Morgunblaðið - 30.05.2007, Side 21

Morgunblaðið - 30.05.2007, Side 21
Reuters Bannað Frá 1. júní verður bannað að reykja á veitinga- og skemmtistöðum. hollráð um heilsuna | lýðheilsustöð MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 21 Þegar Helgi Zimsen hafði heyrtsjóaravísu, drykkjuvísu og hestavísu, þá orti hann: Lífs á miðum misjafnt ræ, mun þó engu kvíða. Unað get mér ef ég fæ að eta, drekka og ríða. Hálfdan Ármann Björnsson lagði út af því: Hvað sem annars kennt er, kunn er speki forn: „Allt er þegar þrennt er.“ Þetta er viskukorn. Páll Pétursson yrkir að gefnu til- efni: Helvíti er að horfa á Haarde þennan sómamann Kyssa beint á kjaftinn á kerlingu sem bítur hann. Einar Steinþórsson á Stykkis- hólmi horfði á kvöldfréttir Sjón- varps 20. maí: Á Þingvelli Haarde sig hafði í hjartanu friður og ró þá morgunsól vellina vafði og vindurinn söng bæði og hló. Þá sætustu stelpuna sá hann svo sælleg með rjóða kinn; aumingja Inga Jóna ætli hún missi sinn? Það er dýrðlegt að eiga sér drauma um dáðir og veraldarhnoss; ekki er verra að eiga sér örlagaríkan koss. VÍSNAHORNIÐ Af kossi og fornri speki pebl@mbl.is Væntanlega hefur ekki farið fram hjá neinum að hinn 1. júní nk. tek- ur gildi bann við reykingum inni á veitinga- og skemmtistöðum. Fjöl- margir eigendur hafa nú þegar annaðhvort gert staði sína reyk- lausa eða takmarkað reykingar með ýmsu móti. Þetta er gert til að mæta þörfum gesta en ekki síð- ur til að tryggja starfsfólkinu hreint andrúmsloft. Aðalástæðan fyrir reykinga- banninu er að stuðla að góðri heilsu starfsmanna með því að vernda þá fyrir óbeinum reyk- ingum. Nú er vitað að í reyknum sem myndast við bruna tóbaksins er meira af skaðlegum efnum en í þeim reyk sem reykingamaður sogar ofan í sig. Þar sem reykt er innanhúss verður reykmengun því að stærri hluta til úr hinum hættulegri hliðarreyk. Starfsfólkið í sérstakri hættu Óbeinar reykingar eru mjög skaðlegar heilsu fólks. Þær geta haft skammtímaáhrif, eins og ert- ingu í augum og hálsi, en líka al- varlegri áhrif, s.s. auknar líkur á að hjartaáfalli, lungnakrabbameini og heilablóðfalli. Óbeinar reyk- ingar eru líka sérstaklega slæmar fyrir þungaðar konur, börn, fólk með astma og öndunarfæravanda- mál og vandamál í hjarta og æða- kerfi. Starfsfólk veitinga- og skemmti- staða er í sérstakri hættu þar sem sá hópur er í reykmettuðu um- hverfi. Rannsóknir sýna að bar- þjónar sem ekki reykja eru með svipaða þéttni nikótíns í blóði og fólk sem reykir daglega. Þá sýna rannsóknir einnig að fólk sem vinnur á börum og veitingahúsum er í allt að 50% meiri hættu en aðrir að fá lungnakrabbamein. Ófædd börn þungaðra kvenna sem vinna í reykmettuðu umhverfi eru einnig í sérstakri hættu. Lítil fæð- ingarþyngd og fyrirburafæðing er algengari ef óbeinar reykingar hafa haft áhrif á móðurina á með- göngu og hættan fyrir barnið eykst eftir því sem óbeinu reyk- ingarnar eru meiri og tíðari. Niðurstöður erlendra rannsókna á heilsu og vellíðan starfsmanna fyrir og eftir bann sýna fram á að einkenni sem starfsmenn höfðu minnkuðu og heilsufar batnaði. Í rannsókn, sem gerð var í Kali- forníu, kom fram að þjónustufólk kvartaði undan óþægindum í önd- unarfærum, svo sem hósta, mæði, blístri í öndunarfærum og óþæg- indum í augum, nefi og hálsi fyrir bann. Einum mánuði eftir bannið höfðu einkenni í öndunarfærum minnkað um 60% og óþægindi um 80%. Þessar rannsóknarniður- stöður sýna að vellíðan starfs- manna eykst fljótt eftir að þeir losna við áhrif óbeinna reykinga. Landlæknisembættið óskar starfsfólki veitinga- og skemmti- staða til hamingju með að geta notið hreins lofts í vinnu sinni frá og með 1. júní. Hreint loft fyrir starfsfólk veitingastaða Efni að mestu fengið af vef Lýð- heilsustöðvar: www.lyd- heilsustod.is Anna Björg Aradóttir yfirhjúkrunarfræðingur Matthías Halldórsson landlæknir Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.