Morgunblaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 22. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Vaxandi vest-
anátt, 5–15 m/s,
hvassast norð-
vestantil. Hlánar
vestantil og einnig austantil
með kvöldinu. » 8
Heitast Kaldast
0°C -8°C
HJÁLMAR Árnason, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins, mun
ekki taka sæti á lista flokksins í Suður-
kjördæmi. Hafnaði Hjálmar í þriðja sæti
en hann sóttist ásamt Guðna Ágústssyni
eftir fyrsta sæti listans og beið lægri
hlut. Óskaði Hjálmar Guðna til ham-
ingju með sigurinn og sagðist hann
styðja dyggilega við bakið á fólkinu á
listanum og vonaðist hann til þess að
einhver betri maður tæki þriðja sætið.
Þá kvaðst hann hafa átt tólf gæfurík og
skemmtileg ár á þingi og hann kveddi
saddur og glaður.
Í öðru sæti í prófkjörinu hafnaði
Bjarni Harðarson, blaðamaður og rit-
stjóri frá Selfossi, en fjórða sætið hlaut
Eygló Harðardóttir, framkvæmdastjóri
úr Vestmannaeyjum. Elsa Ingjaldsdóttir
hafnaði í fimmta sæti en Lilja Hrund
Harðardóttir í því sjötta. Athygli vekur
að enginn í sex efstu sætunum utan
Hjálmars, sem ekki tekur sæti, er frá
Reykjanesi. | 4
Hjálmar á
leið úr pólitík
Morgunblaðið/Kristinn.
Tímamót Hjálmar Árnason hefur verið
þingmaður sleitulaust frá árinu 1995.
ÍSLENSKA karlalandsliðið í handknatt-
leik verður að sigra Frakka í kvöld í síð-
asta leik liðsins í B-riðli heimsmeist-
aramótsins í Þýskalandi. Ísland tapaði
gegn Úkraínu í gær, 32:29, þar sem fátt
gekk upp hjá íslenska liðinu.
Ef íslenska liðið nær að leggja Frakka
að velli í kvöld verða þrjár þjóðir jafnar
með 2 stig hver, Ísland, Frakkland og
Úkraína. Komi sú staða upp þá gildir
markatalan í innbyrðis leikjum þjóðanna.
Það þýðir að Úkraínumenn sitja eftir
með sárt ennið þar sem þeir töpuðu fyrir
Frökkum með ellefu marka mun. Ísland
færi þá áfram í milliriðil með 2 stig, en
Frakkar ekkert. Vinni Frakkar Íslend-
inga í kvöld eða þá að þjóðirnar skilja
jafnar, kemst Ísland ekki áfram. | 6
Sigur gegn Frökk-
um eina vonin
RÚSSNESKIR flugvirkjar frá
Jakútíu í Austur-Síberíu eru um
þessar mundir á námskeiði til að
afla sér viðhaldsréttinda á Boeing
757-200 vélar hjá Icelandair Techni-
cal Services (ITS), systurfélagi Ice-
landair, á Keflavíkurflugvelli. Jens
Bjarnason, framkvæmdastjóri ITS,
segir að félagið sé í samstarfi við að-
ila í Jakútíu, sem eru að stíga sín
fyrstu skref í notkun vestrænna
flugvéla. „Við höfum verið í sam-
vinnuverkefni með þeim við að
þjálfa þeirra mannskap og byggja
upp viðhaldsaðstöðu og fleira.“
Hluti af þessu verkefni er þjálfun
jakútísku flugvirkjanna en þeir eru
níu talsins. Komu þeir til Íslands
fyrir jól og verða við nám og þjálfun
á Keflavíkurflugvelli í 6 til 8 vikur.
Starfsmenn ITC munu síðar
halda til Rússlands og setja upp við-
haldsstöð í Moskvu til að sinna dag-
legu viðhaldi við eina 757-200 vél.
„Fyrst í stað verður flogið á milli
Moskvu og Jakútsk í Jakútíu. Þeir
munu reka vélina sjálfir og við mun-
um síðan koma að þessu sem ráð-
gjafar í tækni- og viðhaldsmálum.“
ITS hefur tekið að sér svipuð verk-
efni annars staðar í heiminum en
þetta er í fyrsta skipti sem félagið
tekur að sér verkefni af þessu tagi í
Rússlandi. ,,Rússneskar vélar eru
orðnar gamlar og úr sér gengnar og
á sama tíma og þær eru að eldast og
detta út á sér stað mikil uppsveifla
og aukning í flutningum. Við sjáum
fram á að það mun verða verulegt
innstreymi vestrænna flugvéla til
Rússlands á næstunni og mikil þörf
fyrir flugvélar og tækniþjónustu.
Þetta er okkar fyrsta verkefni á
þessu sviði en það er aldrei að vita
nema það geti aukist ef vel gengur,“
segir Jens.
