Morgunblaðið - 30.05.2007, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 11
FRÉTTIR
IFSA-kraftakeppnin um titilinn
sterkasti maður Íslands 2007 fór
fram á laugardag í Smáralind og
eftir að ýmislegt hafði gengið á
stóð Benedikt Magnússon uppi
sem sigurvegari annað árið í röð.
Stefáni Sölva Péturssyni gekk
mjög vel í keppninni og vann
glæsilega sigra í tveimur fyrstu
greinunum sem voru Conan
Mylluganga og að jafnhenda Al-
can álkubba yfir höfuðið, en þeg-
ar hann var á góðri siglingu í
þriðju greininni, sem var dekkja-
velta með 380 kg, meiddist hann
á handlegg og varð að hætta
keppni.
Benedikt Magnússon gaf hins-
vegar hvergi eftir og varð fram-
arlega í öllum greinum og vann
m.a. Herkúlesarhaldið með yf-
irburðum. Í síðustu grein mótsins
lyfti hann létt öllum fimm Atlas-
steinunum, allt upp í 180 kg að
þyngd upp á háar tunnur.
Eftir að Stefán Sölvi Pétursson
varð að hætta keppni tryggði
Georg Ögmundsson sér annað
sætið í heildarkeppninni. Pétur
Bruno Thorsteinsson, sem var að
taka þátt í sinni fyrstu krafta-
keppni, náði bronsinu. Gesta-
keppandi mótsins Jörgen Ljung-
berg stóð sig vel og sigraði í
réttstöðulyftunni með yfirburð-
um.
Kraftakarlar í Smáralind
Í TILEFNI alþjóðlega tóbakslausa dagsins 31. maí verð-
ur opið hjá Ráðgjöf í reykbindindi frá kl. 10–22.
Ráðgjöfin er með grænt númer 800-6030 og veitir öll-
um ráðgjöf sem vilja hætta að reykja eða nota annað tób-
ak. Þegar hringt er í 800-6030 fær viðkomandi strax
samband við sérfræðing sem veitir ráðgjöf, stuðning og
eftirfylgd í formi endurhringinga, einnig er sent
fræðsluefni. Þjónustan er ókeypis.
Auk þess að hafa opið frá kl. 10–22 á tóbakslausa dag-
inn, hefur verið ákveðið að lengja opnun reyksímans til
frambúðar og verður opið frá kl. 17–20 alla virka daga.
Á heimasíðu reyksímans www.8006030.is er einnig hægt að senda inn
fyrirspurnir, nálgast fræðsluefni o.fl. Heilbrigðisstofnun Þingeyinga rekur
þessa þjónustu í samstarfi við Lýðheilsustöð. Þess má einnig geta að innan
skamms mun Lýðheilsustöð opna gagnvirka heimasíðu www.reyklaus.is
sem verður í umsjón ráðgjafa reyksímans.
Tóbakslausi dagurinn
ELDUR kviknaði í feiti í potti á
eldavél í íbúð á jarðhæð í fjölbýlis-
húsi á Eiðismýri 30 á Seltjarnarnesi
klukkan ellefu í gærmorgun.
Tvennt var í íbúðinni er eldurinn
kom upp. Flytja þurfti karlmann á
slysadeild en hann var ekki talinn
alvarlega slasaður. Slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins gekk greiðlega
að slökkva eldinn og reykræsta.
Eldur í feitipotti
BÍLL lenti sl. laugardag á næl-
onkaðli, sem strengdur hafði verið
þvert yfir veginn um Syðridal í Bol-
ungarvík. Að sögn lögreglu hafði
kaðallinn verið bundinn um staura í
grindarhliði og urðu talsverðar
skemmdir á bifreiðinni. Ungur
drengur viðurkenndi að hafa gert
sér þetta að leik og segir lögreglan,
að hann hafi ekki virst gera sér
grein fyrir þeirri hættu sem þetta
tiltæki skapaði.
Kaðall yfir veginn
NÚ standa yfir endurbætur á slysa-
og bráðadeild á Landspítala í Foss-
vogi. Sjúklingar og aðrir verða fyr-
ir óþægindum á meðan á fram-
kvæmdunum stendur mestan hluta
ársins 2007. Starfsfólk slysa- og
bráðadeildar biðst velvirðingar á
því ónæði sem kann að skapast og
væntir skilnings á aðstæðum.
Endurbætur
Landspítali í Fossvogi.
