Morgunblaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 145. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is KASSETTAN FRÉTTIR AF ANDLÁTI HENNAR VIRÐAST STÓRLEGA ÝKTAR >> 42 ALLT VAR ÖÐRUVÍSI FYRIR FJÖRUTÍU ÁRUM Í SKÓLANUM LITIÐ UM ÖXL >> 20 FRÉTTASKÝRING Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is ÁSÓKN í viðskiptatengt háskólanám hefur sennilega aldrei verið meiri. Stöðugur straumur er í grunnnám í viðskiptatengdu námi við háskólana fjóra sem bjóða upp á slíkt, en mest er aukningin hins vegar í meistara- námi. Áshildur Bragadóttir, kynning- arstjóri viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands, segir að gera megi ráð fyrir að um 1.500 manns stundi nám við deildina næsta vetur og að deildin sé sú þriðja stærsta í skólan- um. Steinn Jóhannsson, forstöðu- maður kennslusviðs Háskólans í Reykjavík, kveður að búast megi við að um 1.000 nemendur leggi stund á viðskiptafræði við skólann næsta vet- ur. Í viðskiptaháskólanum á Bifröst reikna menn með því að í kringum 500 nemendur stundi nám við við- skiptafræðideild skólans. Um 330 stunduðu nám í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri í fyrra og ætla má að álíka margir hafi stundað nám í viðskipta- og hagfræði utan land- steinanna á sama tíma. Séu þessar tölur teknar saman má ráð fyrir því gera að í kringum 3.500 manns leggi stund á viðskiptatengt háskólanám um þessar mundir. Samkvæmt tölum frá Hagstofu voru háskólanemendur í fyrra 16.738 og samkvæmt því leggur rúmur fimmtungur íslenskra há- skólanema stund á viðskiptafræði eða tengt nám. Framtíðarhorfur góðar Sú spurning vaknar hvort eftir- spurn eftir viðskiptamenntuðu fólki dali ekki eftir því sem fleiri útskrifast. „Atvinnulífið kallar eftir fólki með þessa menntun og það virðist vera auðvelt fyrir nemendur okkar að fá vinnu,“ segir Áshildur Bragadóttir hjá HÍ. Steinn Jóhannsson hjá HR tekur undir með henni. „Á meðan fjármála- og bankastarfsemi er á jafnmikilli uppleið og raun ber vitni er næga vinnu að hafa og framtíð- arhorfur eru ekki slæmar hjá þessum hópi,“ segir hann. Þau eru sammála um að almennt viðskiptanám hafi reynst mörgum prýðisgóður grunn- ur, en þróunin nú sé sú að æ fleiri leggi stund á meistaranám í greininni til þess að efla samkeppnisstöðu sína á vinnumarkaði og skapa sér ákveðna sérstöðu. Viðskipta- nám í blóma 20% háskólanema í viðskiptatengdu námi                                    Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is HULDA Sigurðardóttir má teljast heppin að hafa ekki slasað sig þeg- ar hún fékk gæs inn um fram- rúðuna hjá sér sl. mánudag. Hulda var ein í bíl sínum að aka skammt frá ferðamannamiðstöðinni við Gull- foss þegar hún mætti gæsinni. „Þetta gerðist allt mjög hratt. Ég var að keyra í rólegheitum þegar ég sá gæs fljúga á móti mér. Mér fannst hún vera á mikilli ferð og reyndi að draga úr hraðanum, en hún kom bara beint inn um rúðuna hjá mér. Hún féll svo niður í far- þegasætið. Gæs- in öskraði alveg svakalega, en datt svo niður á gólfið og drapst,“ sagði Hulda þeg- ar hún var beðin að lýsa því sem gerðist. Hún sagði að þetta hefði verið stór og mikil gæs og hálf rúðan farið í mask. Hún sagð- ist hrósa happi yfir því að hún skyldi hafa verið ein á ferð því ef einhver hefði setið í farþegasætinu væri alveg ljóst að viðkomandi hefði slasast. Hulda sagðist hafa verið mjög stressuð með gæsina lif- andi í bílnum. „Gæsin öskraði og öskraði og ég öskraði bara á móti. Þegar hún hætti að öskra róaðist ég. Ég stoppaði hins vegar ekki bílinn heldur hélt bara áfram og keyrði upp að Gullfosskaffi þar sem ég vinn. Þar tók vinur minn gæsina úr bílnum. Hún var þá dauð,“ sagði Hulda. Bíllinn var dreginn til Reykjavík- ur vegna þess að enginn treysti sér til að aka honum í því ástandi sem hann var í, auk þess sem hann var blóðugur og þakinn fiðri að innan. Mótar fyrir gæs Fuglinn var stór og mikill og hálf rúðan fór í mask. Gæsin drapst að endingu eftir mikil öskur. Hulda Sigurðardóttir „Ég öskraði bara