Morgunblaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „ÞETTA verður samþykkt,“ segir Sigurður B. Þorsteinsson, formaður lyfjanefndar Landspíta – háskólasjúkrahúss (LSH) um lyfið Lucentis, sem getur hamlað gegn blindu af völdum hrörn- unar í augnbotnum. Lyfið er nú til meðferðar hjá lyfjanefndinni. „Þetta mál er í umfjöllun innan spítalans og það hefur engin höfnun verið á því og verður ekki.“ Sigurður segist á þessu stigi ekki geta sagt hvenær afgreiðslu lyfsins ljúki. „Það er tekið mjög faglega á þessu og auðvitað koma fjármál þar að,“ segir Sigurður, en lyfjanefndin tekur til- lit til ýmissa þátta í sínu mati, m.a. virkni lyfja og kostnaðar þeirra. Að sögn Einars Stefánssonar, prófessors í augnlækningum við Háskóla Íslands og yfirlæknis augndeildar LSH, getur meðferð hvers sjúklings með Lucentis kostað 2–3 millj- ónir króna. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að ekki hefur fengist leyfi fyrir notkun lyfsins hér á landi en það sé þegar notað í Bandaríkjunum. Lyfjanefnd starfar samkvæmt lyfjalögum og veitir framkvæmdastjórn LSH ráð um stefnu sjúkrahússins í lyfjamálum. Hún fer yfir og gerir tillögu til lækningaforstjóra um lyfjalista og um notkun og meðferð þeirra lyfja. Nefndin vinnur með starfsfólki lyfjamáladeildar LSH að eftirliti með notkun mjög dýrra og/eða vandmeðfarinna lyfja. Áður en notkun s-merktra lyfja, þ.e. lyfja sem eingöngu eru notuð á sjúkrahúsum og í tengslum við þau, er samþykkt, þurfa að liggja fyrir klín- ískar leiðbeiningar sem byggjast á sannreynd- um niðurstöðum. Í þeim kemur m.a. fram hvaða sjúklingum lyfið gagnast. Einar Stefánsson seg- ir að fyrst hafi verið sótt um leyfi fyrir Lucentis til lyfjanefndar sl. haust. Hafi lyfinu verið hafnað á þeim forsendum að ekki fylgdu klínískar leið- beiningar umsókninni. Nú hafa slíkar leiðbein- ingar verið unnar og lyfið því aftur til meðferðar hjá nefndinni. Einar segir þetta ferli óþarflega tafsamt og flókið. Sérfræðingar í viðkomandi greinum þurfi að útbúa leiðbeiningarnar, þrátt fyrir að alþjóðlegar leiðbeiningar liggi þegar fyr- ir. Lyfjastofnun Evrópu hefur lyfið Lucentis einnig til umfjöllunar og samþykki hún lyfið, fær það um leið markaðsleyfi hér á landi í gegnum Lyfjastofnun Íslands. Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir því ekki rétt að ekki hafi fengist markaðsleyfi fyrir lyfið hér. Lyf sem lyfjanefnd LSH fjallar um þurfa ekki að hafa fengið markaðsleyfi heldur geta fengið undanþágu. Lyfjum, sem hafa fengið slíkt leyfi og verð þeirra hefur verið samþykkt og greiðsluþátttaka Trygginga- stofnunar ákveðin, mega hins vegar læknar ut- an sjúkrahúsa ávísa til sjúklinga. Séu lyfin þess eðlis að þau þurfi að gefa á sjúkrahúsum, líkt og Lucentis, verði lyfjanefnd viðkomandi stofnun- ar að ákveða hvort lyfið verði tekið í notkun og ákveða notkunarreglur. Gríðarlegur kostnaður að baki Í Morgunblaðinu í gær kom fram að kostn- aður við hvern skammt af Lucentis, sem gefa þarf einu sinni í mánuði, sé yfir 100 þúsund krónur. Björg Árnadóttir, sölu- og markaðs- stjóri hjá Vistor, sem selur lyf lyfjafyrirtækisins Novartis sem framleiðir m.a. Lucentis, segir nokkrar skýringar á því að frumlyf séu svo dýr sem raun ber vitni. Gríðarlegur kostnaður felist í þróunar- og rannsóknarvinnu vegna lyfjanna sem geti tekið áratugi. Oft sé markhópur lyfjanna mjög lítill, þar sem um sérhæfð lyf sé að ræða, og því sé lyfið ekki framleitt í miklu magni. Fyrirtæki hafi einkaleyfi á frumheita- lyfjum í um áratug. Eftir það geta önnur fyr- irtæki framleitt samheitalyf og verð lyfjanna lækkar oft töluvert samhliða því. Lyfjanefnd mun samþykkja Lucentis Í HNOTSKURN »Meðferð með lyfinu Lucentis geturtekið 1–2 ár