþingismaður, segir, að af ein-
hverjum ástæðum virðist sem meira
sé um hjartaáföll á Suðurnesjum en í
öðrum landshlutum.
Auk blóðmælinga verða ýmsir aðr-
ir áhættuþættir skoðaðir en Hjálmar
segist hafa það fyrir satt að átakið sé
viðamesta forvarnaverkefni í heil-
brigðismálum hér á landi. | 18
Hvatt til
nýs lífsstíls
♦♦♦