Morgunblaðið - 30.05.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 17
MENNING
KRÝSUVÍKURKIRKJA hefur staðið í 150 ár og af því tilefni var efnt til af-
mælisfagnaðar síðastliðna helgi. Meðal þess sem fram fór var flutningur
tónverks eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð Matthíasar Johannessen.
Ágúst Ólafsson óperusöngvari, Björn Thoroddsen gítarleikari, Hlín Er-
lendsdóttir fiðluleikari og Guðmundur Sigurðsson, organisti og kantor
Hafnarfjarðarkirkju, önnuðust tónlistarflutninginn en Þorleifur Hauksson
íslenskufræðingur sá um ljóðalesturinn.
Færri komust að en vildu á tónleikana í Krýsuvíkurkirkju en þeir sem
ekki fengu sæti í kirkjunni hlýddu á það sem fram fór úti í sólskininu.
Verkið var svo endurflutt í Sveinshúsi en við það tilefni færði Matthías
Sveinssafni sérstakt eintak af ljóðabók sinni, Flýgur örn yfir. Sveinn
Björnsson hafði þegið þetta sama eintak að gjöf frá Matthíasi en gaf svo
skáldinu eintakið aftur í afmælisgjöf og var þá búinn að myndskreyta öll
ljóðin með því að teikna og lita yfir þau í bókinni.
Matthías Johannessen
og Atli Heimir í Krýsuvík
Listamenn Matthías Johannessen og Atli Heimir Sveinsson í Sveinshúsi.
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200www.iav.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
SÓLTÚN – REYKJAVÍK Kynning á húsi í byggingu Sóltún 8–12
Hafin er sala á íbúðum í húsum númer
8–12 í Sóltúni en afhending þeirra er
í nóvember 2007.
Að því tilefni verðum við með til sýnis
sambærilega, fullkláraða íbúð 106
í Sóltúni 18, á morgunn 31-maí
milli 16 og 18.
Verið velkomin –
sjón er sögu ríkari
EINSTÖK litadýrð íslenska hestsins
hefur veitt Þuríði Sigurðardóttur inn-
blástur við undirbúning sýning-
arinnar „Stóð“ í sýningarrýminu
Suðsuðvestur í Keflavík. Í mál-
verkum sem eru vandlega unnin og
að því er virðist af vísindalegri ná-
kvæmni hefur Þuríður gert nokkurs
konar eftirmyndir afmarkaðra hluta
úr feldi hrossa. Sýningargestum
gefst kostur á að gaumgæfa hvernig
hárin liggja og hvernig ólík litbrigði
falla saman í mynstur og að velta fyr-
ir sér um hvaða hluta feldsins sé að
ræða. Efniskennd verkanna kveikir
löngun til að snerta þau líkt og raun-
verulegan feld eða textílverk.
Aðdráttarafl þessara fallega út-
færðu verka er ekki síst fólgið í
spennu milli raunveruleika og blekk-
ingar, í formi „fígúratífra“ eft-
irmynda hests annars vegar og af-
straktmynda hins vegar, en
upphenging verkanna ýtir undir hina
óhlutbundnu og mynsturkennda
þætti. Grannskoðun verkanna dregur
ekki aðeins athygli að gerð hross-
húðar heldur, jafnvel í sömu andrá, að
eiginleikum málverksins. Rauðleitur
hestur rennur saman við minningu
undirritaðrar um rauða pensilskrift í
skeggi á sjálfsmynd málarans fræga
Vincents van Gogh. Þótt tjáning-
arhita hans sé ekki fyrir að fara í yf-
irveguðum feldverkunum er mál-
verkið sjálft – vinna málarans og
myndrænar vangaveltur – ekki síður
viðfangsefni Þuríðar en viðkynni
hennar af íslenska hestinum.
Myndbandsverk af flaksandi faxi
hests (án hljóðs) undirstrikar tog-
streituna, sem birtist í málverkunum,
milli hins óhlutbundna og þekkj-
anlegs svipmóts og áferðar. Mynd-
bandið kallast einnig á við end-
urtekna, dáleiðslukennda þætti
málverkanna.
Allt með feldi
MYNDLIST
Suðsuðvestur
Til 17. júní 2007. Opið fi. og fös. kl. 16-
18 og um helgar kl. 14-17. Aðgangur
ókeypis.