og kostað um 2–3 millj- ónir króna. » Í ár mun dýrum og sérhæfðum lyfj-um fjölga hratt á markaði, m.a. krabbameinslyfjum og fleiri lyfjum við augnsjúkdómum. »Á Landspítalanum var lyfjakostn-aður um 2 milljarðar á síðasta ári og verður hann töluvert meiri í ár. DOKTOR Svafa Grönfeldt tók í bókstaflegri merkingu við keflinu af Guðfinnu Bjarnadóttur á laug- ardag, þegar rektorsskipti urðu við Háskólann í Reykjavík. Það var formaður Háskólaráðs skólans, Bjarni Ármannsson, sem leiddi konurnar tvær saman þar sem Guðfinna afhenti Svöfu boð- kefli til marks um hver tekur nú við stjórn skólans. Fullur salur Háskólabíós þakk- aði Guðfinnu vel unnin störf í þágu skólans undanfarin 8 ár með dúndrandi lófataki og bauð hinn nýja rektor velkominn til starfa. 257 nemendur voru braut- skráðir. Úr lagadeild útskrifuðust 17 nemendur, úr viðskiptadeild 129 nemendur, 79 nemendur útskrif- uðust úr tækni- og verkfræðideild og 32 voru brautskráðir af frum- greinasviði. Rúm 60% útskrifaðra nema eru karlar og tæp 40% konur, sem er athyglisvert í ljósi þess að konur eru í miklum meirihluta í há- skólanámi hérlendis. Svafa tekur við keflinu af Guðfinnu Morgunblaðið/Kristinn Í leyfi Guðfinna Bjarnadóttir fer nú í tímabundið leyfi frá stjórn HR en hún er í líklegu þingsæti á lista Sjálfstæð- isflokksins. Við tekur Svafa Grönfeldt, fyrrum aðstoðarforstjóri lyfjafyrirtækisins Actavis. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÞJÓÐSKJALASAFNIÐ mun taka við þeim skjölum um innra og ytra öryggi Íslands á árunum 1945-1991 sem utanríkisráðuneytið vill veita al- menningi og fræðimönnum aðgang að. Þrátt fyrir mikinn húsnæðis- vanda verður málið leyst í samvinnu við ráðuneytið. Þetta sagði Ólafur Ásgeirsson, þjóðskjalavörður, í samtali við Morg- unblaðið í gær. Vegna plássleysis hefur Þjóð- skjalasafnið ekki tekið við skjölum nema í undantekningartilfellum, undanfarin þrjú ár. Úr því rætist að hluta þegar lokið verður við endur- bætur á 2. hæð aðalskjalageymslu við Laugaveg 162 í vor. Þar komast fyrir um 6-8 hillukílómetrar sem duga skammt því skv. mati sem safn- ið gerði fyrir nokkru bíða stofnanir eftir að skila til þess um 35 hillukíló- metrum. Augljóslega er því ekki mikið pláss hjá safninu en Ólafur sagði að þegar skjölin kæmu frá ut- ranríkisráðuneytinu kæmu yrði fundin einhver lausn á því máli. Aðspurður sagði hann að safnið þyrfti um 4.000 fermetra geymslu- húsnæði, til viðbótar við núverandi húsakost, til þess að leysa vandann. Alþingi fól í október sl. nefnd að fjalla um aðgang almennings að op- inberum gögnum um öryggismál og fór nefndin fram á upplýsingar frá öllum ráðuneytum. Það gerðist síðan í liðinni viku að utanríkisráðherra sagði það sína afstöðu að veita bæri almenningi og fræðimönnum fullan aðgang að slíkum skjölum, að því gefnu að aðgangurinn samræmdist lögum og þjóðréttarsamningum. Það er þó hægara sagt en gert að finna umrædd skjöl því í svari sem ráðuneytið sendi til Páls Hreinsson- ar, formanns nefndarinnar, á föstu- dag kemur fram að ráðuneytið hafi ekki lista yfir öll þau mál sem hafa að geyma upplýsingar sem snerta ör- yggismál Íslands á umræddu tíma- bili, enda séu skjöl ráðuneytisins frá þessu tímabili mikil að vöxtum og ætla megi að talsverður hluti þeirra snerti öryggismál Íslands. Í almenna skjalasafninu séu um 800 hillumetr- ar og í skjalsafni varnarmálaskrif- stofu um 50 hillumetrar. Ráðuneytið áætlar að könnun á þessum skjölum muni kosta um þrjú ársverk og eru þá ótalin skjöl í skjalasöfnum sendi- ráða, fastanefnda og aðalræðisskrif- stofa en þau nema um 500 hillumetr- um. Hluti þessara skjala er nú þegar á Þjóðskjalasafni og ráðuneytið hef- ur lokið við að pakka og skrá stóran hluta