Morgunblaðið - 30.05.2007, Síða 12

Morgunblaðið - 30.05.2007, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Allt til rafsuðu Þú færð allt til rafsuðu hjá okkur Tæki, vír og fylgihluti Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf                                                                                 !                                             !  !  !  !  !  ! "# $#  %&  '   !  !  !  !  !  !  () *  +,(  () *  +,(   () *  +,(          -&    (& . #  /  , % # -&  (& #   .   !   ( &!  (& #  .    !   (    !  -&   (& # #  . # 0 / . !  , * -  -   ! . "   ! .  &!   ! .    -  -  12 !     !  !  !  !  !  !  "  "    "   #" MENN sem voru á skólaskipinu Sæ- björgu sem ungir drengir, á árunum 1962 til 1964, munu hittast í Höfða á sjómannadaginn til að rifja upp gamlar og góðar minningar frá þeim tímum. Skip var gert út sem skóla- skip í þrjú ár. Fór það þrjár ferðir yf- ir sumarið og voru um 20 drengir um borð í hverri ferð, 13 til 14 ára. Hver sjóferð tók um þrjár vikur og voru stundaðar veiðar með línu, net og handfæri og aflanum landað víða um land. Bernharð Hjaltalín var einn þess- ara drengja. Hann segir að þetta hafi verið ómetanleg reynsla og lærdóm- ur, en þá var auk þessa nemendum Lindargötuskóla og Laugarnesskóla boðið upp á kennslu í sjóvinnu í Ár- mannsheimilinu. „Þetta tókst mjög vel og var okkur góður skóli. Því miður held ég að lítið sé um framboð á svona námi nú, bæði sjóvinnu í landi og sjóferðum. Okkur langar til að styðja við hugmyndir um að bæta úr þessu á einhvern hátt og styðja við bakið á þeim, sem hugsanlega færu út í svona starfsemi. Þetta gæti bæði haldið unglingunum frá sollin- um og þjálfað upp góða sjómenn,“ segir Bernharð. Þeir félagar ætla að hittast í Höfða klukkan 16.00 á sjó- mannadaginn og þar verða viðstadd- ir skipstjórarnir á Sæbjörgu, Helgi Hallvarðsson og Þröstur Sigtryggs- son ásamt bátsmanninum Pétri Ólafssyni. Þriðji skipstjórinn, Bjarni Helgason, er látinn. Um kvöldið verður svo sjómannamessa í Laug- arneskirkju hjá Hildi Bolladóttur. Drengirnir af Sæbjörgu hittast í Höfða Ljósmyndasafn Reykjavíkur/SVÞ Sjósókn Hópur ungra manna burðast með línurennu um borð í björg- unarskipinu Sæbjörgu. Um er að ræða hóp stráka sem sóttu sjóvinnunám- skeið á vegum Sjóvinnunefndar Æskulýðsráðs Reykjavíkur í samvinnu við Slysavarnafélag Íslands, Landhelgisgæsluna og Lindargötuskóla. SALTFISKVERKUN hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum. Slík verkun byggðist áður á einfaldri stæðusöltun en nýjar aðferðir við verkun hafa skilað framleiðendum allt að því 15% aukningu í heildarnýt- ingu. Þessi þekking sem skapast hef- ur í þróunarverkefnum hefur skilað bættri afkomu við saltfiskverkun og stuðlað að góðri markaðsstöðu ís- lenskra fyrirtækja á erlendum mörk- uðum. Þetta kemur fram í grein Kristínar Þórarinsdóttur og Sigur- jóns Arasonar hjá Matís (Matvæla- rannsóknir Íslands). Það var aldamótaárið 1800 sem Ís- lendingar sendu í fyrsta skipti út saltfiskfarm á eigin vegum. Upp frá því jókst saltfiskverkun Íslendinga smátt og smátt og í upphafi 21. ald- arinnar er saltfiskur ennþá mikilvæg útflutningsvara þó að nýjar og breyttar geymsluaðferðir hafi litið dagsins ljós í millitíðinni. Í því sambandi má nefna að heild- arverðmæti saltfisks