Morgunblaðið - 30.05.2007, Síða 4

Morgunblaðið - 30.05.2007, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÞESSI stétta- skipting kemur fram alls staðar í þessu litla sam- félagi á Kárahnjúk- um,“ segir Hrafndís Bára Einarsdóttir, fyrrverandi starfs- maður örygg- isdeildar Impregilo, um ásakanir portú- galsks verkamanns í fjölmiðlum heimalands síns um slæma framkomu við verkafólkið. Hrafndís segir þessa stéttaskiptingu ekki bara koma fram í vinnutímanum, hennar verði einnig vart í búðunum, í mötuneytinu og jafnvel í frítímanum. „Tökum eitt dæmi. Núna í vetur þegar ég var að vinna þarna kom fyrir að svæðið varð rafmagnslaust. Það gerðist eitthvað og á meðan verið var að vinna að biluninni tók varaaflstöð svæðisins við. Því var lokað fyrir raf- magn inn á búðirnar meðan verið var að vinna á skrifstofum og í mötuneyti og svo öfugt. Varaaflstöðin hafði ekki nægjan- lega mikið rafmagn til að kynda allar vinnubúðaeiningarnar. Þar af leið- andi voru valdar tvær til þrjár ein- ingar sem fengu ekkert rafmagn yfir nóttina í 23 til 28 gráða frosti. Þessi stéttaskipting olli því að hinir verra settu verkamenn fengu ekkert raf- magn í a.m.k. næturbil.“ Hún segir kuldann hafa verið mikinn enda slökkt á rafmagns- ofnunum í einingunum. Verkamenn- irnir hafi ekki vitað hvað þeir áttu að gera. Goggunarröð á vinnusvæðinu Hrafndís segir portúgalska verka- menn, ásamt kínverskum starfs- bræðrum sínum, tilheyra undirstétt. Væru þeir ofar í „goggunarröðinni“ kynni málið að horfa öðruvísi við. „Í þessari goggunarröð sitja þeir efstir Ítalirnir í stöðum yfirmanna Impregilo. Næst koma Íslendingar þar sem þeir vita að það er lítið hægt að stugga við okkur þar sem við vitum að við getum leitað réttar okkar.“ Hún tekur undir ásakanir portú- galska starfsmannsins, orð hans um ómanneskjulegan aðbúnað séu rétt. „Við myndum aldrei sætta okkur við það að vinna við þær aðstæður sem þeir gera, sérstaklega í ganga- vinnunni. Það eru til myndir af því þar sem menn vaða vatn upp að hnjám í lokuðum göngum með lélegri loftræstingu.“ Hrafndís segir erlendum starfs- mönnum hótað að verða sendir heim verði þeir með „vesen“, sem „flokkist undir kúgun“. Þeir megi ekkert gera og með því að senda þá heim sé verið að gera þeim ókleift að leita réttar síns. Hún viti um dæmi þess að flogið hafi verið með þá sama dag og til- kynnt hafi verið um brottrekstur þeirra. Hún segir kynferðislega áreitni einnig hafa komið upp og að kínversk starfskona hafi verið send heim eftir að hafa neitað að þýðast ítalskan yfirmann. Honum hafi verið refsað með því að vera sendur heim í tvær vikur en síðan mætt aftur til starfa. Spurð hvers vegna hún hafi ekki komið með þessar upplýsingar fyrr fram í dagsljósið segir Hrafndís að hún hafi ekki talið það á sínu valdi að hafa áhrif á aðbúnað verkafólksins með lýsingum sínum. „Ég er bara venjuleg manneskja og vildi ekki leika neina hetju,“ segir Hrafndís, sem segir yfirlýsingu sem Impregilo sendi frá sér í gær „hlægi- lega“, hún vilji þó ekki tjá sig meira um hana á þessari stundu. Í um- ræddri yfirlýsingu er fullyrðingum portúgalska starfsmannsins alfarið vísað á bug. | 9 „Vildi ekki leika hetju“  Fyrrverandi starfsmaður Impregilo segir búðaeiningar á Kárahnjúkum hafa verið án kyndingar í allt að 28 gráða frosti  Flogið heim með þá sem kvarta Í HNOTSKURN »Hrafndís Bára Einars-dóttir starfaði hjá örygg- isdeild Impregilo frá lokum september 2006 þar til í febr- úar í ár. »Hrafndís segir hafa veriðreynt að segja sér upp störfum eftir tvo mánuði en fallið hafi verið frá því vegna harðra mótmæla sinna. Hrafndís Bára Einarsdóttir HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað Hringrás hf. af 25,6 milljóna króna bótakröfu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna bruna á athafnasvæði Hringrásar í Reykja- vík 22. nóvember 2004. Taldi dóm- urinn að lög um brunavarnir mæltu fyrir um að sveitarfélög bæru allan kostnað vegna sértækra slökkviað- gerða líkt og þeirra sem fram fóru á athafnasvæðinu. Eldurinn kom upp í rúmlega 200 fermetra bárujárnsklæddri skemmu sem stóð á suðausturhluta athafna- svæðis Hringrásar við Klettagarða, en þaðan náði eldurinn að teygja sig í dekkjahrúgu sem og timburhaug sem staðsett voru við og ofan