Morgunblaðið - 19.02.2007, Qupperneq 11
Arnar Grétarsson 2, Kristinn Steindórs-
son 2, Guðmann Þórisson – Bjarni Rúnar
Einarsson, Ingi Rafn Ingibergsson, Stef-
án Björn Hauksson.
Keflavík – Þróttur R............................ 6:4
Einar Örn Einarsson 3, Baldur Sigurðs-
son, Guðmundur Steinarsson, Magnús
Þorsteinsson – Arnljótur Ástvaldsson,
Haukur Páll Sigurðsson, Andrés Vil-
hjálmsson, Magnús Már Lúðvíksson.
Norðurlandsmótið
Powarademótið:
Huginn – Völsungur............................. 1:3
Guðmundur Magnússon 9. – Elfar Árni
Aðalsteinsson 65., Þór Kárason 70., Hall-
grímur Steingrímsson 90.
Dalvík/Reynir – Huginn...................... 2:2
Staðan:
KA 5 4 1 0 21:8 13
Dalvík/Reynir 5 3 2 0 13:9 11
Þór 4 2 1 1 10:3 7
Huginn 6 1 2 3 97:21 5
Völsungur 4 1 0 3 8:11 3
Tindastóll 4 0 3 1 8:12 3
Magni 4 0 1 3 8:13 1
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2007 11
íþróttir
Eftir Einar Sigtryggsson
sport@mbl.is
Heimamenn byrjuðu leikinn betur
og skytturnar Magnús Stefánsson
og Einar Logi Friðjónsson voru í
aðalhlutverki. Um leið og Stjörnu-
menn náðu að loka á þá hrundi leik-
ur Akureyringa og Stjarnan raðaði
inn hraðaupphlaupsmörkum. Fjög-
ur í röð skiluðu Stjörnunni fimm
marka forystu og var Elías Már
Halldórsson eins og eimreið í áætl-
unarferðum fram völlinn. Heima-
menn náðu aðeins að bæta leik sinn
og héldu í horfinu en staðan í hálf-
leik var 12:17. Þess má geta að að-
eins þrír leikmenn Akureyrar sáu
um að skora mörkin í hálfleiknum.
Eitthvert slen var yfir liðunum í
upphafi síðari hálfleiks og hver
sóknin á fætur annarri fór í súginn.
Heimamenn klúðruðu sex fyrstu
sóknum sínum og virtust endanlega
úr leik. Þá kom fínn kafli og þeir
nýttu fimm sóknir í röð. Munurinn
sem var orðinn sex mörk fór niður í
þrjú og þeir fáu áhorfendur sem
mættu á leikinn lifnuðu við. Vonir
þeirra slokknuðu skömmu síðar því
aftur hrökk allt í baklás hjá Ak-
ureyringum. Stjarnan knésetti þá
með því að skora úr tíu af ellefu
sóknum sínum á meðan heimamenn
skiluðu aðeins fjórum mörkum.
Munurinn var þá kominn í níu
mörk og sigurinn því tryggður en
Akureyringar náðu að laga stöðuna
í restina.
Sterk vörn Stjörnunnar lagði
grunninn að þeirra sigri. Volodmir
Kysil fór þar fremstur í flokki en
hann hélt línumönnum Akureyrar
alveg niðri. Hornamenn Akureyrar
sáust varla í leiknum og þurftu
skytturnar því að bera uppi sókn-
arleikinn. Einar Logi var slakur en
eini ljósi punkturinn í leik Ak-
ureyringa var frammistaða Magn-
úsar Stefánssonar sem sýndi loks
sitt rétta andlit. Sóknarnýting
Stjörnunnar var frábær í fyrri hálf-
leik en vörnin lagði grunninn að sex
hraðaupphlaupsmörkum. Þrjú í
viðbót komu í þeim síðari en hraða-
upphlaup heimamanna voru hræði-
lega illa nýtt. Í heildina spiluðu
leikmenn Stjörnunnar vel og því
erfitt að taka einhverja út sem
bestu menn. Heimamenn verða að
fara að hugsa sinn gang eftir skip-
brot í tveimur síðustu leikjum.
Ætla mætti að flestir þeirra hefðu
verið að spara orkuna svo þeir
gætu átt huggulega kvöldstund
með konunni, enda konudagurinn í
gær.
Morgunblaðið/ Þórir Ó Tryggvason
Í dauðafæri Stjörnumaðurinn David Kekelia kominn á auðann sjó og í þann mund að skora eitt sex marka sinna
gegn Akureyri í gær án þess að hvorki Þorvaldur Þorvaldsson né Aigars Lazdins fái rönd við reist.
Stjarnan burstaði
Akureyringa
SJÖRNUSTRÁKAR gerðu góða
ferð til Akureyrar í gær. Þeir
spiluðu við slakt lið heimamanna og
sigruðu örugglega með sjö mörk-
um, 31:24. Patrekur Jóhannesson
var ekki í liði Stjörnunnar vegna
veikinda en það virtist ekki há
Garðbæingum. Stjarnan lagði
grunninn að sigrinum með því að
spila frábæra vörn og hraðaupp-
hlaupsmörkin hrönnuðust upp.
Kristján Halldórsson þjálfari er
greinilega að gera vel og Stjarnan
gæti hæglega landað Íslandsmeist-
aratitlinum áður en yfir lýkur. Nú
er liðið fjórum stigum frá toppnum.
