Morgunblaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
UM fimmtíu og
fimm manns urðu
vitni að því þegar
ónafngreindur
maður heimsótti
gröf bandaríska
ljóðskáldsins
Edgars Allans
Poes sl. föstudag,
en hann hvílir í
Westminister-
kirkjugarðinum í
Baltimore í Bandaríkjunum. Allt frá
árinu 1949 hefur dularfullur maður,
sem fengið hefur viðurnefnið skála-
meistari Poes, heimsótt gröf ljóð-
skáldsins á afmælisdegi þess, 19.
janúar, og skilið þar eftir þrjár rauð-
ar rósir og hálftóma koníaksflösku.
Kann enginn frekari deili á hver
stendur á bak við þennan leynd-
ardómsfulla gjörning.
Fleiri en einn skálameistari
Árið í ár var engin undantekning
og hafa aldrei jafn margir fylgst með
hinum nafnlausa gesti framfylgja
venju sinni, að sögn Jeffs Jeromes,
forstöðumanns Poe House-safnsins.
Sem fyrr hvarf skálameistarinn af
vettvangi að gjörningnum loknum.
Talið er að sá skálameistari sem
hóf að venja komur sínar í kirkju-
garðinn sé ekki sá hinn sami og í
dag. Hinn upprunalegi skálameistari
skildi eftir dularfull skilaboð árið
1993 sem á stóð: „Kyndillinn verður
réttur áfram.“ Samkvæmt skila-
boðum sem síðar voru skilin eftir
tóku synir þess skálameistara, sem
mun hafa látist 1998, að sér að fram-
fylgja hefðinni.
Poe lést af óþekktum orsökum í
Baltimore 7. október 1849.
Dularfullur
gestur Poes
Hefur heimsótt
skáldið frá 1949
Edgar Allan Poe
HOLLENSK lögregluyfirvöld
handtóku á föstudaginn tvo menn
grunaða um að tengjast ráni á sjö
höggmyndum úr bronsi sem hurfu
úr garði Singer Laren-safnsins í
Norður-Hollandi sl. miðvikudag. Af-
steypa af hinum fræga Hugsuði
Auguste Rodins var meðal högg-
myndanna en sú hefur nú verið end-
urheimt, illa skemmd. Hinar sex
höggmyndirnar eru enn ófundnar.
Á þessu stigi málsins er talið að
þjófarnir, sem brutu sér leið að
garðinum með því að keyra á grind-
verk hans, hafi haft áhuga á brons-
inu frekar en listaverkunum sjálfum
þar sem járnhöggmyndir í garðinum
voru látnar óhreyfðar.
Talsmaður safnsins sagði stytt-
urnar „hundraða þúsunda“ evra
virði.
Hugsuður í
leitirnar
KVIKMYNDIN Níundi dag-
urinn (Der Neunte Tag), í leik-
stjórn Volkers Schlöndorffs,
verður sýnd á vegum Goethe-
Institut á morgun klukkan 20.
Í myndinni segir frá prestinum
Abbé Henri Kremer sem er
fangi í útrýmingabúðum nas-
ista í Dachau. Dag einn fær
hann óumbeðið leyfi til að
heimsækja föðurland sitt, Lúx-
emborg, í níu daga. Tilefnið er
andlát móður hans en hin raunverulega ástæða er
önnur.
Sýningin fer fram í fyrirlestrasal Lands-
bókasafnsins. Aðgangur er ókeypis.
Kvikmyndir
Níundi dagurinn
eftir Schlöndorff
Volker Schlöndorff
NORRÆNA hljómsveitin
LAVA verður með tónleika í
Norræna húsinu í kvöld klukk-
an 20. LAVA mun flytja end-
urtúlkanir á íslenskum þjóð-
lögum, flutt í þjóðlagapoppstíl,
auk frumsaminna laga.
Hljómsveitin var stofnuð í
september á síðastliðnu ári af
íslenskum, dönskum og norsk-
um leiklistarnemum og hefur
m.a. spilað í Danmörku. Það
eru söngkonan Hanna Margrét Snorradóttir, gít-
arleikarinn Martin Spens og fiðlu- og trommuleik-
arinn Julie Adele Stang sem skipa LAVA.