Þuríður Sigurðardóttir – Stóð
Stóð Frá sýningunni í Suðsuðvestur.
Anna Jóa
TÓNLEIKAR Icelandic Sound
Company geta talist með óvenju-
legri atriðum á Listahátíð í ár. For-
vitnilegri hluti þeirra hljóðstemn-
inga sem áhorfendur fengu að
kynnast er að miklu leyti hugarsmíð
tveggja grunnmeðlima kompanísins,
þeirra Ríkharðar H. Friðrikssonar,
gítarleikara og tónskálds og Gunn-
ars Kristinssonar slagverksleikara
og tónskálds, en þeir hafa þróað
þessar sérstöku hljóðmyndir und-
anfarið ár með hljóðfærum sínum og
aðstoð hljóðbreytitækni. Þeir fé-
lagar fengu til liðs við sig organist-
ann og tónskáldið Kirsten Galm frá
Freiburg sem þandi kirkjuorgelið og
hinn þjóðþekkta söngvara og tón-
skáld Egil Ólafsson sem setti saman
texta verksins og skrifaði lagboða
við hann, en þess ber að geta að
sungni textinn var eini efniviðurinn
sem var fyrirfram saminn, en allt
annað á tónleikunum var spuni með
ákveðinni beinagrind. Það kom á
margan hátt mjög vel út að hver
þáttur skyldi skiptast í sunginn kafla
og svo hljóðskúlptúr. Bæði gaf inni-
hald textanna áhorfendum hug-
myndir til að ganga út frá í upplifun
sinni á hljóðskúlptúrunum og eins
var ákveðin hvíld fólgin í að skipta á
milli abstrakt hljóðheima og la-
grænna en stundum nokkuð drama-
tískra sunginna kafla, oftast við
taktfastan og hljómrænan undirleik.
Umgjörð tónleikanna var skemmti-
leg, heildarmyndin mátulega skýr,
performansinn góður og hljóð-
heimarnir krassandi. Það var tær-
leiki og birta yfir atburðinum og
spennandi uppátæki eins og að not-
ast við kirkjuklukkurnar sem og
skúlptúr eftir Dieter Roth (Kúluspil
1959) sem hljóðfæri á tónleikunum
gerðu upplifunina eftirminnilegri.
Huguð hljóð og tónar
TÓNLIST
Listahátíð
Fram komu Gunnar Kristinsson, slag-
verksleikari og tónskáld, Ríkharður H.
Friðriksson, gítarleikari og tónskáld,
Kirsten Galm, organisti og tónskáld og
Egill Ólafsson söngvari og tónskáld. Hall-
grímskirkju, 23. maí kl. 20.
Icelandic Sound Company
Morgunblaðið/RAX
ISC „Umgjörð tónleikanna var skemmtileg, heildarmyndin mátulega skýr,
performansinn góður og hljóðheimarnir krassandi.“
Ólöf Helga Einarsdóttir
Í SUMAR verða haldnir tónleikar í stofunni á Gljúfra-
steini alla sunnudaga klukkan 16.00.
Fjölbreyttur hópur tónlistarmanna mun leika á stofu-
tónleikaröðinni en það er Latíntríó Tómasar R. Ein-
arssonar sem ríður á vaðið á sunnudaginn kemur.
Auk tríósins koma meðal annarra fram í sumar Ólöf
Arnalds, Bergþór Pálsson, Signý Sæmundsdóttir, Anna
Guðný Guðmundsdóttir og fleiri.
Hluti af heimilislífinu
Halldór Laxness var sem kunnugt er mikill áhugamað-
ur um tónlist og tónlistarflutning.
Hann lék sjálfur á píanó og hafði sérstakt dálæti á tónsmíðum J.S. Bach.
Tónlist var alla tíð stór hluti af heimilislífinu á Gljúfrasteini, enda stóðu Hall-
dór og Auður kona hans gjarnan fyrir tónleikum á Gljúfrasteini, m.a. í sam-
starfi við Tónlistarfélag Reykjavíkur.
Tónleikar í sumar
Stofutónleikar
á Gljúfrasteini
Bergþór Pálsson