Morgunblaðið - 30.05.2007, Qupperneq 42
Verður kannski
bráðum farið að selja
inn á tónleika með Presley
og Janis Joplin?… 43
»
reykjavíkreykjavík
Hljómsveitin
Sign er ein 15
hljómsveita sem
flytja þekkt lög í
nýjum búningi á
diski sem fylgir
næsta Kerrang!-
tölublaði. Sign endurgerir Skid
Row-lagið „Youth Gone Wild“ en
aðrar sveitir eru m.a. Lost Prop-
hets, Gallows, Bullet For My Val-
entine og Funeral for a Friend.
Sign kemur fram á tvennum tón-
leikum á Íslandi á næstunni.
Fimmtudaginn 31. maí koma þeir
fram á útitónleikunum Hafnafjörð-
ur rokkar en föstudaginn 1. júní
halda Sign síðan tónleika á Amst-
erdam.
Sign tekur Skid Row á
næsta Kerrang!-diski
Katrín Péturs-
dóttir, myndlist-
armaður og
hönnuður, hefur
verið valin til að
hanna vegg-
spjald fyrir
Montreux Jazz-
hátíðina sem
fram fer í Sviss
dagana 6.–22. júlí næstkomandi.
Hátíðin er ein þekktasta djasshátíð
í heimi og var fyrst haldin árið 1967
en fer fram ár hvert í Montreux við
rætur Alpanna í Sviss. Katrín er
önnur konan sem hannar plakat há-
tíðarinnar á eftir Nicky de Saint
Phalle árið 1984. Aðrir þekktir
listamenn sem skreytt hafa vegg-
spjald hátíðarinnar eru R. Combas,
David Bowie, Max Bill, Andy War-
hol og Keith Harring. Margvíslegur
varningur verður gefinn út af til-
efni hátíðarinnar skreyttur af Katr-
ínu, m.a. mun fyrirtækið Moleskine
sem framleiðir hinar þekktu skrif-
bækur gefa út sérstakt eintak með
hönnum Katrínar. Meðal þeirra
sem koma fram á hátíðinni í ár eru
Motörhead, Chemical Brothers,
Heraman Dune, The Good, the Bad
and the Queen og Beastie Boys.
Fetar í fótspor Andy
Warhol og David Bowie
Í tilefni af því að í sumar eru 25
ár frá því Purrkur Pillnikk lagði
upp laupana á Melarokkhátíðinni
hefur nú verið sett saman hljóm-
sveitin P.P. sem sérhæfir sig í að
flytja lög hinnar dáðu pönksveitar.
Minningartónleikar um Purrkinn
verða haldnir í ágúst en föstudag-
inn 1. júní verður boðið upp á smá
forskot á sæluna þegar P.P. hita
upp fyrir Diktu á Menningarhátíð
Grand Rokks.
Purrks Pillnikks
minnst á Grandinu
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Á DÖGUNUM birtist pistill eftir greinarhöfund
þar sem yfirvofandi dauði kassettunnar var
harmaður. Í kjölfarið höfðu þeir Logi Höskulds-
son og Þórður Hermannsson samband og upp-
lýstu syrgjanda um að þeir hefðu ekki alls fyrir
löngu gefið út kassettu, deilikassettu eða „split“,
þar sem þeir ættu sína hliðina hvor. Það er ekki
laust við að vottur af fortíðarþrá hafi hellst yfir
mig þegar ég svo handlék gripinn. Hér er um að
ræða háklassa heimaiðnað og umslagsmyndir,
sem eru frumstæðar, næfar og klasturslegar,
eru handlímdar á frekar tötursleg plasthylki.
Spólurnar sjálfar eru gamlar uppáteknar kristi-
legar spólur sem strákarnir fundu þegar Grape-
vine-blaðið stóð í húsnæðisflutningum.
„Nýjar óáteknar spólur eru rándýrar,“ út-
skýrir Doddi. „300 - 400 kall.“ Á sumum kass-
ettunum má svo heyra í glaðværum trúboðum
þegar tónlist Loga og Dodda (eins og Þórður er
kallaður) er á enda. Tónlistin sjálf spillir ekki
fyrir, uppfull af áreynslulausum, þekkilegum
melódíum sem minna stundum á Belle and Seb-
astian en auk þess er róið á ögn sýrðari mið, og
skaut nafn Ariels Pinks ósjálfrátt upp kollinum.
Tuttugu eintök hafa verið framleidd, nokkuð
sem þeir félagar sjá sjálfir um með hjálp græju-
samstæða sem enn skarta segulbandstækjum.
Ferlið í kringum kassetturnar er því „lo-fi“ alla
leið.