VERZLUNARSKÓLA Íslands var slitið í hundraðasta og
annað sinn laugardaginn 26. maí. Að þessu sinni voru
brautskráðir 233 stúdentar. Dux scholae var Jóhanna
Margrét Gísladóttir á hagfræðibraut. Fékk hún 9,5 í aðal-
einkunn. Hún var einnig féhirðir nemendafélagsins.
Aðrir nemendur með fyrstu ágætiseinkunn voru Marta
Björnsdóttir, Máni Bernharðsson, Bryndís Einarsdóttir,
Sóley Emilsdóttir, Anton Valur Jónsson, Marta María
Friðriksdóttir, Guðrún Þóra Arnardóttir, Hjördís Sif Við-
arsdóttir og Hildur Ósk Jónsdóttir. Þau fengu öll við-
urkenningar ásamt fjölda annarra nemenda fyrir fram-
úrskarandi árangur í einstökum greinum.
Katrín Pétursdóttir, varaformaður Viðskiptaráðs,
ávarpaði samkomuna og veitti verðlaun fyrir bestan ár-
angur í viðskiptagreinum. Vilmundur Sveinsson, fráfar-
andi forseti nemendafélagsins, flutti ávarp fyrir hönd ný-
stúdenta og Gunnar Sigurðsson kerfisfræðingur, 25 ára
stúdent, fyrir hönd afmælisárganga. Árni Már Þrast-
arson, nýkjörinn forseti nemendafélagsins, heiðraði þá ný-
stúdenta sem skarað hafa fram úr í félagslífi.
Nemendur Verzlunarskólans í vetur voru tæplega 1.200
í dagskóla og um 800 í fjarnámi. Skólinn er nú stærsti
framhaldsskóli landsins, með heimild fyrir 1.441 ársnem-
anda og mun enn vaxa næstu ár. Í ræðu Sölva Sveinssonar
skólastjóra kom fram að í vor verða í fyrsta sinni innritaðir
nemendur á alþjóðlega námsbraut þar sem kennt verður á
ensku. Viðskiptaráð Íslands fól skólanum að koma þessu
námsframboði á laggirnar og Glitnir hf. er sérstakur sam-
starfsaðili skólans að þessu verkefni.
Þá kom fram í máli skólastjóra að menntamálaráðu-
neytið hefur í tilraunaskyni veitt skólanum heimild til þess
að innrita nemendur úr 9. bekk með sérstökum skilyrðum.
Allmargir hafa nú spurst fyrir um þessa nýbreytni.
Þá vék skólastjóri að því, að Viðskiptaráðið hefur skipað
starfshóp listamanna og starfsfólks VÍ til þess að vinna að
stofnun Listmenntaskóla Íslands sem tæki við húsnæði
Háskólans í Reykjavík haustið 2010. Hópurinn mun ráðast
í þarfagreiningu og gera viðskiptaáætlun. Fram kom í
máli skólastjóra að aðsókn í skólann hefði aldrei verið jafn-
mikil og síðastliðið vor og að allt stefndi í sömu átt nú.
Skólastjóri kvaddi nokkra kennara sem starfað hafa lengi
við skólann, Baldur Sveinsson, sem var nemandi, síðan
kennari, kennslustjóri og umsjónarmaður tölvukerfa, og
hefur verið viðloðandi skólann í hálfa öld, Kristínu I. Jóns-
dóttur, konu hans, tölvukennara síðan 1971, og Friðrik
Sigfússon, enskukennara síðan 1965. Alexía Gunn-
arsdóttir, kona hans, íslenskukennari síðan 1975, lét af
störfum síðastliðið vor.
Féhirðirinn dúxaði og
sópaði til sín verðlaunum
Ljósmynd/JLong
Dúx Jóhanna M. Gísladóttir og Sölvi Sveinsson.
Ágætiseinkunn Alls hlutu 10 nemendur Verzlunarskóla Íslands ágætiseinkunn á stúdentspófi á þessu vori.
Aðsókn að Verzlunarskóla Íslands aldrei verið jafn mikil
BRAUTSKRÁNING frá
Iðnskólanum í Hafnarfirði
fór fram 19. maí sl. Braut-
skráðir voru 80 nemendur,
48 í löggiltum iðngreinum,
26 í tækniteiknun, listnámi
og af útstillingabraut, 1 úr
meistaraskóla rafiðna og 3
nemendur útskrifuðust sem
stúdentar af listnámsbraut.
