Morgunblaðið - 10.03.2007, Page 1
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
ÍR-ingurinn Vilhjálmur Einarsson,
silfurverðlaunahafi á Ólympíuleik-
unum í Melbourne og Íslandsmet-
hafi í þrístökki, hefur hlotið nafn-
bótina, fimm sinnum, þar af þrjú
fyrstu árin, 1956, 1957 og 1958. Val-
björn Þorláksson var félagsmaður í
ÍR þegar hann hreppti hnossið 1959
áður en röðin kom aftur að Vil-
hjálmi árið 1960 og 1961. Enginn
hefur oftar verið kjörinn Íþrótta-
maður ársins en Vilhjálmur.
Sundmaðurinn Guðmundur Gísla-
son var kjörinn íþróttamaður ársins
1962 og Íslandmethafinn í hástökki,
Jón Þ. Ólafsson árið þar á eftir.
Guðmundur og Jón Þ. eru jafn-
gamlir voru skólabræður í grunn-
skóla og mættust í sveinakeppni
Reykjavíkur í frjálsíþróttum árið
1957 þegar báðir voru að hefja sinn
íþróttaferil. Guðmundur sneri sér
síðan að sundi og setti um 170 Ís-
landsmet á löngum og sigursælum
ferli en Jón hélt sínu striki og varð
einn fremsti hástökkvari Evrópu á
sjöunda áratugnum. Þess má til
gamans geta að Guðmundur varð
fyrstur Íslendinga til þess að keppa
á fernum Ólympíuleiku, 1960, 1964,
1968 og 1972.
Erlendur Valdimarsson, Íslands-
methafi í kringlu- og sleggjukasti,
varð næsti ÍR-ingum til þess að
hreppa nafnbótina eftirsóttu. Er-
lendur var kjörinn Íþróttamaður
ársins árið 1970, þá 23 ára gamall.
Eftir þetta urðu ÍR-ingar að bíða
til ársins 1982 að maður úr þeirra
röðum varð næst valinn Íþrótta-
maður ársins. Þá var Óskar Jak-
obsson, hinn fjölhæfi og sterki kast-
ari, kjörinn. Hann hafði um
nokkurt skeið getið sér orð sem
spjótkastari, kringlukastari og síð-
ar kúluvarpari með góðum árangri.
Sjöundi liðsmaður ÍR sem kjör-
inn var Íþróttamaður ársins var
Vala Flosadóttir, bronsverðlauna-
hafi í stangarstökki á Ólympíuleik-
unum árið 2000. Hún hlaut yfir-
burðakosningu, fékk 440 stig af 460
mögulegum.
ÍR á flesta Íþróttamenn ársins
ÍÞRÓTTAMENN úr röðum ÍR hafa ellefu sinnum verið kjörnir Íþróttamenn árs-
ins af Samtökum íþróttafréttamanna frá því að kjörið fór fyrst fram árið 1956.
Þar af einokuðu ÍR-ingar kjörið fyrstu átta árin sem það fór fram. Alls eru þetta
sjö íþróttamenn, sex karlar og ein kona. Ekkert íþróttafélag státar af viðlíka ár-
angri þegar listi yfir Íþróttamenn ársins og félög þeirra er skoðaður.
laugardagur 10. 3. 2007
íþróttir mbl.is
Prinsarnir fimm léku
stórt hlutverk hjá
gullliði ÍR >> 6
„SILFURMAÐURINN“
ÍR-INGAR HAFA ÁTT TVO VERÐLAUNAHAFA Á
ÓLYMPÍULEIKUM – 1956 OG 2000 >> 5 OG 7
LEIKMENN ÍR-liðsins í körfu-
knattleik karla færðu Íþrótta-
félagi Reykjavíkur fyrtstu af-
mælisgjöfina á dögunum er
þeir fögnuðu bikarmeist-
aratitlinum. Hér á myndinni til
hliðar má sjá þá Ólaf Þórisson,
Ómar Örn Sævarsson og
Hreggvið S. Magnússon með
bikarinn.
Þess má geta að leikmenn
ÍR-liðsins færðu ÍR Íslands-
meistaratitil að gjöf á 50 ára
afmæli félagsins 1957 og einn-
ig á 70 ára afmælinu 1977.
Sagt er frá hinni sigursælu
sveit ÍR-inga og litríkustu leik-
mönnunum, prinsunum fimm,
sem urðu 15 sinnum Íslands-
meistarar á 23 árum, í blaðinu.
» 6 og 7
Fyrsta
afmælis-
gjöfin
NAFN Guðmundar Þórarins-
sonar, frjálsíþróttaþjálfara, er
tengt ÍR órjúfanlegum bönd-
um. Hann var frjáls-
íþróttaþjálfari félagsins um
fjörutíu ára skeið frá 1950 til
1990, að unanskildu fimm ára
tímabili á öndverðum sjöunda
áratuggnum, þegar hann
þjálfaði í Norrköping í Sví-
þjóð.
„Guðmundur var allt í öllu
hjá félaginu jafnhliða því að
vera framúrskarandi þjálfari.
Hann hafði umsjón með get-
raunasölunni árum saman og
var einnig húsvörður í ÍR-
heimilinu ásamt ýmsu öðru,“
segir Jón Þór Ólafsson, fyrr-
verandi Íslandsmethafi í há-
stökki.
„Guðmundur vann alveg
gríðarlega mikið og óeig-
ingjarnt starf fyrir ÍR sem
aldrei verður metið að fullu,“
segir Jón ennfremur. „Heimili
Guðmundar var eins og fé-
lagsheimili og var opið öllum.
Hann var vakinn og sofinn í
starfi sínu fyrir félagið allan
ársins hring og alltaf létt-
klæddur hvernig sem viðr-
aði.“
Undir stjórn Guðmundar
varð ÍR bikarmeistari 16 ár í
röð, frá 1972 til 1987. Liðið
hafnaði í 3. sæti árið eftir en
vann síðan sautjánda sigur
sinn með Guðmund í þjálf-
arasæti árið 1989.
Guðmund-
ur var
allt í öllu
Morgunblaðið/Eggert