Morgunblaðið - 30.05.2007, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 30.05.2007, Qupperneq 37
skemmtileg veisla með góðum mat, söng og gleði. Þær létu veislugestina skrifa nöfn sín á dúka og saumuðu síðan út með ýmsum litum. Síðast- liðið sumar skoðuðum við Sigga hennar dúk og höfðum gaman af. Já, margs er að minnast og allt er það gott, sem þeim hjónum við kemur. Lengi bjuggu þau í Kópavogi og var þá mikill samgangur okkar á milli. Seinna fluttu þau til Húsavíkur og sáum við Máni mikið eftir þeim þangað, en sambandið slitnaði ekki. Við tókum oft sumarbústaði á leigu austur á landi og áttum þar margar góðar samverustundir. Einnig kom- um við oft við á Húsavík og fengum þar ætíð höfðinglegar móttökur og fylgdumst með uppbyggingunni á Mararbraut 3. Sigga var mikill fag- urkeri, algjör snillingur í höndunum bæði í útsaumi og fatasaumi. Svo spilaði hún líka á píanó, ég man hvað mér fannst hún flink þegar hún spil- aði undir þegar pabbi hennar stjórn- aði Laugamannakór á einhverri samkomu. Hún mundi nú hlæja að mér ef hún heyrði þetta. Heilsuleysi hrjáði hana mikið hin síðari ár, en hún gafst ekki upp, var dugleg að fara í sund og hreyfa sig. Einnig ferðuðust þau hjón mikið, sérstaklega innanlands, og það mætti segja mér, að það væru ekki margir staðir á Íslandi, sem þau hefðu ekki heimsótt. Í nokkrum þessara ferða vorum við með þeim okkur til mikillar ánægju. Tjaldbú- skapur var þeim Siggu og Þórhalli hugleikinn og dáðist ég oft að dugn- aðinum í þeim við slíkar aðstæður. En hér skal staðar numið. Það er hollt að hafa átt, heiðra drauma vökunætur, séð með vinum sínum þrátt, sólskinsrönd um miðja nátt, aukið degi í æviþátt aðrir þegar stóðu á fætur. (St.G.St.) Við Máni sendum Þórhalli, börn- um og fjölskyldum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við þökkum Siggu af alúð samfylgdina og biðjum henni og fjölskyldum hennar blessunar Guðs. Kristín Ingibjörg Tómasdóttir. „Ja Þórhallur, bullið í þér,“ sagði amma, hristi höfuðið og hló innilega. Við hlógum með henni og gerðum góðlátlegt grín að afa sem lét sér fátt um finnast að venju. Svo kláruðum við matinn okkar, gengum frá í eld- húsinu og hituðum kaffi. Svona stundir áttum við systur oft í hádeginu í Valbergi. Eftir matinn settist amma svo með okkur inn í stofu og sagði okkur sögur, fréttir af ættingjum eða sýndi okkur nýjasta handverkið sitt. Amma var alltaf með eitthvað í höndunum og við höfum notið góðs af því. Það líður varla sá dagur svo maður fari ekki í sokka frá henni, setji dúk á borð sem hún hefur saumað eða sitji í sófa með bróder- uðum púðum frá henni. Allt saman lék það í höndum hennar. Í okkar huga var amma alveg eins og ömmur eiga að vera. Hún var amma sem söng og fór með kvæði. Amma sem hló að bullinu í okkur. Amma sem tók okkur með í útilegur og fræddi okkur um náttúru lands- ins. Amma sem sendi sultukrukkur og nýbakaðar bollur suður til Reykjavíkur. Amma sem lét sér annt um okkur jafnt sem alla aðra vini og vandamenn. Amma sem hringdi eða sendi sms til að athuga hvernig manni gengi. Amma sem hjálpaði manni alltaf, sama hvert vandamálið var. Amma sem kenndi okkur svo margt og ef hennar hefði ekki notið við værum við fátækari manneskjur. Blessuð sé minning ömmu Siggu. Við munum alltaf sakna hennar. Guðrún Sigríður og Þórdís Edda. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 37 Atvinnuauglýsingar Hársnyrtisveinn óskast á hársnyrtistofu í miðborginni. Upplýsingar gefur Sigurpáll í síma 551 3010 eða 896 8544. Frá Pólýfónfélaginu Sagnfræðingur með áhuga á söng og menn- ingarmálum óskast til að taka saman sögu Pólýfónkórsins, sem starfaði á árunum 1958 - 1989 undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar. Fyrirhugað er að slíkt ágrip fylgi úrvali hljóð- ritana í tilefni af fimmtíu ára afmæli kórsins á næsta ári. Nánari upplýsingar gefa: Ólöf Magnúsdóttir, sími: 565 6799. Guðmundur Guðbrandsson, sími: 553 0305. Stjórn Pólýfónfélagsins. Fiskeldi Fiskeldisstöðin Laxeyri ehf. óskar eftir að ráða fiskeldisfræðing eða mann með áhuga á fiskeldi. Laxeyri er staðsett í 60 km fjarlægð frá Borgar- nesi og sérhæfir sig í framleiðslu á náttúruleg- um laxaseiðum til sleppingar í ár og vötn. Nánari upplýsingar gefur stöðvarstjóri í símum 435 1380 og 848 2245 og laxeyr@emax.is. Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Afmæli Bandalag kvenna í Reykjavík, BKR, heldur upp á 90 ára afmæli sitt miðvikudaginn 30. maí. Móttaka verður í Höfða fyrir stjórnarkonur, formenn aðildarfélaga og nefndaformenn frá kl. 17.00 til kl. 18.30. Afmælisfundur hefst síðan í fundarsal Hallveigastaða kl. 9.00 með hátíðadagskrá: Veislustjóri: Þórey Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður Bandalags kvenna í Reykjavík. Ávörp: Ingveldur Ingólfsdóttir, formaður Bandalags kvenna í Reykjavík. Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi ráðherra. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fjölmiðlakona. Tónlistarflutningur: Nanna María Cortes syngur við undirleik Krystynu Cortes. Aðalsafnaðarfundur Lágafellssóknar Aðalsafnaðarfundur Lágafellssóknar verður í kvöld, miðvikudaginn 30. maí klukkan 20:00, í safnaðarheimilinu í Þverholti 3. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefnd Lágafellssóknar. Aðalfundur Búmanna Aðalfundur Búmanna hsf. verður haldinn á Grand Hóteli Reykjavík, Sigtúni 38, fimmtu- daginn 14. júní kl. 17.00. Fundurinn verður í sal hótelsins er nefnist Hvammur. Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins. Framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins flytur stutt ávarp. Stjórnin. Húsnæði óskast Norska sendiráðið óskar eftir að taka á leigu í 101, 105 eða 107 Reykjavík einbýlishús, raðhús eða stóra íbúð með a.m.k. 4 svefnherbergjum og aðgangi að bílskúr/bílastæði. Leigutími frá júlí/ágúst nk. og leiga til þriggja ára. Vinsamlega sendið skriflegar upplýsingar og tilboð til Norska sendiráðsins, pósthólf 250, 121 Reykjavík, netfang: embrek@mfa.no. Kennsla Skólaslit Skólaslit og afhending einkunna verða í Kirkju- hvoli í dag miðvikudaginn 30. maí kl. 17.30. Skólastjóri. Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Hlíðarvegur 33, fnr. 211-9865, Ísafirði, þingl. eig. Magnús Guðmundur Samúelsson, gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær, föstudaginn 1. júní 2007 kl. 11:00. Ránargata 8, fnr. 212-6551, Flateyri, þingl. eig. Hrefna Björg Waage Björnsdóttir og Guðjón Svanur Hermannsson, gerðarbeiðendur Dýralæknaþjónusta SISVET ehf og Vátryggingafélag Íslands hf, föstudaginn 1. júní 2007 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 29. maí 2007. Til sölu Bækur til sölu Njála 1772 fyrsta útg., Old nordisk ordbog EJ 1863, Maríusaga, Strandamenn, Nokkrar Árnesingaættir, Ættir Síðupresta, Svarfdælingar no 1, Íslenskir annaler intil 1578 LP., Horfnir góðhestar 1-2, Rangvellingabók 1-2, Keldur, Rangárvellir, Stokkseyringasaga 1-2, Nú-nú St.Þ., Fremrahálsætt 1-2, Úr fylgsnum fyrri alda 1-2, Íslensk myndlist 1-2 Bj.Th., einnig ýmsar listaverkabækur. Upplýsingar í síma 898 9475. Tilboð/Útboð Frystiklefi Vinnslustöðin hf. Vestmannaeyjum óskar eftir tilboði í frystikerfi fyrir frystigeymslu, 2000 m², sem fyrirtækið ætlar að byggja í Vestmanna- eyjum. Tilboðið felur í sér alla hönnunarvinnu, vélar, lagnir, raf- og stjórnbúnað, uppsetningu, raf- lagnir, gangsetningu, prófanir o.fl. Verkinu skal að fullu lokið 21. des 2007. Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofu Páls Zóphóníassonar ehf., Kirkjuvegi 23, Vestmannaeyjum, frá og með miðviku- deginum 30. mai 2007. Tilboð merkt „frystikerfi“ skal skila á Teikni- stofu P. Z., Kirkjuvegi 23, Vestmannaeyjum eigi síðar en fimmtudaginn 14. júní 2007 kl.14.00 og verða opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Uppboð Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Ysta-Bæli, eh.gþ., Rangárþingi eystra, lnr. 163694., þingl. eig. Sigurður I. Sveinbjörnsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, mánudaginn 4. júní 2007 kl. 14:15. Ystabæliskot, eh.gþ, Rangárþingi eystra, lnr. 163695, þingl. eig. Sigurður I. Sveinbjörnsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, mánudaginn 4. júní 2007 kl. 14:00. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, 29. maí 2007. Kjartan Þorkelsson, sýslumaður. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Brúnalda 3, Rangárþing ytra, fnr.225-8445, þingl. eig. Gljúfurá ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Rangárþing ytra, þriðjudaginn 5. júní 2007 kl. 13:30. Gilsbakki 21, Rangárþing eystra, fnr.193311, þingl. eig. Eikarás ehf, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður starfsm. Kópavogs og Rangárþing eystra, þriðjudaginn 5. júní 2007 kl. 11:45. Gilsbakki 8a, Rangárþing ytra, fnr.228-7347, þingl. eig. Gljúfurá ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 5. júní 2007 kl. 11:30. Svínhagi H-42, Rangárþing ytra, lnr.198142, þingl. eig. Þ.A.G ehf, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf, þriðjudaginn 5. júní 2007 kl. 15:15. Svínhagi H-43, Rangárþing ytra, lnr.198143, þingl. eig. Þ.A.G ehf, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf, þriðjudaginn 5. júní 2007 kl. 15:00. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, 29. maí 2007. Kjartan Þorkelsson, sýslumaður. Félagslíf Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Atvinnuauglýsingar sími 569 1100 Raðauglýsingar sími 569 1100  Fleiri minningargreinar um Sig- ríði Pálsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dög- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.