Morgunblaðið - 30.05.2007, Page 31

Morgunblaðið - 30.05.2007, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 31 SUMT er svo fáránlegt að engu tali tekur. Fáránlegt og fullkomlega óskiljanlegt. Svo fáránlegt, að við er- um hætt að taka eftir því eða reyna að skilja það. Í vor kom ég frá Færeyjum og þegar þota færeyska flugfélagsins Atlantic Airways hafði staðnæmst við kofana, sem kallaðir eru flugstöð, var farþegum tilkynnt að þeir yrðu að bíða um stund í flugvélinni. Ástæða: Það var flugvél að fara til Grænlands með 50 farþega og þess vegna var ekki pláss fyrir fáeina far- þega frá Færeyjum inni í þessari svokölluðu flugstöð höfuðborg- arinnar! Skyldi nokkur höfuðborg í veröld- inni bjóða farþegum og ferðafólki upp á þá aðstöðu sem til staðar er á Reykjavíkurflugvelli? Þeir sem þar fara um og þeir sem þar vinna verða að láta sig hafa bráðabirgða skúrasafn, sem að uppi- stöðu til var byggt af Bretum í seinni heimsstyrjöld einhverntíma upp úr 1940 og aldrei var ætlað að standa til langframa. Stendur þó enn með seinni tíma viðbótarklastri, þegar langt er liðið á fyrsta áratug tutt- ugustu og fyrstu aldar. Aðstaða starfsfólks er fyrir neðan allar hellur og illmögulegt að sinna þeirri starf- semi sem tengist því eftirliti, sem nú er talið nauðsynlegt í sambandi við flugferðalög. Um aðstöðu fyrir far- þega þarf ekki að hafa mörg orð. Hún er ekki til sóma. Víða úti um land hafa verið byggð- ar flugstöðvar, sumar lítt notaðar, því stórlega hefur dregið úr áætl- unarflugi innlands með bættu vega- kerfi. Gott ef flugstöðin á Akureyri var ekki stækkuð sérstaklega með tilliti til millilandaflugs, sem þó er stundað þaðan í mun minna mæli en frá höfuðborginni. Það hefur aldrei verið byggð flug- stöð í Reykjavík vegna þess að flug- völlurinn hefur alltaf átt að fara. En flugvöllurinn er ekkert að fara. Og þó hann fari eftir áratug eða svo þá er það engin afsökun fyrir því að reisa ekki almennilega flugstöð. Í fyrsta lagi væri þá hægt að taka húsið til annarra nota og í öðru lagi mætti þá jafna það við jörðu, ef henta þætti. Menn kaupa einbýlis- hús á 100 milljónir til þess eins að mola niður og byggja nýtt. Ef lóðir á þessu svæði eru jafn verðmætar og fjandmenn flugvallarins segja, þá ætti þetta ekki að vaxa mönnum í augum. Þingmenn landsbyggðarkjör- dæma hafa verið duglegir að koma upp flugstöðvum í sínum kjör- dæmum. Þingmenn Reykvíkinga hafa ekki haft mjög sýnilegan áhuga á flugstöð í Reykjavík. Hafi þeir reynt að vinna málinu fylgi, hafa þeir allavega ekki haft erindi sem erfiði. Kannski eru menn bara orðnir svo vanir þessu fáránlega ástandi, eða öllu heldur óstandi í flugstöðv- armálum höfuðborgarsvæðisins að það eru allir hættir að taka eftir því? Í lokin langar mig til að lýsa þeirri skoðun að allt tal um nýjan flugvöll á Hólmsheiði eða Lönguskerjum er tóm tjara. Við byggjum ekki nýjan stórflugvöll fyrir milljarða króna í 35-40 km loftlínu frá einum full- komnasta og best búna flugvelli í þessum heimshluta – Keflavík- urflugvelli. Það er svo fjar- stæðukennt, að mig furðar að það skuli yfirleitt vera til umræðu. Við eigum að láta flugvöllinn í Reykjavík í friði, breyta honum þannig að land- nýting í kringum hann verði betri, en það á að sjálfsögðu að halda áfram að fljúga til og frá Reykjavík. Kofar kallaðir flugstöð Eiður Guðnason skrifar um ástand bygginganna við Reykjavíkurflugvöll » Skyldi nokkur höf-uðborg í veröldinni bjóða farþegum og ferðafólki upp á þá að- stöðu sem til staðar er á Reykjavíkurflugvelli? Eiður Guðnason Höfundur er sendiherra. eid- urgudnason@gmail.com Jóhann Elíasson | 30. maí Náttúruverndar- ayatollar EINS og margir aðrir landsmenn horfði ég á þáttinn „Út og suður“ sunnudagskvöldið 12. júní 2005. Annar við- mælenda Gísla Ein- arssonar það kvöldið var Jón Sveinsson æðarbóndi í Mið- húsum í Reykhólasveit. Í umrædd- um þætti viðraði hann skoðanir sínar á hinum ýmsu málum en þó aðallega á þeim málum sem snertu æð- arrækt, þar sem æðarræktin er mest á hans áhugasviði og und- irstaða afkomu hans. Vil ég hrósa honum fyrir það hvað hann kom sín- um skoðunum vel og skilmerkilega á framfæri og ekki lá hann á skoð- unum sínum enda er hann ekki þekktur fyrir það. Meira: jonhanneliasson.blog.is Rúnar Kristjánsson | 30. maí Hvert stefnir með ábyrgð og annað? ÞAÐ að bera ábyrgð virðist vera mjög af- stætt hugtak í íslensku þjóðfélagi eins og það horfir við augum í dag. Við höfum séð lögmenn standa í ströngu við að bjarga forstjórum stóru olíufélag- anna frá dómi vegna hinna illræmdu samráðsmála. Þar ber víst enginn maður neina ábyrgð og lög- fræðikunnátta hefur vissulega stundum virst nægilegt framlag til að tryggja uppmálað sakleysi. Meira: undirborginni.blog.is NETGREINAR Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi • Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík • Núpur byggingavöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki • Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi • Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík • Fóðurblandan á Selfossi, Hvolsvelli og Egilsstöðum Samanburður staðfestir áratugareynslu Baldvin Már Frederiksen málarameistari Á þessum veðrunarrekka, sem stendur á bersvæði, er veðrunarþol útimálningar frá Málningu hf. og frá öðrum framleiðendum borið saman. Íslenskt veðurfar er gjörólíkt því sem er algengast í nágrannalöndum okkar og reynir mun meira á útimálningu. Mikilvægur þáttur í vöruþróun hjá Málningu er að bera saman veðrunarþol útimálningar frá okkur og úti- málningar frá erlendum framleiðendum. Við leyfum okkur að fullyrða á grundvelli þessa samanburðar að útimálning frá okkur gerir meira en að standast ströngustu kröfur um veðrunarþol miðað við íslenskt veðurfar. Íslenskt veðurfar er gjörólíkt því sem er í nágrannalöndum okkar. Áður en þú velur útimálninguna, sem þú ætlar að nota, skaltu athuga hvort hún sé gerð fyrir íslenskar aðstæður. IS L E N S K A /S IA .I S /M A L 3 78 32 0 5/ 07

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.