á móti“ 19 ára stúlka fékk gæs inn um bílrúðuna rétt hjá Gullfossi Ljósmynd/Hulda Sigurðardóttir Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „MÁLIÐ er ósköp einfaldlega það af hálfu Landsvirkjunar að þau fyrir- tæki sem starfa og taka að sér verk fyrir Landsvirkjun eru skyldug til að fylgja íslenskum lögum, reglum og kjarasamningum að öllu leyti,“ segir Friðrik Sophusson, forstjóri Lands- virkjunar, um ásakanir fyrrverandi starfsmanna Impregilo um slæman aðbúnað verkafólks á Kárahnjúka- svæðinu. „Við ætlumst til þess að þessir verktakar fari í öllu eftir þeim reglum sem hér gilda og ef það kem- ur í ljós að þeir brjóta þær reglur þá bera þeir að sjálfsögðu ábyrgð eins og allir aðrir á því. Við teljum það vera mjög alvarlegt þegar verktakar hjá okkur brjóta reglur og þá gild- ir einu hvort þeir eru innlendir eða erlendir. Þeim ber að fara eftir reglunum og und- ir það skrifa þeir þegar þeir gera við okkur samn- inga.“ Umræddir aðil- ar eru Portúgali sem starfaði sem verkamaður á Kárahnjúkum og ís- lensk kona, Hrafndís Bára Einars- dóttir, sem var sagt upp störfum hjá öryggisdeild Impregilo í febrúar sl. Aðspurð um ásakanirnar segir Jó- hanna Sigurðardóttir félagsmálaráð- herra að ef rétt reynist sé um mjög alvarlegt mál að ræða. Vinnumálastofnun muni rannsaka ásakanirnar og samráðsnefnd í fé- lagsmálaráðuneytinu muni einnig skoða þær og funda um málið. Hrafndís Bára segist hafa beðið með að koma með upplýsingar um hræðilegan aðbúnað á svæðinu þangað til lýsingar Portúgalans komust í hámæli. Meðal þess sem hún hafi orðið vitni að sé að verka- menn hafi verið án kyndingar í allt að 28 stiga frosti vegna rafmagns- leysis. Hún hafi ekki trú á öðru en að Vinnueftirlitið hafi vitað af þessu til- viki og að það hefði átt að „grípa fyr- ir hendur Impregilo“. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, segist ekki hafa heyrt um þetta tilvik. Hann segir málið verða skoðað og leggur áherslu á að Vinnueftirlitið hafi lagt fram fjölda fyrirmæla um úrbætur á aðbúnaði og öryggi á Kárahnjúka- svæðinu. Impregilo hafnar alfarið ásökun- um portúgalska starfsmannsins fyrrverandi í yfirlýsingu í Morgun- blaðinu í dag og vekur fyrirtækið at- hygli á því að maðurinn hafi aðeins starfað við gangagerð á virkjunar- svæðinu í tæpar tvær vikur. Ætlast til að verktakar fari í öllu eftir reglunum Friðrik Sophusson Í HNOTSKURN »Lýsingar portúgalskaverkamannsins á slæmum aðbúnaði á Kárahnjúkum hafa vakið athygli í Portúgal. »Hyggst sendiherra Portú-gals í Noregi koma til Ís- lands til að kynna sér aðbúnað á vinnusvæðinu.  Vildi ekki leika hetju | 4  Yfirlýsing | 9 ÓBYGGÐANEFND úrskurðaði í gær í þjóðlendumálum á svæði fimm, Norðausturlandi. Lögmenn ríkisins og landeigenda eru sammála um að nefndin hafi að miklu leyti fylgt kröf- um ríkisins en telja almennt of snemmt að segja til um hverju verði skotið til dómstóla. Fimm úrskurðir féllu í gær. Tveir þeirra ná yfir svæði sem liggja norð- an við Vatnajökul. Hafa umrædd landsvæði verið til umræðu vegna deilna landeigenda á svæðinu við Landsvirkjun um verðmæti réttinda yfir vatni sem nýtt verður í Kára- hnjúkavirkjun. „Verði þetta niður- staðan þá á ríkið 60-70% af vatns- réttindunum, bæði sem eigandi ríkisjarða og þjóðlendna,“ segir Jón Jónsson, einn lögmanna landeiganda í vatnsréttindamálinu. Ólafur Björnsson, lögmaður ann- arra landeigenda á svæðinu, segir að úrskurðirnir virðist við fyrstu sýn vera nokkuð harðir og að sér sýnist ekki hafa verið tekið tillit til nýfall- inna dóma Hæstaréttar vegna jarða nærri Mýrdalsjökli. Í þeim málum hafi vafi að einhverju leyti verið skýrður landeigendum í vil en sér sýnist ekki þurfa mikið til að landa- merkjabréf séu dregin í efa í úr- skurðum óbyggðanefndar frá því í gær. Hann bendir á að raunar sé af- staða Hæstaréttar til gildis landa- merkjabréfa umdeild en bréfin hafa ekki dugað ein og sér. | 27 Réttindi skipta um hendur Úrskurðað í þjóð- lendumálum í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.