Jens segir það tímanna tákn nú
þegar Bandaríkjamenn eru horfnir
frá Keflavíkurflugvelli við brott-
hvarf varnarliðsins að hópur Rússa
sé þar saman kominn að afla sér
þekkingar. ,,Þeir hafa sagt okkur að
þeir séu að leita að fleiri vélum og ég
reikna með því að við munum sinna
viðhaldi og tækniþjónustu fyrir flug-
vélaflota þeirra af þessari tegund.“
Jakútískir flugvirkjar
fá þjálfun í Keflavík
Í HNOTSKURN
»Icelandair TechnicalServices (ITS) er í sam-
starfi við aðila í Jakútíu sem
eru að stíga fyrstu skrefin
við notkun vestrænna flug-
véla.
» ITS hefur tekið að sérsvipuð verkefni annars
staðar í heiminum.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
STÓRMÓT ÍR, sem jafnframt var 100 ára af-
mælismót félagsins, var fjölsótt en það fór
fram í Laugardalshöllinni um helgina.
535 keppendur voru skráðir til leiks og
komu þeir alls staðar af landinu frá 22 fé-
lögum auk keppenda frá Færeyjum sem voru
að keppa í fyrsta skipti á innanhúsmóti á Ís-
landi. Mótshaldararnir áttu 163 keppendur á
mótinu sem er metþátttaka í sögu félagsins.
Morgunblaðið/Golli
Að ná settu marki
TIL greina kemur að um fimmtíu
manna vinnustaður þar sem ál
verður fullunnið, muni rísa í
tengslum við fyrirhugað álver í
Helguvík.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, segir að viðræður
standi yfir við tvö fyrirtæki um að
reisa verksmiðju. Enn hafi þó ekki
verið skrifað undir neitt en málin
geti skýrst um mitt þetta ár. Fyr-
irtækin hafi verið nokkuð jákvæð.
„Við erum einfaldlega farin að
geta gert meiri kröfur,“ sagði Árni
til útskýringar í samtali í gær.
„Við þurfum ekki að knékrjúpa
fyrir hverjum áldropa lengur.“
Sem kunnugt er hefur aðeins
farið fram frumvinnsla á áli hér-
lendis fram að þessu. Tilbúin vara
gæti til dæmis verið rafkaplar með
álbrynju utan um. Árni segir Log-
an Kruger, forstjóra Century Al-
uminum, hafa persónulega beitt
sér fyrir að þetta megi verða. CA
rekur álverið á Grundartanga og
yrði rekstraraðili álversins í
Helguvík. „Þarna myndi sparast
mikill kostnaður, m.a. við flutning
og orku, en álið myndi streyma
nánast heitt úr álverinu og beint í
vinnslu.“
Þá segir hann að meðal annars
sé verið að skoða tollaumhverfi
fyrir útflutning áls héðan, en ef ál
yrði fullunnið hér og sent á Banda-
ríkjamarkað, kæmu til nokkuð háir
tollar sem þyrfti þá að semja sér-
staklega um milli landanna
tveggja. Talsvert auðveldara yrði
hins vegar að selja fullunnið ál á
markaði Evrópusambandsins.
„Þurfum ekki að krjúpa
fyrir hverjum áldropa“
Viðræður um fullvinnslu áls í Helguvík standa yfir
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
BRÁTT líður að því að almenningur
geti borið á sig andlitskrem sem
unnið er úr ensímum sem finna má í
innyflum þorska. Er það lífefna-
fræðingurinn Jón Bragi Bjarnason
sem unnið hefur að þróun kremsins
undanfarin ár og nú er svo komið að
undirbúningsvinnu vegna markaðs-
setningar á vörunni er að mestu lok-
ið. „Þessu var ýtt úr vör á þriðjudag-
inn. Það hefur verið í gangi
markaðsþróun og ýmis vinna hjá
fyrirtæki í Bretlandi sem nefnist
Pure Icelandic. Þeir hafa verið að
þróa framsetningu á vörunni, hanna
flöskuna, kassana og heimasíðuna,“
segir Jón og bætir við að sagt sé að
ef rétt sé að málum staðið geti krem-
ið orðið ein mest eftirsótta snyrti-
varan í heiminum. „Það eru þessi
ensím í þorskinum sem gera þetta
svo sérstakt. Í kreminu eru engin
rotvarnarefni,
engin ilmefni og
engin fita og
þannig er það
ólíkt öllu öðru á
markaðnum,“
segir hann.
Að sögn Jóns
Braga verður
hægt að kaupa
kremið á heima-
síðunni drbragi-
.com frá og með mars en þegar er
byrjað að framleiða kremið í 50
gramma flöskum en ætlunin er að á
endanum verði heil snyrtivörulína
fáanleg. Jón Bragi segir að AVS
Rannsóknarsjóður sjávarútvegs-
ráðuneytisins hafi stutt rannsóknir á
ensímunum enda sé mjög hagkvæmt
að vinna dýrmæta vöru úr jafn verð-
lausum hluta þorsksins og slóginu.
Krem úr þorski
Jón Bragi ber á
sig kremið.