Miðaverð á tónleikana er 1.000 krónur.
Tónleikar
Þjóðlagapopp í
Norræna húsinu
FRANK Aarnink og Steef Van
Oosterhout flytja íslenska slag-
verkstónlist klukkan 20 í kvöld.
Tónleikarnir eru hluti af Myrk-
um músíkdögum og fara fram í
Von, sal SÁÁ að Efstaleiti 7. Á
efnisskránni eru ný og nýleg
verk eftir núlifandi íslensk tón-
skáld, þar á meðal tvö ný verk
sem samin voru sérstaklega
fyrir tilefnið. Það eru verkin
„35II“ eftir Garðar Erlendsson
og „Dögun“ eftir Harald Vigni Sveinbjörnsson.
Almennur aðgangseyrir er 1.500 krónur, ör-
yrkjar og ellilífeyrisþegar greiða 500 krónur en
ókeypis er fyrir nemendur.
Slagverkstónleikar
Íslensk slagverks-
tónlist í Von
Steef Van
Oosterhout
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT tónlist-
arskólanna er nú starfrækt þriðja ár-
ið í röð, en sveitin er skipuð nem-
endum úr tónlistarskólum á
höfuðborgarsvæðinu, auk nemenda
frá Akranesi, Keflavík og víðar.
Starfsári sveitarinnar lýkur á laug-
ardaginn með stórtónleikum í Lang-
holtskirkju, en þar mun liðlega 100
manna hljómsveit koma fram. „Við
erum með stóra strengjasveit, blás-
ara, slagverk, hörpu, orgel og ryk-
sugur og erum að spila mannmörg
verk,“ segir Guðni Franzson sem
stjórnar sveitinni að þessu sinni. „Við
erum ekki að spila neitt þunga dag-
skrá heldur frekar aðgengilega, bæði
fyrir flytjendur og hlustendur. Þetta
eru þekkt og mjög flott númer sem
krakkarnir ráða vel við,“ segir Guðni,
en alls eru fimm verk á efnisskránni
á laugardaginn; þrjú erlend og tvö ís-
lensk.
Leitin að beljunni
„Það er svolítil kúnst að velja
stykki sem virka fyrir krakka,“ segir
Guðni. „Nótt á Nornastóli eftir Mus-
sorgskíj er stóra verkið í þessu og
svo erum við með nýtt verk eftir Elí-
as Davíðsson sem verður frumflutt á
Íslandi. Síðan erum við með eldra
verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
Það var upphaflega skrifað fyrir
Gunnar Egilson árið 1974 og er svo-
lítið í anda Þorkels, svona skemmti-
músík,“ segir Guðni, en um er að
ræða konsert fyrir klarinett og
hljómsveit þar sem Ingimar And-
ersen leikur einleik. „Þetta er sagan
um Búkollu þar sem einleikarinn fer
að leita að beljunni þannig að það er
smá leikhús í þessu, ekkert of alvar-
legt, Þorkell er ekkert að taka sig of
hátíðlega,“ segir Guðni, en önnur
verk á efnisskrá eru eftir Sir Mal-
colm Arnold og Edvard Grieg.
