Morgunblaðið - 19.02.2007, Side 7

Morgunblaðið - 19.02.2007, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2007 7 rsdóttir, Ágúst S. Björgvinsson þjálfari, Ó. Ámundadóttir, Guðbjörg Sverrisdóttir. Morgunblaðið/Eggert ugsdóttir og Helena Sverrisdóttir. HAUKAR fögnuðu naumum sigri í Lýsingarbikarkeppni kvenna gegn Keflavík í Laugardalshöllinni á laugardag, 78:77. Geysileg spenna var undir lok leiksins, sem var hraður og jafn, þegar TaKesha Watson, leikmaður Keflavíkur, fékk tvö vítaskot þegar tvær sek- úndur voru eftir af leiktímanum og staðan 78:76. Hún hitti ekki úr fyrra skotinu og þar með fór síðasta færi Keflavíkur forgörðum. Þetta var í fjórða sinn sem Haukar sigra í bikarkeppninni. Ifeoma Okonkwo var stigahæst í liði Hauka með 24 stig og hún tók 10 fráköst. Helena Sverrisdóttir skoraði 23 stig og tók 14 fráköst. Pálína Guðlaugsdóttir skoraði 12 stig fyrir Hauka. TaKesha Watson skoraði 19 stig fyrir Keflavík, María Ben Erlings- dóttir var með 18 stig og Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 15. Haukar fögnuðu sigri „ÞETTA var rosalegur leikur og hreint út sagt yndislegt að ná að landa bikarnum,“ sagði Pálína Gunnlaugsdóttir, leikmaður Hauka, sem er klárlega einn allra besti varnarmaður landsins. „Við vissum vel að þessi leikur yrði erfiður enda eru Keflavíkurstelpurnar með mjög gott lið sem erfitt er við að eiga. Þetta var mjög tæpt í lokin en að mínu mati höfðum við aðeins meiri sigurvilja og það held ég að hafi skilað okkur sigrinum.“ Pálína var alveg með dagskrána á hreinu: „Við fögnum ærlega í kvöld, enda eigum við það skilið, en síðan förum við að undirbúa okkur fyrir framhaldið því við erum hvergi nærri hættar; það eru tveir aðrir titlar í boði og við ætlum að taka þá báða og sýna fram á með áþreifanlegum hætti að við höfum á að skipa besta liði landsins,“ sagði varnarjaxlinn og baráttuhundurinn Pálína Gunnlaugsdóttir. „Höfum á að skipa besta liði landsins“ Eftir Svan Má Snorrason „Þær stóðu sig með sóma, lögðu lík- ama og sál að veði en því miður dugði það ekki, það munaði afskap- lega litlu og þær geta stoltar gengið frá þessu dagsverki – ég er stoltur af þeim,“ sagði Jón Halldór og bætti þessu við: „Leikurinn var góð- ur, það var boðið upp á allt það sem góðan leik má prýða og leikmenn beggja liða lögðu sig fram eftir megni og held ég að allir þeir sem sáu leikinn geti og muni taka undir það.“ En hvað skyldi Jón Halldór segja um framtíð kvennakörfuboltans í Keflavík? „Hún er björt, ég fer ekki af þeirri skoðun. Hér hefur átt sér stað góð uppbygging og liðið án efa styrkst frá því í fyrra. Markið er ávallt sett hátt í Keflavík og þar er hefð fyrir því að vinna til titla. Haukastelpur, sem eru með frábært lið, hafa náð frumkvæðinu af okkur en það er ætlun okkar að ná því aft- ur og ég tel allar forsendur vera til þess. Eftir því sem liðið fær meiri reynslu og trú á eigin getu verður leiðin að markmiðinu, því að landa titlum, auðveldari og við ætlum að ná alla leið á næstu tímabili og tímabilum. Við verðum að sjá til með hversu langt við náum í vor.