Morgunblaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 18
daglegtlíf
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
K
onurnar fara nú að
minnka það að nota
þessa köldu steina-
og sandliti í hárið,
sem hafa verið svo
áberandi að undanförnu og þess í
stað fara hlýlegir dökkir og ljósir
karamellubrúnir tónar að koma
inn í hártísku kvenna á árinu,“
segir Arnar Tómasson, hár-
greiðslumeistari á Salon Reykja-
vík og listráðunautur Intercoiff-
ure, alþjóðasamtaka
hárgreiðslufólks, sem lagt hefur
línurnar fyrir hártískuna á árinu
2007.
Permanentið inni við rótina
Svokallað partapermanent fer
líka að verða vinsælt hjá kon-
unum, að sögn Arnars, en þá er
permanentið sett í hárið á stöku
stað, ýmist undir í rótina eða í
stytturnar, sem verða áfram við
líði. Permanentinu er þá sleppt í
hliðunum og ofan á kollinum.
„Sléttir endar eru skildir eftir.
Það er því ekki mikið af krullum
við andlitið heldur virkar perm-
anentið meira sem lyfting og
hreyfing í hárið. Þetta er mjög
flott og er mjög vinsælt hjá ungu
konunum í dag. Eldri konurnar
eru minna fyrir permanentið enda
eru þær líklega búnar að fara í
gegnum permanent-tímabilið sitt.
Þetta nýja útlit á alls ekkert skylt
við gamla Duran Duran-rót-
arpermanentið, heldur virkar
þetta eins og endinn komi sléttur
út og standi svolítið stakur út úr
hárinu. Þungir og síðir toppar
verða áfram við líði sem rennt er
til hliðanna. Kventískan er með
öðrum orðum að verða mjög kven-
leg með hlýlegum litum og perm-
anenti,“ segir Arnar.
Vilja alls ekki virka litaðir
Karlmenn eru á hinn bóginn
ekkert fyrir permanentið, en
verða áfram bæði síðhærðir og
stutthærðir þó þeir séu að verða
ögn herralegri en verið hefur.
„Karlpeningurinn er hinsvegar að
verða svolítið rokkaðri og það er
bara flott. Og á meðan konur vilja
lita á sér hárið þannig að það sjá-
ist að þær séu litaðar, vilja karl-
menn skerpa á hárlitnum sínum
með náttúrulegum litum sem sér-
staklega eru ætlaðir karlmönnum.
Þeirra hárlitur á að vera sem eðli-
legastur og á að klæða bæði skinn
og tón.“
Fólk finni sér sinn eigin stíl
Allavega hársíddir verða áfram
í gangi, bæði sítt og stutt hár,
allt eftir týpu hvers og eins. Hár-
ið lýsist og styttist þó gjarnan á
sumrin. Það skemmtilega við hár-
tískuna er að víddin er orðin svo
breið og menn eru algjörlega
hættir að steypa sér í sama mótið
þegar tískan er annars vegar að
sögn Arnars
„Þetta er jákvæður þroski. Það
er ekki lengur bara ein sídd af
pilsum í gangi og ein ríkisklipp-
ing. Menn og konur eru farin að
finna sinn „karakter“ í tískunni
og það hefur losað um stífelsið
hjá þjóðinni sem er ekkert nema
jákvætt. Tískan gengur nefnilega
alls ekki út á það að allir séu eins
heldur gengur hún miklu fremur
út á það að fólk finni sér sinn
eigin tískustíl,“ segir Arnar Tóm-
asson að lokum.
Kventískan Karamellubrúnir tónar, permanent, síðir og þungir toppar.
Karamellutónaðar konur
og rokkaðir karlmenn
Morgunblaðið/G.Rúnar
Hárgreiðslumeistarinn Arnar Tómasson, listráðunautur Intercoiffure.
Karlatískan Síðir, stuttir, svolítið rokkaðir og með náttúrulegan lit.
Þetta nýja útlit á alls
ekkert skylt við gamla
Duran Duran-rótarperm-
anentið, heldur virkar
þetta eins og endinn komi
sléttur út og standi svolít-
ið stakur út úr hárinu.
Þungir og síðir toppar sem
rennt er til hliðanna verða
áfram við líði .
Þegar fólk missir gæludýr getur
kveðjuathöfn og greftrun í reit
sem hægt er að vitja, verið
huggun í sorginni. » 21
gæludýr
Þegar dimmt er úti og ískalt get-
ur verið gott að hafa vissa hluti
nálægt þegar þarf að halda sér
vakandi við lærdóminn. » 20
lifun
„Það þýðir ekki að byrja að
spara í dag og hætta á morg-
un“, segir Vilhjálmur Bjarna-
son, aðjúnkt við HÍ. » 19
fjármál
|mánudagur|22. 1. 2007| mbl.is