Morgunblaðið - 30.05.2007, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
EITT af verkefnum nýs forstjóra
Straums-Burðaráss Fjárfestingar-
banka verður að vinna að því mark-
miði stjórnarinnar að Straumur
verði stærsti fjárfestingarbanki á
Norðurlöndum. Nýr forstjóri bank-
ans, William Fall, var kynntur á
fréttamannafundi í gær af stjórn-
arformanni Straums-Burðaráss,
Björgólfi Thor Björgólfssyni, sem
lét þessi orð falla við það tilefni.
Fall tekur við starfi forstjóra af
Friðrik Jóhannssyni, sem stýrt hef-
ur bankanum frá því í júní í fyrra. Í
samtali við Morgunblaðið sagðist
Friðrik munu vinna náið með Fall á
næstu mánuðum til að tryggja að
forstjóraskiptin gangi greiðlega.
Mikilvæg tímamót
William Fall var forstjóri Al-
þjóðasviðs Bank of America frá
árinu 2001, þar sem hann hafði yf-
irumsjón með og bar ábyrgð á allri
starfsemi bankans utan Bandaríkj-
anna, að því er segir í fréttatilkynn-
ingu. Þessi starfsemi mun hafa getið
af sér verulegar rekstrartekjur og
yfir 20% arðsemi eigin fjár fyrir
bankann, sem er annar stærsti
banki heims. Fall er með meistara-
próf í náttúruvísindum frá Cam-
bridge-háskóla.
Björgólfur Thor segir það mikið
gleðiefni að Fall skuli hafa ákveðið
að ganga til liðs við Straum-Burðar-
ás. „Ráðning Williams sem forstjóra
Straums-Burðaráss markar mikil-
væg tímamót í umbreytingu bank-
ans í fjárfestingarbanka sem er
samkeppnishæfur á alþjóðamörkuð-
um og með sterka stöðu á Norð-
urlöndum. Ég er sannfærður um að
William er rétti maðurinn til að leiða
bankann til enn frekari vaxtar.“
Fall sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ætlunin sé að gera
Straum-Burðarás að stærsta fjár-
festingarbanka á Norðurlöndunum.
„Við höfum sett okkur nokkur
markmið hvað þetta varðar og ger-
um ráð fyrir að þeim markmiðum
verði náð innan þriggja ára.“
Verkefninu lokið
Fall segist mjög ánægður með að
ganga til liðs við Straum-Burðarás.
„Straumur-Burðarás hefur gríðar-
leg sóknarfæri: fáir fjárfestingar-
bankar á Norðurlöndum geta byggt
framtíðarvöxt sinn á jafn sterkum
efnahagsreikningi. Ég mun halda
áfram að vinna að, og í samræmi við,
stefnu bankans og ég hlakka til að
verða hluti af framtíð Straums-
Burðaráss.“
Eins og áður segir mun Friðrik
Jóhannsson vinna með Fall fyrstu
mánuðina eftir forstjóraskiptin.
„Þegar ég settist í forstjórastólinn
gerði ég það til að vinna að
ákveðnum umbreytingum á rekstri
bankans og að ná ákveðnum mark-
miðum. Allt útlit er fyrir að mark-
miðunum verði náð mun fyrr en
áætlanir gerðu ráð fyrir og verkefni
mínu því lokið.“
Stærsti fjárfestingarbankinn
Nýr forstjóri hjá
Straumi-Burðarási
Morgunblaðið/Kristinn
Nýr stjóri William Fall, nýr forstjóri Straums-Burðaráss, ásamt Björgólfi
Thor Björgólfssyni, stjórnarformanni fjárfestingarbankans, á fundi í gær.
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
vestra hefur sektað tvo menn um
samtals 350 þúsund krónur fyrir að
hafa boðið áfeng-
isveitingar gegn
gjaldi á skemmti-
stað á Sauð-
árkróki nokkur
kvöld í mánuði á
árunum 2004 til
2006 án þess að
hafa áður aflað
sér lögboðins
vínveitingaleyfis.
Talsvert magn af áfengi var einnig
gert upptækt.
Annar maðurinn var einnig sak-
felldur fyrir að hafa látið birta í
héraðsdagskránni Sjónhorninu
auglýsingu um keppni í áfeng-
isdrykkju á skemmtistaðnum Bar-
inn á Sauðárkróki og í umræddri
keppni veitt umtalsvert magn
áfengis gegn gjaldi til 3 ein-
staklinga sem ekki höfðu náð 20
ára aldri og tóku þátt í drykkju-
keppninni.