Akureyringar virðast enn vera í
jólafríi og þeirra bíður nú ekkert
nema hörð og erfið fallbarátta en
liðið á eftir að spila þrjá heimaleiki
en fimm á útivelli.
(
)
*
!
!
+ , # $%& & $
MIKIÐ var skorað í leikjum fyrstu
umferðar í deildabikarkeppni karla,
Lengjubikarnum, sem fram fór um
helgina. 35 mörk voru skoruð í leikj-
um sex eða tæp sex mörk að með-
altali í leik.
Íslandsmeistarar FH burstuðu
Grindvíkinga, 5:0. Sigurvin Ólafsson
skoraði tvö fyrstu mörk FH-inga í
fyrri hálfleik og í þeim síðari bættu
Tryggvi Guðmundsson, Guðmundur
Sævarsson og Matthías Guðmunds-
son við þremur mörkum en Matthías
gekk í raðir FH frá Val í haust.
Fylkismenn lögðu Stjörnuna, 4:2,
þar sem hinn 18 ára gamli Kjartan
Andri Baldvinsson skoraði tvö mörk
fyrir Árbæjarliðið. Páll Einarsson
skoraði fyrsta mark Fylkis úr víta-
spyrnu og jafnaði metin og fjórða
mark Fylkismanna skoraði Daninn
Cristian Cristiansen. Guðjón Bald-
vinsson skoraði bæði mörk Garða-
bæjarliðsins.
Valur sigraði Víking, 2:1, í Egils-
höllinni. Daníel Hjaltason, fyrrum
leikmaður Víkings, skoraði fyrsta
markið og fyrirliðinn Sigurbjörn
Hreiðarsson bætti við öðru fyrir hlé.
Tíu mínútum fyrir leikslok minnk-
aði Arnar Jón Sigurgeirsson mun-
inn fyrir Víkinga.
Breiðablik hafði betur gegn ÍBV,
5:3, í hörkuleik en Eyjamenn náðu
þrívegis yfirhöndinni í leiknum.
Arnar Grétarsson skoraði tvö af
mörkum Blikanna og komu þau
bæði frá vítapunktinum og hinn
ungi Kristinn Steindórsson skoraði
einnig tvö mörk fyrir Kópavogs-
liðið.
Einar Örn Einarsson tryggði bik-
armeisturum Keflavíkur sigur á
Þrótti en í miklum markaleik hafði
Keflavík betur, 6:4. Þróttarar kom-
ust í 4:3 tíu mínútum fyrir leikslok
en Einar Örn skoraði þrennu á síð-
ustu sjö mínútum leiksins.
HK, sem leikur í fyrsta sinn í
efstu deild í sumar, vann góðan sig-
ur á KA í Boganum í gær, 3:0. Jón
Þorgrímur Stefánsson skoraði
fyrsta markið á 25. mínútu og vara-
mennirnir Hörður Magnússon og
Kristján Ari Halldórsson bættu við
tveimur mörkum á lokakafla leiks-
ins.
Mikið skorað í deildabikarnum
STUÐNINGSMENN Boston Celtic í
NBA-deildinni hafa ekki getað
glaðst yfir gengi liðsins í vetur en
þeir geta glaðst yfir því að Gerald
Green, leikmaður Celtic, sigraði í
troðslukeppni NBA í nótt í Las Ve-
gas. Green fékk 50 stig frá öllum
dómurum keppninnar fyrir loka-
atriði sitt og dugði það til sigurs en
Nate Robinson frá New York
Knicks virtist líklegur til þess að
verja titil sinn frá því í fyrra.
„Ég hef alltaf látið mig dreyma
um að sigra í troðslukeppninni og
ég get varla lýst því hve spenntur
ég er þegar draumurinn hefur
ræst,“ sagði Green en hann stökk
yfir borð í lokaatriðinu og gerði
„vindmylluhreyfingu“ með hönd-
unum áður en hann tróð boltanum
ofan í körfuhringinn sem er í 3,05
metra hæð.
Jason Kapono úr Miami Heat
sigraði í þriggja stiga skotkeppn-
inni. Þar jafnaði hann met Mark
Price í lokaumferðinni og fékk alls
24 stig en Gilbert Arenas, leik-
maður Washington Wizards, varð
annar en hann fékk 23 stig í fyrstu
umferð en aðeins 17 stig í loka-
umferðinni. Þjóðverjinn Dirk No-
witzki úr Dallas Mavericks fékk 20
stig í fyrstu umferð en aðeins 9 stig
í lokaumferðinni. Dwyane Wade úr
meistaraliði Miami Heat sigraði í
skot og færnikeppni deildarinnar
en þar kom hann í mark á tímanum
26,4 sekúndum og bætti tíma Kobe
Bryant sem notaði 29,8 sekúndur til
þess að ljúka við þrautirnar.
Green með
bestu tilþrifin
Reuters
Tilþrif Gerald Green úr Boston Celtic sýnir hér glæsileg tilþrif í troðslu-
keppninni en hann bar sigur úr býtum
í kvöld
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Iceland Express:
Kennaraháskólinn: ÍS – Hamar...........19.15
1.deild karla
ÍS-KA..........................................................0:3
(25:27, 17:25, 23:25)
ÍS-KA..........................................................2:3
(28:30, 28:26, 25:23,17:25,11:15)
Þróttur R-Stjarnan...................................1:3
(20:25,13:25, 25:21, 21:25)
Brosbikar karla, 2. umferð
Hrunamenn – KA .....................................2:3
(25:23, 21:25, 25:17, 20:25, 8:15)