á skemmunni. Slökkviliðið sendi þegar í stað allt tiltækt lið og tækjabúnað á vettvang. Erfiðlega gekk að ráða við eldhafið sem myndast hafði en aðstæður á vettvangi til slökkvistarfs voru óhag- stæðar. Slökkviliðið tók þá ákvörðun um að ráðast í sértækar slökkviaðgerðir til að hefta frekari útbreiðslu eldsins og fékk við þær aðstoð verktakafyr- irtækisins E.T. ehf., sem lagði til mannskap og tækjabúnað. Stjórn slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins tók þá ákvörðun í janúar 2005 að greiða kostnað þeirra utan- aðkomandi aðila sem komu að slökkvistarfi í umrætt sinn, þ. á m. E.T. Samkvæmt sérstökum mats- gerðum var tjón E.T. vegna aðstoðar við slökkvistarf 13,7 milljónir og 11,9 milljónir vegna hreinsunar á lóð þess í kjölfar brunans. Því greiddi slökkvilið höfuðborgarsvæðisins E.T. 25,6 milljónir og krafði síðan Hringrás um bætur. Símon Sigvaldason héraðsdómari dæmdi málið. Sveitar- félög borgi slökkvistarf Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is „ÞESSA stundina er ég að horfa á risastóran ísjaka klofna í tvennt,“ sagði Matthew Harding þegar Morg- unblaðið hafði samband við hann í gær. Harding var staddur við Jökuls- árlón og hafði nýlokið við að taka nokkur dansspor við lónið. Ástæða heimsóknar Bandaríkja- mannsins Hardings hingað til lands er nefnilega dansinn. Hann er þó ekki lærður í listinni heldur hefur hannað sinn eigin dans og hefur það að markmiði að dansa hann sem víð- ast um heiminn. „Fyrir nokkrum árum sagði ég upp starfi mínu í tölvuleikjabúð og lagði upp í ferðalag um heiminn fyrir þá peninga sem ég hafði lagt til hlið- ar. Vinur minn stakk upp á því að ég tæki dans sem ég var orðinn þekktur fyrir í vinnunni og hann vildi taka mynd af því. Í kjölfarið kviknaði svo þessi hugmynd,“ sagði Harding um ástæðu þess að hann dansar um heiminn. „Fyrirtækið Stride long- lasting gum ákvað svo að styrkja mig til áframhaldandi ferðalaga en Ísland er fyrsti viðkomustaður í ann- arri heimsreisu minni á tveimur ár- um,“ bætti hann við og sagði um 10 milljónir manna hafa horft á mynd- bönd sín frá ferðalögunum tveimur. Harding segist ekki ætla að láta dansinn við lónið nægja í ferðinni. „Í þessu ferðalagi langar mig að hafa sem flesta heimamenn með í dansinum á hverjum stað.“ Hann segir alla velkomna til að taka þátt í dansinum á Ingólfstorgi kl. 17.30 í dag. „Mig langar að biðja þá sem vilja vera með að kíkja á heimasíðuna mína og skoða dansinn áður. Ekki er verra ef fólk æfir sig aðeins heima.“ Kominn til Íslands og vill að allir dansi með á Ingólfstorgi Fjölhæfur Matt stígur dansinn í góð- um félagsskap á Galapagos-eyjum. www.wherethehellismatt.com UM 20 stórir gaskútar féllu af flutningabifreið þegar bifreiðinni var ekið um hringtorg á Vest- urlandsvegi til móts við Úlfarsfell í gærmorgun. Enginn slasaðist í atvikinu og ekkert tjón varð á bifreiðinni við þetta óhapp en ljóst má vera að mikil hætta var á ferðum. Að sögn vegfaranda virðist sem kútarnir hafi fallið út af hliðinni á bifreiðinni þegar henni var ekið um torgið, að minnsta kosti voru bílstjórinn og tveir aðrir að baksa við hliðina á bílnum þegar vegfarandinn kom á staðinn. Vildu ekkert ræða atvikið Mennirnir voru snarir í snún- ingum og gáfu sér engan tíma til að ræða um atvikið heldur stöfl- uðu kútunum aftur á bílinn eins hratt og þeir gátu. Raunar voru þeir svo snöggir að þegar lög- reglumenn mættu á staðinn til að athuga málið nánar, voru kút- arnir og bifreiðin á bak og burt. Í gær lágu því ekki fyrir nán- ari upplýsingar um á hvers veg- um þessir ógætilegu gaskúta- flutningar á mikilli umferðaræð voru. Ljósmynd/Ingvar Guðmundsson Gaskútar eins og hráviði á Vesturlandsvegi ÁREKSTUR fólksbifreiðar og jeppa varð skömmu eftir klukkan 21 í gær- kvöldi á mótum Hafnarfjarðarvegar og Kársnesbrautar í Kópavogi. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem kölluð var á vettvang ásamt sjúkraliði frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, urðu ekki alvarleg meiðsl á fólki. Hins vegar urðu töluverðar skemmdir á ökutækjunum og varð að fjarlægja þau af slysavettvangn- um með kranabíl. Tildrög slyssins eru til skoðunar hjá lögreglunni. Árekstur í Kópavogi ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.