“ Eins og áður sagði nefndi Jón Halldór að Haukaliðið væri gott en þó vildi hann sérstaklega minnast á þátt Helenu Sverrisdóttur: „Það er gríðarlegur plús fyrir Haukaliðið að hafa innanborðs eins frábæran leik- mann og Helena svo sannarlega er; hún er í raun ígildi Kana og það segir meira en mörg orð. Við skul- um því sjá til hvernig Haukaliðinu mun reiða af án hennar á næsta ári,“ sagði kankvís Jón Halldór Eð- valdsson. Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkurliðsins, segir Haukaliðið gott „Helena er ígildi Kana“ ÞJÁLFARI Keflavíkurstúlkna heit- ir Jón Halldór Eðvaldsson og er þetta fyrsta tímabil hans með liðið. Hann er þó enginn nýgræðingur í þjálfun og hefur til að mynda þjálf- að margar af stelpunum í liðinu í dag í yngri flokkunum og þekkti því vel til þeirra flestra áður en hann tók að sér starfið. Hann sagð- ist í leikslok vera stoltur af sínum stelpum og má hann vera það. Í sérflokki Helena Sverrisdóttir fyrirlið Hauka er án efa sterkasti leik- maður deildarinnar og fær hrós frá þjálfara Keflavíkur, Jóni Eðvaldssyni. Eftir Svan Má Snorrason María var að vonum sár og svekkt að bikarúrslitaleiknum loknum – að hafa tapað fyrir Haukum – en bar sig engu að síður mjög vel. „Það er auðvitað mjög sárt að tapa svona leik en þetta gat farið á hvorn veg- inn sem var. Spennan var mikil og við mættum virkilega tilbúnar í þennan slag en því miður dugði það okkur ekki að þessu sinni,“ sagði María að leik loknum og bætti þessu við. “Við erum með mjög gott lið og frábæran þjálfara – liðið er einnig mjög ungt og á mikið inni. Á næstu árum mun þetta lið láta mik- ið að sér kveða, ég er sannfærð um það.“ María, sem er nemandi á nátt- úrufræðibraut Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum og stefnir á útskrift í vor, mun líklega ekki taka mikinn þátt í þeim uppgangi á næstu árum því hún tjáir blaðamanni, aðspurð, að hún sé að loknu þessu tímabili að hverfa á braut og halda á vit æv- intýranna í henni Ameríku: „Það er nánast frágengið að ég fari í skóla í Bandaríkjunum að loknu þessu keppnistímabili.“ Hvaða skóli er það? „Hann heitir The University of Texas–Pan American, og ég hlakka mikið til að takast þar á við ný verkefni í nýju umhverfi.“ María segir að ekki komi annað til greina en að ljúka tímabilinu með titli. „Eins og ég sagði var verulega sárt að tapa þessum leik og því er stefnan klárlega sett á að ljúka tímabilinu sem Íslandsmeistari og ég er á því að við höfum alla burði til þess. Við sýndum hvað við getum í þessum bikarúrslitaleik en villu- vandræði og léleg vítanýting settu strik í reikninginn. Við eigum án efa mikið inni og það er okkar að sýna það á áþreifanlegan hátt í úr- slitakeppninni í vor; annað kemur einfaldlega alls ekki til greina og þá hefnum við fyrir þetta tap í dag,“ sagði María Ben. Á ferðinni María Ben Erlingsdóttir leikmaður Keflavíkur hættir að leika með liðinu í vor. María Ben er á leið til Texas HÚN er einn allra besti körfuknatt- leiksleikmaður landsins, miðherji af guðs náð, og hefur virkilega sýnt úr hverju hún er gerð á þessu keppnistímabili. María Ben Erlings- dóttir er átján ára gömul og leikur lykilhlutverk hjá hinu unga og efni- lega liði Keflavíkur. hvað er,“ sagði kampakátur þjálf- ari Haukastelpna, Ágúst S. Björg- vinsson. gur í vel í f eitt- r Hauka fagnaði fyrsta titli sínum á efur leikið vel með Hafnarfjarðarliðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.