Keppt var í því hver keppenda
gæti innbyrt flest Ópal- eða Tópas-
vodkaskot með 27% vínandastyrk-
leika. Afleiðingarnar urðu þær að
unglingarnir þrír voru fluttir á
sjúkrahús vegna ofneyslu áfengis.
Sektaður fyrir
að standa fyrir
drykkjukeppni
ÖSSUR Skarp-
héðinsson iðn-
aðarráðherra
hefur ráðið Einar
Karl Haraldsson
sem aðstoð-
armann sinn.
Einar Karl er
fæddur 17. des-
ember 1947.
Hann hefur und-
anfarin ár starfað
sem ráðgjafi, en var áður blaðamað-
ur og ritstjóri.
Einar Karl hefur tekið þátt í starfi
Samfylkingarinnar undanfarin ár
og var um tíma varaþingmaður
flokksins. Hann er kvæntur Stein-
unni Jóhannesdóttur rithöfundi.
Einar Karl
aðstoðar Össur
Einar Karl
Haraldsson
KARLMAÐUR hefur í Héraðsdómi
Norðurlands vestra verið dæmdur í
250 þúsund króna sekt fyrir að hafa
barnaklám undir höndum. Einnig
voru tölva og harður diskur gerð
upptæk auk þess sem maðurinn
þurfti að greiða sakarkostnað.
Málið kom upp í nóvember 2005
þegar ríkislögreglustjóra bárust
upplýsingar frá Interpol um að ver-
ið væri að rannsaka birtingu barna-
kláms á Netinu. Rannsókn málsins
erlendis beindist að myndskeiði
sem kallaðist Max og innihélt
barnaklám. Rannsókn Interpol
hafði leitt í ljós að tölva með IP-tölu
sem rakin var til umrædds manns
hefði verið notuð til að hlaða niður
myndbandi þessu.
Gerð var húsleit á heimili manns-
ins og fundust í tölvu hans 54 ljós-
myndir og eitt myndband sem skil-
greind voru sem barnaklám.
Ljósmyndunum hafði verið eytt af
tölvunni en með sérstöku tölvu-
forriti tókst að endurheimta þær.
Myndbandinu hafði hins vegar ekki
verið eytt. Myndbandið, sem varð
tilefni rannsóknar á tölvunni,
fannst hins vegar ekki.
Í niðurstöðu dómsins segir, að við
ákvörðun refsingar beri að horfa til
þess að maðurinn hafi ekki áður
sætt refsingu og einungis fjórar til
sex af ljósmyndunum geti talist
grófar án þess þó að þar sé um
myndir af alvarlegustu gerð að
ræða. Þá sé myndskeiðið heldur
ekki verulega gróft.
250 þúsund
króna sekt fyr-
ir barnaklám
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
„VIÐ viljum sýna fram á að það er
hægt að reyna á sig á annan hátt en
að vera í svitabaði á hlaupabretti.
Það er líka hægt að vera úti og gera
eitthvað skemmtilegt saman,“ segir
Leifur Dam Leifsson, sem er einn
áttmenninga sem ætla um aðra helgi
að ganga á hæstu tinda í fimm lands-
hlutum. Hópurinn ætlar sér að ljúka
göngunni á einni helgi. Enginn átt-
menninganna hafði reynslu af fjall-
göngu þegar þeir settu sér þetta
markmið, en hafa æft stíft í vetur.
Auk Leifs eru í hópnum Birgir
Skúlason, Ívar Þórólfsson, Ívar
Magnússon, Stefán Aðalsteinn
Drengsson, Kristín Sigríður Arn-
laugsdóttir, Magnús Björnsson, Ró-
bert Traustason og Sigurgeir Andr-
ésson.
Tindarnir fimm eru hæstu fjöll í
sínum landshlutum. Þeir eru Heið-
arhorn á Vesturlandi, sem er 1.053
metra hátt fjall, Kaldbakur á Vest-
fjörðum, sem er 998 metra hár, Kerl-
ing á Norðurlandi, sem er 1.538
metra hátt fjall, Snæfell á Austur-
landi, en hæð þess er 1.833 metrar
og Hekla, sem er hæsta fjall á Suð-
urlandi, 1.491 metrar.