var 17,3 millj- arðar eða um 16,5% af heildarút- flutningsverðmæti sjávarafurða árið 2006. Blautverkaður saltfiskur úr þorski skilaði mestu útflutningsverð- mæti, sem nam 11,4 milljörðum króna. Framleiðsluverðmæti salt- aðra og hertra afurða jókst um 17,5% og magn um 1,4%. Í greininni er meðal annars fjallað um bætta nýtingu í söltun á fiski: „Vinnslunýting ræðst mest af efnis- eiginleikum hráefnis og meðferð aflans frá veiðum til vinnslu og spilar árstími og holdafar fisksins mikið inn í hver flatnings- eða flakanýtingin verður. Verkunarnýting ræðst mikið af því verkunarferli sem valið er og hvernig því er stýrt í gegnum söltun og verkun fiskvöðvans, en einnig ræður hér miklu þurrefnisinnihald fiskvöðvans og eðliseiginleikar hans. Pæklun skilar um 72% verkunar- nýtingu á meðan pækilsaltaður fisk- ur er að skila um 67% og þurrsalt- aður um 65% nýtingu. Ef þorskur er tekinn mjög ferskur í söltun, þ.e. fyr- ir dauðstirðnun, verður verkunar- nýting um 10% lakari, en af þessum ástæðum lagðist saltfiskframleiðsla af á sjó. Val á framleiðsluferli fyrir saltfisk skiptir miklu fyrir heildar- nýtingu eins og sést best á myndinni, en þar er sýnd heildarnýting fyrir flattan þorsk, en eins og áður hefur komið fram eru þessar tölur mjög háðar framleiðendum, hráefni og að- stæðum í verkunarferlunum. Þróun í framleiðslu saltfisks hefur verið mest í þá átt að bæta verkunar- nýtingu, enda er þar eftir mestu að slægjast þar sem vinnslunýting er tiltölulega stöðug og ræðst mest af holdafari og stærð fisks og vali á vél- um við vinnsluna. Nýting Heildarnýting hefur aukist veru- lega við þróun verkunaraðferða sem hefur verið mjög hröð á síðustu ár- um. Heildarnýting fyrir flattan fisk hefur aukist úr 43%, sem var með- altal fyrir árið 1970 í 51% sem náðist um 1990 og eftir 1995 hafa miklar breytingar átt sér stað. Framleið- endur eru jafnvel að ná um og yfir 58% heildarnýtingu, háð verkunar- ferlum hvers og eins. Á sama tíma hefur verið unnið markvisst af því að viðhalda gæðaímynd íslenskra salt- fiskafurða.“ Nýting í saltfiski hefur aukist úr 43% í 58% Framleiðsluverðmæti saltaðra og hertra afurða jókst um 17,5% á síðasta ári          ! " # $ % &'(  )' (  &* (  &*    *' &*   +,'  - *' )' Í HNOTSKURN »Heildarverðmæti saltfisksvar 17,3 milljarðar eða um 16,5% af verðmæti sjáv- arafurða árið 2006. »Framleiðendur eru jafn-vel að ná um og yfir 58% heildarnýtingu eftir verk- unarferlum hvers og eins. »Ef þorskur er tekinnmjög ferskur í söltun, þ.e. fyrir dauðstirðnun, verður verkunarnýting um 10% lak- ari. SJÓMANNADAGSBLAÐ Vest- mannaeyja 2007 er komið út. Þetta er 57. árgangur. Í blaðinu getur m.a. að líta greinar um nýsköpunartogara Vestmannaeyinga, íslenskan skipa- smið í Ástralíu, kapalskipið Henry P. Lading, sjómælingar við Vestmanna- eyjar, strand Dragör á Bakkafjöru og margt margt fleira. Ritstjóri er Frið- rik Ásmundsson á Löndum. Forsíðu- myndina málaði Ásgeir Þorvaldsson sem lengi var til sjós á bátum frá Eyj- um. Sjómannadagsblaðið kemur út fimmtudaginn 31. maí og verður til sölu á eftirfarandi stöðum: Umferð- armiðstöðinni, Grandakaffi, víða á Suðurnesjunum, Selfossi, Eyrar- bakka og í Þorlákshöfn. Sjómanna- dagsblað Vestmanna- eyja 2007

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.