Verðlaun fyrir bestan ár-
angur á burtfararprófi, en
þau eru veitt af Rót-
arýklúbbi Hafnarfjarðar,
komu í hlut Birnu Sigfríðar
Björgvinsdóttur, nemenda
af listnámsbraut, sem út-
skrifaðist með ágæt-
iseinkunn Verðlaun frá Samtökum iðnaðarins, fyrir frá-
bæran árangur á burtfararprófi, koma í hlut tveggja
nemenda, þeirra Sveinbjargar Gunnarsdóttur af útstill-
ingabraut og Ingibjargar Erlingsdóttur hársnyrtinema,
sem var með hæstu einkunn iðnnema.
Ingibjörg Erlingsdóttir hársnyrtinemi fékk verðlaun
frá fyrirtækinu Árgerði, og Laufey Haraldsdóttir hár-
snyrtinemi fékk verðlaun frá Halldóri Jónssyni hf.
Viðurkenningu fyrir bestan árangur í íslensku á loka-
prófi fékk Elsa Arney Helgadóttir af tækniteikn-
arabraut.
Viðurkenningu fyrir bestan árangur í dönsku hlaut
Sigurbjörg Ósk Sigurðardóttur af tækniteiknarabraut
Verðlaunin voru gjöf frá danska sendiráðinu.
Verðlaun voru einnig veitt fyrir hönnun á hinni árlega
vorsýningu skólans. Verðlaun fyrir bestu hugmyndina
hlaut Erla Guðrún Arnmundardóttir. Verðlaun fyrir
besta handverkið hlaut Edda Svavarsdóttir. Verðlaun
fyrir áhugaverðasta hlutinn hlaut Edda Katrín Ragn-
arsdóttir. Merk tímamót urðu í sögu skólans við þessa
brautskráningu því í fyrsta skipti voru brautskráðir
nemendur með full réttindi sem iðnsveinar. Við breyt-
ingu sem gerð var á námskrá í bygginga- og mann-
virkjagreinum og kennsla hófst eftir haustið 2003 var
ákveðið að nemendur tækju sveinspróf í lok síðustu
námsannar sinnar í skólanum. Í þetta skipti voru það 9
húsasmíða- og 6 pípulagnanemar sem tóku sín sveins-
próf i skólanum jafnhliða burtfararprófi. Þessir nem-
endur fengu í raun fullgild atvinnuskírteini þó sveins-
bréfin verði ekki afhent fyrr en í haust.
Við skólaslitin ræddi skólameistari m.a. um húsnæð-
isvanda skólans og greindi frá vinnu starfshóps á vegum
menntamálaráðuneytisins sem er að kanna á hvern hátt
megi leysa þann vanda sem skólinn er í varðandi hús-
næðismál. Starfshópurinn hefur fengið ráðgjafarfyr-
irtæki til að gera úttekt á húsnæðisþörf skólans.
Fyrirtækið hefur skilað niðurstöðum og leggur til að
byggð verði viðbygging upp á 2.700 fermetra.
Iðnskólinn í Hafnarfirði brautskráði 80 nemendur
Nemendur brautskráðir
með full réttindi iðnsveina
Útskrift Kristel Assa Adolfsdóttir, Jóhanna Margrét
Halldórsdóttir og Sólveig Gunnarsdóttir útskrifuðust
sem stúdentar af listnámsbraut Iðnskólans.
Nám Birna Sigfríður
Björgvinsdóttir hlaut verð-
laun fyrir bestan árangur.
HÁTÍÐ hafsins verður haldin í ní-
unda sinn helgina 2.–3. júní nk. en
hátíðin samanstendur af Hafn-
ardeginum og Sjómannadeginum.
Árið 1999 voru þessir tveir hátíð-
ardagar sameinaðir í tveggja daga
hátíðahöld á Miðbakka Reykjavík-
urhafnar. Í ár fara fram tvær sigl-
ingakeppnir af ólíkum toga, ann-
arsvegar siglingakeppni
Siglingaklúbbs Reykjavíkur Bro-
keyjar og hinsvegar brautakeppni
Snarfara, félags sportbátaeiganda
í Reykjavík. Brokey heldur sína
árlegu siglingakeppni og hefst
hún laugardaginn 2. júní kl. 12
með fallbyssuskoti við Miðbakk-
ann. Seglskútur sigla þöndum
seglum um sundin blá, en farinn
verður svokallaður Eyjahringur. Í
fyrsta sinn á hátíðinni verður á
laugardag kl. 16 efnt til brauta-
keppni Snarfara. Keppt verður á
Rauðarárvík og ræst verður í
kverkinni á móts við umferðarljós
Sæbrautar og Kringlumýr-
arbrautar.
Morgunblaðið/Þorkell
Hátíð Skútur sigla seglum þöndum
á Sundunum á Hátíð hafsins.
Siglarar á
Hátíð hafsins