Sjarmi hins „ófullkomna“
Þeir Logi og Doddi eru báðir fæddir árið 1987
en tveimur árum síðar toppaði kassettusala í
heiminum. Þórður er þekktastur fyrir veru sína í
sveitinni Heróglym en Logi er í Sudden Weather
Change og We Painted The Walls. Báðir taka
þeir líka upp efni undir eigin nafni. Þeir kynnt-
ust fyrst af einhverju viti fyrir einu og hálfu ári
og fóru að senda lög sín á milli í gegnum Netið.
Þeir lýsa því að þeir séu það ungir að þeir hafi
ekki einu sinni átt kost á að vera nostalgískir í
garð kassettunnar, ólíkt greinarhöfundi (sem er
fæddur 1974).
„Við vorum miklu fremur að uppgötva kass-
ettuna,“ segir Logi. „Við fórum að hlusta á tón-
list af einhverju viti í kringum 2000 og erum því
stafrænir alla leið. Það að mismunandi form hafi
verið að bítast um markaðsstöðu (vínyll, kas-
setta, geisladiskur) er eitthvað sem við könn-
umst ekkert við.“
Segja má að hrein fagurfræði hafi rekið þá í
faðm kassettunnar. „Hljómurinn höfðar til okk-
ar, hann er hlýrri en þessi stafræni,“ segir
Doddi. „Það var alger uppgötvun að heyra í tón-
listarmönnum sem eru að gera frábæra hluti,
þrátt fyrir takmarkaðan tækjakost eða hljóm-
gæði. Þessir hlutir gefa tónlistinni ákveðinn
sjarma og gildi sem eru eðlilega ekki í tónlist
sem er tekin upp við „góð“ skilyrði.“
Áhrifavaldar í þessum efnum eru t.d. Lou Bar-
low, Daniel Johnston („við sáum heimildamynd-
ina um hann og sáum strax að þetta væri okkar
maður“), Broken Social Scene („það er eitthvað
við hljóminn hjá þeim“) og áðurnefndur Ariel
Pink („hann á mikið í þessari spólu“). Pink þessi
hefur gefið út býsnin öll af kassettum en það var
ekki fyrr en meðlimir sýrusveitarinnar Animal
Collective komust yfir brenndan disk með verk-
inu The Doldrums (Haunted Graffiti 2) að nafn
Pinks tók að birtast í tónlistarmiðlum. Fyrirtæki
Animal Collective, Paw Tracks, gaf The Doldr-
ums … út árið 2004 og hefur Pink öðlast „költ“-
vinsældir í kjölfarið.
„Það stóð alltaf til að gefa út svona „split“,“
segir Logi. „Við erum mjög hrifnir af slíkum
plötum. Upprunalega átti þetta að vera geisla-
diskur en kassettan er eiginlega betri í svona
lagað, er í raun hið fullkomna „split“-form. Þú
hlustar á tónlistina mína, snýrð spólunni svo við
og sjá; þú ert farinn að hlusta á Dodda. Á tíma-
bili ætluðum við meira að segja að láta hvora
hlið enda með sameiginlegu lagi, svona til að
marka að hlið hins væri að hefjast.“
„Rec“ og „Play“
Tónlistina tóku þeir upp stafrænt og Doddi
spilaði sitt efni t.d. beint inn á Makkann sinn. Af-
raksturinn var svo brenndur á disk, og efnið
flutt þaðan yfir á kassettur í gegnum græju-
samstæður með því að ýta einfaldlega á „rec“ og
„play“.
„Við gáfum þetta út í desember síðastliðnum,“
segir Doddi. „Viðbrögð fjölmiðla létu á sér
standa og við ímynduðum okkur þess vegna að
blaðamenn væru hlaupandi út um allan bæ að
redda sér kassettutækjum til að geta hlustað. En
ætli það hafi verið svo gott.“
Þeir félagar ætla ekki að láta hér við sitja í
þessum deilingarfræðum. Stefnan er næst tekin
á annað form sem á líkt og kassettan undir högg
að sækja, nefnilega vínylinn.
Morgunblaðið/RAX
Sérstakir Af fagurfræðilegum ástæðum einungis notast þeir félagar Logi og Þórður við kassettuna. Næst verður það vínillinn.
Kassettustrákarnir
Logi Höskuldsson og Þórður Hermannsson uppgötvuðu töfra kassettunnar
» „Við fórum að hlusta á tónlistaf einhverju viti í kringum
2000 og erum því stafrænir alla
leið. Það að mismunandi form
hafi verið að bítast um markaðs-
stöðu (vínyll, kassetta, geisla-
diskur) er eitthvað sem við
könnumst ekkert við.“
Spólurnar má nálgast í 12 tónum og á eftirfarandi
vefsetrum:
-myspace.com/lojihos
-myspace.com/doddolfur