Íslandsmet í Esjugöngu
„Við ætlum að leggja af stað eftir
að vinnu lýkur á föstudegi og mark-
miðið er að ljúka þessu þannig að við
getum mætt í vinnu kl. 8 á mánu-
dagsmorgni,“ sagði Leifur.
Leifur sagði að áttmenningarnir
hefðu ekki haft neina þjálfun í fjall-
göngu þegar þessi ákvörðun var tek-
in, en hópurinn væri búinn að æfa af
miklum krafti í vetur í Boot Camp.
„Við reynum að ganga á Esjuna
a.m.k. einu sinni viku.“
Áætlun hópsins gerir ráð fyrir að
gengið verði á fjöllin dag og nótt.
Síðan verður sofið í bílnum. Leifur
sagðist telja góðar líkur á að hópnum
tækist ætlunarverk sitt. „Við mun-
um a.m.k. ekki skilja neinn eftir.“
Í tengslum við gönguna stendur
hópurinn fyrir landssöfnun til
styrktar Sjónarhóli – ráðgjafar-
miðstöð fyrir langveik og fötluð
börn.
Áttmenningarnir láta sér ekki
nægja að sigra fimm tinda um aðra
helgi. Núna um helgina ætlar hóp-
urinn að stuðla að því að sett verði
Íslandsmet í Esjugöngu. Taldir
verða þeir sem ganga á fjallið á laug-
ardag frá kl. 8–20. Markmiðið er
ekki að allir komist á toppinn, heldur
að stuðla að því að fólk fari út í nátt-
úruna og njóti sín í góðra vina hópi.
Ganga á fimm
tinda um eina helgi
Fimm tindar Hópurinn hefur verið duglegur að æfa sig í vetur, en hann
ætlar um aðra helgi að ganga á hæstu fjöll í fimm landshlutum.
MÓÐURFÉLAG Norðuráls á
Grundartanga, Century Aluminum
Company, hefur óskað eftir því við
kauphöll OMX Nordic Exchange á
Íslandi að hlutir félagsins verði
skráðir á First North-hlutabréfa-
markaðinn hér á landi.
Í undirbúningi er að auka hlutafé
Century Aluminum um fjórðung og
gæti söluandvirði hlutanna numið
allt að 28 milljörðum kr. miðað við
núverandi markaðsverð. Íslenskum
stofnana- og fagfjárfestum verður
boðið að taka þátt í útboðinu, sem
fram fer samtímis í Bandaríkjunum
og á Íslandi segir í tilkynningu.
Century Aluminum er skráð á
bandaríska Nasdaq-markaðinn og er
fyrsta skráða fyrirtækið í Bandaríkj-
unum, sem sækir um skráningu á Ís-
landi. Félagið verður því bæði skráð
í Bandaríkjunum og á Íslandi.
Umsjón með útboðinu á Íslandi
hafa Kaupþing og Landsbankinn.
Fyrir tveimur árum önnuðust bank-
arnir 365 milljóna dollara fjármögn-
un vegna stækkunar og endurfjár-
mögnunar álvers Norðuráls á
Grundartanga. Áætlað er að nota
megnið af afrakstri útboðsins til að
fjármagna fyrirhugað álver í Helgu-
vík. Reiknað er með að framkvæmd-
ir geti hafist þar í byrjun næsta árs.
Ragnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar og
fjármálasviðs Norðuráls, segir að
skráning Century Aluminum á Ís-
landi sé í samræmi við þá stefnu fyr-
irtækisins að treysta böndin við ís-
lenskt samfélag. Áður hafi verið
leitað til íslenskra banka með verk-
efni og vel tekist til. Nú sé stefnt að
því að auka enn samstarfið, með því
að gera fyrirtækið sýnilegra á ís-
lenska fjármálamarkaðnum.
Útboðsferlið hefst í dag með kynn-
ingu fyrir fagfjárfesta og stendur út
næstu viku. Umsjónaraðilar útboðs-
ins á alþjóðavísu eru Credit Suisse
Securities (USA) og Morgan Stanley
& Co. Incorporated, en Kaupþing og
Landsbankinn sjá um framkvæmd-
ina hér á landi.
Kaupþing Securities Inc. í New
York er meðal söluaðila í Bandaríkj-
unum.
Century í íslensku kauphöllina
Móðurfélag Norðuráls fyrsta bandaríska fyrirtækið á First North-markaðinn hér
Ljósmynd/Norðurál
Hlutafjárútboð Innlendum fjárfestum gefst nú tækifæri á að eignast
hlutabréf í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls á Grundartanga.