Geta allt
Aðspurður segir Guðni hljómsveit-
armeðlimi vera á öllum aldri. „Ætli
yngstu krakkarnir séu ekki svona 11
til 12 ára, flestir táningar en margir
vel yfir tvítugt,“ segir hann, og bætir
því við að frábært sé að vinna með
ungu fólki. „Þetta eru krakkar sem
geta gert allt, þurfa bara aðeins meiri
tíma en fullorðnir. Það þarf að beina
sjónum þeirra að ákveðnum hlutum,
sem þarf kannski ekki svo mikið að
tala um við atvinnuspilara. En þegar
þau átta sig á grunnþáttunum fara
þau bara allt í einu að spila eins og
fullorðnir,“ segir Guðni, sem er
ánægður með útkomuna. „Við gefum
þetta kannski ekki út á plötu, en
þetta ætti að verða mjög áheyrilegt.“
Ekkert „kid-stöff“
Guðni segir virkilega mikilvægt
fyrir tónlistarnemendur að taka þátt
í verkefni sem þessu. „Í mínu námi
voru það svona æfingar með hljóm-
sveit sem sátu hvað sterkast í manni
eftir á. Það er einmitt þess vegna
sem verið er að gera þetta,“ segir
hann. „Það er sérstaklega mikilvægt
að vera að takast á við verkefni sem
er ekki eitthvað „kid-stöff“ heldur
bara alvöru músík. Svo gera menn
bara það sem hægt er, það er engin
önnur aðferð í þessu. Þessi partur af
tónsköpun er svo ofboðslega mik-
ilvægur fyrir alla hljóðfæraleikara
sem eru að spila á sinfónísk hljóð-
færi. Ef þeir fá ekki grunn á þessu
sviði þá mun alltaf verða ákveðin
vöntun. Það er ekki hægt að gera
þetta öðruvísi en að setja saman
hljómsveit,“ segir Guðni að lokum.
Tónleikarnir fara fram í Lang-
holtskirkju á laugardaginn og hefjast
klukkan 16. Miðaverð er 1.000 krón-
ur en 500 fyrir börn og aldraða.
Spila eins og fullorðnir
Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna með árlega tónleika á laugardaginn
Morgunblaðið/Golli
Á öllum aldri Guðni Franzson stýrir Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna sem heldur tónleika í Langholtskirkju á
laugardaginn. Hann segir þátttakendur vera á öllum aldri, frá ellefu og vel yfir tvítugt.
farandgrip til varðveislu í eitt ár;
silfurbúinn göngustaf úr eigu Jóns
úr Vör sem nafn hennar verður ritað
á.
Tvær viðurkenningar
Auk aðalverðlaunanna er hefð fyr-
ir því að dómnefnd veiti tvær við-
urkenningar fyrir ljóð sem vöktu
sérstaka athygli hennar. Í ár hlutu
viðurkenningu annars vegar Hjört-
ur Marteinsson fyrir ljóð sitt „Gam-
alt sendibréf frá afa á deild fimm“ og
hins vegar Eiríkur Örn Norðdal fyr-
ir ljóðið „Parabólusetning“. Fengu
þeir Hjörtur og Eiríkur Örn 100.000
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
GUÐRÚN Hannesdóttir er hand-
hafi Ljóðstafs Jóns úr Vör 2007 fyrir
ljóð sitt „Offors“. Þótti „Offors“
standa upp úr þeim tæpu fjög-
urhundruð ljóðum sem skáld af öllu
landinu sendu inn í ljóðasamkeppn-
ina sem haldin er árlega á vegum
Lista- og menningarráðs Kópavogs.
Sigurvegarinn var kunngerður við
athöfn í Salnum í Kópavogi í gær en
það var jafnframt afmælisdagur
Jóns úr Vör. Hlýtur Guðrún 500.000
krónur, verðlaunagrip til eignar og
krónur hvor í sinn hlut að launum.
Í dómnefnd sátu Hjörtur Pálsson,
ljóðskáld og þýðandi, Soffía Auður
Birgisdóttir bókmenntafræðingur
og rithöfundurinn Sjón, sem jafn-
framt var formaður nefndarinnar.
Þetta er í sjötta sinn sem ljóða-
samkeppnin er haldin en hugmyndin
er upprunalega komin frá félögum
úr Ritlistarhópi Kópavogs. Þátttak-
endur skila inn frumsömdum ljóðum
á íslensku og er öllum frjálst að taka
þátt. Eru ljóðin send inn undir dul-
nefni.
Í fyrra var það Óskar Árni Ósk-
arsson sem bar sigur úr býtum.
Guðrún Hannesdóttir hlýtur
Ljóðstaf Jóns úr Vör 2007
Morgunblaðið/Golli
Verðlaunahafar Eiríkur Örn Norðdal, Hjörtur Marteinsson og Guðrún
Hannesdóttir, handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör fyrir ljóðið „Offors“.
♦♦♦