þessara skjala til viðbótar og bíða þau þess að Þjóðskjalasafn geti tekið við þeim. Enn er þó eftir að skrá hluta þessa safns. Nefndin fær fullan aðgang Í svari ráðuneytisins er tekið fram að það sé fyllilega reiðubúið til að veita formanninum, eða þeim sem nefndin tilnefnir, fullan aðgang að skjalasafni ráðuneytisins. Ennfrem- ur að ráðuneytið sé tilbúið til að ann- ast milligöngu um að afla nauðsyn- legrar öryggisvottunar frá Atlantshafsbandalaginu (NATO). Nefndin sendi fyrirspurn til ráðu- neytisins 17. október og biðst ráðu- neytið afsökunar á því að ekki tókst að svara nefndinni innan tímamarka en tafirnar eru sagðar skýrast af um- fangi málsins auk þess sem afla hefði þurft upplýsinga frá NATO. Þrjú ársverk að fara gegnum skjalasafnið Um 130 stofnanir á biðlista hjá Þjóðskjalasafninu sem hefur ekki tekið við skjölum í þrjú ár, nema með undantekningum MYNDBANDALEIGUR hafa víða hækkað verð á leigu á mynddiskum og myndbandsspólum. Kostar leiga á einni nýrri mynd, þar sem önnur gömul fylgir með, víða 650 krónur. Kvikmyndahús hafa einnig nýverið hækkað aðgangseyri sinn og er að- gangur að myndum nú að jafnaði 900 krónur. Nýverið hækkaði Bónusvídeó, sem er keðja með á annan tug sölu- staða, verð á leigu á nýjum mynd- um frá 550 krónum upp í 650 krón- ur. Á síðasta ári hækkaði Snæland vídeó einnig verð. Að sögn Péturs Smárasonar, framkvæmdastjóra Snælands, kostar nú 600 krónur að leigja nýja mynd, hvort sem það er DVD eða VHS-myndbandsspóla og fylgir þá fimm mánaða gömul mynd eða eldri frítt með í leigunni. „Við hækkuðum verðið í nóvember á síð- asta ári og höfðum þá beðið með hækkun eins lengi og við gátum,“ segir Pétur. Leiga á myndböndum og diskum er að jafnaði til 24 tíma í senn og gildir þá einu hversu margar mynd- ir eru leigðar. Þykir sumum því þau afsláttarkjör að fá gamla mynd með í kaupbæti ekkert sérlega eft- irsóknarverð. Í Vídeóheimum, sem hefur tvö útibú í Reykjavík, kostar 550 krónur að leigja nýja mynd en engin gömul fylgir með. Að sögn starfsmanna býður fyrirtækið við- skiptavinum sínum hinsvegar upp á sérstakt stimpilkortakerfi og er fimmta hver spóla frí ef aðeins er leigt hjá þeim. Í Aðalvídeóleigunni, sem að sögn starfsmanna sérhæfir sig í gömlum myndum, kostar 500 krónur að leigja DVD-mynddiska, hvort sem þeir eru nýir eða gamlir, en verð á spólum er 300 til 450 krónur. Kostar 650 krónur að leigja Hækkanir Margar vídeóleigur hafa nú hækkað verð á þjónustu sinni. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins GUÐNI Th. Jó- hannesson sagn- fræðingur segir að ákvörðun ut- anríkisráðuneyt- isins að opna skjalasafn sitt fyrir almenningi og fræðimönnum sé af hinu góða. Hann kallar jafn- framt eftir átaki í húsnæðismálum Þjóðskjalasafnsins. „Nú þurfum við að gera skurk í því að búa vel um þessi gögn á Þjóð- skjalasafni en það hefur vantað. Mikið af þessum gögnum eiga fyrir löngu að vera komin á Þjóð- skjalasafn en safnið hefur ekki möguleika á að taka við öllu sem það á að taka við, lögum samkvæmt, því það er fyrir löngu búið að sprengja húsnæðið utan af sér,“ sagði Guðni. Ekki væri nóg að tilkynna að gögnin verði gerð aðgengileg heldur verði að búa svo um hnútana að hægt sé að ganga að þeim. Hluti skjalanna ætti raunar þegar að vera aðgengilegur vegna svonefndrar 30 ára reglu. Í skjalasafni utanríkisráðuneytis er m.a. að finna gögn frá Atlants- hafsbandalaginu en Guðni sagði að skýrslur þessar væru sjaldan mjög áhugaverðar heimildir, rannsóknir Þórs Whitehead og Vals Ingimund- arsonar hefðu t.d. sýnt að eftir meiru væri að slægjast í ríkisskjalasöfnum s.s. Bretlands og Bandaríkjanna. Húsnæðið of lítið Guðni Th. Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.